Lögberg-Heimskringla - 23.09.1965, Síða 1

Lögberg-Heimskringla - 23.09.1965, Síða 1
Högberg; - $eímsímngla Stofnað 14. jan., 1888 Stofnuð 9. sept., 1886 79. ÁRGANGUR ' WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 23. SEPTEMBER 1965 NÚMER 36 Frægur Hockey leikari látinn Robert John Benson, einn af meðlimum íslenzka Falcon Hockey liðsins, sem vann heimsfrægð þegar það sigraði í Olympíuleikjunum 1920, lézt á Deer Lodge spítalanum í Winnipeg 7. des. 1965, 71 árs að aldri. Hann var fæddur í Davidson, Sask. 1894. Foreldr- ar hans voru Benedikt Jó- hannesson frá Naustavík í Köldukinn í Þingeyjarsýslu og Rósa Guðmundsdóttir kona hans, ættuð frá Vatna- koti í Eyjarfjarðarsýslu. — Robert flutti með foreldrum sínum til Winnipeg barn að aldri og átti þar heima í 68 ár. Hann þjónaði í Canadiska hernum í fyrri heimstyrjöld- inni, en að stríðinu loknu tók hann að leika á ný með Falcon liðinu með þeim árangri er fyrr segir. Eftir að Falcon liðið leystist upp eftir sinn fræga sigur tóku hann og aðrir úr Falcon liðinu að leika atvinnu Hockey fyrir ýmsa Hockey klúbba í Canada og Banda- ríkjunum og síðan þjálfaði hann unga Hockey leikara og naut hins bezta orðstírs hvar vetna. — Annarsstaðar í blað- inu eru endurprentaðir kaflar úr frásögnum um Hockey feril hans, er birtist í dagblöð- um Winnipegborgar að hon- um látnum. (Sjá bls. 5). Robert John Benson og félagar hans í Falcon liðinu vörpuðu ljóma á íslenzka þjóðarbrotið með afrekum sínum. Hann lifa kona hans, Jean Benson, einn sonur Lorne R. Benson, Winnipeg; ein dóttir, Mrs. C. F. Goldhawk (Loverna), þrjú bamabörn, tveir bræður, Harvey í Win- nipeg, sem einnig var í Falcon liðinnu og Connie í Chicago, ein systir, Mrs. Chris Thomp- son í Walhalla, N.D. Útförin var gerð frá Bardals útfarastofunni. mundsdóttir frá Siglufirði — þegar hún söng einsöngva er íslendingafélagið þar hélt upp á 25 ára amælið. * * * Margar blaðagreinar, með myndum, hafa aukið hróður ungs manns af íslenzkum ættum, í höggmyndalistinni, hér í haust. Heitir hann Donald Schule, dóttursonur Séra Guttorms heitins Gult- ormssonar, lengi prestur í Minneota, og Rannveigar konu hans Gísladóttur Egils- sonar. Donald er rúmlega 26 ára, sonur Merles heitins Schule og Fjólu konu hans, dóttur prestshjónanna er áttu heima í Minneota lengst af; er Fjóla systir Ragnars Guttormsson- ar, eiganda og útgefanda Minneota Mascot og Séra S t e f á n s Guttormssonar, lúthersks prests í LaCrosse, Wisconsin. Þeir sem kunnugir voru námshæfileikum og lista- mannaeðli Donalds við nám hans á Minnesota háskólan- um voru ekkert hissa á við- urkenningu þeirri sem hann hefur nýlega fengið. Hæfi- leikar hans sem myndhöggv- ari urðu kunnir um allt Min- nesota-ríki og víðar, þegar blöð, útvörp og sjónvarps- stöðvar lýstu brjóstmyndum sem hann gerði úr einkenni- legasta efni — úr smjöri. — Hann var ráðinn til þess að höggva myndir af átta yngis- meyjum víðsvegar að úr Minnesota, er kepptu um verðlauna-útnefninguna sem „Princess Kay of the Milky Way“, og gerði hann það — í kældum sal, stórum — á meðan að hundraðir manna horfðu á, hissa bæði á efninu og snildarmeðferð hins unga listamanns. Listhneigð hans í meðferð á þekktari efnum hefur vakið vaxandi eftirtekt, og er honum spáð frægð og frama sem myndhöggvara. * * * Þann 15. september byrjaði Valdimar Krislján Jónsson starf sitt sem fyrirlesari í véla- og rafmagnsverkfræði á University of London í Eng- landi. Þessi ungi Vestfirðiag- ur, rétt þrítugur, fékk doktors gráðu í sinni grein við Min- nesota háskólann í ágúst sem leið. Hann var hátt upp í fjögur ár við framhaldsnám hér eftir að hafa lokið véla- verkfræðingspróf í Kaup- mannahöfn, og hlaut Ful- bright styrkinn frá íslandi. Valdimar og fjölskyldan, Guðrún Sigmundsdóttir kona Framhald á bls. 3. Fréttir frá Minneapolis Formaður félags bæði í Bandaríkjunum og Canada MINNEAPOLIS, Minnesota. — Blöð hér hafa nýlega sagt frá því að Peter S. (Pétur Sigurður) Jökull, 3555 44th Ave. So., hafi verið kosinn formaður North American Gasoline Tax Conference á alsherjarfundi þess í Denver, Colorado. — Pétur hefur ver- ið embættismaður í skatta- deild Minnesota-ríkis síðan 1934, og tók við núverandi starfi sínu sem yfirmað- ur bensínskatta-deildarinnar haustið 1959. Félagið sem hann veitir forstöðu innifelur alla sem gegna svipuðu embætti um öll Bandaríkin og í öllum fylkjum Canada um leið („motor fuel tax administrators.“) — Fulltrúar þeirra fyrirtækja sem selja brennsluefnið eru aðstoðar- meðlimir félagsins líka. Pétur var í fyrra kosinn f o r s e t i félagsins meðal embættisbræðra sinna í mið- vestur ríkjum Bandaríkjanna. Verður hann nú á næsta ári að sækja fundi fimm félaga sem tilheyra alsherjar-sam- tökunum, auk þess að stjórna aðalfundi í Philadelphíu í september 1966. Pétur er fæddur í Minneota, sonur Péturs trésmiðar Pét- urssonar Jökuls frá Hákonar- stöðum á Jökuldal og Sigur- borgar konu hans Hallgríms- dóttur frá Vakurstöðum í Vopnafirði. Var hann við bankastjórastarf í Minneota, bæjarskrifari þar, og í öðrum trúnaðarstörfum, áður en hann flutti til Minneapolis snemma á árinu 1934. * * * Vitneskja um það að íslend- ingum sé alvara að leggja út í sjónvarps-stofnun er komin hingað, þar sem einn starfs- maður ríkisútvarpsins er í Minneapolis og St. Paul, til þess að kynnast starfinu. Er það hann Séra Emil Björns- son, prestur Óháða Fríkirkju- safnaðarins, sem lengi hefur starfað á Fréttastofu útvarps- ins. Hann verður alls í rúm- an mánuð hjá sjónvarpsstöð- inni KSTP-TV, og hefur hann verið skipaður yfirmaður fréttaþjónustunnar við Is- lenzka sjónvarpið, þegar byrj- að verður á þeirri nýjung í Reykjavík. Séra Emil er Sunnmýling- ur, fæddur í Breiðdalnum, og var kona hans í New York í sumar — Frú Álfheiður Guð- Frá Vancouyer, B.C „Svífur að hausti og svalviðrið gnýr, Svanurinn þagnar og heiðlóan flýr.“ Þannig kvað skáldið forð- um, og hér í Vancouver eru laufin í skóginum að skipta um lit, og meðfram Fraser ánni, sem rennur skammt hér frá, glampar á þau, gul og rauð innan um grænu furu tréin — já, það svífur að hausti! Sumarið var gott, sól- ríkt og veður blíða. Ferðin til Maniioba Þegar ég nú lít til baka, þá finn ég sem fyrr, hvað ég hef mikið að þakka — Guði og góðum mönnum. Vil ég þá fyrst nefna að ég ferðaðist til Manitoba — til Winnipeg og Argyle, þar sem ég átti svo lengi heima. Ég fór frá Van- couver 15. júní, og kom aftur heim 15. júlí, fór með C.P.A. Jet báðar leiðir, rúmlega 2 kl. tíma hvora leið, alveg dásamlegt. Bróðir minn Erle Helgason og Sigrún kona hans, tóku á móti mér á flug- vellinum í Winnipeg, og næsta dag keyrðum við svo vestur til Argyle, í bíl, og þó að vegurin sé ágætur, þá tók það nær því eins lengi eins og frá Vancouver til Winnipeg! í Glenboro keyrðum við í hlað hjá Ingólfi (bróður) og þá var Indlaug kona hans ekki lengi að koma með kaffi og brauð á borð. En nú mátti ekki lengi tefja og héldum við áfram suður í byggð, heim að stein húsinu, þangað sem við systkinni köllum „heim." Þar býr yngsti bróðir okkar, Kristján Helgason og Veiga kona hans, og tóku þau okk- ur opnum örmum. Þar voru fleiri komnir til að gjöra gleði okkar fullkomna, en það voru hinir 2 bræður okkar, Helgi frá D’arcy, Sask. og Fred frá Edmonton, Alberta, sem höfðu komið kvöldið áður bíl- leiðis. Varð nú mikill fagnað- ar fundur er við systkinin 6 vorum þar saman komin. — Þannig stóð á, að þennan dag, 16. júní að þau Indlaug og Ingólfur Helgason áttu 40 ára giftingar afmæli, og daginn eftir 17. júní, átti Ingólfur sjötugs afmæli. Fannst okkur því sjálfsagt að koma saman, og sátum svo tveggja daga veizlu. Margt var nú spjallað og rifjað upp frá liðnum dög- um. Ræður voru fáar, og stuttar, enn talsvert sungið og flest á íslenzku. Þá mundi ég eftir vísu sem hann Brynj- ólfur heitinn Þorláksson kenndi okkur, og lét okkur syngja, þegar hann æfði kór- söng í Argyle fyrir einum 30 árum síðan. — Vísan er svona: „í heiðardalnum er heimbyggð mín, þar hef ég lifað glaðar stundir. Og hvergi var sólin heitar skín, enn hamrabeltunum undir: Og fólkið þar er svo frjálst og hraust, Og falslaus vinmál þess og ástin traust: Já, þar er glatt, það segji ég satt, og sælt að eiga þar heima.“ Vissulega var sælt að eiga heima í Argyle — en nú getur þessi vísa líka átt við í Vancouver, þar sem að sólin skín „hamra beltunum undir“. Síðan kvöddu þeir Helgi og Fred og fóru heim til sín, en ég hélt áfram að férðast um byggðina, og heilsa upp á frændur og vini á hverjum bæ. — Einn daginn keyrðu bræður mínir og konur þeirra með mér til Cavalier, þar sem við svo heimsóttum Dr. N. M. Helgason, bróðurson okkar, þá komu líka nokkrir vinir og skyldfólk frá Milton og Mountain, og komum við saman í Cavalier Park, og sát- um þar við borð, og drukk- um kaffi og borðuðum pönnu- kökur og allslags góðan mat, sem þau höfðu með sér. Mikið var þetta gaman, en stundin leið bara of fljótt — en minningarnar lifa. Eftir 3 vikur fór ég til Winnipeg, og fylgdu þau Chris og Veiga mér úr hlaði. Var ég svo hjá Erle og Sig- rúnu seinustu vikuna, og heimsótti, og heilsaði upp á marga góða vini — og einn daginn keyrðum við til Gimli, þar sem ég heilsaði upp á fólk á Betel, og fleirl. 15. júlí — og heim aftur til Vancouver — þar sem að sonur minn George tók á móti mér, og fylgdi mér heim í „Höfn“, og nú sendi ég mínum góðu bræðrum, konum þeirra, börnum og öllum góðum vin- um, hjartkæra kveðju og innilegt þakklæti fyrir alla vinsemd í orði og í verki, nú og ávalt. Félagslíf Hér í Vancouver er nú að lifna við eftir sumarhvíldina. H á t í ð 1 e g guðsþjónusta í Lutheran Church of Christ, — kirkjunni íslenzku — 12. Framhald á bls. 5.

x

Lögberg-Heimskringla

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.