Lögberg-Heimskringla - 08.12.1960, Side 1

Lögberg-Heimskringla - 08.12.1960, Side 1
Högberg - J^etmskringla SlofnaS 14. Jan., 1888 StofnuS S. aapL. ltSS 74. ÁRGANGUR WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 8. DESEMBER 1960 NÚMER 47 Kappsamur námsmaður Fréttir frá Gimli í október síðastliðnum hlaut Mr. Ruth Master of Education gráðu frá Manitoba háskól- anum og var prófritgerð hans A History of Education of the Icelanders in Manitoba, er þetta fjórða háskólagráða hans. Hann hlaut Bachelor of Arts gráðu 1934; Master of Roy H. Ruth Arts gráðu 1953; Bachelor of Education 1955 og má með sanni segja, að hann hafi ver- ið kappsamur námsmaður, ekki sízt þegar tekið er til greina að hann hefir gegnt ýmis konar störfum á þessu tímabili. Hann vann 5 ár við búnaðarstörf hjá föður sín- um; 14 ár við kennslu og 11 ár hefir hann verið í þjónustu sambandsstjórnarinnar. Mr. Ruth er sonur Guðjóns og Guðrúnar Ruth (Hrútfjörð), Kveðjum skilað Heiðrekur Guðmundsson skáld frá Sandi, nú á Akur- eyri, bað dr. Richard Beck fyrir kveðjur vestur um haf með eftirfarandi vísu, er hann skráði á eintak af nýjustu kvæðabók sinni, Vordraumar og vetrarkvíði: Við, sem yrkjum, eigum þér allir skuld að greiða. — Berðu vestur, kvæðakver, kveðju um hafið breiða. Annar Akureyringur, Bjarni Jónsson úrsmiður frá Gröf (áður um skeið vestan hafs), orkti meðfylgjandi vísu undir ræðu dr. Becks á fundi Rót- aryklúbbsins á Akureyri 19. ágúst síðastliðinn og afhenti honum í fundarlok: Richard Beck er góður gestur, gjöfull á vor mál að styðja, fáa vildi ég fremur biðja fyrir kveðju mína vestur. er stunduðu búskap að Cyp- ress River, Man. Þar ólst hann upp og hlaut barnaskóla- í síðastliðnum mánuði voru málverk listmálarans Emile Walters sýnd í f jórum borgum í Florida ríki á vegum Nation- al Collection of Fine Arts of the Smithsonian Institution. Voru það myndir hans frá Is- landi og Grænlandi. Áður var þetta myndasafn sýnt í New- port, R.I.; Boston, Mass., og að Dartmouth College og hef- ir hvarvetna hlotið lofsamleg ummæli. í tilkynningunum um sýningarnar er Islands jafnan minnzt og sögu þjóð- arinnar. Mr. Walters flytur og fyrirlestra í sambandi við sýningarnar. Hann er talinn með þeim beztu, er mála landslag og umhverfi í heims- skautalöndum. Of Walter’s paintings, the art critic for the New York Post wrote: “He . . . performs the astonishing feat of making the incredible credible. The amazing contours and colors of this unique land ... the reflec- tions of glaciers in an almost rainbow brilliance above the line of mountains . . . ren- dered by the artist with di- rectness and simplicity that make them convincing.” Flóttamannavandamálið í Evrópu brátt leysi Þess er skammt að bíða, að flóttamannavandamálið verði að fullu leyst og það væri þess vegna ábyrgðarleysi að hætta starfinu núna, sagði Svisslendingurinn dr. Auguste Lindt, yfirmaður flóttamanna- stofnunarinnar nýlega á fundi Allsher j arþingsins. Árið 1955 var tala þeiría flóttamanna í Evrópu, sem ekki höfðu enn fengið varan- legt hæli, 252,000. I árslok verður talan komin niður í 75,000, enda þótt 238,000 nýir flóttamenn hafi bætzt við á tímabilinu. Síðan 1955 hafa svo 170,000 manns bætzt við í flóttamannabúðunum. Vandamál ungverska flótta- fólksins eru nú svo að segja leyst, sagði dr. Lindt. Um þessar mundir eru 200,000 flóttamenn í Marokko og Tun- is. Hann færði öllum þeim löndum, sem hefðu veitt flóttafólki læknishjálp og að- stöðu til menntunar, hinar innilegustu þakkir. menntun, en miðskólamennt- un við Jón Bjarnason Acad- emy. Háskólaprófum sínum lauk hann við Manitobahá- skólann. The New York Times com- ments on “the strange land- scapes, weird skies and atmos- pheric effects . . . that evince Emile Walters a striking sense of design.” Newsweek réported that visi- tors liked the ability with which Walters transferred space and brightness to his canvass “in an atmosphere strangely clear . . . where I colors stand out sharply.” „Flóitamannaárið" reyndist árangursríkt Dr. Lindt sagði, að það væri beinn árangur af „flótta- Frh. bls. 8- Við Kyrrahaf Er hlýr og bjartur röðull rís úr rekkju svartrar nætur, jökull skartar eldi og ís, inn í hjartarætur. Röðull stafar Ránar lönd rósum vafurloga; greiðir traf frá geimsins rönd glæst um haf og voga. Yndisstundum bresta bönd, bundnum lyndistrega: Teiknar myndir tímans hönd á tjaldið yndislega. Vakir blær í veðri og lund; vonin kær, og trúin; eins og væri ung hver stund, ellihærum rúin. í kvöldsins fró við Kyrrahaf kýs ég ró og næði. Ekkert dó, sem yndi gaf; efni nóg í kvæði. S. E. BJörnsson 28. nóv. 1960 Sunnudaginn 2. okt. síðastl. minntust börn og barnabörn Mr. og Mrs. W. J. Ámason 75 ára afmælis Mr. Árnasons, sem var næsta dag, en Mrs. Árnason átti 72 ára afmæli síðar í mánuðinum. Veizlan, þar sem 40 skyldmenni ásamt börnum og barnabörnum, sett- ust að borðum, var haldin á sumarheimili J ó n s sonar þeirra og frú Lilju konu hans. — Mr. og Mrs. Árnason hafa tekið happadrjúgan þátt í starfsemi Gimli-bæjar og em enn vel starfandi að ýmsum áhugamálum bæjarins. Mr. Árnason er umsjónarmaður fyrir Gimli Park og er í Is- lendingadagsnefndinni, og er einnig féhirðir þjóðræknis- deildarinnar á Gimli. Mrs. Árnason er varaféhirðii* deild- arinnar og hefir starfað vel og í mörg ár í djáknanefnd lútersku kirkjunnar á Gimli. Þau hjónin hafa komið upp níu börnum með ráðdeild og sóma, sem eru nú mörg í ábyrgðarfullum stöðum. Hin- ir mörgu vinir þeirra á Gimli óska þeim allra heilla og margra ára farsælla ævidaga. Þann 26. okt. var afmælis- veizluhald á Betel. Miss Mar- garet Sveinsson stjórnaði skemmtiskrá að vanda. Hún minntist þess, að Mrs. Odd- fríður Jóhannson, sem átti af- mæli 1. okt., væri ekkja Jóns Jóhannssonar, sem var fyrsta íslenzka barnið, sem fæddist í Nýja Islandi. „Klukkan tvö um nóttina, fáum klukku- stndum eftir að fyrsti hópur íslendinga lenti við Viðines- tangann ( W i 11 o w Island), fæddist Jón í tjaldi við stóran hvítan stein í fjörunni.“ Margt er breytt á Willow Island síð- an fyrsti hópurinn kom þang- að síðasta sumardag 1875. Svo sagði hún: „Miss Guðrún Sigurðsson, sem átti afmæli 10. okt., kom til okkar 1943, þegar þörfin var mest og það leit út fyrir að enginn feng- ist til að matreiða, þá kom Gunna til okkar að matreiða á Betel. Hún hætti að mat- reiða fyrir mörgum árum, en var aldrei langt í burtu og hélt áfram að vera eins og ein af okkur, þar til hún kom til að dvelja hér á Betel með okkur." Miss Sveinsson ósk- aði öllu afmælisfólkinu heilla. Fyrst og síðast var sálmasöng- ur og var Mrs. H. Stevens við orgelið. Próf. S. K. Hall stjórnaði alþýðusöngvum og lék á píanóið. Mr. Jóhannes Húnfjörð fór með kvæði eftir sjálfan sig. Miss Sæunn Bjarnason las gamanvísur, ortar af ungfrú Guðrúnu M a r í u Benónísdóttur að Hvammstanga í Vestur-Húna- vatnssýslu. Miss S. Hjartar- son flutti gott ávarp til af- mælisfólksins og gesta. Eftir- farandi áttu afmæli í október: Oddfríður Jóhannson, Sigur- veig Jónassson, Jakobína Nor- dal, Guðrún Sigurðsson, Ás- gerður Brandson, Thorbjörg Goodmundson, Bergur John- son, Daníel Peterson. Elzta 87 ára, yngsta 75 ára. Miss Anna Guðrún Johnson frá Gimli útskrifaðist í lok júlímánaðar sem flugfreyja á Trans-Canada loftleiðum eftir yfirgripsmikið fimm vikna námskeið í Montreal. Miss Johnson er fædd á Gimli og er dóttir Mrs. Steinunnar Johnson og manns hennar, Bergsveins Johnson, sem lát- inn er fyrir mörgum árum. Anna stundaði nám við Gimli skóla og útskrifaðist frá Gimli miðskóla með ágætri einkunn og tók einnig drjúgan þátt í félagslífi og störfum skólans, t. d. í leiklist, í ritstjórn árs- rits og sem erindsreki til „United Nations Seminar“ námskeiðs um starfsemi Sam- einuðu þjóðanna. Hún fór frá Gimli til Manitobaháskólans og brautskráðist þaðan með „Bachelor of Arts“ nafnbót síðastl. vor i maímánuði. Hug- heilar heillaóskir fylgja Miss önnu Johnson hvar um heim sem leið hennar kann að liggja. Dr. og Mrs. A. B. Ingimund- son kom heim til Gimli 28. október úr skemmtiferð til Evrópu. Þau fóru frá Winni- peg kl. 5 e. h. 2. okt. og komu til Lundúnaborgar kl. 9 næsta morgun; ferðuðust með „jet“ flugvél. Þau komu við í Lund- únaborg, Parísarborg, Brus- sels, Amsterdam, Kaupmanna- höfn og Hamborg. Flugu þau milli allra viðkomustaða. Mrs. Ingimundson hafði verið mjög hrifin af fegurð Englands, en læknirinn dáðist mjög af Danmörku. Mrs. Jósephína Johnson, kona Jóns B. Johnson frá Birkinesi, átti sjötugsafmæli 3. nóvember. 1 því tilefni var veizla haldin sunnudaginn 6. þ. m. á heimili Mr. og Mrs. Laurence Stevens. Mrs. Stev- ens er elzta dóttir þeirra hjóna. Fjölskyldan byrjaði daginn með að vera við guðs- þjónustu í lútersku kirkjunni kl. 11 að morgni. F/O W. G. Silvester, tengdasonur þeirra, gekk í söfnuðinn og litla dótt- ir hans var skírð Maureen Ann, hún er yngsta bamabarn Frh. á bla. 7. Málverk Walters sýnd í Florida

x

Lögberg-Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.