Lögberg-Heimskringla - 25.07.1963, Side 1
Högberg; - 5)etmsímng;la
Slofnað 14. jan.. 1888 Slofnuð 9. sept.. 1886
7T ÁRGANGUR WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 25. JÚLÍ 1963 NÚMER~30
Friðrik Ólafsson í Los Angeles
íslenzka kvenfélagið
Victoria, B.C. (Victoria
Women’s Icelandic Club) hélt
hina árlegu útisamkomu sína
sunnudaginn 14. júlí í skrúð-
garðinum við heimili þeirra
Mr. og Mrs. Haraldur Bjarna-
son, sem bæði er fallegt og
ágætlega staðsett.
Ríkulegar veitingar voru á
borð bornar, og skemmtu
samkomugestir, er voru um
30 talsins, sér við fjörugar
samræður. Yfir borðum flutti
dr. Richard Beck ávarp, þakk-
aði konunum ágætt starf
þeirra og árnaði félagi þeirra
heilla; lauk hann máli sínu
með því að lesa upp tvö nýort
kvæði sín. Meðal samkomu-
gesta var Miss Jónína Skafel
hjúkrunarkona, sem nýkomin
var úr Islandsferð, lét hún hið
bezta af ferðinni og hinum
ágætu viðtökum, sem hún
hafði átt að fagna.
Núverandi embættismenn
íslenzka kvenfélagsins í
Victoria eru: Mrs. Ágústína
Bjarnason, forseti; Miss Lilja
Stephenson kaupkona, vara-
forseti; Mrs. Anna Sveinsson,
ritari, og Mrs. Vala Miller,
gjaldkeri.
Fundir eru haldnir einu
Bréf frá séra
Mér finnst að það sé langur
tími síðan ég skrifaði ykkur.
Ég man þó þegar ég kvaddi
þig, Ingibjörg, á skrifstofu
blaðsins 14. júní s.l. að ég lof-
aði því að láta einhvern
fréttapistil fara frá mér öðru
hvoru. Ég hefi komist að raun
um það að eldra og gamla
fólkið hefur gaman af mínum
fátækum orðum því eins og ég
hefi sagt áður er dálítið erfitt
að hnoða saman bréf hér á
afskekktum stað þar sem lítið
skeður. En ,tilbreytingarlaust
líf‘ ef það má kalla það hérna
er gott og fagurt, sérstaklega
þegar maður getur borið það
saman við annað úti í stóra
heiminum.
Við höfum sérstaklega
mikla ánægju af því að taka
á móti Bjössa Björnssyni hér
á Tjörn, sem var einu sinni
meðhjálpari minn við Ár-
borgarkirkju. Þeir bræður
Guðmundur og hann voru
með hópferðinni frá Winni-
peg en því miður komst ekki
Imba, kona Bjössa vegna las-
leika. Hún hefði haft sannar-
lega ánægju af því að sjá
Húnavatnssýslu því hún er
fædd í Austurhlutanum. Ég
man að ég spurði Bjössa
hérna þar sem ég skrifa þess-
ar línur hvernig honum litist
sinni á mánuði, nema yfir
sumarmánuðina, auk þess ár-
leg útisamkoma að sumrinu
og jólasamkoma. Félagskonur
eru nú um 20 talsins.
Kvenfélagið, sem er eini ís-
lenzki félagsskapurinn í Vic-
toria, á sér 14 ára sögu að
baki. Fyrsti forseti þess var
Mrs. Rósa Semple, fyrsti rit-
ari Mrs. Marinó Hannesson,
og fyrsti gjaldkeri Miss Lilja
Stephenson.
Mrs. Sigrún Thorkelsson,
sem nýlega er látin, eins og
kunnugt er, hafði verið mjög
áhugasöm um starf félagsins,
bæði skipað forsetasess og
skrifara. Var hún forseti fé-
lagsins, er hún lézt, og úti-
samkoman í fyrra haldin á
hinu fagra heimili þeirra
hjóna.
Þetta er í annað sinn, sem
undirritaður og kona hans
hafa átt þess kost að vera
gestir á útisamkomu félags-
ins, og gríp ég tækifærið til
þess að þakka í okkar nafni
félagskonum og mönnum
þeirra fyrir alla rausn og vin-
semd, og sérstaklega ánægju-
legar samverustundir.
RICHARD BECK.'
Robert Jack
á Island og fólkið.
„Ljómandi" svaraði hann
„hérna er velmegun. Allir
líta svo vel út og virðast hafa
nóg fyrir sig.“
Því miður hitti ég mjög fáa
sem komu fljúgandi í heim-
sókn frá Vancouver og Win-
nipeg. Ég var eitt kvöld í boði
með Snorra Gunnarssyni og
konu hans frá Vancouver og
var það gaman að sjá þau
aftur og rifja upp gamlar
endurminningar. Slröndin er
sannarlega heppin að hafa svo
duglegan forseta.
Það var eins og landar að
Vestan færu með góða veðrið,
því upp úr því að þeir flugu
burt frá Keflavík hefur það
smám saman kólnað hérna
um slóðir og í gærkvöldi
spáði veðurstofan él til fjalla.
í dag er ískalt og hitinn rétt
fyrir ofan frostmarkið. Minna
er um umferð um Vatnsnes í
sumar og ég held að ástæðan
fyrir því sé sú að í sumar
fara margar hópferðir frá
Reykjavík til Skandinavíu.
Islendingar bæði að Vestan
og að Austan ferðast mikið í
sumar.
Um daginn þegar ég var að
verzla á Hvammstanga hitti
ég séra Valdimar Eylands og
konu hans. Þau voru á hraðri
ferð norður á land og kom-
umst ekki hingað. Það var
ánægjulegt að sjá bæði líta
svo vel út.
Ég vildi gjarnan hafa hitt
Guttorm skáld og dóttur hans
en það fórst alveg fyrir en
samt hlustaði ég á hann að
flytja góð orð í útvarpinu og
var hann snjall eins og hann
hefur ávalt verið.
Það hefur gengið mjög
sæmilega hjá síldveiðibátum
á norðurlandi en þoka hefur
oft verið á miðunum í sumar
sem stafar sennilega af ísnum
sem er skammt frá. Tveir
drengir mínir eru nýkomnir
heim úr vinnu á Akranesi.
Þar hafa þeir verið í tvo
mánuði, annar er 13 ára og
hinn 14 ára. Þeir voru í fisk-
vinnu og hafa þeir aflað milli
sín 26,000.00 krónur. Það eru
þeir sem voru í Árborg,
Robert Jón og Erlingur og var
það gleðifundur þegar Bjössi
og Guðmundur Björnsson
hittu þá á Akranesi. Nú hafa
þeir í skólann næsta vestur
— þeir eru á heimavista-
skóla. — Ef unglingar geta
fengið svona góða peninga á
stuttum tíma hvað þá um
fullorðna, ef þeir bara nenna
því að vinna, og sem betur
fer er nóg að gera hérna.
Ég fer stundum á kvöldin
í tjöld til vegavinnumanna og
eru þeir skammt frá. Þeir sofa
tveir í tjaldi sem er með tré-
botni, rúm handa hvorum og
upphitunartæki. Það er borð-
að í stórum rúmgóðu timbur-
húsi sem er flutt með þeim
hvert sem þeir fara. Þetta er
allt annað nú til dags, snyrti-
legt og fullkomið, og gengur
stór eldavél fyrir olíu og ljós
fyrir Calor gasi. Hestakerrur
eru nú ekki lengur til og í
stað þeirra hafa komið stór-
virkar vélar og trucks. Altaf
er því að stækka vegakerfi
landsins og er það dýr fram-
kvæmd þar sem landið er
stórt og fólkið fátt. Skúli
Magnússon sem er verkstjór-
inn í tjöldunum skammt frá
mér er hægur og skemmti-
legur maður óg hefur hann
séð miklar breytingar á að-
ferðum í vegavinnu síðustu 30
ár.
Tilkynning frá
Utanríkisráðuneyii íslands
Hinn 4. júlí 1963 sæmdi
forseti íslands dr. Watson
Kirkconnell stórriddarakrossi
Fálkaorðunnar.
Sama dag sæmdi forseti hr.
John F. Sigurdson, ræðis-
mann íslands í Vancouver,
B.C.. riddarakrossi orðunnar.
Uianr íkisráðuney tið,
Reykjavík, 19. júlí 1963.
Hinn þjóðkunni skákmeist-
ari Friðrik Ólafsson frá
Reykjavík á Islandi er nú sem
stendur í skákkeppni við 7
kappa úr ýmsum áttum.
Stendur hann sig prýðilega
svo að nafn hans og þjóðerni
hans er í stórum stöfum í
dagblöðunum dag eftir dag.
Friðrik er fæddur í Reykja-
vík 26. janúar 1935, sonur
Ólafs Friðrikssonar og Sig-
ríðar Símonardóttir. Faðir
plafs var Friðrik Ólafsson
húsvörður í gamla Islands-
banka. Meðal systkina Ólafs
eru m. a. séra Friðrik A.
Friðriksson, sem að er vinur
og velunnari Vestur-Islend-
inga og lengi prestur vestan
hafs og Björgvin bakarameist-
ari. Faðir Sigríðar var Símon
Sveinbjarnarson skipstjóri.
Kona Friðriks er Auður Júl-
íusdóttir, foreldrar Bergljót
dóttir Jóhannesar Patursson
í Færeyjum og hinnar Is-
lenzku konu hans Guðnýjar
frá Karlskála og prófessor
Júlíus Sigurjónsson læknis
frá Dalvík. Friðrik byrjaði að
tefla 11 ára að aldri og nú
búinn að að tef'Ia í öllum
löndum heimsins þar sem að
hvítt fólk býr.
Islendingafélagið bauð Frið-
rik til kvöldverðar í Mona
Lisa matsöluhúsinu laugar-
dagskvöldið 20. þ.m. og um
35 manns borðaði með honum.
Friðrik les lögfræði. 6 feta
hár, ljós á hár og hörund,
prúðmenni með alheimsborg-
arabrag og drengmannlegur í
bezta lagi. Lét hann í Ijós
ánægju sína að finna svo
marga Islendinga hér, og
fannst þeir eigi neitt dauða-
15. júní hélt „Ströndin“
deild þjóðræknisfélags Is-
lendinga í Vancouver sam-
komu í neðri sal ísl. kirkjunn-
,ar til að minnast fæðingar-
dags Jóns forseta Sigurðsson-
,ar, 17. júní, eins og fleiri góð-
ir íslendingar. Tveim dögum
áður fór stór hópur Strand-
arfélaga — og þar á meðal
Snorri Gunnarson forseti
„Strandar", í skemmtiferð til
Jslands.
í fjarveru forsetans, stjórn-
uðu þeir Óskar Howardson og
Herman Eyford samkomunni.
Á prógrami voru tvær ungar
stúlkur, sem spiluðu píanó
solos, þær Marja Howardson
og Elizabeth Oddstad. Einnig
fékk fólk að heyra prógram
„tape recording“, sem tilbúið
var einmitt fyrir þetta tæki-
færi „17. júní“.
Á eftir prógraminu báru
legir þjóðernislega. Frú Olive
Swanson á Long Beach, ný-
lega komin frá íslandi, býður
Friðrik og vinum sínum til
kvöldverðar um næstu helgi
til síns veglega heimilis. Allir
hinir nýju vinir Friðriks óska
að hann beri sigur úr bítum
fyrir sig, land sitt og þjóð.
* * *
Hinn 6. jan. þ. á. andaðist í
Los Angeles Kristín Jörunds-
son Mitchell hún var fædd á
Islandi og dvaldi nær 40 ár í
Los Angeles. Auk margra
ættingja í Kanada lætur hún
eftir sig tvær systur í Los
Angeles, Þóru Lausing og
Aðalheiði Mc-Nutt.
* * *
Þann 12. júlí voru gefin
saman í hjónaband í Detroit,
Mich., Hubert Paul og Helga
Friðgeirsson. Heimili þeirra
verður í California.
* * *
Nýlega voru hér á ferð 8
ungir Islendingar, sem að
stunda vélavirkjun í Tulsa,
Oklahoma, en þar eru annars
24 menn frá íslandi við nám.
Nöfn þeirra: Einar K. Knút-
son, Jón Garðar Ágústsson,
Stefán Baldursson, Vilhjálm-
ur Baldursson, Ketill Oddson,
Geir Hauksson, Sigurður
Jónsson og Marteinn Stein-
þórsson, áttu sumir þeirra
ættingja hér, sem að þeir
leytuðu uppi, t.d. Gladys
Vatnsdal Babcock bókavörð
í Altadena og Þorstein
Bjarnason í Hollywood. Var
gaman að kynnast þessum
rösku mönnum eða unga
Islandi.
Strandar konur fram kaffi og
ágætar veitingar fyrir alla, og
fólk skemmti sér við sam-
ræður fram eftir kvöldinu.
☆
Þorsieinn Bergman andað-
,ist á sjúkrahúsi hér í Van-
couver 25. júní 1963. Hann
var fæddur á Islandi, 21.
október 1872. Hann var vist-
,maður á Höfn frá því 14.
ágúst 1949, þangað til hann
var fluttur á sjúkrahús
snemma á þessu ári.
Hann var einn af hinni al-
kunnu Bergmans ætt, þriðji
maður frá ættföðurnum Sig-
fúsi Bergman.
Þorstein lifa 5 börn hans:
Otto í Flin Flon, Man.; Jón í
Winnipeg, Man.; Agnar í Port
Alberni, B.C.; Mrs. Magnús-
son í Geysir, Man.; og Miss
jólavía í Winnipeg, Man.
Framhald á bls. 2.
Frá Victoria, B.C
í
Skúli G. Bjarnason.
Frá Vancouver