Dagskrá - 01.02.1899, Qupperneq 4
128
Framh. af bls. 125.
%
Danir og þjöðverjar.
eiga i erjum allmiklum, ganga þær svo
langt að ýmist cru Ðanir reknir brott
úr Slesvík eða Þjóðverjar af Jótlandi,
Hvar sem danskur maður og þjóðverskur
hittast, eru þeir uppi með skammir og
ertingar, sem oft enda með öðru verra.
Kveður svo ramt að þessu.aðGeorg
Brandes hefir neitaðað halda fyrirlestur í
blaðamannfélaginu í Berlín og kvað
engan danskan mann geta verið þekt-
an fyrir það undir þeim kringum-
stæðum, sem nú séu.
Manila,
Þar er búist við öllu, liðið undir
vopnum og margir hala yfirgefið
borgina. Agvinaldo hefir gefið út aug
lýsingu af nýju og ógnar þar rojög
Amerikumönnum. Kveðst munu stuðla
til þess, að þeir verði reknir brott af
Filippus eyjum.
Hann kallar guð til vitnis um það,
að ef þetta leiði til blóðsúthellinga,
þá séu það Ameríku menn, sem hafi
það á samvizkunni að vera valdir
að því.
Daniel Bruun
ætlar í sumar að ferðast til Grænlands
og leita að Andree, ætlar hann að
leggja upp frá Islandi að austan.
Þegar hefir nægilegt fé verið lagt fram
til fararinnir.
Séra Júlíus Þórðarson
er trúlofaður bóndadóttur einni frá Þela-
mörk í Noregi, er Jörgina heitir Ólafs-
dóttir, hún er Kennari.
Heimhug,
biað landa vors Ólafs Felixsonar
flytur mynd af Valtý Guðmundssyni
og ýmislegt frá íslandi. Þar á meðal
sögu neðanmáls, er heitir „Fjallgangan
á íslandi" „Jólakveld á íslandi1' Alía.
sögu með mynd af krossi, mynd ai
konu í íslenzkum þjóðbúningi ofl. Blað-
ið er mjög hlýtt í anda til vor Is-
lendinga og verður óefað til þess að
styrkja bræðrabandið meðal vor og
Norðmanna.
Úrskurður
stiftsyfirvaldanna í máli því, sem nefnt
er hér að framarx viðvíkjandi lærðaskól
anum, var lesinn upp í gær. Hafa þau
staðfest dóm skólastjóra, hvernig sem
það fer fyrir æðra dómi. Það eitt getur
Dagskrá sagt um þetta, að hún álítur
dóminn alt of harðan, með öðrum orð-
um, ekki réttlátan, ekki heppilegan,
ekki viturlegan. Aðrir geta dæmt um
það frá sínu sjónarmiði.
Áskorun
var samþykt á Framfarafélagsfundi 29.
f. m. til þingmanns Reykvíkinga um
þaö að boða til þingmálafundar fyrir
miðjan þenna mánuð, og er vonandi að
hann verði við þeirri áskorun.
Trúlofun.
Ungfrú Katrín Helgadóttir (frá
Birtingaholti) og Ólafur Briem (Valde-
marsson) stud. theol. eru trúlofuð.
Dáinn.
26. f. m. Jóhannes Hansen kaupm.
eftir langa legu. Hann var einkar vel
látinn af öllum, er hann þektu; gáfu-
maður mikill, kurteis og lipur í við-
skiftum og sannur sómi stéttar sinnar.
Skrifborð
nýtt og einkar vandað er til sölu fyr-
ir gjafverð.
Ritstj. vísar á.
Dagbók Reykjavíkur.
Laugardagur,
Frost og logn allan daginn.
Glímufélagið hélt glímusýningu í
húsi W. Ó. Breiðfjörðs ogvar hún allvel
sótt.
ísand byrjaði að koma út aftur og
er nú orðið eign hlutafélags eins hér í
bænum; það á að koma út á hálfsmánað-
ar fresti.
Sunnudagur.
Snjókoma allmikil um miðjan dag-
inn, en annars hreinviðri; lítið frost.
Jón Ólafsson hélt alþýðufyrirlestur
í Iðnaðarmannahúsinu og talaði um dýra
segurafl, dáleiðslu og andatrú. Var
fyrirlesturinn vel sóttur, enda vel flutt-
ur og fræðandi fyrir alþýðu.
Leikin „Esmeralda" í annað sinn
í Iðnaðarmannahúsinu fyrir troðfullu húsi,
og er þó áhugi manna hér nú um
stundir til að sækja sjónleika með
minna móti
Þess var getið í síðasta blaði, að
vel hefði verið leikið ogkvað það hafa
verið ekki síður nú, heldur töluvert betra.
Einkum var mjög gjört orð á því,
hversu ágætlega ungfrú Guðrún Indriða-
dóttir hefði leikið og hafa félaginu
bæzt góðir kraftar, þar sem það hefir
fengið hana.
Glfmufélagið hélt skemtun í annað
sinn á sama stað og áður.
Stofnaði Sig. Júl. Jóhannesson
stúku úti í Engey, er nefnist „Leið-
arstjarnan" skipaða góðu og dug-
legu fólki og má vænta af henni stað-
festu og dugnaðar. Eins og áður er get-
ið eru í Eyjunni um 40 manns og eru
líkur til að þeir fari flestir eða allir,
áður en langt líður í stúku þessa.
Mánadajjur.
Logn og lítið frost.
Kol og salt af strand skipinu Dr. de
Witt Talmáge, voru seld á uppboði.
Seldist skp. af kolunum fra kr. 4, 30
til kr. 4, 80, en af saltinu 2 kr.
ÞriOjidagur.
yestangola og þíða.
Satnaðarfundur var haldinn í húsi
W. Ó. Breiðfjörðs til að ræða um kirkju
garðsstækkuninafyrirhuguðu; hafði kirkju
stjórnin farið þess á leit við bæjar
stjórnina, að fá útmældan blett á Melun
um fyrir þessa stækkun garðsins, og hafði
látið hr. Einar Finsson grafa þar og
umróta jarðveginum til að vita, hvort
þar væri hæfilegur staður fyrir grafreit’
og gaf hann skýrslu um þetta starf
sitt, sem lögð var fram á fundinum
Tóku margir til máls og voru allir á
sama máli um það, að Melarnir væru
óhæfir fyrir grafreit nema með ærnum
kostnaði, og var því samþykt að skora
á kirkjustjórnina að útvega heppilegri
stað fyrir grafreit.
Orðahnippingar allmiklar urðu á
milli þeirra Kr. Ó. Þorgrfmssonar og
W. Ó. Breiðfjörðs.
Miðvikudagur.
Frostlaust og lygnt.
Sigurður organisti Eiríkson kom
hingað til bæjarins. Hefir hann nýlega
stofnað 3 Good-Templarastúkur, eina
á Eyrarbakka, er kallast Nýarsdagurinn,
aðra við Þjórsárbrúna, er heitir Brúin
og hina 3. á Skeiðunum, er Hjálpinn
nefnist. A Sigurður miklar þakkir skyldar
fyrir dugnað sinn í þarfir Reglunnar.
Fimtidagur.
Frostlaust og lygn á Sunnan.
Kom Lára tveim dögum fyrir á-
ætlun, og er það sjaldgæft. Hún kom
aðeins við í Færeyjum til þess að skila
af sér pósti, en aukaskip var sent þang-
að með vörur. Farþegar með Láru
voru Eyþór kaupm. Felxson, Thor kaup-
m.Jensen, Níelsen kaupm. áEyrarbak'ka,
Pétur Hjaltesteð úrsmiður, Guðmundur
Brynjólfsson trésmiður og einn Norð-
maður.
Fðstudagur.
Hláka og regn, sunnankaldi.
Stúdentafélagsfundur, og var þar
talað lengí um réttritunar samtökin nýju.
Urðu allharðar umræður og vörðu hvor-
ir tveggju mál sitt af miklu kappi. A
grip af ræðunum verður prentað.
Prentvillur.
Á '2. bls., 4. d. 23 1. a. o. hefe les have,
á s. s., s. d. 25. 1. a. o. dyrekd'óbt les
dyrköbt, s. s. s. d. 26. I. a. o. kirkefœ re
les Kirkefcedre s. s. 2. d. 39. 1. a.
o. harmraun les hans arm, s. s. 2. d.
17. 1. a. n. hér les hár, s. s. 2. d. 12
1. a. n., engi les lengi s. s. 3. d. 1 1. a.
o. hætra les kœrra, s. s. 3. d. 8. 1. a.
o. þekti les þekki, s. s. 3. d. 10. 1. a.
o. kjær.. les kœr..
Önnur síðan var prentuð í ógáti
áður en lesin var 2. próförk.
L0venskjold Fossum-Fossumpr.Skien
tekur ao sér að útvega kaupmönnum við. Einnig eftir teikningum að bygjag
hús. Semja má við PÉTUR M. BJARNASON á ísafirði.
Menrx ættu að nota tækifærið, þvf hvergi mun fást ódýrari viður, eða með
betri kjörum en hjá undirskrifuðum.
Pétur M.
KÍNA-L1 FS-ELIXIR.
Magaveikl.
Nær fyrst frá þvf að ég man • til,
hef ég verið þjáður af magaveiki (dispi
ipsia). En eftir að ég hefi lesið aug-
lýsingu frá hinum nafnkunna prakt.
lækni Lárusi Pálssyni, viðkomand,
KÍNA-LÍFS-ELIXÍR Valdemars Pet-
ersens f Friðrikshöfn, sem er nú f
flestum dagblöðum okkar, þá hefi ég
fundið stóran mun á mér til batnaðar
síðan ég fór að taka hann, heldur
þessvegna áfram að brúka þennan heilsu
samlega bitter, og ræð öllum nær og
fjær, sem þjást af samskonar veiki og
ég, til að brúka bittir þenna með því
reynslan er sannleikur, sem aldrei
bregst. Akranesi,
Þorvaldur Böðvarsson.
(pastor emeritus).
KÍNA-LÍFS-ELIXÍRINN fæst hjá
flestum kaupmönnum á Islandi.
Til þess að vera viss um, að fá
hinnekta Kína-lífs-elixír, eru kaupendur
beðnir að líta vel eftir því, að—pr-1
standi á Flöskunum í grænu lakki,
eins eftir hinu skrásetta vörumerki á
flöskumiðanum: Kínverji með glas í
hendi, og firma nafnið Valdemar Peter-
sen, Frederekshavn, Danmark.
Tvær stofur.
eru til leigu frá 14. maí á ágætum stað
í bænum Ritstj. vísar á
Bjarnason.
Tvö herbergi
fyrir einhleypt fólk, eru til leigu í miðj-
um bænum frá 14. maí.
Ritstj. vísar á.
DAGSKRÁ
kemur hér eftir út á miðvikudögum.
Hænsabygg fæst í verzlun
B. H. Bjarnason.
ro
"bjo
03
-o
cci
ro
bJO
E_
-o3
oá
CO
s=
æ
00
1 %
tu
D
X
H
ro
G
3
D
o
c
c
o
:0
jo
jc
d;
I
|
"O
bx
<U
c 5
§ s
S c
Jö o
cc
ÖÆ 5
vrt
£
"ÍO
Dt,
i—
£
<D
^ I
- 85
b/3 ^
45 Ö
'U Q
i n
eo ^
blí
>. *J
-Q fO
vrö •rH
LC >
3
C
•O
j-
3
*o -
O G
£ JH
vaJ
c3
C
3
tuo
1»
o
ui
ÖJl
fO • =
;o a
d;
o
C 3
fO
v- o3
c E
OJ c/l
eo
■r o
t aa
« E
•= D
O
3
43
H
s_
>
CD
u
3
Ad
<
C3
ba
jj
a
>N
eo
3
rt
c
cö
~a
x
CC
íO
cö
-C
c
0)
OQ
Rúgmjöl í heilum sekkjum og
önnur matvara, sem og kaffi og sykur
er ódýrast í verzlun
B. H. Bjarnason.
Stúdentahúfa
hefir fundist á Austurvelli,
vitja má á afgreiðslustofu Dagskrár, gegn
fundarlaunum.
Eitt herbergi
með stofugögnum er til leigu á góðum
stað í bænum, nú þegar.
Ritstj. vísar á.
Llfsábyrgðarfélagið ,STAR‘.
Skrifstofa félagsins Skólavörðustíg
JVs II,er opin hvern virkan dag frá
II—2 og 4—5.
Úxgefandi: Fólag eitt í Reykjavik.
Abyrgðarm.: Sig. Júl. Jóhannesson,
cand. þhil.
Prentsmiðja Dagskrár.