Dagskrá

Tölublað

Dagskrá - 10.12.1898, Blaðsíða 4

Dagskrá - 10.12.1898, Blaðsíða 4
84 Álftnesingar, Hafnfirðingar og Mos- fellssvcitarmenn eru vinsamlega beðnir að vitja Dagskrár í búð Jóns kaupm. Jónssonar, Aðalstræti io. Bindindis'mannadrykkurinn ,Chika‘, er ljúffengur og fínn svaladrykkur. — »Chika« er ekki meðal þeirra drykkja sem meðlimum Stórstúku Danmerkur af N. I. O. G. T. er bannað að drekka. Martin Jensen, Kjöbenhavn. Umboðsmaður fyrir ísland: Ft Hjorth.&Co. N ýr fugl í eyjunni. Almenningi gefst til vitundar að ég undirritaður tek til aðgjörðar allskon- ar gamlan skófatnað, sömuleiðis nýjan, og laga hann eftir því sem hlutaðeig- andi óskar. 28 Vesturgötu 28. Reykjavík. Kr. Guðmundsson. Nýir umboðsmenn fyrir „Star44, A ísafirði Jón Helgason verzlunar- maður Á Skagaströnd Jón Jónasson verzl- unarm. Á Stöðvarfirði Þorsteinn Mýrmann verzlunarm. T I L 8ÖLU. Margar tegundir rammalistar og ýmsar myndir fyrir afarlágt verð; hent- ugt fyrir jólagjafir. Komið sem fyrst að velja úr. Enn fremur ýmisleg húsgögn t. d. legubekkur, 4 stólar o. m. fl. Sveinn Eiríksson. Garðhúsum. VIÐGERÐ og HREINSUN á saumavél- um tekur að sér GUÐJÓN JÓNSSON ár Smiðjustíg nr. 7 mót mjög vægri borgun. Lítil eldavél með bökunar- ofni er til sölu. Ritstjóri vísar á selj- anda. KlNA-LIFS-ELIXÍR. Vottorð. Eg undirritaður, sem í mörg ár hefi þjáðs mjög af sjósótt og árangurs- laust leitað ýmsra lækna, get vottað það, að ég hefi reynt KÍNA-LIFS-EL- IXÍR sem ágætt meðal við sjósótt. Tungu í Fljótshlíð, 2. febr. 1897. Guðjón Jónsson. Undirritaðir, sem hafa séð hr. Guðjón Jónsson þjást af sjósótt, geta vottað það, að hann við notkun Kína- lífs-elixírs hefir hlotið þá lækningu, sem hann getur um í vottorðinu. Oddur Jónsson Markús Gíslason á Brekkum. 2 Válstdtu, KÍNA-LÍFS-ELIXÍRINN fæst hjá flestum kaupmönnum á íslandi. Til þess að vera viss um, að fá hinn ekta Kín-lífs-elixír, eru kaupendur beðnir að líta vil eftir því, að^^ standi á Flöskunum í grænu lakki, og eins eftir hinu skrásetta vörumerki á flöskumiðanum: Kínverji með glas í hendi, og firma nafnið Valdemar Peter- sen, Frederekshavn, Danmark. Ný stúkustofnun ier fram í Good-Templarahúsinu á morgi un (sunnudag 11. des.) kl. 8 síðdegis. Áttatíu hafa þegar skrifað undir stofn skrárbeiðni þar af nálægt 30 skipstjór- ar og stýrimenn. Þeir sem vilja taka þátt í stofnun inni og hafa enn ekki skrifað að und- ir geta skrifað sig á hjá Geir Sigurðs- syni skipstjóra þangað til stofnunin fer iram. Lífsábyrgð fyrir börn. Lífsábyrgð sú, sem hér er um að ræða, er stofnuð fyrir nokkrum árum af lífsábyrgðarfélaginu „Star", og er það sú lífsábyrgðartegund, er sýnist munu verða mest notuð framvegis. Hér skal bent á aðalkosti þessarar lífsábyrgðartegundar. I. Árlegt iðgjald er ekki nema V*—V3 af því, sem fullorðið fólk borgar. II. Fyrir börn þarf ekkert lsekn— ÍSVOttorð, sem stundum hefir í för með sér, að menn ekki fá trygt líf sitt. III. Lífsábyrgðin er laus við hinar venju- legu takmarkanir og skilyrði, þannig, að a. Ábyrgðareigandi má ferðast og dvelja h var sem vera Skal á hnettinum, án þess að gera félaginu grein fyrir því. b. Ábyrgðareigandi má stunda sjómennsku og hverja aðra atvinnu, án þess að iðgjald hans hækki. Sem ellistyrkur er lífs- ábyrgð þessi einkar hagfeld. Kaupi maður t. d. barni á fyrsta ári lífsábyrgð til útborgunar þegar það er 55 ára, er árlegt iðgjald 12 kr. Borgi ábyrgðareigandi þetta sama iðgjald í 50 ár, hefir hann borgað út 604 kr. en þá mundi ábyrgðin með viðlögðum „bonus" vera orðin 1500— 1600 kr. Vilji ábyrgðareigandi verja „bonus" til þess að lækka iðgjöldin, hverfa þau smámsaman alveg og hann á ábyrgð sína sér að kostnaðarlausu, en getur eftir þann tíma fengið „bonus" lagðan við, eða þá borgaðan jafnóðum. Þegar ábyrgðareigandi er fulls 21 árs, öðlast ábyrgð hans eiginlegt gildi og nýtur eftir þann tíma allra réttinda félagsins urn uppbót, lántöku, endur- kaupsgildi o. s. frv. Deyi ábyrgðareigandi fyrir þann tíma, eru iðgjöldin endurborguð foreldr- unum eða þeim, sem hafa trygt líf barnsins. Ef allir hér á landi, sem með góð- um vilja hafa efni á því, vildu tryggja líf barna sinna, mundu ekki líða marg- ir mannsaldrar áður landsmenn ættu lífsábyrgðir, sem svaraði þúsund krónum á mann, en það væri sama sem að ár- lega borgaðist inn í landið 1,750, OOO kr. með sama fólksfjölda og nú er. Nýfluttur til íslands er hinn heimsfrægi litur Omnicolor tilbúinn af efnafræðisverkstofu Baumanns i Kassel. Festist ekki við hendurnar, hefur engin eitruð efni og upplitun á sjer ekki stað. Hefur þegar við fyrstu reynslu fengið bestu meðmæli. 20 litartegundir, — pakkinn kostar 35 aura og fylgja litunarreglur á íslensku. Einkaútsölu fyrir ísland hefur Gunnar Einarsson. Tjarnargötu 1. Reykjavík. Utgefandi: Félag öitt í Reykj&vík. Ábyrgðarm.: Sig. Júl. Jóhannesson, cand. phil. Prentsmið a Dagskrár. FORMALL ---*---- Saga sú, er hér fer á eftir, er bygð á söguleg- um og sönnum rökum, þannig, að öllum aðalatriðum er haldið óbreyttum að mestu. Þótt sumum kunni að þykja margt ótrúlegt, er sagan getur um, og eiga erfitt með að trúa því, þá skal þess fyrir fram getið, að ekkert er þar orðum aukið, en víða felt burt það, sem annaðhvort var svo níðinglegt eða viðbjóðs- legt, að taepast þótti gjörandi að birta það á prenti. Má þar á meðal nefna kvæðí eitt, er gjört var um sögumanninn, þar sem drepið er á ýms afreks- verk hans, en kvæði þetta er svo óheflað, að það verður ekki birt, en þó er þar blátt áfram sagður sannleikurinn um hann. Sumir telja það ekki rétt að semja sögu, er sýni jafnbiksvartar myndir og þessi hlýtur að verða en vér höfum aðra skoðun; vér álítum að heimur- inn hafi gott af því að þekkja öll sín börn; góðu dæmin eiga að vera til eftirbreytni, en hin til við- vörunar, og sé það ekki mönnum til viðvörunar að lesa Skamma-Jón, þá þekki ég ekkert, sem gæti verið það. Hvar sagan hafi farið fram og hvenærþað hafi verið, er ekki getið, enda hefir það, að voru áliti, litla þýðingu. Vér vonum að það dragi ekki úr sann- leiksgildi hennar í augum lesendanna; vér vonum að hún geti eins fyrir því náð tilgangi sínum; að hún geti vakið hjá öllum heiðvirðum lesendum við- bjóð við athæfi því, er hún getur um og skapað hjá þeim löngun til þess að koma í veg fyrir að nokkur 6 asta kveldi og segja hver annari alt það, sem gjörst hefir nóttina næstu á undan. Og nú var það auðséð að eitthvað var nýtt í fréttum að færa. Þær töluðu hljótt svo það heyrðist varla hvað þær sögðu. En sjá mátti það á svip þeirra, að eitthvað hafði þeim að óskum gengið. Þær fagna altaf yfir óförum manna, og gjöra það eitt, er að grandi má verða, því þær eru þaðan sendar, sem myrkur og hel- kuldi taka höndum saman. Þær töluðu hljótt og veltu vöngum og skældu kjafta með kuldaglotti, þangað til þær allar féllust í faðma °g hlógu svo hátt að kvað við í klett- um, holtum og hæðum. Þá hristust björg sem hrynja myndu. Svo dönsuðu þessi djöf- uls flögð og sungu með geigvænum grimd- arrómi. »Nú er fantur fæddur, fölsku gerfi klæddur; hann mun læra lýgi, svik og róg. Djöfuls árar allir, ykkar rýmið hallirl komið hingað—hér er gleði nóg«. „0“! kvað viðsvo dimt og dapurlega I holt- um og hæðum, að auðheyrt var að landið átti þar ótal vættir, sem vildu hag þess og heillir styðja og hrygðust af því að heyra sungin fagnaðarsöng við fæðingu þess, sem fús yrði að vinna landi og lýði tjón fyrir stuttan stundarhagnað, en kæmi þó fram í fölskum flíkum og þættist unna öllu góðu, ein- ungis til þess að tæla og blekkja og geta því meira ilt unnið.

x

Dagskrá

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagskrá
https://timarit.is/publication/153

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.