Alþýðublaðið - 01.01.1906, Side 7
ALÞÝÐUBLAÐIÐ.
7
Eins og vænta má, hefir Gorkí
séð sitt af hverju og' reynt margt og
ekki alt af skárra tæginu. Hann
þekkir kvalalíf og kúgun, örbyrg'ð
og' eymd, andlega og líkamlega.
Hann veit hvað það er að vera hungr-
aður og öllum úrræðum sviftur.
Lífsskoðun hans hefir auðvitað feng-
ið mót eftir því, sem fyrir hann
hefir borið, hann heimtar jöfnuð og'
prédikar jöfnuð en virðist þó næstum
örvænta um að jöfnuður geti nokk-
urn tíina orðið að framkvæmd, eða
lífið geti nokkurn tíma orðið öðru-
vísi en ilt og ófagurt, þessi svart-
s<rni er eðlileg aíleiðing af lífskjörum
hans. Hann ritar alþ5rðlega og skjrrt;
getur sýnt fyrna-mikið í fám orðum.
Lindin
sem þjóðmegunin er ausin af eru
alþýðuflokkarnir; hinir mörgu smáu
eru það, sem byrðarnar bera —
hera þjóðirnar fram til velmegunar
og þroska, Heill og framtíð þjóð-
anna er þvi að mestu að byggja á
alþýðunni. Þetta er sannleikur, sem
alþýða hverrar þjóðar þarf að skilja.
Sannleikur, sem drotnar og mann-
ráðendur verðaogeigaað viðurkenna.
I hinum mentaða heimi eru eigi
skiftar skoðanir um það, að þeim
þjóðunum fleygi örast áfram á fram-
farabrautinni, sem eiga vel upplýsta
og frjálsa alþýðu. Menn eru komn-
ir að þeirri niðurstöðu, að það marg-
borgi sig að hlúa að lindinni, hregða
yfir hana birtu frelsis og menning-
ar, til þess að hægt sé að leiða í
ljós perlurnar og gimsteinana, því
þangað er þeirra helzt að leita.
íslenzk alþýða, þú sem vinnur
haki brotnu frá morgni til kvelds —
þú, sem með óþreytandi elju neytir
allra lífsins krafta til þess að leggja
þjóðinni til mannvænlega eftirkom-
endur og leggur á þann hátt ó-
grynni fjár til þjóðþrifa fyrir utan
alt annað. Líttu upp og fram! Þú
hefir óhrekjanlegar kröfur til frelsis,
menn ingar og viðurkenningar — til
jafnréttis við Mammon.
Enn sem komið er lætur þú um
of leiðast af annara vilja og' skoð-
unum, annara drotnun og valdi.
En þetta á ekki svo að vera;þúert
fær um sjálf að eiga aðalþáttinn í
þeim málum, sem varða velferð
þína og menning — málum þeim,
sem heill og framtíð þjóðarinnar
stendur og fellur með.
Og til þess að þetla verði — að
þú náir framförum, menningu og
viðurkenningu, verður þú að vinna.
Þú verður sjálf að heyja baráttuna
til frelsis og sigurs sjálfri þér. Þig
á ekki að skorta skilning og atorku
til þess.
íslenzk alþýða! Tak höndum
saman sem einn maður til eflingar
menningu þinni og frelsi. Ryð sjálf
brautina. Og þú ert alfrjáls! H. B