Lögberg-Heimskringla - 03.09.1964, Side 2

Lögberg-Heimskringla - 03.09.1964, Side 2
2 LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 3. SEPTEMBER 1964 Hólmfríður Danielson: S. B. Olson 1878 — 1964 Helga Skúlína Sigurðson 1882 — 1964 Þegar einn af okkar góðu gömlu frumherjum gengur til grafar þá er það ekki sorgin ein sem grípur frændur og vini, en einnig þakklæti, virð- ing og já, gleði yfir því að látinn vinur naut lífsins í rík- um mæli, og afkastaði óvenju miklu æfistarfi, þrátt fyrir fátækt og erfiði á lífsins leið. Þessi tilfinning er rík í hug- um okkar sem þekktum Steina B. Olsen. Hann var sannur framsóknarmaður í heimi andans ekki síður enn í verk- legum efnum. Létt og lipurt hugarfar einkenndi hann fram í það síðasta, og það var gaman að gaspra við hann um alla heima og geima. Fjörið og ánægjan skein úr andliti hans, og allt af var fyndni á reiðum höndum. Ekki var það sökum þess að lífið hafði sýnt honum svo mikla blíðu og eftirlátssemi frekar en öðrum nýbyggjum þessa lands, en skapgerð hans og léttlyndi hóf hann upp yfir erfiðleik- ana og gerði honum lífið létt- ara en mörgum í svipuðum kringumstæðum. Steini (Þorsteinn) var fædd- ur 26. apríl 1878. Foreldrar hans voru Björn Ólafsson (Olson) frá Súlunesi í Borg- arfjarðarsýslu og kona hans Guðrún Jónsdóttir frá Heima- skaga, Akranesi. Fjölskyldan flutti vestur um haf það sama ár, þá er Steini var þriggja mánaða gamall, og kom fyrst til Nova Scotia, þar sem dvalist var í fjögur ár. Síðan fjögur ár í Winnipeg og þaðan til Þingvallanýlendu . Steini lýsir mjög vel ferðinni til Þingvalla og frumbyggja líf- inu þar í bók sinni: PIONEER SKETCHES, og hefir sú bók mikið sögulegt gildi, og geym- ir margan fróðleik um fyrstu árin í þessu landi. Það var stórt gleðiefni fyrir Steina að geta fengið, á sínum efri ár- um, þessa bók gefna út, og geymir hún auk sögulegs efn- is, stutta sögu eftir Steina, og nokkuð af smáljóðum og tækifæriskvæðum á ensku og íslenzku. Steini hefir verið stálminn- ugur, að geyma allan þennan fróðleik frá barnsaldri, — síðan hefir hann sjálfsagt haldið dagbækur, annars er ó- líklegt að sagan væri eins skýr og góð eins og hún er. Eins og svo margir aðrir ís- lendingar, hefir Steini stund- að andleg efni af alúð í frí- stundum, og ritar hann lipurt mál, bæði á ensku og íslenzku. Eftir þurka árin í Saskatche- wan flutti fjölskyldan að vesturströnd Manitobavatns, og þar bjó Steini allt sitt mesta athafnalíf. Hann giftist 22. maí, árið 1899, Hólmfríði ólafsdóttur Thorleifssonar, frá Svartagili í Þingvallasveit í Ámessýslu; en kona Ólafs var Guðbjörg Guðnadóttir frá Haga í Grímsnesi. Þau hjón, Steini og Hólmfríður, bjuggu í Westbourne, Marshland og Langruth þar til þau fluttu til Winnipeg 1943 og síðan til Vancouver, 1948. Þar andað- ist Steini eftir langt og æfin- týraríkt líf, 6. marz 1964. Sleini B. Olson Þegar þau hjón fluttu frá Langruth var þeim haldið veg- legt samsæti og þakkað sem vera bar fyrir mikinn og góð- an þátt í byggðarstarfi bæði andlegu og líkamlegu. Höfðu þau bæði verið með afbrigð- um nýtir borgarar í sinni byggð. Bæði tóku mikinn þátt í Lúterska söfnuðinum, sungu í söngflokknum, voru í safnaðarnefnd, kenndu á sunnudagaskóla, og einnig börn þeirra er þau stálpuðust. Steini var mörg ár í skólaráði, og einnig í sveitarstjóm. Frú Hólmfríður var mjög vel að sér í allri handavinnu, og var hennar mjög saknað í kven- félögunum þar sem hún hafði starfað með lægni, dug og dáð, (og get ég persónulega borið um það því hún tók mikinn og góðan þátt í starfi Jón Sigurdson- félagsins á meðan hún var í Winnipeg). Guð gaf þeim Hólmfríði og Steina mikið barnalán. Börn- in voru tíu og öll mjög mann- vænleg, skörp og athafnasöm. öll hafa þau komist í góðar stöður, og sum þeirra á hæstu tröppu í sínu fagi eins og t.d. Kjartan, sem er yfirmaður yfir þremur bönkum í Suður Ameríku. Tveir synir þeirra eru látn- ir, Wilhelm Thordur í Winni- peg, 1960; og Ólafur dáinn 13. maí 1964, í Detroit. Á lífi eru: Norman Leonard (accountant with an industrial firm in Montreal); Jón, vinnur fyrir Can. Pac. járnbrautarfélagið í Winnipeg; Stanley, úrsmiður hjá T. Eaton fél. (Wpg.); Louis Harold (Hardy) hjá H. C. Paul fél. Winnipeg (Sales Manager); Kjartan, banka yf- irmaður (Royal Bank), Buenos Aires, Argentine; Bjöm Franklin hafði til skamms tíma myndatökustofu í Gard- en City, (Detroit), Michigan; Þann 15. marz s.l. andaðist að Stafholti í Blaine, Wash- ington, aldur hnigin kona að nafni Helga Skúlína Sigurð- son. Hún hafði dvalið þar um tíma, en átti heima í Seattle. Hún var jarðsungin 18. marz, frá útfararstofu O. H. Mittel- stadts í Seattle, að viðstöddu fjölmenni skyldfólks og vina. Útfarar ræður fluttu þeir séra Norman Nelson, prestur Calvary Lutheran kirkjunn- ar, og séra Kolbeinn S. Si- mundsson, fyrrverandi prest- ur þar. Jarðsett var í Ever- green Cemetery. Helga Skúlína var fædd 19. nóvember 1882, að öxnadals- koti í Eyjafirði á íslandi. For- eldar hennar voru þau hjón- in Jóhannes Sigurðsson, Ey- firðingur að ætt, og Þorbjörg Skúladóttir, ættuð úr Skaga- firði. Jóhannes var bróðir Magnúsar á Grund í Eyjafirði, sem nafnkenndur var fyrir höfðingsskap, bæði á heimili sínu og í héraðinu, á sinni tíð. Skyldfólkið er fjölda margt, bæði á Islandi og í Ameríku. Nálægt síðustu aldamótum, eftir að hún missti mann sinn, flutti Þorbjörg ásamt þremur börnum sínum vestur um haf — fyrst til Minneota, Minne- sota, en síðan til Winnipeg. — Þar var heimili Skúlínu Gwen, gift Gordon H. Dowd- ing, lögmanni í Vancouver, og er hann fylkisþingmaður þar fyrir CCF (nú NDP) flokk- inn; Elfreda 'Winnie, gift George Ola Jorgensen, Port Hammond, B.C. Barnabörnin eru 16, og þrjú barna-barnabörn. Einnig læt- ur Steini eftir sig eina systur í Winnipeg, ekkju Thordar Johnson (fyrrum gullsmiðs í Winnipeg); og einn bróðir Thorð (Doddie) Olson í Mil- waukie. í bókinni PIONEER SKETCHES, eru myndir af Steina og Hólmfríði þá er há- tíðlegt var haldið silfurbrúð- kaup þeirra, og líta þau út eins og nýgift hjón, en ekki sem foreldrar tíu uppkomra barna. Einnig er mynd af þeim á sextíu ára afmæli, sem hald- ið var í Vancouver, og þar eru þau hýrleg, alúðleg, fjör- leg og ekki mjög ellileg. Þau létu ekki lífið og erfiðleika þess yfirbuga sig, en nutu í sameiningu gleði og nægju- semi sem léttlyndi og góðlát skapgerð hafði skapað þeim. Nú er Hólmfríður að hugsa um að setjast í helgan stein, máske á elliheimilinu í Van- couver, þar sem hún er í nánd við dætur sínar, og get- ur heimsótt þær við og við. Minningarnar eru margar og góðar, lífið hefir blessað þau ríkulega, og bömin standa við hlið hennar með ást og virð- ingu. sál. um nokkur ár, næst flutti hún ásamt móður sinni og systkinum Jóni og Ragnheiði, vestur hingað — til Seattle — og hér var sezt að. — Ragn- heiður giftist hér Theodor S. Björnssyni, og fyrst í stað voru þær Skúlína. sál. og móðir þeirra systra, þar til heimilis. — En þegar árin færðust yfir og móðir þeirra varð ósjálfbjarga, keypti Skúlína sál. gott og þægilegt heimili, og þar annaðist hún móður sína af mestu alúð og dyggð, þar til hún dó. Jafn- fram þessu stundaði hún at- vinnugrein sína þar heima hjá sér. Hún var snilldar saumakona, — sem dugnaður og hagsýni einkenndu alla hennar ævi. í eðli sínu var Mér datt í hug, hvort ég gæti skrifað nokkurn þátt undir nafninu: Því gleymi ég aldrei. Tvö bindi hafa verið gefin út með því nafni. Þar er sagt frá ýmsu eftirminni- legu, voveiflegum atburðum og furðulegum fyrirbærum. Ekkert slíkt verður hér. Ég hef í huga ósköp hvers- dagslegan atburð, lítilfjörleg- an, jafnvel ómerkilegan, að því er virðast kann, en þó er hann mér ógleymanlegur. Vera má að frásögn mín geti verið dæmi þess, hve smá- munir daganna geta orðið eft- irminnilegir og með vissum hætti þýðingarmiklir. Það var sumarið þegar ég var á áttunda ári. Hestur frá Mosvöllum hafði verið feng- inn að láni þann dag. Það var hann Gulur gamli. Svo var ég sendur að skila honum um kvöldið. Það er ekki löng leið niður að Mosvöllum, réttir tveir kílómetrar. Ég fór ríðandi og hafði Gul í taumi. Þetta gekk allt vel, þar til leiðin var um það bil hálfnuð. Þar var dá- lítil kelda á leið minni, þar sem vatnið úr mýrunum hafði afrennsli í ána. Þetta var að áliðnu einhverju mesta þurrka sumri, sem menn muna, og keldan alveg þurr. Seinna, þegar leiðin frá Isafirði að Gemlufalli í Dýrafirði var komin í þjóðvegatölu, nefnd- um við þessa keldu þjóðar- skömm. En þó að hún væri þurr og meinlítil í þetta sinn, varð hún þó orsök þess, að Gulur hikaði við og mér varð laus taumur hans, þegar hest- urinn, sem ég reið, hélt áfram. Ég fór af baki, þó að kvíð- vænlegt væri að þurfa að komast á bak aftur þarna á eyrunum. Þó voru þar sums staðar djúpar götur. En nú var að ná hestinum. Gamli Gulur kepptist við að bíta grængresið, og þegar ég nálg- hún bæði trúrækin og lífsglöð; — eins í vináttu sinni trygg og gestrisin. Heimili vildi hún eiga, — helzt þar sem sæist út á sjóinn. Þetta rættist. Síðustu árin átti hún þægi- legan bústað þar sem fjörður- inn blasti við, stjörnurnar og ljósin spegluðust á kvöldin. Þar tók hún vel á móti vinum sínum, og saknaði sárt að síðustu, þessa heimilis. Skyldfólk og vinir minnast og sakna þessarar sjálfstæðu og trygglyndu konu. Það virtist máske sérkennilega ís- lenzki, að þrá, það að nema sér land —og velja sjálf út- sýnið, þar sem særinn blasti við! Guð blessi minningu hennar! Bjart mun nú yfir, og víðsýnt framundan! Vinsamlegast, Jakobína Johnson Seattle, 23. ágúst 1964. aðist hann, lagði hann koll- húfur og gerði sig illilegan. Og það var nóg. Ég hikaði við. Víst hafði ég heyrt, að það væri ólán að láta hesta sjá á sér hræðslu. Bezt væri að ganga að þeim, hiklaust og óttalaust. Ég hafði jafnvel séð, að þá gátu þeir staðið kyrrir og auðsveipir, þó að þeir yggldust við mér, sem nálg- aðist þá hræddur og hikandi. En hvernig átti að fara að gefa sér kjarkinn? Það vissi ég ekki. Hitt vissi ég, að hestinum varð ég að ná. Ég mjakaði mér nær honum, tvísteig þarna hjá honum um stund. Einu sinni var ég nærri því að ná í taum- inn, en þá vatt gamli Gulur sér allt í einu við og sneri að mér rassinum. Ég vissi, að atfurendinn var mun hættu- legri og viðsjárverðari en nokkurn tíma framendinn. Hvað var það þó hestur biti hjá hinu, ef hann sló? Því var ég fljótur að forða mér undan, þegar hesturinn sneri sér við. Nú var illt í efni. Ég hafði litla von um að geta hand- samað gamla Gul, þó að ég héldi enn áfram að tvístíga framan í honum. Og hvað var þá til ráða? Að snúa heim og segja frá ósigri sínum? Ekki var það álitlegt. Það getur verið ærin raun sjö ára manni að koma heim með ósigur og hafa ekki lokið sínu ætlunar- verki. Þá yrði náttúrlega eldri krakki sendur að skila klárn- um. Sjálfsagt gæti hver sem væri tekið hann svona með beizlinu — annar en ég. Og þá yrði þetta enn ein stað- festing þess, sem ég hélt, að bæði ég og aðrir vissu alveg nógu vel fyrir, að ég væri kjarkminni og óduglegri en aðrir. En þegar neyðin er stærst, er hjálpin næst. Þetta var beint á móti bænum í Tröð, Framhald á bls. 3. Halldór Kristjánsson: Því gleymi ég aldrei

x

Lögberg-Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.