Alþýðublaðið - 01.01.1906, Síða 2

Alþýðublaðið - 01.01.1906, Síða 2
2 ALÞÝÐUBLAÐIÐ. okkur skóla, megum við nota hann með því skilyrði að læra þar það eitt, sem þeim hefur komið samari um að láta okkur læra. Þeir gefa út blöð og bækur og selja okkur hvort sem við viljum kaupa eða ekki. Eigum við góða yfirmenn, þá líður okkur þolanlega, séu þeir vond- ir, eigum við illa æfi. Þegar vald- hafinn beitir svipunni, þá skrækjum við eins og' hundar, en klappi hann á lærið, þá dillum við rófunni. Það sem okkur vantar, heimtum við af valdhöfunum. Þegarvið sakberum, sakberum við þá. Xið kunnum ekki, við þorum ekki, við reijnum ekki að hjálpa okkur sjálfir. Svona erum við. Hjá okkur íslendingum eru kjör alþýðunnar og ástæður miklu beh’i en sumstaðar hjá öðrum mentaþjóð- um. Þó er ekki því líkt, að við getum eða megum una því, sem er. Astandið getur verið ilt, þó menn farist ekki hundruðum saman úr hungri og þrælkun. Þótt við ættum enga skatta að gjalda og engum lögum að lúta, vantaði okkur eftir sem áður, það sem viö Inirfiiiii til að geta lifað góðu lífi sem frjálsir menn í frjálsu þjóðfélagi: Pekkingu. Við þurfum að þekkja hlutverk okkar og þýðingu í þjóðfélaginu. Við þurfum að vita hvaða réttur okkur ber og hvaða skyldum við höfum að gegna. Við þurfum að sjá með augum skynseminnar það, sem við gerum og það, sem við okk- ur er gert. Við þurfum að læra að meta gildi félagsskaparins. Við þurf- um að heimla þaun rétt, sem við eigum, og læra að beygja okkur undir þær lagakvaðir, sem heill þjóðarinn- ar er undir komin. Við þurfum að fylgjast með tímanum í verklegum framkvæmdum og afla okkur þeirr- ar þekkingar sem til þess útheimtist. Bókmentirnar eru nú á tímum sá grundvöllur sem framfarirnar hljóta að byggjast á. Notasælasti þáttui- inn úr bókmentunum eru blöðin. Við þurfum að eiga blað fyrir okk- ur. Blað, sem við höfum öll um- ráð yfir, sem við megum skrifa í það, sem okkur þóknast og við finn- um þörf á að birta opinberlega. Það sér hver sem sjá vill, að við gctum þetta, ef við einungis viljum. Það verð- ur í senn, léttasta og drýgsta sporið sem við getum stigið í framfaraáttina.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/157

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.