Dagskrá

Útgáva

Dagskrá - 25.09.1897, Síða 5

Dagskrá - 25.09.1897, Síða 5
281 einhverja óhamingju; enginn tók eptir þessu, eða þýddi það á líkan hátt og hún. Allir voru glaðir og kátir og miklu meira líf og fjör var í þessari borg, en Petra hafði þekkt heimaí hún gleymdi því smámsaman raunum sínum, því allir voru henni góðir eins og bestu bræður og systur. Þegar hún gat þess yfir borðum, daginn eptir að hún kom, að sjer þætti skemmtilegast að vera þar, sem margt fólk væri saman komið, þá sögðu menn að hún skyldi fara á leikhúsið; þar væru mörg hundruð manns í einu húsi. Það þótti henni óskaráð; það var keyptur handa henni aðgöngumiði og henni fylgt þangað á rjettum tíma. Leikhúsið var skammt þaðan sem hún bjó. Hún fjekk sæti á innsta bekk á veggsvölunum. Hún varð alveg gagntekin af allri fegurðinni; allt var lýst og upp- Ijómað; mörg hundruð manns sátu þar, og allir voru með gleðibros á vörum; áður en farið var að leika töl- uðu menn um alla heima og geima. Henni hafði aldr- ei dottið í hug, að hún mundi sjá eða heyra nokkuð þessu líkt. Ödegaard hafði auðvitað sagt henni frá mörgu, en á leikhúsið hafði hann aldrei minnst einu orð. Sjómennirnir höfðu talað um leikhús, þar sem væru villt dýr og grimmir vargar, en drengjunum hafði aldr- ei dottið í hug að tala um sjónleiki jafnvel þótt þeir hefðu sjeð þá í skólanum. I þorpinu var ekkert veru- legt leikhús. Stundum komu þangað íþróttamenn, leikarar, skilmingamenn o. s. frv., en þeir voru alltaf annaðhvort úti á skipi þar á höfninni eða úti á völlum. Hún sat steinþegjandi og spurði einu sinni ekld að nokkrum hlut; hún bjóst við að sjá þá og þegar eitt- hvert dýr t. d. úlfalda, apa eða eitthvað þess háttar og þetta var svo ríkt í huga hennar að henni sýndist smám- ! saman mennirnir er í kring um hana sátu, breytast í ýms dyr og kvikindi, svo sem hesta, hunda, tóur, ketti mýs o. s. frv. Allt í einu var eins og hún hrykki upp af draumi; hún heyrði afarmikinn söng og hljóðfæraslátt; það var samspil ýmsra hljóðfæra og slíkt hafði hún aldrei heyrt áður. Þetta hafði svo mikil áhrif á hana, að hún gleymdi næst um sjálfri sjer; ýmist var hún löðrandi í svita, ýmist varð hún náföl og fannst sem sjer rynni kalt vatn á milli skinns og hörunds. Hún kveið fyrir því að eitthvað kæmi næst líkt þessu eða verra og þó vildi hún ógjarna að það hætti. Henni fannst loptið allt ganga í bylgjum; henni heyrðust raddirnar blandast saman cg verða stundum að drynjandi fossanið. Stund- um lægði sönginn, og var eins og hinir síðustu tónar liðu burt á loptöldunum; en þegar minnst varði hófst aptur hinn margbreytti samsöngur. Ljósið varp frá sjer gulum geislum á allar hliðar. Allt í einu sá hún að veggurinn sem blasti við } henni hófst í [opt upp; hún var stödd í kirkju ineð ó- tal súlum og bugum; þar hljómaði sorgarspil og áhrifa- mikill söngur; allt var miklu hátíðlegra en hún hafði nokkru sinni gjört sjer hugmynd um að verið gæti. Tveir menn komu fram á sjónsviðið í öðruvísi búningi er hún hafði sjeð og töluðu mál, er hún ekki skildi — henni fannst þetta hljóta að vera kirkjn. Allt í einu heyrði hún talað að baki'sjer og sagt: »Sestu niðurL Hún hrökk við og leit aptur fyrir sig, en hún sá ekk- ert til þess að sitja á. Þessir tveir menn stóðu alltaf og töluðu saman; hún horfði stöðugt á þá og því leng- ur sem hún virti þá fyrir sjer, því betur sannfærðist hún um að þeir voru alveg eins búnir og mynd er hún hafði sjeð af Ólafi konungi helga, — hún heyrði það einnig glöggt, að nafn hans var nefnt. »Sestu niðurL var aptur sagt að baki hennar: »sestu niður!« kölluðu margar raddir. «Hver veit nema eitthvað sje um að vera fyrir aptan mig« hugsaði Petra, og sneri sjer við skyndilega. Hún sá framan í ótal andlit, sem lýstu gremju og reiði og sum þeirra horfðu á hana ógnar- augum. (Frh). Armenisk vísindakona. (Þýtt). I fyrra dvaldi kona ein frá Armeníu i Vlnarborg, sem hefur aflað sjer svo mikillar þekkingar 1 læknisfræði og fl. að hún stendur alls ekki að baki góðum læknum í Evropu. Kona þessi heitir Margitta Beglaríon, dóttir fursta eins og jarðeignarmanns 1 Armeníu. Þegar á unga aldri tók hana það sárt hversu landar henn- ar urðu að fara á mis við alla læknishjálp; ásetti hún sjer þvt að ráða bót á þessu að svo miklu leyti er hún framast mætti, og lagði fyrir sig læknisfræði. Hún hefur tekið próf í Bern og ætlar sjálf að veita forstöðu spítalahúsi er faðir hennar hcf- ur látið reisa á eigin kotnað með öllu tilheyrandi. Hún vill einungis hafa kvennfólk sjer til aðstoðar við sjúkrahúsið og segir að hægt sje að finna nógu margar konur í Armeníu færar til þess. Þetta vakti miKla eptirtekt og var hún boðuð tilEvropu af fjelagi einu til þess að halda fyrirlestur í Vínar- borg um armenískar konur. Hún varð við bæn fjelagsins og hjelt langan og snjallan fyrirlestur fyrir fjölda áheyrenda. Frk. Margitta Beglaríon er úr þeim hluta Armeníu, sem heyrir undh- Rússakeisara, en ekki Tyrki; þar er allur áhugi í mennta- legu og framfarálegu tilliti á miklu lægra stígi. Hún er ein- ungis 24 ára gömul, en þó hefur hún veitt svo nákvæma eptir tekt kvennþjóðinni í Evrópu að hún getur borið hana saman við armeniskar konur og hefur glögga hugmynd um allan þann mun sem er á þeim og konum í Evrópu. Hún getur lýst konunum í Armeníu frá evropisku sjónarmiði og eins evrópisku konunum frá sjónarmiði Armeníumanna.

x

Dagskrá

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagskrá
https://timarit.is/publication/153

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.