Dagskrá - 08.02.1898, Qupperneq 1
Reykjavík, þriðjudaginn 8. febrúar.
n, 88. !
Kaupendur
,Dagskrár‘
cru beðnir að afsaka að dregist hefur útkoma
þessa tölublaðs lengur en ætlast var til og
hafa valdið því veikindi í prentsmiðjunni.
Næsta tölubl. Dagskrár kemur út á
laugardaginn, en úr því kemur blaðið út einu
sinni í viku alltaf á miðvikudögum.
Kaupendur blaðsins fá til uppbótar við
þennan árgang ókeypis fylgirit:
I. Þ>ingsögu,
gagnorða skýrslu um gerðir síðasta alþingis
í helstu landsmálum með athugasemdum um
tillögur einstakra þingmanna (sem beturþótti
henta að gefa þannig út sjerstakiega og
verður byrjun hennar í Dagskrá prentuðupp
aptur) — og
II. Bókmenntii’ ás’sins,
skýrsla um ritgerðir og bækur er út hafa
komið árið 1897 með ritdómum um þær.
Útlendar fréttir.
Kmhöfn 14. Jan, 1898.
Ur Danaveldi er nú á tímum líkt og endranær
fátt og lttið að frjetta. í þinginu fer allt friðsam-
lega fram 'og talið ugglaust að fjárlögin nái sam-
þykkt enda þó sneitt hafi verið drjúgum af hin-
um áætluðum fjárframlögum til hermálanna, í
fjárlaganefndinni.
Samsöngur var haldinn í sönghöllinni (koncert-
palæinu) til ágóða fyrir holdsveikisspítala á Is-
landi af lætisveinum prófessors Rósenfelds.
Níels Finsen, læknir hjer, af íslenskum ættum
hefur verið sæmdur doktorsnafnbót fyrir fundn-
ingar sínar. Hann hefur eins og kunnugt erunn-
ið lengi að lækningum með ljósgeislum. —,
Sjera JúJíus Þórðarson, sem nú mun með fræg-
ari íslenskum klerkum, hefur dvalið hjer um nokk-
urn tíma að fyrirlagi Norðmanna til þess að kynna
sjer lífið hjer í höfuðstað Dana, nótt og nýtan dag,
einkanlega dekkri hliðarnar, sem undan ljósi vita.—
I dönsku blaði einu „Tidens Krav“, var sjera
Júlíusar minnst að því að hann hefði stigið á stokk
og strengt þess heit, að hafa Island undan Dan-
mörku og „gefa saman" Islendinga og Norðmenn,
Þýskt blað var borið fyrir fregninni.
Noregur og Svíþjód. 1. febrúar átti rtkjanefnd-
ir. að leggja tlllögur sínar fram fyrir þingin, og er
almennt álitið, að ekki muni draga til neins sam-
komulags í aðalmálunum.
England. Stórkostlegt verkfall eitthvert það
mikilfengasta, sem sögur fara af meðal vjelavinnu-
manna á Englandi. Kröfur verkmanna að vinnu-
tíminn verði ákveðinn 8 klukkutímar. — Það eru
ekki minna en 80 þúsund verkmanna, sem nú í
nærfellt 4 mánuði hafa haldið deilunni áfram ó-
slitið, og má nærri geta að stundum hefur allur
sá atvinnulausi sægur haft lítið að bíta og brenna,
þó samheldni milli vinnenda innbyrðis og örlæti
manna bæði heima og heiman hafi gert allt til
að styðja kröfur þeirra, sem talin eru mikil lík-
indi til, að verkmenn muni fá framgengt.
Á meðan þannig er ástatt heima fyrir hjá
„Jóni Bola“, hungur og ófriður í atvinnu, erhann
að hugsa um, að snara út Kínverjanum 16 mill-
jónum „upp á krít“, þó ekki án þess að þar fyr-
ir komi sá greiði af hendi Kínverja að þeir láti
opið land og sjó fyrir allar þjóðir jafnt til versl-
unarviðskipta. —
Ófriður Engla á Índíandi norðanverðu í rjen-
un sem stendur,—
Frakkland. Þar er Dreyfus efstur á blaði.
Hann var foringi í her Frakka, en var dæmdur í
haust fyrir landráð og vísað í stýju með örgustu
illráðamönnum í Cayenne í Suðurameríku. Seinna
kom upp sá kvittur að hann væri sýkn^saka, en
sá seki væri Esterhazy greifi og var þegar tekin
upp rannsókn gegn honum. Óvíst er enn allt
um hvernig því máli muni lykta, en vinir Dreyf-
us sækja sýknun hans fast, og er fremstur 1 flokki
þeirra Scheuer-Kestner. Hinn 10 desember hnöpp-
uðu frakkneskir nemendúr sig saman fyrir utan
ráðhöllina og hrópuðu óbænir yfir höfuð vina
Dreyfuss, af því verður sjeð, að ekki eru allir
hans máli fylgjandi.
Austurrlki. Þar hefur gengið mikið á út af
sambandssáttmálanum milli Austurríkis og Ung-
verjalands. Þjóðverjar hafa af öllum mætti blás-
ið að eldinum sökum þess, að þeir eru reiðir
yfir að Bæheimsmenn hafa náð ýmsum rjettind-
um sem Þjóðverjar álita þá illa að komna. —
Sáttmálinn hefur þó eptir miklar deilur og stimp-
ingar verið endurnýjaður enn um eitt ár. Badeni
greifi hefur vikið úr sessi 27. nóv., og í hans stað
kom Gautcsh greifi, kirkju- og kennslumála for-
maður, fyrverandi. —
Spánn. Við viðureign Spánverja og Kúbu-
manna eru enn skráð nokkur blöð í viðbót við
hryðjuverk og harðýðgi SpánTerja við nýlendur
sínar.
Forseti Bandaríkjanna hefur ekki að ástæðu-
lausu látið í Ijósi þá skoðun sína aó það sje öll
ástæða til þess, að Bandaríkin tæki 1 taumana,
verði ekki málum eyjarskeggja ráðið til lykta á
viðunanlegan hátt sem allra fyrst. Hið nýmynd-
aða frjálslynda ráðaneyti í Madrid lætur sjer þó
hægt með að verða við óskum hans, og allt virð-
ist benda á að Spánverjum verði nauðugur einn
kostur að segja Bandaríkj unum stríð á hendur ef
þeir eiga ekki að leggja niður einvaldsstjórn sína,
missa heiður og Kúbu í kaupbætir.
Tyrkir. Honum þykir, Hund-Tyrkjanum sem
stórveldin hafi verið óþarflega afskiptasöm um
aðfarir sfnar við Armeninga, og þó einkanlega
þjóð og stjórn Englendinga sem sendi soldáni og
stjórn Tyrkja marga hnútu, og nú er 1 orði hjá
þeim að allar þær þjóðir, Múhamedstrúarjátendur
sem óháðar eru, Tyrkir, Persar og Afghaningar,
snúi bökum saman til þess að vernda rjett sinn
og trúabrögð gegn yfirgangi Evrópumanna. —
Eptir sigurför sína á hendur Grikkjum kenna
Tyrkir styrks í hverjum köggli og finnst sjer ekk-
ert ofvaxið.
Stórveldin Ktnverjar og Japanar. Fremst í
röð þeirra ríkja sem hafa átt mök við Kínverja
er Rússland. Það var árið 1689 gerður samning-
ingur af hálfu Rússlands við »son himinsins“,
rneðal annars um það, að rússneskir kaupmenn
sem leiðarbrjef hefðu mættu reka verslun hvar
sem væri innan hins víðlenda kínverska ríkis.
— Kínverjinn rjetti einn fingur og Rússinn tók
alla hendina, því frá þeim degi hefur hann fært
sig meira og meira upp á skaptið. Árið 1891
byrjaði Rússland á að leggja Siberíubrautina og
að, henni hefur verið unnið með svo mikilli elju
að undrun sætir. Braut er nú allögð frá Wladivo-
stok til Chabarovsk við Amúrfljót hið neðra, sem
stendur í sambandi við Nertchinsk, endastöð
gufuskipaferðanna á Amúrfljóti. Frá Baikalvatni
til Nertchinsk er enn þá ólögð brautin, en þess
verður vart lengi að bíða að hún komist á og þá
má eimríða Siberíu.
Rússar hafa rekið brautlagningu þessa með
svo miklu kappi að það er öllum auðsjeð að þeim
er mikið í mun. Eins og gefur að skilja, gefa
Englendingar Rússum hornauga og una því illa
að þeir nái einir undir sig öllum yfirráðum af
verslunararði af hinu auðuga landi Kínverja. —
Englendingar hafa til skamms tíma borið mest
úr býtum allra þjóða af verslunarviðskiptum við
Kínverja, og það er síst eðli Bretans að láta taka
af sjer það sem hann einusinni hefur náð í.
Bretar hafa þó ekki farið eins kænlega að
ráði sínu þar eystra eins og Rússinn. Kínverjar
hafa hálft í hvoru haft horn í síðu bretans frá þeim
í 898.
tímum að opíumsstríðið stóð yfir, og lítt hefur
hin djarfmannlega og hispurslausa framkoma hans
við Kínverja síðan miðað til þess að deyfa óvild-
ina. — Rússinn hefur aptur á móti gengið að því
að flá Kínverja til fjár með vinabrosi og blíðlát-
um og hefur þannig eins og jafnan á sjer stað í
í »henni veröld«, komið ár sinni betur fyrir borð
með flærð og fleðuskap heldur en þeir sem ganga
hreint að.
Það eru fleiri þjóðir en Englendingar og
Rússar, sem hafa augun á Kínverjanum, því allar*
sjá þær fullvel, að þar er feitan gölt að flá, og á
hinn bóginn hafa hinar stórkostlegu framfarir Jap-
aninga á síðustu árum vakið þá spurningu í hin-
um gamla heimi, hvort ekki mundi Evrópu
standa uggur og ótti af hinum gulleitu Austur-
álfubúum. Sá ótti virðist þó vera ástæðulaus, að
minnsta kosti fyrst.um sinn og það eru flestir
stjórnmálamenn á þeirri skoðun, að fremur muni
vörn en sókn af hendi Kínverja fyrst um sinn.
— Aptur á móti er spurningin þessi: Hver á að
reita Kínverjann ?
Hinn hættulegasti keppinautur Rússa við þá
þýðingarmiklu og arðsömu atvinnu, eru ekki
Rússar heldur Japaningar.
Menntun og menning Japaninga er ef svo
mætti segja hold af holdi og blóð af blóði Kín-
verja. Báðar eru þjóðirnar af sama ættstofni
komnar, en Japaningar standa Kínverjum langt
framar að andlegu atgerfi og einkanlega hafa þeir
þann eiginlegleika 1 ríkum mæli fram yfir Kín-
verja, sem öllum framfaraþjóðum er svo nauðsyn-
legur, að geta vinsað úr það, sem gott er til sálar
og líkama sinni þjóð frá öðrum menntaðri þjóð-
um, án þess að bera fyrir borð sinn þjóðlega
blæ eða sjálfstæða hugsunarhátt.
Japaningum er ekki illa við Kínverja, þó
þeir hafi átt í ófriði. Þeir finna til þess, að Kín-
verjar eru þeim minni starfs- og eljumenn 1 orði
og á borði, og bróðurkærleikinn býður þeim að
setja Kínverjann á knje sjer og kenna honum
hvernig hann eigi að verjast árásum og yfirgangi
Evrópumanna. Jafnhliða því að Rússsr teygja
fingurna inní Ktna búa Japaningar sig undir að
taka þátt í arði og afgangi af verzluninni við Klna
með því að auka skipastól sinn, og því er svo
spáð, að þeir muni skipta með sjer bróðurlega
því, sem af Kínverjum er að hafa.
Úr brjefi frá Kaupm.höf7i.
..................................i * * •
Báglega tókst Valtý með þingrofin og er það
mál manna hjer að Rump hafi nú fyrir fullt og
allt snúið við honum bakinu, ogværi engin furða
þó hann vandaði ekki doktornum kveðjurnar. Á
hinn bóginn ætti Valtý ekki að vera óljúft að
sjá í enda allrar þeirrar smánar og pólitisku
hrakninga, sem honum hafa risið af Rumpi. Það
er bræðrabylta, enduð glíma þar sem upp var
staðið.
Mjög er doktornum þungt niðri fyrir um
þessar mundir sem ekki er furða þar sem hann
hefe.r farið aðrar eins dærnalausar hrakfarir fyrir
löndum stnum og Dönum, og er mönnum hjer
mikil forvitni á að vita hvað hann nú tekur til
bragðs, til þess að geta haldið áfram að sjá og
heyra nafn sitt nefnt í sambandi við pólitiskt
vandræðaflan ............
Enginn veit hvaða axarsköpt hann kann að
tegla, en allir vita, að hvað sem það kann að
heita verður það laust við Rump............
A aðfangadagskvöld jóla vildi það slys
til, að Þorlákur Jónsson stud. mag. frá Gaut-
löndum drukknaði í Kalkbrennsluhöfninni
svonefndri. Hafði verið þar á gangi einnsam-
an seint um kvöld og fannst á jóladags-
morgun drukknaður, skaddaður á knje, sem
talið er víst, að hafi verið afleiðingar af byltu
þeirri er dró hann til bana. —
Þorlákur var vel gefinn og hinn besti
drengur,
Læknishjerað veitt (Vopnafjörður)
settum lækni þar, læknaskólakandidat Jóni
Jónssyni (frá Hjarðarholti í Dölum).