Alþýðublaðið - 01.01.1906, Qupperneq 5

Alþýðublaðið - 01.01.1906, Qupperneq 5
ALÞÝÐUBLAÐIÐ. 5 eitl og sama merki til þess að geta komið sem mestu til leiðar eiga þeir bágt með, og' ógjarnan vilja þeir fylgja fyrirskipunum annara ef um lengri tíma er að ræða. Trúrækni íslendinga er svona og svona. Prestarmr eru flestir hverjir vel metnir menn og oft fyrirmynd- ar búhöldar. Kirkjuferðin er oft eins mikið til skemtunar gerð eins og af þrá eftir að heyra guðsorð. í Reykjavík hafa kaþólskir menn stofnað skóla, sjúkrahús og kirkju, en litið sem ekkert heíir söfnuður- inn aukist. Hjálpræðisherinn er nú einnig kominn til Islands með söng og hljóðfæraslætti sem annarsstaðar, en íslendingar horfa bara á — en enginn lætur »frelsast.« Til verkmannaí Þótt hér í Reykjavík sé mesti urmull af alls konar félögum, þá er þó ekkert aí þeim réttnefnt verk- mannafélag, nema Prentarafélagið. Þau eru öll að meira eða minna leyti blandin mónnum af öðrum stéttum. — Það sem hér vantar, er félag, sem allir þeir verkmenn, sem undir aðra eru gefnir eða stunda hlaupavinnu, geti verið i, hvaða handverk eða starf sem þeir hafa á hendi. Hlutverk þessa félags ætti að vera að rökræða þau mál, er verkmenn og iðnaðarmenn varða, gefa mönn- um kost á að láta í ljós skoðanir sínar á þvi, er miðar til þess að upphefja verkalýðinn eða alþýðuna í heild sinni. Það ætti að vera fé- lag' manna, sem með einlægum vilja og samvizkusemi brytu málin til mergjar svo að þau yrðu vegin á vog réttvísi og réttsýni, í stað þess að láta leiðast í bandi þeirra er þykjast bera heill alþýðunnar fyrir brjósti, en hafa að eins það fyrir takmark, annaðhvort að verja það vald og þann auð, sem þeir þegai- hafa náð, eða þá að hrifsa undir sig þetta hvorttveggja. Til þess að læra að skilja rétt sinn, og til þess að verja rétt sinn, þurfa menn að hugsa um hann og gera sér grein fyrir í hverju hann er fólginn, þurfa að læra að meta sig sjálfa og virða hver annan og styðja hver annan í baráttunni móti hræsni og yfirdrepsskap, falsi og rangindum. Menn verða að skilja það sem skyldu sína, að berjast fijrir því, að þau lög og fyrirskipanir, er að nokkru skerða frelsi einstaklingsins eða þjóð- arinnar í heild sinni verði úr gildi numin, og menn verða að berjast móti þvi, að þess konar lög fái fram að ganga. Með æfingu læra menn þá list, að gagnrýna svo þessi mál, þegar þeim á að beita gagnvart

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/157

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.