Dagskrá

Ataaseq assigiiaat ilaat

Dagskrá - 25.09.1897, Qupperneq 4

Dagskrá - 25.09.1897, Qupperneq 4
s8o tekið upp önnur íslensk í staðinn eða lagað þau eptir íslensku máli og jeg þykist fullviss um að enginnmuni þess eitt einasta dæmi; en hvernig stendur þá á því að íslendingar geta ekki fylgt hinni sömu reglu, þegar þeir setjast að annarsstaðar? hvernig stendur á því að þeir geta ekki haldið nöfnum sínum óbreyttum eins og allir aðrir menn gjöra? Hversvegna þurfa þeir að kalla sig Wilhelm og Paul, Peter og Svend, þótt þeir komi til annara landa? Það hlýtur að vera af því, að þeim' þykir það eitthvað fínna eða af því, að þeir vilja al- gjörlega eyða allri minningu um það að þeir hafi nokkru sinni verið á íslandi og þetta er svo ríkt hjá þeim, að þeir taka ekki upp hin rjettu nöfn sín þótt þeir flytji hingað aptur; þykjast jafnvel ekki skilja þá sem tala við þá og nefna þá rjett. Þeir þykjast ekki mega brjóta á móti reglum hins útlenda máls með því að skrifa og nefna nafn sitt á íslensku, en þeir víla ekki fyrir sjer að ganga fram hjá öllum reglum sinnareigin tungu og nefna sig ýmsum ónöfnum þegar þeir hverfa heim aptur. Hvernig á að fara að lækna þessa íslensku apa- ketti ? Sig. Júl. Jóhannesson. Gufuskipið EGILL kom í gær af Austfjörðum með 2—3 hundruð farþega, flest verkafólk að austan. Fiskilitið er sagt þar eystra og síldafli nálega enginn. Með Agli kom Skapti ritrtjóri Jósefsson, cand. jur. Marino Hafstein og fl. Nýtt blað er komið út á ísafirði; það heitir »Haukur« og er gefið út af hr. Stefáni Runólfssyni, prentara. Fiskimærin. Eptir Björnstjerne Björnson. (Framh.). Það var komið kveld og niðamyrkur, þegar skip- það er flutti Petru varpaði atkerum á höfninni í Berg- en. Petra reikaði eins og drukkinn maður þegar hún fór niður í bát skipstjórans, bátnum var róið í land á milli ótal skipa, er lágu á höfninni. Þegar í land kom var bryggjan alskipuð fólki. Skipstjórinn fylgdi Petru í gegnum mannþröngina þangað til þau komu að litlu húsi snotru; þar kom út kona, sem skipstjórinn bað fyr- ir Petru og veitti hún henni viðtökur með hinni mestu alúð. Hún fygldi henni inn, gaf henni að borða og leiddi hana til sængur. Daginn eptir vaknaði hún um hádegi. Það var allt nýtt í kring um hana; málið var nýtt og töluvert ólíkt því sem hún hafði vanist, og framburður- inn á því sömuleðis, og þegar hún lypti tjöldunum frá gluggunum, var útsýnið alveg nýtt, hún þekkti ekkert sem fyrir augum bar, hvorki dautt nje lifandi. Henni varð litið litið í spegil, sem hjekk á þilinu og henni sýndist hún sjálf vera orðin ný — hún gat naumast trúað því að þetta væri andlitið er hún hafði sjeð þegarhún leit í spegil áður. Hún gat ekki gjört sjer glögga grein fyrir mismuninum, en hún var orðin breytt. Hún vissi það ekki að stúlkur á hennar aldri verða miklu fegurri og tiikomumeiri, þegar þær hafa mætt einhverju mótdrægu og þungbæru eða yfir höfuð öllum mikl- um geðshræringum. En þegar hún stóð frammi fyrir speglinum datt henni ósjálfrátt í hug, allt það sem fyrir hana hafði kom- ið hina síðustu daga, og það fór hrollur um hana þeg- ar hún hugsaði til þess. Hún flýtti sjer því í fötin og út úr herberginu til þess að reyna að hrinda frá sjer öllum döprum hugsunum með því að skoða það, sem fyrir augun bæri í þessum nýja stað, þar sem hún hafði ekkert sjeð áður. Þcgar hún kom út hitti hún husmóð- urina og fleiri konur, sem skoðuðu hana frá hvirfli til ilja og lofuðu henni því næst að sýna henni allt, er hana langaði til að sjá og reyna til að láta henni ekki leiðast. Fyrst kváðust þær skyldu fylgja henni um borgina til og frá. Hún þurfti þð kaupa ýmislegt og hljóp því inn í herbergið er hún hafði sofið í, til þess að sækja veskið sitt, en hún fyrirvarð sig að hafa með sjer svo stórt veski og opnaði það því til þess að taka úr því peningana. Hún ætlaði að taka hundrað dalina hans Ohlsens, en þegar hún gætti að, voru þeir þrjú hundruð. Nú hafði Pedro Ohlsen aptur gefið henni pen- inga þvert á móti vitund og vilja móður hennar. Hún var ekki vön að hafa mikla peninga undir höndum, og hafði því óljósa hugmynd um, hversu miklir peningar þetta voru í raun og veru og þess vegna hafði það ekki eins mikil áhrif á hana og ella mundi verið hafa. Pedro bjóst við þakklætisbrjefi frá Petru, en það fór á annan veg. Gunnlaug sendi honum brjef, er hún hafði fengið frá Petru, þar sem hún segir móður sinni frá því, að Pedro hafi svikið inn á sig meiri peninga en um hafi verið talað. Þegar Petra fór að skoða sig um í borginni, fannst henni mikið um það hversu náttúran var þar stórskorin og hrikaleg. Henni fannst fjallið vera langt of nærri rjett eins og það þreyngdi svo að henni að hún gæti tæpast dregið andann og hana langaði til, að bægja því frá sjer með hendinni. Stundum sýndist henni allt vera svo dapurt og þunglyndislegt og minna sig á allar hörm- ungar hins Iiðna tíma. Fjallið var dökkt og sveipaðsvörtum skuggum; skipin huldu efri hluta þess dimm og drunga- leg. Vindurinn söng einhvern grimmdaróð, sem hún ekki skildi, en þóttist þess fullviss að það boðaði sjer

x

Dagskrá

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagskrá
https://timarit.is/publication/153

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.