Alþýðublaðið - 01.01.1906, Qupperneq 3

Alþýðublaðið - 01.01.1906, Qupperneq 3
ALÞÝÐUBLAÐIÐ. 3 Þetta vakti fyrir okkur sem gef- um út þetta blað. Við fundum til þess, hver þörf var orðin á slíku blaði. Hve mikil þörfin er, á þetta blað að sýna og mun sýna. Við höfum gert þessa tilraun; það er und- ir þjóðinni komið, hve vel hún lán- ast. Það er óþarfi að taka það fram, hver aðalstefna blaðs þessa á að vera; það má sjá af þvi sem að framan er skrifað. Hver málefni það tekur til meðferðar og berst fyrir, leiðir af sjálfu sér. Það skal að eins tekið fram, að jafnframt því sem blaðið ræðir almenn málefni, þau er alþýðuna varða, mun það viðog við, ljá rúm frjálslyndum hugmynd- um sem alþýðumenn fá ekki rúm fyrir í öðrum blöðum. PóliLík mun blaðið sneiða hjá svo sem hægt er og varast stranglega flokkadrátt. Smágreinar til fróðleiks og skemt- unar, flytur blaðið við og við. Að svo mæltu leggjum við blaðið fyrir þjóðina til álits og afnota. Vinnuhjúa verðlaunin. Eitt af þeim ráðum, sem að lík- indum hefir verið fundið upp til þess, að halda vinnufólkinu kyrru i vistinni er það, að veita því verð- laun, körlum og konum, sem hafa verið vissa áratölu í vinnumensku á sama heimili. Verðlaun þessi voru veitt árið sem leið og voru að upp- hæð 10 kr. hin lægri, en hin hærri 15 kr. Hvort þau nái tilgangi sínum er ekki gott að segja, en ólíklegt er það. Hverjir skyldu vinna það til, að vera í vist 10 til 15 ár í sama stað, til þess að vinna fyrir verðlaunum þessum, og það ef til vill á því heimili, sem þeim er ógeðfelt að vera eða þau fá minna fyrir vinnu sína en annarsstaðar? Þeir mundu að líkindum verða fáir. En annað ráð mætti benda á og ræða um, og það er, hvort ekki - v-æri heppi- legt, að vinnufólk sem er í vist á sama heimili i fleiri en 1 ár, væri fengin i)Iettur einhversstaðar utan túns til garðræktunar, þar sem það helzt kysi, en þó þar sem húsbónd- anum væri að skaðlausu. Blettur þessi ætti að vera að stærð, alt að V<t til ]/2 dagsláttu, og njóta ætti hjúið afurða hans aðöllu leyti, ef það með tímanum getur girt hann og ræktað. Ef 2 eða 3 vinnuhjú ættu blettinn i félagi, væri þeim ekki vorkunn á, með hjálp húsbóndans, að vinna svo mikið við hann árlega, að hann eftir

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/157

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.