Dagskrá - 13.07.1897, Page 4
44
Uppeldi Jesúmúnka.
(Sbr Kringsjá.).
(Niðurl.)
Einn mánuð fyrsta árið verður hver sveinn að gang-
ast undir það sem kölluð er »einveran langa». Þá eiga
þeir að biðja .ög hugsa. Fimm sinnum á dag gefur
gæslumáður sveinanna þeim einhver umhugsunarefni.
Fyrstu dagana eru verkefnin þessi: sköpun mannsins,
fuHkoninun sköpunárverksins, syndin og afleiðingar henn-
ár og loksins dauðinn, dómurinn, hinmáríki og helvíti.
Síðari hluta einverntímans, er það ríki Krists, holdtekja
háns, fæðing og líf á jörðunni. I fjóra daga hugsa þeir
lím þínu hans og dauða og í tvo eða þrjá dagana síð-
ustii um upprisu hans og himnaför. Við og við fá þeir
»frí« til þess að styrkja og æfa líkamann.
Hlýðni ér álitin móðir allra dyggða meðal Jesiimunka
°g gjöra þeir því allt, sem hægt, er til þess að venja
unga menn á hlýðni. Þegar þessi reynslutími er úti,
breytist að nokkru starf jesúmunka. Þá verja þeir styttri
tíma á dag til guðsþjónustu. Þeir læra mál, mrelsku-
fræði, rökfræði, sálarfræði, guðfræði o. m. fl. Auk fyr-
iríestra, sem retíð eru haldnir á latínu, verða stúdentar
éinnig að taka þátt í kappræðum. Professorarnir til-
néfna einhverja tvo stúdenta, sem eiga að gjöra athuga-
semdir við það, sem kennt er, annaðhvort eptir ritum
eða frá 'eigin brjósti.—
I !ok tvéggja hinna fyrsu ára verða stúdentar að
taka afarþungt próf í því, sem kennt hefur verið og
eptir þrjú ár verða þeir að taka próf í öllu, sem þeir hafa
lært (eins því, sem þeir hafa tekið próf í áður.) Ept-
ir það fara þeir að kenna. Þrem árutn síðar geta þeir
orðið prestar, eru þeir þá vanalega 34—35 ára gamlir.
Eptir að prestsvíxlan hefur fram farið, verða þeir að
takast á hendur ýms af hinum lítilfjörlegustu daglegu störf-
um. Áhrif þau, er Jesúmunkar hafa á meðal kaþólskra
manna, eru mikil at þremur ástæðum: fyrstaf því, hve mjög
þeir vanda valið við upptöku nýrra mcðlima; í öðru
lagi upþeldinu og í þriðja og helsta lagi hinni takmarka-
lausu hlýðni.
»Vesta« kom í dag frá Middlesbro með 15 farþega;
— allt útlendir ferðamenn.
Skólaskipin ensku, þau sömu sem komu hjer
í fyrra, kváðu aptur eiga að heimsækja Faxaflóa og
höfuðstaðinn innan fárra daga.
Grein Dagskrár um ráðgjafaábyrgðina eptir
Valtýs-frv., í gær, hefur vakið mikið umtal. Lögfræð-
ingarnir kváðu vera sammála um, að slcoðun blaðsins í
því máli sje keiprjett.
Góður varningur! Góð kjör!
Stórt úrva’ af úrurn, úrkeðjum
Og „Kapselum“ og fleira er við kemur iðn
minni.
Enn fremur
Singers-stál-saumavje!ar
og aðrar ódýrari með kössum og án þeirra.
Lax veíða-áíröld af ýmsum gerðum, svo
sem:
Stengur,
hjól,
hjólfæri,
,,for-snúrur“,
önglar og flugur.
Með hverju póstskipi koma nýjar birgðir í stað
þeirra, er selst hafa, og þá opt um leið eitthvað
NÝTT.
Pantanir eru afgreiddar svo fljótt og vel sem kost-
ur er n.
lírviðgerðir
fljótt og vel af hendi leystar.
Athugið að upptaldir munir eru
hvergi ódýrari.
Pjetur Hjaitested.
Ódýrar skemmtibækur
o y
Skólabækur
eru
tll SÖlUL
hjá Einari Gunnarssyni.
í. Tjariiargötu 1.
Tvö e@a þrjú Iierbergi, í miðjum ba n-
um, ásamt eldhúsi og dálitlu geymsluplássi, óskast til
leigu fyrir 1. október. Ritstj. vísar á.
Ábyrgðarmaður: Einar Benediktsson.
Prentsmiðja Dagskrár,