Dagskrá - 11.05.1898, Side 3
421
full yfir, alveg heilbrigður. Ber jeg yður
því mínar hjartanlegustu þakkir.
.—I-------- -
| Af guðsnáð hef jeg loks fengið blessun-
arríkt meðal. Það er Voltakrossinn sem ept-
.r nokkra tíma fyllti mig innilegri gleði. Jeg
var frelsuð hugguð og heilbrigð. Jeg hef
verið dauðans angistarfull út af hinnm þrá-
látu þjáningum sem jeg hef haft og finn það
skyldu mj'na að tjá yður innilegustu þakkir
mínar.
Seeget 16. ágúst 1897
Frú Therese Kretzchmar.
þvaglát.
Jeg keypti Voltakrossinn handa dóttur
minni sem hafði þennan leiða kvilla og það-
an hún fór að bera hann hefir ekki borið á
þessu og nú er hún alveg heilbrigð.
Bredvad Mölle pr. Horsens.
J. V. Jensen.
Hver ekta kross á að vera stimplaður á
öskjunum. Kejserlig kgl. Patent ella ónýt
eptirlíking.
Voltakross proýessor Heskiers
kostar 1 kr. 50 au. hver og fæst á eptir-
fylgjandi stöðum;
í Reykjavík hjá hr. kaupm. Birni Kristjánssyni
—-------------— Gunn. Einarssyni.
Á Dýrafirði — — — N. Chr. Gram.
Á ísafirði hjá hr. kaupm. Skúla Thoroddsen.
- Skagastr. — F. H. Berndsen
- Eyjafirði — —- — Gránufjelaginu
— — Sigfúsi Jónssyni
— — Sigv. Þorsteinss.
- Húsavfk — -— — J. A. Jakobssyni
- Raufarhöfn — Sveini Einarssyni
- Seyðisfirði — C. Wathne
— — S. Stefánssyni
— - — Gránufjelaginu
- Reyðarfirði — Fr. Wathne
- Eskifirði — Fr. Möller.
Einkaútsölu fyrir ísland og Færeyjar
hefur stórkaupmaður Jakob Gunnlögsson, Cort
Adelersgade 4 Kjóbenhavn K. —
N ýj a r vörur! N ýjar vörur!
Með gufuskipinu jLAURA4 og seglskipinu 5CAROLINA‘
komu mjög miklar birgðir í
verzlunina „E DIN B O R G“
•og skulu hér taldar helztu tegundirnar í hverri deild,
Nýlenduvörudeild
Kaffi — Kandís — Melis — Export — Púðursykur — Strausykur. — Osturinn góði 0,55 — Rúsínur — Kúrennur — Gráfíkjur — Möndl-
ur — Tapioca — Þurkuð epli — Niðursoðinn lax — Hummer — Lunch Tongue—Pickles — Laukur — Curry Powder — Succat — Ger-
púlver — Döðlur — Grænsápa — Sóda — Stangasápa — Handsápa — Sápuextrakt — Hin frœga Sólskinssápa — Borðsalt — Kanel —
Engifer — Pipar — Negull — Blanc mange Povvder — Kjötextrakt — Soya — Eggjapúlver — CondenSed milk — Þvottablámi — Skó-
sverta — Ofnsverta — Hveiti — Sago stór og smá —- Brjóstsykurinn góði ■—- Kúmen — Maccaroni — Ketchup — Yorkshire Relish—
Lunch kex — Navy kex — National mixed og margar tegundir af tekexi — Sultutau: — Strawberry Jam —’ Raspberry Jam — Plum
Jam — Greengage Jam— Black Currant Jam — Red Currant Jam — Black Currant Jelly — Marmalade — Apple Jelly—Hafrantjól •— Bbygg
— Klofnar baunir. Vindlar — Munntóbak og Reyktóbak — Tomatosósa — Sírop — Sardínur •— Margerine — Semolina — Chocolade
—Cocoa—Asparagus—Niðursoðnar Perur. Ferskener. Apricots—Ananas — Gosdrykkir\ Lemonade—GingerAle—Ginger Beer. Kola Sódavatn.
Leirtau allskonar og margt fleira,
Vefnaðarvörudeild.
Vetrar-og sumarsjöl — Gardinutau misl. — Flonelette — Flonel — Fataefni — Tvististau breið — Ullarteppi — Galateas — Zephyrtau
48
Duncan var skarpskynugur gjörðarmaður og hann ljet
það í ljósi við okkur að hann hefði varið nokkurri umhugs-
un til þess að komast að rjettri niðurstöðu um hvort þessi
breyting ætti að leyfast eða ekki. En hann sagðisl vera
þeirrar skoðunar, að þessi heirr.ild fælist í því leyfi til breyt-
inga er Trotter hefði veitt okkur. — Úrskurður hans hljóðaði
svo, að aðstoðarmennirnir mættu útvega leðrið en Williams
sjálfur yrði að láta það í skálina. Trotter sem beið þangað
til að úrskurðurinn var fallinn, sagði að hann áliti Duncan
hafa rjett að mæla og bætti því við að þetta væri í fyrsta
sinni sem nokkur sá er reynt hefði að ná í milljónina sína
hefði sjeð við brögðum sínum að nokkru leyti.
Botninn á skálinni var gjörður á þá leið, eptir því sem
sást á þeirri sem hjekk við tóma hnöttinn, að hver pening-
ur sem datt olli sterku skerandi hljóði. Þetta vissi Trotter
að erti taugarnar mjög, og mundi á sínum tíma verða óþol-
andi að hlusta á. Það var að sínu leyti alvegjafn þreytandi eins
og birtan á veggjunum. En jafnvel þó við gætum
komið þessum breytingum að mátti eiga það víst að kapp-
leikarinn okkar mundi vera orðinn aumingi eptir 5—6 daga,
væri gjört ráð fyrir því að hann væri jafningi þess besta sem
hafði reynt þrautina áður.
Þetta hjelt Trotter, en hvorugur okkar Simpsons hjelt
það. Það gat vel farið svo að Williams „fjelli saman" vegna
svefnleysis áður en sjö dagar væru liðnir, en hann gat ekki
orðið aumingi af því. Bygging hans var ekki þeirrar tegund-
ar. Hann hafði æft sig ( ágætu ástandi og við bestu heilsu
einmitt undir þraut af þessu tagi, nú um nær sex vikur. Án
þess að vita víst hvað hann átti að gjöra, var æfing sú sem
hann hafði gjört þess eðlis að hún átti einmitt við þetta
sama hlutverk. Það var enginn efi á því að auk þess, sem
Trotter hafði þegar tekið fram að Williams hefði sjer í vil,
Bæði grænu veggina og leðurbotninn í skálinni, þá var hann
mikið betur fallinn til þess að leysa verkið af hendi heldur
en nokkur sá sem reynt hafði á undan honum. Við sem átt-
45
Lengd hússins var, 46 fet, breidd 32 og hæð 10 fet;
frá öðrum hnettinum til hins voru 45 V2 fet.
Eptir að Simpson, Williams og jeg höfðum fengið ná-
kvæmlegt yfirlit yfir alla þá erfiðleika sem voru á því að
leysa þessa þraut kom okknr saman um að það væru næsta
lítil líkindi til að miljónin gengi úr greipum Trotters, enda
gat hann þess lauslega til huggunar og hughreystingar að sá
er síðast heiði lagt- sig í að vinna til þessa fjár væri hálf-
brjálaður enn. Við tjáðum herra Trotter að við óskuðum að
gera nokkrar breytingar, og væri okkur því kært að geta
fengið 3—4 klukkutíma næsta dag (laugardag) til undirbún-
ings. Kl. 10 á mánudaginn átti svo William að byrja.
Astæða til þess að við tiltókum einmitt þann tíma var
sú að við álitum hentast að hann væri vel útsofinn og dálít-
ill tími liðinn frá því að hann hefði borðað morgunverð, þeg-
ar hann legði á stað í sinn harða leiðangur.
Við höfðum lagt niður fyrir okkur í hverju sú þraut
var falin sem sá átti að leysa er átti að vinna gullhrúguna.
i°. Á mínútu hverri átti hann að flytja milli 100 gull-
peninga; á hverjum klukkutímum og 48 mínútur, sem varð
hinn vanalegi vinnutími meðan á þrautinni stóð urðu það
142,800 gullpeninga; á vikunni 999,600. Eina viku og þar
fram yfir, stóð á flutningnum og svo var þrautin unntn.
2°. Frá hnetti til hnattar voru 45 V2 fet. Hann varð að
ganga 30 álnir (enskar).
30. (sem var minnst í varið), hann þurfti að bera 8
smálestir af málmi í tíu þúsund pörtum, rúmar tuttugu álnir
hvern, á hverri viku.
Það er ekki furða, hugsaði jeg, þó fimm daga vinna
af þessu tagi geti leitt mann inn á vitlausra spítala.
Trotter vissi hvað hann söng þegar hann reiknaði út,
hve erfið þessi þraut var, en það var ekki laust við að hann
„gengi í vatnið" á því, að leyfa okkur að breyta til
um útbúninginn í salnum. Ef jeg man rjett, þá var það
Simpson, sem talaði fyrst um þessa skæru, hvítu glætu af