Lögberg-Heimskringla - 02.03.1961, Side 6

Lögberg-Heimskringla - 02.03.1961, Side 6
6 LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAG'INN 27 MARZ 1961 GUÐRÚN FRA LUNDI: Römm er sú taug Framhald skáldsögunnar Þar sem brimaldan brolnar „Þetta er ekki nýtt. Skaps- munirnir hans í fyrra vetur, þeir voru svei mér ekki allt í sómanum.“ „Hefir þér aldrei dottið í hug að skilja við hann?“ spurði Stella tengdamóður sína. „Ég er svo hrædd við geðvonzkuna í honum, að ég þori ekki að koma inn til þín, þegar hann er heima.“ „Þær yrðu nú ekki ánægðar með það, dætur mínar, að við skildum, enda finn ég það vel, að hann er ákaflega dug- legur og ráðagóður við allt, sem þarf að útvega til heim- ilisins. Systurnar erujbráðum orðnar fullvaxta, og þá kem ég í hornið til Tómasar míns, þó að ég sé nú heldur ung enn þá til þess að fara að setjast í hornið hjá börnunum." Þetta kvöld kom græni bíll- inn frá Breiðasandi enn einu sinni til höfuðstaðarins og renndi heim að húsinu á Bragagötunni og Málfríður litla hoppaði út úr honum og beint upp í fangið á föður sín- um, sem hafði séð bílinn nálg- ast og grunað hvert erindi hann myndi eiga. „Þarna ertu þá komin heim, litla stúlkan mín,“ sagði hann. „Nú verður notalegt að koma inn í hlýjuna til mömrnu," bætti hann við og það var gleði í rómnum. Maríanna kom fram til að fagna dóttur sinni og bjóða hana velkomna heim. „En hvers konar búningur er þetta á þér barn; í verka- mannabuxum. Hvernig getur þú látið fólk sjá þig í þessu,“ fjasaði mamma hennar. „Ég er í hinum buxunum innan undir. Ég hef nú aldrei farið út úr bílnum fyrr en núna, svo að það hefir enginn séð mig. Aldís sagði, að mér yrði hlýrra að vera í þessum buxum utan yfir,“ sagði Mál- fríður og vermdi sig við ofn- inn, því að það var kalt úti og hún dálítið þreytt eftir ferðalagið. „Við hverju er að búast öðru en smekkleysinu og durnara- skapnum hjá pakkinu þarna fyrir norðan," sagði Maríanna. „En við skulum nú ekki tala meira um það.“ „Gefðu mér heldur eitthvað að borða en að vera skamma fólkið í Látravík. Það er svo góð matarlykt hérna,“ sagði Málfríður. „Hvenær fórstu frá Látra- vík?“ spurði Maríanna. „í gærmorgun. Ég gisti hjá Aldísi, mömmu Sifu. Hún var í Látravík í vor, og hún var góð við mig.“ „Ja, alltaf heyrir maður eitthvað nýtt. Gistir þú hjá henni,“ sagði Maríanna stór- hneyksluð og hristi höfuðið. „En ég má víst annars ekkert segja vegna þess að ,hún er móðir bílstjórans og hann er að koma inn með pabba þín- um, en ekkert er ég hrifin af því, að dóttir mín gisti hjá svoleiðis fólki.“ Hallur bauð bílstjóranum sæti við matborðið. „Við ætluðum nú að fara að borða. Þú hefir sjálfsagt ekk- ert á móti því að fá heita kjöt- súpu hjá okkur?“ Maríanna fór að láta diska á borðið og Málfríður hjálp- aði henni til og lét hnífapör- in og skeiðarnar hjá diskun- um. „Hún er dugleg, þessi dótt- ir þín, Hallur,“ sagði bílstjór- inn. „Mamma er hrifin af henni, síðan þær voru saman í vor.“ „Hún ætlar nú líka að verða ráðskona hjá mér í Látravík eftir nokkur ár,“ sagði Hallur. „O, ætli þeim þyki ekki heldur skemmtilegra hérna í höfuðstaðnum dætrunum þín- um. Það flytja víst fáir í sveitina aftur, sem yfirgefa hana á annað borð,“ sagði gesturinn. „Ætli það verði ekki eins um ykkur.“ „Ég vil alltaf vera í Látra- vík,“ sagði Málfríður. „Þar er svo mikið af eggjum. Sifa á egg enn þá. Hún geymir þau í salti. Sum hefir hún soðið og geymir þau í súr.“ Maríanna sneri sér undan til þess að leyna háðbrosinu yfir búskaparlaginu hjá Sifu. „Það er alltaf mikill blóma- búskapur þar,“ sagði Hallur. „Það sannast á mér, að enginn veit hvað hann hefir átt, fyrr en hann er búinn að missa það. Ég hef aldrei séð það eins vel og nú, þegar ég er farinn þaðan allslaus, hvað sú jörð er dásamleg, enda finnst mér ég hvergi eiga heima lengur.“ „Það ætlaði heldur enginn að trúa því að þú færir það- an,“ sagði Kristján. „Það var ég, sem hafði vit á því, hvað mundi vera betra fyrir okkur,“ sagði Maríanna. „Hallur var víst búinn að þræla nóg í Látravík og við bæði.“ „Sjálfsagt þarf fólk að vinna fyrir sér hér í Reykja- vík eins og annars staðar. Þannig er það að minnsta kosti hjá okkur tómthús- mönnunum á Breiðasandi,“ sagði Kristján. / „Ég hafði að minnsta kosti ekki léttari vinnu í sumar en ég hef haft við búskapinn,“ sagði Hallur. Þegar bílstjórinn var far- inn, komu þau ungu hjónin fram í eldhúsið til þess að heilsa upp á Málfríði. Stella hélt á dóttur sinni í fanginu. „Mér datt í hug, að þér þætti gaman að sjá hana litlu frænku þína,“ sagði hún. . „En hvað hún er lítil og falleg,“ sagði Málfríður og bjóst til að taka hana. „Þú ert nú hreint ekki þess- leg að snerta svona fína dömu,“ sagði Maríanna. „Því- líkur þó klæðnaður á barninu. Hún er bara í verkamanna- buxum.“ „Það er víst ekki óvanalegt nú orðið, að stúlkur komi svna klæddar úr sveitinni,“ sagði Stella. „Svoleiðis litu systur mínar út. Það eru víst ekki svo fín sætin í þessum vörubílum, að það taki því að vera í þokkalegum fötum.“ „Það getur nú verið að það sé rétt hjá þér,“ sagði Marí- anna. Svo kallaði hún á Döddu, sem var uppi á loft- inu og bað hana að láta renna í baðkarið, svo að hún systir hennar gæti losnað við sveita- lyktina. „Ég þvoði mér í fyrradag og dettur ekki í hug að fara að stússa við það frekar fyrst um sinn. Ég fer að hátta, því að ég er bæði þreytt og syfjuð,“ sagði Málfríður. „Ég veit nú bara ekki, hvort ég á að láta þig sleppa við það,“ sagði Maríanna. „Hver veit nema . . .“ Hún hikaði við að segja meira. Dadda kom ofan. „Ég vissi ekki að það væri Málfríður, sem var komin. Heyrði bara, að það var einhver gestur,“ sagði hún og heilsaði systur sinni og bauð hana velkomna heim. Maríanna bauð ungu hjón- unum að fá sér sæti. „Við fáum okkur nú líklega almennilegt kaffi, fyrst við erum hér öll saman komin.“ Stella hafði lagt litlu dótt- urina á borðið, svo að Málfríð- ur gæti virt hana betur fyrir sér. En nú ýtti Stella vi® tengdamóður sinni til af \ekja athygli hennar á þv1, að Hallur var allt í einu far' inn að skrafa við barnið. „Ósköp er þetta lítill kvefl' maður,“ sagði hann í þeinl tón, sem þetta heimili hafð1 aldrei heyrt fyrr. „Ja, hvað sýnist þér, Hall' ur minn,“ sagði Maríann^ „Finnst þér það vera nokkUr munur eða stóru og falleg11 börnin okkar, sem allir dáð' ust að.“ „Það er nú líka talsverðar munur á mæðrunum,“ sag®1 Hallur með góðlátlegri glettnr „Það er víst engin von ri' að hún sé stærri eins og Ste^a var sárlasin allan meðgöngu' tímann,“ sagði Tómas. „Hún s t æ k k a r líklef?3 fljótt," sagði Málfríður. ASTÆÐUR FYRIR AÐ GERAST KANADISKUR ÞÉGN Það eru tvær aðal ástæður fyrir því: hollusta til hins nýja lands, og persónulegir hagsmunir fyrir yður. Það er aðeins sanngjarnt að þér stígið spor í þá átt að gerast borg- ari. Það sýnir börnum þínum og öðrum Kanadamönnum, að þér séuð fúsir að takast á hendur skyldur og ábyrgð þá, er því er samfara að gerast borgari þessa lands. Það er í sjálfu sér siðferðis- leg ábyrgð. Eins og aðrir borgarar, hafið þér réttinn til þess að njóta þess, sem þegnréttindum er samfara. Þér getið greitt atkvæði við kosning- ar og tekizt á hendur opinberar stöður í þjónustu landsins. Þér getið jafnframt sem hver ann- ar borgari fengið ferðaleyfi (pass- port), sem auðveldar ferðalög og tryggir. Þér getið nú þegar sótt um þegn- réttarleyfi, ef þér hafið flutt til landsins lögum samkvæmt, hafið leyfi til að setjast hér að og hafið dvalið hér í fjögur ár og níu mán- uði, frá því yður var leyfð land- dvöl. Kunná-ttu er að vissu leyti krafizt til þessa í ensku eða frönsku. Beiðni fyrir borgaralegu leyfi get- ið þér sótt um á skrifstofu héraðs- dómara byggðar yðar, eða Cana- dian Citizenship Court, sem næst er heimili yðar, eða hjá Registrar of Canadian Citizenship, ef þér bú- ið meira en 50 mílur frá héraðs- skrifstofunni (established court). Ef þér eigið þessa ekki enn þá kost, þá búið yður nú þegar undir að verða þegn Kanada. Sækið kennslu í málum, sem veitt er og öðrum borgaralegum fræðum í byggð yðar.

x

Lögberg-Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.