Lögberg-Heimskringla - 14.11.1963, Page 1
Högberg- Jletntéímngla
Slofnað 14. jan., 1888 Stofnuð 9. «©pt., 1886
77. ARGANGUR WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 14. NÓVEMBER 1963 NÚMER 43
Frú Jakobína Johnson
80 ára afmæli í Vancouver, B.C., 2. nóv. 1963.
Er árdags sól frá himni heiðum,
haustsins litum málar tjöld,
og á hafsins bárum breiðum
björtust ljóma stjörnu kvöld,
ljóssins perlur les hjá Unni
ljóðdís þín, er svölun fékk
marga stund, hjá Mímis brunni,
og myndafjöld í Sökkvabekk.
Það hjartans mál er líf í ljóði,
lind úr bergi, svöl og hrein:
tign í list og táp í óði
trú á lífið, sönn og ein.
Það er kjarninn stuðlasterkí,
stál í viljans afli hert;
orðsins máttur, orka í verki,
andans snilli og mest um vert.
Skáldsins harpa hljóðs sér kveður,
heil í tónum, ljúf og sönn;
sínar eigin traðir treður,
trú í list og dagsins önn.
Harpan þín í haustsins trega,
hljómar vorsins gleðibrag:
ómar málsins yndislega
eru hennar draumalag.
Er hljóðar elfur ævidagsins
áfram streyma í tímans sjá
svífa á vængjum sólarlagsins
sumarblóm og visin strá,
fagna skal við friðarboðann,
frelsi því, er innra býr.
Á meginlandi morgunroðans
mun þá rísa dagur nýr.
Enn er bjart í Bragalundi;
bjarmi dags um víða jörð;
vinagleði á fagnafundi,
friður kvölds og þakkar&jörð.
Ljóð þín náðu lýða hylli.
Lifi heil sú aringlóð,
andans kjarni, orðsins snilli;
allt, sem gleður vora þjóð!
S. E. BJÖRNSSON.
Fró Vancouyer, B.C.
Góðir gestir
Laugardaginn 2. nóv. kom
hópur góðra vina frá Seattle
í heimsókn til Vancouver. í
broddi fylkingar var hin vin-
sæla skáldkona Jakobína
Johnson „söngvasvanurinn á
Kyrrahafsströndinni" eins og
Einar Páll Jónsson sál. nefndi
hana. Við hlið hennar var
Kári sonur hennar. En heið-
ursvörð héldu þeir, Tani
Björnson hinn ágæti söng-
maður og Karlakór Isl. frá
Seattle og fleiri vinir. Þessi
hópur var hingað kominn til
að þiggja boð „Strandar“
deild Isl. þjóðræknisfélagsins
í Vancouver að sitja veizlu í
Manhattan Hall hér í borg.
Um 200 manns sóttu samkom-
una. Kl. 8 e.h. var sezt að
borðum. Forseti Strandar, Mr.
Snorri Gunnarson kom þá
fram og bauð gesti velkomna
— og bauð Tana að koma
fram og láta syngja þjóð-
söngva Bandaríkjanna og
Kanada.
Að lokinni máltíð kom for-
seti aftur fram og las
skemmtiskrána. Fyrst á pró-
graminu var dr. Sveinn E.
Björnson, og flutti hann
Jakobínu fagurt afmælis-
kvæði. Þá las M. K. Sigurd-
son nokkur af kvæðum frú
Jakobínu, frumsamin og þýð-
ingar, og var unun á að hlíða,
því að hann hefur lag á að
túlka ljóðin af einlægni og
skilning, svo að hrifning vek-
ur.
Þá kom sú sem þettað ritar
fram, og kynnti frú Jakobínu.
Við höfum verið góðar vin-
konur frá barnæsku í Argyl-
byggð, og mér var ljúft að
leggja fram lítin skerf af
þakklæti og aðdáun. Þegar ég
hafði lokið ávarpi mínu, var
Jakobína leidd upp á pallinn,
Framhald & bls. 2.
Dr. phil. Halldór Halldórs-
son, prófessor í íslenzkri mál-
í'ræði við Háskóla íslands,
hefir undanfarna tvo mánuði
verið á ferðalagi um Banda-
ríkin í boði Utanríkisráðu-
neytis þeirra (Foreign Leaders
Program), til þess að kynna
sér starfsemi og skipulag
Bandaríkjaháskóla og sér-
staklega til þess að ræða við
láskólakennara í norrænum
og öðrum germönskum fræð-
um. í för með honum er kona
hans, frú Sigríður Guðmunds-
dóttir.
Sunnudagskvöldið 3. nóv-
ember komu þau frá Minne-
apolis til Grand Forks, N.-
Dak., og dvöldu þar fram eftir
vikunni í gistivináttu íslenzku
ræðismannshjónanna, Mar-
grétar og prófessors Richards
Beck.
Á mánudaginn snæddi
Halldór prófessor hádegis-
verð í boði ríkisháskólans, er
hópur tungumálakennara há-
skólans tóku þátt í, en for-
sæti skipaði Dean R. B. Wit-
rner, yfirmaður hugvísinda-
deildar háskólans, í forföllum
rektors, dr. George W.
Starcher.
Samtímis sat frú Sigríður
hádegisverðarboð með nokkr-
um frúm háskólakennara,
undir frosæti frú Margrétar
Beck.
Síðar um daginn flutti
Halldór prófessor fyrirlestur
um nýyrði í íslenzku fyrir
kennara og nemendur tungu-
Eimskip lætur smíða skip
Hinn 30. ágúst s.l. var undir-
ritaður samningur við Alborg
Værft um smíði tveggja vöru-
flutningaskipa, 2650 D.W. tonn
að stærð, eða lítið eitt stærri
en m.s. „Fjallfoss". Verða
skipin smíðuð sem opin hlífð-
arþilfarsskip, en með styrk-
leika til þess að sigla lokuð.
Aðalvél verður 3000 hestöfl og
ganghraði 13,9 sjómílur.
Eftir að Eimskipafélagið
hafði leitað tilboða víða um
lönd, bæði í Þýzkalandi, Nor-
egi, Svfþjóð, Danmörku og
fleiri löndum, til þess að
kanna hvar hagstæðast væri
að láta smíða skip, samþykkti
stjórn félagsins á fundi sínum
hinn 18. júlí s.l. að fela Óttari
Möller, forstjóra að leita til
Alborg Værft, um smíði vöru-
flutningaskipanna.
Við smíði þessara skipa
verður í engu vikið frá þeirri
venju, sem Eimskipafélagið
hefur fylgt við smíði skipa
sinna, að hafa þau sem vönd-
uðust að útbúnaði og frágangi
og að styrkleika samkvæmt
máladeildar háskólans, er var
vel sóttur. Var ágætur rómur
gerður að fyrirlestrinum, er
þótti bæði fróðlegur og
skemmtilegur. Dr. Richard
Beck kynnti ræðumann.
Áður hafði Halldór pró-
fessor gist þessa háskóla:
Johns Hopkins, Princeton,
Columbia, Yale, Harvard,
University of Michigan og
University of Minnesota. En
við eftirtalda háskóla hafði
hann ýmist flutt fyrirlestra
eða talað í kennslustundum:
University of Virginia, Cor-
nell, Chicago og Wisconsin.
Frá Grand Forks lá leið
þeirra Halldórs prófessors og
frú Sigríðar til Winnipeg. Þar
snæddu þau hádegisverð hjá
forseta Manitobaháskólans,
Dr. Saunderson og síðdegis
flutti prófessorinn erindi fyr-
ir tungumálakennara og
stúdenta við háskólann; próf.
Haraldur Bessason kynnti
ræðumann.
Ættingjar Halldórs pró-
fessors efndu til boðs fyrir
þau hjónin á föstudaginn. Síð-
an héldu þau aftur til Grand
Forks, en heimsókn þeirra til
Bandaríkjanna mun ljúka við
ríkisháskólann í North Caro-
lina, þar sem Halldór hefir
verið beðinn að flytja fyrir-
lestur og leiðbeina nemanda,
sem er að semja doktorsrit-
gerð um íslenzkt efni.
Heim til íslands munu þau
hjónin fara um miðjan nóv-
ember.
ströngustu smíðareglum
Lloyds og auk þess styrkt til
siglinga í ís. Gert er ráð fyrir
að fyrra skipið verði afhent
félaginu í janúar 1965, en hið
síðara í febrúar 1966.
Eimskipafélagið hefur áður
átt viðskipti við Alborg Værft,
sem smíðaði tvö af nýjustu
skipum félagsins m.s. „Sel-
foss“ og m.s. „Brúarfoss" og
hafa þau viðskipti reynzt hin
ánægjulegustu, smíði skip-
anna vönduð og frágangur all-
ur góður. (Frá Eimskip).
Tíminn 28. sept.
Vísindamaður af íslenzkum
ættum verðlaunaður í Höfn
Vísindamaður við Land-
búnaðarháskólann í Kaup-
mannahöfn, Per Jonsson, af
íslenzku bergi brotinn, hefur
verið verðlaunaður fyrir
rannsókna- og vísindastörf í
þágu landbúnaðarins.
S.l. miðvikudag fór fram af-
hending verðlauna úr Saxon-
ia-sjóðnum, og afhenti Erik
Eriksen fyrr. forsætisráð-
herra, tveim landbúnaðar-
Kosinn forsert
Nýlega var Skafti J. Borg-
ford, verkfræðingur og húsa-
byggingarmeistari kosinn for-
seti samvinnu-húsabyggingar-
félags, (Co-operative Housing
Association of Manitoba).
Félagið gerir ráð fyrir að
Skafti J. Borgford
hefja $2.7 milljóna húsabygg-
ingar framkvæmdir í vestur
hluta Winnipeg borgar. Auk
þess að vera forseti þessa fé-
lags, skipar Mr. Borgford sæti
í forstöðunefnd Co-operative
Credit Society of Manitoba,
100,000 meðlima félags. Einnig
hefur hann verið kjörinn for-
maður Indian-Metis Confer-
ence. Hann er fjölhæfur mað-
ur á mörgum sviðum og
stundar sem aðal atvinnu-
grein stöðu hjá Green Blank-
stein and Associates bygg-
ingameistara félagi, sem con-
sulting engineer. Hann er
sonur þeirra hjóna Thorsteins
heitins, byggingameistara og
Guðrúnar heitinnar Borgford
sem bjuggu hér í bæ um mörg
ár og tóku mikinn þátt í ís-
lenzkum málum.
vísindamönnum tíu þúsund
krónur danskar, hvorum, þeim
Hjalmar Clausen prófessor og
Per Jonsson tilraunastjóra, er
báðir starfa við rannsókna-
stofnun Landbúnaðarháskól-
ans í svínarækt. Verkið, sem
þeir eru verðlaunaðir fyrir,
er ratsjárrannsóknir á svína-
kjöti, þar sem spikþykktin er
mæld án þess þurfi að skera
það, og er hér um að ræða að-
ferð hliðstæða við fiskleitar-
tæki. Er verk þeirra félaga
talið mjög þýðingarmikið
fyrir svínarækt í Danmörk.
Per Jonsson er íslenzkur í
föðurætt, sonur Péturs Á.
Jónssonar óperusöngvara, en
móðir hans er dönsk. Hann
ólst upp í Danmörku og út-
skrifaðist 1946 frá Landbún-
aðarháskólanum í Höfn og
sérhæfði sig síðan á sviði til-
raunastærðfræði (diometri).
Hann er um fertugt.
Mgbl. 27. sept.
Fréttir fró íslandi