Dagskrá

Issue

Dagskrá - 15.09.1897, Page 3

Dagskrá - 15.09.1897, Page 3
247 lag vort, höfum vjer fastráðið að reisa skorður gegn hinni vaxandi víndrykkju sem á sjcr stað meðal lands- búa, með því á tímabilinu frá I. júní 1864, til sama tíma 1869, gjörsamlega að hætta allri útsölu áfengra drykkja, t. a. m., Alcohol, Spiritus víni, Brennivíni, Aquavit, Mavebitter, Armagnac, Cognac, Wiskhy, Gen- evre, Rommi, Arrak, Liqveur, Cordial, Extract, Kirse- bær og aldinabrennivín, eða hverju nafni sem nefndir eru, óblandaðir og blandaðir, áfengir drykkir, og sem eru sterkari en 4 stig á Spendrupsmæli, hvar á móti vjer áskiljum oss frjálsa útsölu á víni, mjöð og öli, að með töldu Ale og Porter. Þannig að sjerhver sá, sem breytir gegn þessu, ann- aðhvort með því að selja, veita eða gefa úr versl- unarbúð sinni, garði, geymsluhúsi eða skipi, á nefndu tímabili, ofan talda áfenga drykki, hvort heldur það er mikið eða lítið, sæti í fyrsta skipti 500 rd. fjárútlátum, eníannað sinn iooord., og í hvert sinn sem aptur er brotið tvöfaldast, hverjar bætur sá eignast að helmingi, sem gjörir brotið uppvíst, enda þótt hann sje sjálfur kaupandinn, en hinn helmingurinn hverfi til ekkna og barna þeirra fiskimanna og sjófarenda, er drukknað hafa í sjó á suðurlandi, eða einhverrar annar- ar stofnunar, er undirskrifaðir kaupmenn með atkvæða- fjölda ákveða. Þeir áfengu drykkir sem finnast hjá hinum seka verða ónýttir. „Hið ófannefnda þó með því skýlausa skilyrði, að stjórnin, eptir að hafa öðlast álit alþingis, gjöri í tæka tíð eptirritaðar ákvarðanir gildandi: 1. Að gufuskipið Arcturus, eður hvert annað skip, sem kemur í þess stað, sem póstskip, skyldist til í farmskránni (Cortepartiet) frá 1. okt. 1863 til 1. júní 1869, ásamt með útgjörðarmanni, skipherra og stýrimanni, að flytja enga áfenga drykki til hafna eða verslunarstaða suðurlands, sem varða skal sömu útlátum og hegningu, ef út af er brugðið, eins og kaupmenn hafa lagt á sjálfa sig. 2. Að frá 1. jan. 1864 til 1. júni 1869 sje settíhvert íslenskt leiðarbrjef sú ákvörðun, að enginn á skipi megi selja eða veita eða í land flytja, eða nokkur annar í Sunnlendingafjórðungi, neins konar áfenga drykki, að viðlögðum áðurgreindum sektum. 3. Að ekkert nýtt leyfisbrjef fyrir því að meiga versla verði útgefið, nema því að eins, að hlutaðeigendur gangist undir nefnt samkomuiag kaupmanna. 4. Að gestgjöfum og veitingamönnum i Sunrilendinga- fjórðungi frá 1. júní 1864 til 1. júní 1869 verði bannað, að selja, gefa eða veita áfenga drykki, að viðlögðum sömu fjárútlátum sem áður er sagt 5. Að lifsalanum verði bannað, vilji hann ekki ganga í fjelag þetta, að selja Spiritus vini, Alkohol eða Ma- vebitter, öðruvísi en í smáskömtum, og eptir læknis- ráði sem meðal, eða að tilhlutan yfirvalds, til ein- hverrar sjerlegrar brúkunar í blöndunarfræðislegti- eða handiðnalegu tilliti, og það því að eins, að það sje áður gjört ódrekkandi. 6. Að yfirvöldum sje gefið vald til að veita kaup- mönnum skjóta og örugga aðstoð til framkvæmda áðurnefndra ákvarðana. 7. Að sumarið 1867 sje kosin nefnd manna af em- bættismönnum og kaupmönnum, til þess eptir þá orðinni reynd, að hugleiða hvað gjöra skuli í þessu efni eptir 1. júní 1869. 8. Að hinar ofan nefndu ákvarðanir einnig nái til hinna fjórðunga landsins, jafnframt og kaupmenn, er þar versla, hafa í einu hljóði gengið í þetta fjelag". Af þessum línum sjest það glögglega, liversu langt kaupmenn fyrhafaverið á undan verslurunum nú á dögum. Auðvitað hafa einstakir kaupmenn ætlað að bindast samtökum í líka átt, eigi alls fyrir löngu, en þeir voru einungis í einum kaupstað, á Akranesi. _ Þá vildu allir Akranesskaupmenn hætta gjörsamlega áfengisverslun nema eigandi einnar verslunarinnar; það mun hafa ver- ið Thomsens verslun, hún stóð þá í vegi fyrir því, að þessi þarflega breyting kæmist á og hún hefur einnig staðið í vegi fyrir því hjer í Reykjavík. Þótt þessi breyting kaupmanna 1862, ekki hefði framgang, fyrir einhverjum einstökum öfugugga, þá lýs- ir hún samt almennari áhuga á þessu máli meðal kaup- manna, en nú á sjer stað, Vjer bindindismennirnir eigum að láta almenning vita, hvert einasta atvik sem gjört er til þess að hrinda máli voru áleiðis, en vjer eigum einnig að draga þá fram á sjónsviðið hlífðarlaust, er vinna að glötun og apturför þjóðarinnar, hvort sem þeir eru innlendir eða útlendir, hvort sem þeir eru jafningjar vorir eða herrar, hvort sem þeir cru vinir vorir og frændur eða oss al- veg óviðkomandi; vjer eigum alls ekki að hlífast við, að auglýsa nöfn þeirra, hvort sem þeim líkar betur eða ver; vjer eigum ekki og megum ekki kaupa oss frið hjá þeim, með því að þegja, eða mæla þvert á móti því, sem vjer hugsum, og þeir mega eiga það víst, þeim er óhætt að trúa því, að vjer hættum ekki fyr, hvort sem þess verður langt eða skammt að bíða, en að vínsala verður ekki talinn heiðarleg atvinna; vjer hættum ekki fyr, en að allir sem að henni vinna verða taldir meðal allra — allra verstu andstæðinga allra framfara, allrar mannúðar. Vjer hættum aldrei fyr, en vínsala og vínveiting verður talin með verstu glæpum; með öðrum orðum, hún verður talin J að sem hún er, í raun og sannleika. Sig. Jíil. Jóhannesson.

x

Dagskrá

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagskrá
https://timarit.is/publication/153

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.