Lögberg-Heimskringla - 26.11.1964, Blaðsíða 1

Lögberg-Heimskringla - 26.11.1964, Blaðsíða 1
Hö gberg - ® eimöfertngla Stoínað 14. jan.. 1888 SiofnuS 9. sept., 1886 78. ARGaNGUR WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 26. NÓVEMBER 1964 NÚMER 46 Mekkin S. Perkins 1887 — 1964 Mr. og Mrs. T. R. Thorvaldson hyllt- Þann 24. júlí s.l. andaðist að Wesley Gardens dvalar- heimilinu í Des Moines, Washington, nafnkennd ís- lenzk kona, Mrs. Mekkin Sveinson Perkins, eftir lang- dreginn sjúkdóm. Jarðarför hennar var í Seattle 27. s.m. Kveðjuna flutti heimilis presturinn frá Wesley Gard- ens. Viðstaddir voru margir vinir þaðan, og frá Seattle. Af nánum ættingjum hér, lifir hana ein systurdóttir, Mrs. Lawrence Swett og hennar fjölskylda. Á íslandi mun hún eiga margt frændfólk. Mekkin sáluga var fædd í Winnipeg, Canada, 18. sept. 1887. Foreldrar hennar, þá ný- komin frá Islandi, voru hjónin Gunnar Sveinsson frá Egil- stöðum í Fljótshlíð, og Kristín dóttir séra Finns Þorsteins- sonar frá Klappastað og Desj- armýri — og Ólafar Einars- dóttur konu hans. — Móðir Gunnars hét Mekkin, og nafn- ið á sína sögu í ættinni. Mekkin sál. var fædd á heimili Jóhanns M. Bjarna- sonar, rithöfundarins vinsæla. Þar var vinátta á milli, og foreldrar hennar til heimilis fyrst í stað. — í Winnipeg ólst hún upp og lauk námi við Collegiate Institute árið 1904, með verðlaunum í tungu- mála kunnáttu. Skömmu síð- ar flutti fjölskyldan hingað vestur, — hafði nokkra við- dvöl í Blaine, en settist að í Seattle. Mekkin hafði sérstakan á- huga fyrir framhalds námi — og vann fyrir sér með því að kenna tungumál, sem voru hennar eftirlætis náms grein- ar. Við University of Wash- ington hlaut hún verðlaun í því námi og „Bachelor of Arts degree“ 1908. — Eins í Palo Alto, California — þaðan var hennar „Master óf Arts de- gree“. Nú skall á heimsstyrjöldin fyrri og í Washington, D.C. skorti þýðendur, vel að sér í Evrópu málunum, til að starfa hjá Ulanríkisráði Bandaríki- anna — Mekkin tók fljóta á- kvörðun; lagði af stað; las „tungumál“ á leiðinni austur; stóðst prófin og tók til starfa við vandasamt og ábyrgðar- mikið hlutverk. Þessu hélt hún áfram í mörg ár; bætti við sig spönsku og ítölsku í kvöldskóla. Árið 1925 giftist hún nafnkennd- asta tungumála þýðanda úr Evrópu málunum, J ohn Wesley Perkins. Hann var mesta ljúfmenni, — og heim- ili þeirra ánægjulegt og fé- lagslífið eins, í höfuðborg landsins. Þau ferðuðust bæði til íslands og víðar — og voru sérstaklega samrýmd. — En Þegar félagið sem nefnist „Vancouver Branch of the Canadian Folk Society" var stofnað fyrir rúmum 20 árum, var Mr. L. H. Thorlaksson kosinn fyrsti forseti þess, og hélt hann því embætti í mörg ár, og var líka í stjórnar- nefndinni, og ávalt boðinn og búinn að leggja því lið. Til- gangur félagsins er að halda við list og menning hinna ýmsu þjóðflokka sem byggja land vort, Canada, og er það vissulega virðingarverð hug- sjón. Á laugardaginn 14. nóv. hélt félag þetta sína árlegu sam- komu í Queen Elizabeth leik- húsinu, og var fjöldi fólks saman kominn. Margir komu fram til að skemmta með söng, dans og hljóðfæraslætti á ýms hljóðfæri; fulltrúar margra þjóðflokka — Japan, ísrael, Ukraine, Austria o. s. frv. og voru það bæði ungl- ingar og eldra fólk, klætt þjóðbúningi sínum. Búning- arnir voru sérstaklega skraut- legir og dapsar og þjóðsöngv- ar alveg hrífandi. Þegar skemmtiskrá var hálfnuð varð hlé, og Mr. Leo Klepalski, forseti Canadian Folk Society kom upp á pall- inn og tilkynnti að við þetta tækifæri ætti að heiðra 5 með- limi félagsins. Einn þeirra var Mr. L. H. Thorlaksson, sem eins og fyrr segir, var fyrsti hann dó árið 1956 og hún syrgði hann mjög. Eftir það kom hún vestur til Wesley Gardens. Þar fór vel um hana; hún var vinsæl, glöð í viðmóti og félagslynd. Næðið notaði hún til að rita ýmislegt. — T.d. að þýða ís- lenzkar sögur á ensku — af þeim átti hún nægilegt safn í þægilega stóra bók — eins nokkrar ritgerðir um íslenzkt efni — og nokkur blæfögur ljóð. Flest birti hún í The American-Scandinavian Re- view. Glöð og hugrökk kvaddi hún mig síðast er við hitt- umst, þrátt fyrir allt sem hún leið. Þannig mun ég ætíð minnast hennar, fullviss um að nýtt verksvið muni blasa við, og þeir endurfundir sem hún þráði, birtast henni í morgunroða nýrrar tilveru. Vinsamlegast, Jakobína Johnson, Seattle, Washington. 3. nóv. 1964. forseti félagsins í Vancouver; og var hann nú beðinn að koma upp á pallinn. Kom hann fram og við hlið hans gengu tvær konur, þær Mrs. Ásthildur Gunnarsson, (mað- ur hennar Snorri er forseti ,,Strandar“) og var hún klædd í hinn fallega þjóðbúning ís- lenzkra kvenna — skautbún- ingi og við hina hlið Mr. Thorlaksson gekk Miss Helga Helgason, Scandinavian feg- urðardrottningin, klædd upp- hlut. Mr. Klepalski ávarpaði Mr. Thorlaksson. Þakkaði honum mikið og göfugt starf i þágu Canadian Folk Society í meira en 20 ár og afhenti honum um leið skrautritað ávarp í giltum ramma, þess Framhald á bls. 8. Á mánudagskvöldið, 16. nóvember áttu Mr. og Mrs. T. R. Thorvaldson, 2 May- fair Place, Winnipeg, þrjátíu ára hjúskaparafmæli. í tilefni þess efndu börn þeirra til mannfagnaðar á hinu mynd- arlega heimili Hermanns son- ar þeirra að Bartlett Ave. þá um kvöldið. Um fimmtíu manns, nánustu skyldmenni og vinir voru þangað komnir, til að samfagna þeim hjónum þegar þau komu og kom þetta mót þeim skemmtilega á ó- vart. Elzti sonur þeirra, Thor, stjórnaði samsætinu lipurlega og mælti fallega til foreldra sinna. Eldri dóttir þeirra Evelyn — Mrs. D. E. M. Allen söng yndislega nokkra söngva, þar á meðal lagið sem sungið var við giftingu foreldra hennar. Mrs. Ingibjörg Jóns- son las kvæðið sem hér birt- ist, sem Sveinn Björnson læknir orti til þeirra hjóna fyrir hönd Mrs. Ruby Couch systir Valda í Vancouver, og hafði hún sjálf komið saman skemmtilegri vísu í kveðj- unni sem hún sendi þeim. Fjöldi kveðjuskeyta bárust þeim hjónum frá fjarlægum vinum, þar á meðal frá syni þeirra Albert og fjölskyldu hans í Vancouver; Sigurveigu systur Lilju og Þorsteini manni hennar; Thuru, systir Valda og fjölskyldu hennar og fl. Séra Philip M. Pétursson og Mrs. Ingibjörg Jónsson mæltu nokkrum hlýjum orðum' til heiðurgestana og síðan var söngur, er all flestir tóku þátt í og átti það vel við því jafn- an hefur verið mikið um sönggleði á heimili Lilju og Valda, eins og vinir þeirra nefna þau. Lilja er, sem kunnugt er, gædd ágætri söng- rödd og hefir óspart veitt öðrum ánægju með söng sín- um á samkomum og í heima- húsum. iValdi er útskrifaður úr bún- aðardeild Manitoba háskóla. Hann var forstjóri um skeið fyrir Riverton Creamery; síð- an varð hann sölumaður fyrir brezka netafélagið, Gundry- Pymore í mörg ár, en þegar það lagði niður skrifstofur sínar í vestur Canada varð hann sölumaður fyrir Singer Sewing Machines og fleiri fyrirtæki. Fyrir nokkrum ár- um veiktist hann alvarlega af arthritis, bar hann þann kross með fágætu þreki og komst svo til heilsu, að hann gatl tekið til starfa hjá Heilbrigð- is- og Velferðarmáladeild Manitobafylkis. Auk þess hafa þau hjónin, ásamt með syni sínum Herman, rekið á síðari árum, Thorvaldson Nursing Home að 5 Mayfair, í Winni- peg og er Lilja Matron við þá stofnun. Auk barna þeirra, sem að ofan eru nefnd voru yngstu börn þeirra, Ross og Margaret — Mrs. Bruce Holman við- stödd. Öll eru þau vel gefin og myndarleg og öll gift; barnabörnin eru átta. Ungur sonur þeirra, Lawrence, dó fyrir nokkrum árum eftir langvarandi sjúkdómsstríð. Þau hjónin hafa átt heima á mörgum stöðum á þessum 35 árum, eftir því sem störf heimilisföðurins kröfðust. Það var og enginn leikur að ala upp stóran hóp barna á kreppuárunum. En í blíðu og stríðu hafa heimili þeirra ávalt svipmerkst af höfðings- skap og vináttuhug í garð samferða sveitarinnar. Til þeirra hefir ávalt verið gott að koma, húsmóðurin frábær í sínu starfi með hljómlistar- dísina sér við hlið og húsbónd- inn víðlesinn og fróður um margt — bæði samtaka í því, að veita gestum sínum vel. — Framhald á bls. 8. Voldi og Lilja 35 ára giflingar afmæli Þriðjung aldar muna má Marga kalda daga. Von er faldar fegri spá og fé um valda haga. Þegar sól um sumarmál Signdi hól og dranga Aðalból var ást í sál; Ævi skólaganga. Er vetur kaldur lék um láð Svo laust varð tjald og staður Átti Valdi ótal ráð Eins og galdramaður. Lán var nóg á landi og sjó 1 Lilju móðurhöndum Hugarfró og helgiró Á hjartans gróðurlöndum. Því fór vel þeim hjónum hjá Heil og sæl þau veri! Pund sitt fela enginn á Undir mælikeri. Dr. S. E. Björnson. Mr. L. Halfdan Thorlaksson heiðraður

x

Lögberg-Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.