Alþýðublaðið - 01.01.1906, Side 8

Alþýðublaðið - 01.01.1906, Side 8
8 ALÞÝÐUBLAÐIÐ. Smáveg-is. Kaldabras. Hér á landi hafa gengið munnmæli um einstakamenn, sem áttu að kunna kaldabras, þ. e. festa saman járn án þess að eldbera það. Þetta var belst eignað framúrskarandi hagleiks- mönnum eða þeim, sem framúrskar- andi þekkingu höfðu í járnsmíði. En svo var með kaldabras, sem marga aðra kunnáttu, að það jþótti ekki »einleikið«, var með öðrum orðum unnið með tilstyrk Djöfulsins, sær- ingum illra anda eða öðru óguðlegu atbæfi. Það var víst, að aðferðin var leyndarmál, sem þeir er þektu, létu aldrei uppskátt. Sumir menn efuðust þó um að kaldabras væri annað en ímyndun ein. En hinirvoru samt æðimargir, og eru jafnvel til enn, sem trúðu að það ætti sér stað. Eg hefi heyrt það sagt um Baldt, sem var yfirsmiður við alþingisbús- ið, að hann hafi farið með hamra, fleyga og önnur járntæki, sem brotn- uðu við vinnuna, í smiðju og kom- ið með þau heil, eftir skamma stund, án þess að eldmerki sæust á járn- inu. Hann átti að hafa kunnað kaldabras. Svipaðar sögur hefi ég heyrt um járnsmið einn, sem nú er í Reykjavik. Það er ekki líklegt að kaldabras hafi átt sér stað áður á tímum, en nú á tímum geta menn hrasað sam- an kalt járn með heldur einfaldri aðferð. Til þess er notuð efnablanda, sett saman úr 6 hlutum hrennisteins og 6 hl. blýhvítu móti 1 hl. huris (borax). Þessi efni eru svo hrærð út í sterkri brennisteinssýru. Sýran er borin í sárin, sem saman á að brasa og járnið sett undir mikið farg. Eftir vikutíma eru samskeyt- in eins traust og heilt járn væri. Skrítlur. A. (við strokufangann): »Ertu sloppinn úr gildrunni?« F.: »Nei, — ég setti bara annan 1 staðinn minn«. A.: »0g hvern þá?« F.: »Fangavörðinn —!« Itl. 11 á Þorláksmessukveld. Viðskiftam. (við kaupm.): »Mér finst engin aðsókn hjá vður; það er þá dálítið líilegra hjá stéttarbróður yðar þarna vesturfrá«. Kaupm.: »Jú, það skil ég; þangað koma unglingar og landeyður til þess að hlusta á Negrasöngva og Bram- ínagarg. En liingað kemur fólkið til þess að verzlaa. Einn af gestunum við bóndann: »Hvaðan hafið þið fengið þessa fal- legu könnu?« Bóndinn: »Hún er »bestelt«. Konan: »U-nei, hjartað mitt, hún er pöntuð!« B: »Hvaða vitleysa, hlíðan mín. hún er »bestelt!« Orobb. í. málari: »Ég málaði mynd, svo eðlilega líka vetrarhjarninu, að þeg- ar jeg hengdi hana upp í herberg- inu mínu, »féll« hitamælirinn um 10 stig«. 2. málari: »En ég málaði í fyrra mynd af Grími gamla kaupmanni svo eðlilega og »lifandi« að ég hefi orðið að raka hana á hverjum morgni síðan«. Prentsiniðjan Gutenberg.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/157

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.