Dagskrá - 29.04.1899, Side 3
159
ir höf. Dómsdag; eru tvö þeirra
til séra Jóns Bjarnasonar og eitt
til Porstoins Erlingssonar, 4. riíið
nefnist Dómur Messíasar eða guð-
spjall; 5. heitir Örkin nýja, sem
er ljóðabréf til meðritstjóra Isa-
foldar, en hið 6- heitir Eldingar.
ÚTLÖND.
—0—
Þaðan er fátt að frétta. Dreyfus-
málið efst á dagskrá eins og vant
er, berast alt af böndin meir og
meir að Esterhazy, eru allir sann-
færðir um að Dreyfus sé saklaus
og verði sýknaður, hversu lengi
sem það kann að dragast.
Rannsókn gegn blaðinu „Eigaro",
er getið var um í Dagskrá, lauk
þannig, að ekki varð uppvíst hvað-
an það hefði fengið fregnir þær,
er það flutti, en sektað var það um
500 franka.
Bretar, Bandamenn 05? Pjóft-
verjar hafa slegið verndarhendi sinni
yfir Samoaeyjar, hverjir fyrir sig
og eiga þeir nú í deilum allhörð-
um. Eru Bretar og Bandamenn
hvorirtveggju á móti Pjóðverjum.
I eyjunum er konungsstjórn, en
allar þessar þjóðir ráða mestu um
konungsvalið. Nú urðu konunga-
skifti þar um nýárið og reis deila
þessi út af kosningunni.
FRÉTTIR,
Lára kom frá útlöndum 25. þ.
m. á undan áætlnn. Meðal far-
þega voru kaupmennirnir Björn
Kristjánsson, D. Thomsen, W.
Ó. Breiðfjörð, Friðrik Jónsson, Ól-
afur Árnason og Kristján Jónas-
son. Ennfremur ungfrú Þórdís
Helgadóttir, og frú Rannveig, móðir
síra Magnúsar á Prestsbakka.
(xiiful)át hefir Björn Kristjáns-
son keypt fyrir Boallou, er hann
ætlar að hafa t.il þess að draga
flutningaskip á milli Hvítárvalla
og Reykjavíkur.
Laglega af sév vikið. Sýslu-
fundur Árnesinga hefir í einu
bljóði synjað um áfengisveiting
á Pingvöllum; ennfremur samþykt
áskornn til þingmanna að fylgja
fram vínsölubanni og loksins skor-
að á alla kaupmenn sýslunnar að
hætta að flytja alt áfengi. Mun
þessa ávalt getið Árnesingum til
hins mesta heiðurs. Gjöri nú
hinar sýslurnai' eins!
„Muggur“ kom hingað 25. þ.
m.: hafði hann verið að fiski ná-
lægt Vestmannaeyjum að undan-
förnu og aflað ágætlega. Hlaðafli
er í eyjunum þegar veður leyfir
að stundá sjó, en gæftir stirðar.
Verzlun þeirra eýjarskeggja er sajt-
laus og var Muggur meðfram send-
ur af þeirra hálfu til saltkaupa.
Hafísliroði kvað vera fyrir
Vestur- og Austurlandi, þó ekki til
muna.
Heiindallur náði einum botn-
verpingi nýlega í landhelgi, var
hann sektaður og afli og veiðar-
færi gjörð upptæk. Aflinn var
seldur á uppboði og komst í geypi
verð. Hvenær ætla menn að læra
að bindast samtökum þegar þeim
er það eins í lófa lagið og við
svona tækifæri, til þess að fá björg
með viðunanlegu verði? Hvers
vegna keppist hver við annan að
kaupa sem dýrast? Pað er að
skara eldinn bæði frá sinni köku
og annara.
Dáinn er skipstjóri og skipa-
smiður Jón Þórðarson (frá Gróttu)
hér í bænum; mesti atgjörvis- og
dugnaðarmaður.
Konungkjðrnir þingmonn.
Pessa 6 hefir konungur kjörið
þingmenn fyrir næstu 6 ár. Hall-
grím Sveinsson biskup, Árna Thor-
steinson landfógeta, Krisján Jóns-
son yfirdómara, Þorkel prest
Bjarnason, Júlíus Havsteen amt
mann, Jónas Jónasen dr. med.
landlækni. Fjórir hinir fyrtöldu
eru endurkosnir en tveir hinir síð-
astnefndu nýir í stað þeirra J. A.
Hjaltalíns skólastjóra og L. E.
Sveinbjörnssons háyfirdómara.
Botnvörpuskip iniiloiid. Núna
þessa dagana byrjar skip Mr.
Wards veiðar sínar. Hefir hann
fengið gnægð af salti og kolum;
en Vidalín byrjar að sögn í næsta
mánuði og er sagt að útgerð hans
byrji með 600,000 kr. höfuðstól.
Hefir Vídalín keypt verzlunarhús
Knudtzons og Magnúsar Blöndals í
Hafnarfirði. Paðan á að reka
veiðarnar aðallega, en hafa þó ein-
hverja fótfestu á Akranesi, fyrst
um sinn að minsta kosti, jafnvel
á Kleppi líka.
Lík H. Tli. A. Thomseiis
kom með Láru og var hann jarð-
aður 27. þ. m. með mikilli við-
höfn.
Sameinaða gufuskipafélagið
ætlar að senda skipið „Douro“ suð-
ur í Miðjarðarhaf í september í
sumar með fisk frá íslandi, og í
haust eiga Hólar að fara þangað
að afloknum strandferðum hér við
land og ef til vill fleiri skip.
Harðindi voðalog að frétta
víða úr sveitum; jarðbann og hag-
leysur; víða farið að skera fénað af
heyjum. Verstar eru fréttirnar úr
Hrútafirði og Saurbænum fyrir
vestan. Hrútfirðingar farnir að
koma fyrir fé suður í Borgarfirði.
ísafoid flutti grein um lærða-
skólann á miðvikudaginn; er þar
mest það sama tínt upp, sem vér
skrifuðuin í „Dagskrá" í fyrra,
þar sem bent var á, að skólanum
væri helzt að því ábótavant, að
kennendur hefðu of lítið saman við
nemendur að sælda. Það gleður
oss mjög að augu ísafoldar hafa
opnast fyrir þessum sannleika.
Annars er fátt merkilegt við þessa
ísaf.-grein annað en það, sem tek-
ið er eftir Dagskrá.
Fj.konu-oiiuirð. Fj.konan flyt-
ur grein um einurð(H) í síðasta
blaði, og fer þar, að sumra dómi,
sér samboðnum orðum um eitt-
hvert blað á íslandi, sem hún
lioiir okki oinurft á aft nafn-
greina. Sumum þykir það henni
líkt að gjöra sig seka í því, sem
hún er að skamma niður fyrir all-
ar hellur í sömu greininni og hún
gjórir það. Oss finst Fj.konunni
skylt að láta menn vita hvaða
blað þetta er, svo þeir geti varast
það og hættu þá, sem af því leið
ir. Annars kveða sumir sér hafa
dottið í hug að ritstjórinn muni
hafa' skrifað þetta í einhverju öl-
æðisóviti og þess vegna gleymt að
nafngreina blaðið; hann er sjálf-
sagt svo einurðargóður að gjöra
það í næsta blaði.
cJCitt ocj foafía.
—0—
Sniælki.
— Söngnótur vóru fyrst notað-
ar 1338.
— Það var hætt að tala latínu
nálægt 580.
— Edison fann upp talvöl sína
1877.
— Fjórar miljónir af stálpenn-
um eru notaðar daglega.
— Vatn er hérumbil 850 sinn-
um þyngra en loft.
—• Kínverjar fundu upp pappír- ’
inn 170 árum f. Kr.
— Úlfaldinn getur farið 100
mílur á dag.
— Rómúlus bygði Rómaborg
753 árum f. Kr.
— Kaldeumenn vóru þeir fyrstu,
sem smíðuðu úr málmi.
— Steinkol vóru fyrst notuð á
Englandi 1235.
— Fyrsta gufuskip úr járni, var
bygt á Englandi 1843.
— Fyrsta loftfar var reynt á
Frakklandi 1783.
— Fyrsta gufuskipið fór yfir
Atlantshafið 1818.
— Stærsti steinvarðinn á Egypta-
landi er 543 fet á hæð.
— Ignatius Loyola stofnaði Jesú-
munka-regluna 1540.
Við Vesturgötu ?gsl6^
herbergi til leigu frá 14. maí.
Sig. Þórólfsson vísar á.
Húsmálningar.
Við undirritaðir tökum að okk-
ur að mála, utanhúss og innan,
fyrir væga borgum. Athygli skal
vakin á því, að öll járnþök, sem
mála á, er betra að mála áður
en sumarhitinn kemur.
Guðm. Hallsson trésmiður.
Finnur Finnsson.
dleiRningsRil og innpQÍmfa ÍÐagsPrár.
Sökum annríkis og vcentanlegra ferðalaga, get ég ekld haft innheimtu
og reikningsskil á DAGSKRÁ í sumar. Séra Jón Bjarnason annast því
innheimtu á blaðinu frá í dag og eru menn því vinsamlega beðnir að
snúa sér til hans með borgun á 3. árgangi blaðsins.
Rvík, 29. marz 1899.
Virðingarfylst.
SIG. ÞÓRÓLFSSON.
Samkvmnt ofanritaðri tilkynningu hefi ég tekið að mér innheimiu
á borgun fyrir yfirstandandi árgang Dagskrár.
Rvík, Þingholtsstrœti 18.
Virðingarfylst.
JÓN BJARNASON.
Ég vil einnig biðja liina heiðruðu kaupendur að trúa kostnaðarmönn-
unum til þess að auglýsa það sjálfir ef blaðið œtti að hœita, og leggja
engan trúnað á skáldsögur annara um það. Þeir lifa oft lengst, sem með
Orðum eru vegnir. Hitt veit ég að allir kaupendur blaðsins telja sjálfa
sig bæra að dæma um, hvernig blaðið sé.
Jón Bjarnason.
L0venskjokl Fossnm - Fossnm pr. Skien.
tekur að sér að útvega kaupmönnum við. Einnig eftir teikningum að
byggja hús. Semja má við PÉTUR M. BJARNASON á ísafirði.
Memi ættíi aft nota tækifærift, því hvergi mun fást ódýrari viður,
eða með betri kjörum en hjá undirskrifuðum.
. Pétur M. Bjarnason.
W Lífsábyrgðarfélagið „STAR“.
Skrifstofa félagsins, Skólavörðustíg nr. 11, er opin hvern virkan dag
frá 12— 2 og 4—5.