Dagskrá - 16.02.1898, Síða 2
List eða list ekki.
Þó jeg sje ekki einna þeirra manna, sem
geta komist undir flokk »Mæcena listarinnar«
hef jeg allt af reynt að fylgja með athygli
öllum þeim tilraunum, sem fram hafa komið
f áttina til þess að geta heitið „list“ og
reynt að mynda mjer sjálfstæða skoðun a
því sem jeg hef heyrt og sjeð. En jeg hef
aldrei tekið mjer dómsvald í neinum þess
konar sökum á prenti, meðíram af því að jeg
hef fundið hversu erfitt er að dæma um ó-
fullkomnar tilraunir „barna og byrjenda í list-
um", án þess að halla rjettu máli á hvoruga
hlið.
Jeg hef lesið með athygli allt sem skrifað
stendur í Reykjavíkurblöðunum um söng og
leiklistina í handiðnamannahúsinu í vetur, og
jeg verð að játa að mjer finnst þar fáir nagl-
ar hittir á hausinn.
Aðalspurningin er eptir mínu áliti þessi:
Eru leikarar og aðrir svo kallaðir listamenn
vorir komnir svo langt á veg að það sje
gjörlegt að taka þá alvarlega, þ. e. a. s.
skoða verk þeirra öðruvísi en góðfúsar til-
raunir til þess að »stytta vor löngu vetrar-
kvöld«f
Jeg svara þeirri spurningu neitandi, að
minnsta kosti hvað sjónleikum við víkur.
Eins og allir vita er flest af leikfólki
voru meir eða minna ómenntað og hefur al-
drei sjeð annað fólk á leiksviði en sig sjálft
og ómerkilega skrípaleikendur danska, sem
hjer voru á ferð fyrir fáum árum og lítt
munu hafa tekið vorum leikendum fram.
Þessi vöntun í menntun og andlegum
þroska stingur höfðinu alstaðar fram, þó
misjafnt sje eptir því hve gott lag viðkom-
andi hefur á að „hylja“sinn sanna vanmátt
í leiknum fyrir áhorfendunum.
Þegar svo þar við bætist að þessir leik-
endur eiga að koma fram fyrir menn sem
hafa sjeð og fundið fegurð hinnar sönnu
listar og sem ef til vill horfa í smáauka á allt
sem miður fer, er þá ekki von að lítið verði
úr þ>ví góða, sem þessir leikendur hafa að
bjóða?
Reykjavík er má ske sá staður á öllu
landinu þar sem sjónleikir eiga erfiðast upp-
dráttar af öllum stöðum þar sem um slíkar
skemmtanir getur verið að ræða.
Hún er of stór til þess að slíkra skemmt-
ana yrði ekki saknað, ef þær fjellu niður,
og þó er hún oflítil til þess að geta borið
sjónleiki, sem væru vel úr garði gjörðir.
Þeir sem hafa flest skilyrðin til þess að
uppfylla þær sanngjörnu kröfur, sem gerðar
eru til þeirra sem sjálfmenntaðir eru í einhverri
list, eru eftir lögmáli sinnar náttúru og hins
ríkjanui oddborgarháttar oí „fínir", til þess að
taka höndum saman við þá af »fólkinu«, sem
eitthvað geta gert á leiksviði. A hinn bóg-
inn er bærinn ekki svo stór að fólkið geti
framleitt nógu marga nje nógu góða krapta
til þess að ekki verði, í hverjum leik sern leik-
inn er, að klína til uppfyllingar konum og
körlum, sem hefðu helst aldrei, að minnsta
kosti ekki nema einusinni, átt að koma inn á
leiksvið.
Það er ekki sjaldgæft að maður verður
að sæta því að þetta fólk limlesti og afbaki
hin algengustu orð og stafi á leiksviðinu, og
það er í rauninni hlægilegt að vera að tala
um „leiklist “ hjá þjóð sem hefur á leiksviði
höfuðstaðarins, ár eptir ár, slíka syndaseli seka
við sitt eigið móðurmál, og verðum við að
gera okkur það að góðu og klappa lof í lófa.
Það sanna er, að hjer er engin list til á
leiksviði og því mega hvorki áhorfendur nje
leikendur gleyma. Þeir sem halda hjer uppi
leikjum mega ekki vera allt of drýldnir eða
dýrir á því sem þeir gera, og hinir varkárir
til lofs og lasts.
Borgari. —
376
r
Ur póstbrjefum.
Skagafirði 20. jan.
....... Fátt er hjer talað um Valtýskuna,
enda mun flestum finnast sem er, að það sje að
raska ró framliðinna að minnast á hana framar.
— Það er óhætt að fullyrða að frá fyrstu byrjun
hefur politik hans haft sáralítið fylgi meðal bænda,
og þeir munu einnig fúsir á að gera útför henn-
ar vel og virðulega n ú þegar hún gengur veg
allrar veraldar. —1
Tíðin hefur verið hin ágætasta, og er vonandi
að skepnuhöld verði betri í vor komandi en al-
mennt gerðist síðastl. vor.
3. þ. m. fauk í ofsaveðri á austan timburhús,
er var í smiðum í Bakkakoti í Vesturdal.
Eyjafirði 24. jan.
......Það er mín óbifanleg sannfæring, að
landbúnaðurinn hljóti að verða sá atvinnnvegur,
sem arðsamastur og vissastur verður oss Islend-
ingum á komandi tímum. Það væri líka iila far-
ið ef jeg, sem er kominn af bændafólki svo langt
sem rakið verður og hef sjálfur lifað góðu lífi af
landbúnaði í þau 30 ár, sem jeg hef verið sjálf-
stæður maður, væri búinn að tapa trúnni á fram-
tíð landbúnaðarins á þessu landi. —
Oneitanlega eru margir erfiðleikar við að
stríða fyrir sveitabændur einmitt nú um þessar
mundir og þeir svo stórvaxnir, að það væri eng-
in furða þó margir misstu kjarkinn og gæfu upp
alla vörn. — Það þarf ekki annað en að líta til
þess, hvernig kjötverð og fjárverð var hjer á
landi síðastliðið ár, til þess að sjá, að það var
munur að lifa hjer á þeim árum þegar 18—20
krónur í beinhörðum peningum fengust fyrir
hvern sauð, sem seldur var. Flest framleiðsla vor
bænda er á þessu ári svo ljett og lítils metin á
vogir kaupmannsins, að það er sannkölluð kross-
ganga í hvert sinn, sem vjer þurfum að færa eitt-
hvað til torgs dautt eða lifandi. Allt þetta er þó
ekki nóg til þess, að sannfæra mig um, að Jand-
búnaðurinn sje dauðadæmdur.
Vjer eigum að læra að byggja svö land vort,
að vjer stöndum ekki nje f 'óllum með gangverði
einnar einstakrar eða jafnvel fleiri vörutegunda.
Vjer verðum að læra að koma ár vorri svo fyrir
borð og laga oss eptir kringumstæðnm heima fyr-
ir og á útlenda markaðinum þannig, að vjer höf-
um allt af eitthvað á boðstólum, sem verðmæti
hefur. —
. . . Það eru fleiri húsdýr, sem jeta gras, en
sauðkindin, og í raun rjettri þurfum vjer aldrci
að örvænta um líf vort af landbúnaðinum meðan
gras vex upp úr jörðinni. . . .
Það er mikið talað um, að ómögulegt sje að
fá vinnukraptinn, og að hann sje svo dýr, að eng-
inn reisi rönd við, sfst meðan allar afurðir eru í
svo lágu verði. Það er hverju orði sannara, að
það er Jítið um vinnukrapt í sveitum landsins, og
dýrar eru þær hendur, sem til eru. En þettaætti
að kenna oss að vera oss í útvegum um hand-
hægari verkfæri til þess að vinna með að bú-
störfum vorum, og að nota betur þann ódýra
vinnukrapt sem vjer eigum að mestu leyti ónotað-
an þar sem hestarnir eru. — Það er hlægilegt, að
Borga kaupamanni um sláttinn 2 kr. á dag auk
fæðis og húsnæðis, en láta hestana, sem lifa á
grasinu af jörðinni og sem gætu unnið fjórfailt
á við manninn ganga iðjulausa mestan hluta sum-
arsins.......Það er satt að það þarf að gera
margt áður en að hægt er að koma hjer við
sláttu- og rakstra vjelum, við heyskap, en þar sem
ekkert er við að stríða, er heldur engan sigur
að fá“. —
Úr Þingeysku brjefi 21. jan.
... íllt þykir okkur að heyra því fleygt hjer af
einstökum málaskörfum, „að nú sjeu þeir loksins
búnir að eyðileggja endurskoðunarmálið" — eins
og einn þeirra komst að orði á samkomu einni
er haldin var hjer í sýslunni fyrir nokkrum tíma
síðan. Sllkt finnst oss ekki neitt til þess að hæla
sjer af pó svo væri að þetta hefði tekist, en því
lúalegri eru þessi ummæli sem þau eru um leið
heimskuleg fram úr öllu hófi.
Þeir sem mest og best ganga fram í því að
níða þá einu fólitisku stefnu, sem þjóðin hefur
fylgt síðan stjórnarskráin kom út, eru næstum án
undantekningar utanveltumenn, er hafa orðið við-
skila fá flokki sínum, annað hvort sökum þess að
þeir hafa verið nógu fákænir til þess að láta leið-
ast af hinum pólitisku ringulríðurum, sem allt af
hafa verið til alstaðar um heim, til þess að vinna
bölvun málum síns eigin lands, eða þá að þeir
hafa verið of smásýnir og illa menntaðir til þess
að þola að beygja sig undir nokkurn flokksvilja.
En slíkir menn eru til allrar hamingju of fá-
ir til þess að geta »eyðilagt« nokkurt slíkt mál,
sem endurskoðunarmálið. Þeir geta ef til vill taf-
ið fyrir því og þeir geta jóðlað og japlað þjóð-
legri og hyggnari mönnum til ásteytingar, — en
þjóðin gengur sinn gang eins fyrir þeim og vand-
ræðabralli því, er þeir kunna að flækjast inn í
einn með öðrum af ýmsum ástæðum, er liggja
fyrir utan ærlegan tilgang og pólitiskan vilja til
þess að gjöra gagn.
[eg hygg að hægt sje að treysta því, að allur
þorri almennings bæði í Norður- og Suður-Þing-
eyjarsýslu muni vera eindregið fylgjandi endur-
skoðunarmálinu og þar með einnig fylgjandi
þeim eina flokki, sem endurskoðunarmenn geta
kallast, en það eru þeir, setn vilja halda fram
hinni svokölluðu fullkomnu endurskoðun. Jeg
fyrir mitt leyti, hef aldrei skilið hvernig hægt er,
að kippa úr endurskoðunarkröfunum neinu ein-
asta af þeim meginatriðum, sem í henni eiga að-
felast, án þess að allt um leið verði óstjórnlegur
hrærigrautur eða rjettarspillir jafnvel á þeim litla
sjálfræðisvísi, sem vjer höfum fengið með stjórn-
arskránni 1874.
Valtýsliðar hafa sýnt hve langt einfeldnin
getur komist í þá átt að leggja snörur Danastjórn-
ar sjálfviljuglega fyrir fætur vora og hinir ýmsu
aðrir utanveltu brallarar, sem stjórnarbarátta vor
hefur verið háð við síðan 1886, hafa útvegað sjer
svo óræka, sögulega vitnisburði þess, að þeir geti
ekki boðið þjóðinni neina boðlega uppástungu
til breytinga á hinu gamla endurskoðunarfrum-
varpi, að það gengi sannarlega brjálsemi næst, ef
þeir ætluðu sjer enn á ný að fara að hampa varn-
ingi sínum framan í þjóðina.
Miðlunardellan frá 1889 á sjer enga fylgend-
ur hjer, sem málsmetandi sjeu, því þó einn eða
tveir menn, sem flæktust inn í hana á sínum tíma
kynnu að hafa nokkra hvöt af andlegri eigingirni
og þrákelkni til þess að halda enn með ágæti
þeirrar ranhugsuðu og skaðlegu stefnu, þá mundu
þeir ekki þora það vegna almenningsálitsins, sem
fyrir löngu hefur kveðið upp fullnaðardóm yfir
miðlara humbuginu. Vjer höfum í þessu efni
styrka og trygga stoð hjá almenningi i Eyjafjarð-
arsýslu, sem nú hefur erít þá stöðu meðal kjör-
dæma landsins að halda best og fastast rjettu
horfi í stjórnarmáli voru, en áður en glamrarar
og kíikkumenn tóku að hafa orð fyrir Þingeying-
um fyrir nokkrum árum, munu þessar sýslur hafa
álitist almennt eiga þann heiður skilinn.
En í öllu falli er mjer óhætt að fullyrða, hvað
sem hver segir þar um, að alflir fjöldi Þingey-
inga vill hata stjórnarbót, og 1 efjast hennar á
löglegan hátt, en ekki með óþinglegu bakdyra-
makki nje öðrum ' aðferðum, sem löggjafarvaldi
landsins eru ósamboðnar, og sá fámenni flokkur,
sem i orði kveðnu þykist ekkert vilja heyra um
neina stjórnarbót, mun eigi geta leikið neinn þátt
í afdrifum mála hjer, hvorki á þingmálafundum nje
kjörfundum. Öll ráðin eru, sem betur fer hjá.
þeim, sem vilja gjöra skyldu sína í þessu máii,.
þó af veikum mætti sje, með alvarlegu og ein-
beittu fylgi við þá einustu stefnu í endurskoðun-
armálinu,sem miðar til heilla fyrir land og þjóð....
.4 meðal þeirra eru menn sem hafa sýnt með
sinni framkomu í þessu og fleirum málum að
þeir eru vel komnir að því trausti sem þjóðin
hefur borið til þeitra og mun halda áfram að
gera. . . .“
*