Lögberg-Heimskringla - 19.05.1966, Page 1
Hetntéímngla
Slofnað 14. jan., 1888
Sloínuð 9. sept., 1886
80. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 19. MAÍ 1966
NÚMER 20
Yfirmaður líffræðideildar
Morgunblaðinu hafa borizt
fregnir af glæsilegum starfs-
ferli prófessors Áskels Löve,
sem um nokkurt árabil hefur
dvalizt vestur í Ameríku,
fyrst í Canada, en nú hin síð-
ari ár í Bandaríkjunum. —
Starfar hann við háskólann í
Boulder í Coloradofylki. Hef-
ur hann verið prófessor 1
grasafræði við háskólann.
Fyrir nokkru ákvað yfir-
stjórn háskólans að gera pró-
fessor Áskel að deildarstjóra
líffræðideildar háskólans. —
Hún ein telur yfir 20 starfandi
prófessora og við hana stunda
nú nám yfir 2000 stúdentar.
Fyrir fimm. árum var hér
haldin merkileg alþjóðleg ráð-
stefna um útbreiðslu grasa og
dýra í löndum við norðanvert
Atlantshaf, og var ráðstefnan
helguð minningu Sveins Páls-
sonar. Próf. Áskell stóð fyrir
þessari ráðstefnu. Að henni
Áskell Löve
lokinni gaf hann ásamt konu
sinni, sem einnig er grasa-
fræðingur, út á ensku mikið
rit um ráðstefnuna og störf
hennar og birtust þar fyrir-
lestrar þeir er haldnir voru á
ráðstefnunni.
Mbl. 8. maí.
Bergur Thorsteinson Honoured
At a farewell gathering
April 28th, E. A. Cóté, Deputy
Minister of Northern Affairs
and National Resources, paid
warm tribute to Bergie Thor-
steinsson who, for the past
six years, was Chief of the
Education Division.
partment in August 1960, had
had extensive experience in
teaching and in education
administration. As Chief of
the Education Division he was
responsible for the develop-
ment of the educational pro-
eithvað fleira týnist til, og
óettað fyrir $1.00 inngangs
eyrir og 50 cent fyrir unglinga.
Á að byrja kl. 8:00 e. h. í
Legion Hall og einnig ætlar
deildin Lundar að reyna að
hafa minningarathöfn við
Landnema Minnisvarðann
seinna í sumar sem ég segi frá
þegar því hefir verið ráðstaf-
að.
Svo hefir Lundar Legion
Auxiliary tekið upp þann
góða sið að skemmta gamla
fólkinu (Senior Citizens) eitt
eftirnón í hverjum mánuði,
með heimboði þar sem það
getur spilað á spil, rabbað sam-
an og tekið þátt í almennum
söng, og leikið undir ýmist á
píanó eða guitars og svo kaffi
veitingar á eftir, og hafa allir
mikla ánægju af þessu. Ein
slík skemmtun var í gær, og
spilaði Mrs. Scheske á píanóið
og á miklar þakkir skilið fyrir
að vera þar og allar konurn-
ar sem sjá um þettað eiga
hjartans þakkir frá gamla
fólkinu sem ég mæli fyrir
munn allra.
Tíðin er altaf svo köld að
bændur eru lítið farnir að
geta unnið á ökrum, og verða
enn að hafa gripi sína á fullri
heygjöf þar sem grænkar
mjög hægt jörð.
Björg Björnsson.
On behalf of friends through-
out the Department the
Deputy Minister presented to
Mr. Thorsteinsson a framed
replica of the coat of arms of
the Northwest Territories in
colour and a piece of Eskimo
sculpture.
During Mr. Thorsteinsson’s
term of service, the Deputy
Minister noted, great progress
had been made throughout
the education system in the
north, particularly with the
construction of additional
schools. Mr. Thorsteinsson,
when he joined the De-
Laufási, 13. maí 1966.
Það hafa ýmsir verið að
minna mig á að langt sé síðan
fréttabréf- hafi komið frá
Lundar og fékk ég „phone
call“ í morgun að drífa mig í
að skrifa þar sem svo margt
gangi á hér. Giftingar á
hverju laugardagskveldi nú í
þrjár vikur, og „Showers“ og
fundir inn á milli, og svo
kom þann 5. maí í blaði L-H
að byggja eigi Elliheimili hér
á Lundar þetta ár og er unnið
hart að því að ná saman pen-
ingum sem byggðin þarf að
leggja til. Enila er mikil þörf
fyrir slíkt h( mili.
Svo er nú bjóðræknisdeild-
gram in the Northwest Terri-
tories and for Eskimo edu-
cation in Arctic Quebec.
Mr. Thorsteinsson is leaving
Northern Affairs to take up a
position with the Government
of ■ British Columbia. Before
joining the Department he
was District Superintendent
of the districts of University
Hill, Delta and Howe Sound
and for two years served as
Director of Educational and
Vocational Guidance for the
Province.
in „Lundar“ að vakna eftir
vetrardvalann með fund á
heimili Mr. og Mrs. Kári
Byron, 24. apríl s.l. og þar
rætt um að koma á skemmti-
samkomu til arðs fyrir deild-
ina föstudaginn 27. maí, og nú
búið að fá loforð um að Mr.
Jakob Kristjánson og Mr.
Heimir Thorgrímsson komi
með myndir frá íslandi til að
sýna, og vonum við að þeir
hafi ræðu stúfa líka. Mrs. A.
Scheske hefir lofað Piano
Solo, og ef Judy, dóttir henn-
ar getur verið þar, syhgur
hún. Mrs. Rúna Pálsson sér
um einn eða tvo söngva með
guitar una rspili, og máske
Þræða leið
LEIFS HEPPNA
Scarborough, Bretlandi,
2. maí. NTB.
Sex manna leiðangur lagði
af stað héðan í dag á 13 feta
löngum kútter, og ætla þeir
að reyna að sigla til Ameríku
sömu leið og mörkuð er á hinu
umdeilda Vínlandskorti. Ætla
þeir að ná til Ameríku með
hjálp sömu hafstrauma og
þeir menn norrænir, sem fóru
til Ameríku á undan Kólum-
busi.
Leiðangursstjóri er John
Anderson siglingarritstjóri
brezka dagblaðsins „The
Guardian“. Gera leiðangurs-
menn ráð fyrir að vera við
Grænland í lok maímánaðar
og ætla þeir þá að reyna að
komast sem næst Julianehaab
en það var þaðan, sem Lefiur
Eiríksson lagði upp í för sína
árið 1001.
Víso
Fólk gleymir því jafnan
að gamlir menn,
sem geta leið sína staulast enn
eru valtari á löppunum leiddir.
Eins lengi og vit þeirra
óskert er,
þeir ættu að fá að ráða sér
og eldast ótilneyddir.
G. J. G.
Frá Lundar
Kærkomnir gesfrir í Grand Forks,
Morfrh Dakofra
Um fyrri helgi áttu Ríkis-
háskólinn í N. Dakota (Univ.
of N. Dakota) í Grand Forks,
og íslendingar þar í borg,
góðum gestum að fagna. Það
voru þau dr. Einar Ól. Sveins-
son prófessor, forstöðumaður
Handritastofnunar íslands, og
frú Kristjana Þorsteinsdóttir
kona hans. Hafa þau undan-
farnar vikur verið á ferð um
Austur- og Mið-Vesturríki
Bandaríkjanna, þar sem dr.
Einar hefir flutt fyrirlestra á
mörgum kunnustu háskólum
landsins, meðal annarra Har-
vard, Princeton, Cornell og
Columbia.
Til Grand Forks komu þau
á sunnudagskvöldið 8. maí, í
fylgd með íslenzku ræðis-
mannshjónunum þar í borg,
frá Madison, Wisconsin, þar
sem Einar prófessor hafði ver-
ið aðalræðumaður á ársfundi
Félagsins til eflingar norræn-
um fræðum (The Society for
the Advancement of Scandina-
vian Study), eins og áður hefir
verið getið um í Lögbergi-
Heimskringlu; en fundurinn
var haldinn í boði og húsa-
kynnum Wisconsin-háskólans,
og var óvenjulega fjölsóttur.
Um hádegið á mánudaginn
9. maí var dr. Einar heiðurs-
gestur í veizlu, sem Ríkishá-
skólinn í N. Dakota hélt hon-
um, og var sjálfur rektor há-
skólans, dr. George W.
Starcher, veizlustjóri. Sam-
tímis efndi frú Margrét Beck
til hádegisverðar til heiðurs
frú Kristjönu.
Síðdegis samdægurs flutti
dr. Einar á háskólanum fyrir-
lestur um „Homer and the
Eddas“, er var vel sóttur af
háskólakennurum og stúdent-
um. Var fyrirlestur þessi, eins
og vænta mátti, saminn af
miklum lærdómi, stórfróðleg-
ur og um allt hinn merkileg-
asti, enda var ræðumanni
ágætlega fagnað. F o r s e t i
tungumáladeildar háskólans,
dr. Abram Friesen, bauð gest-
ina velkomna, og þakkaði, að
málslokum, hinn prýðilega
fyrirlestur, en dr. Richard
Beck kynnti ræðumann.
Laust eftir hádegið á þriðju-
daginn 10. maí fóru þau dr.
Einar og frú hans til Minne-
apolis, þar sem hann flutti
fyrirlestur á Minnesota-há-
skóla daginn eftir, en þessu
næst á Iowa-háskóla, í Iowa
City, á föstdaginn 13. maí. En
heim til íslands halda þau
hjónin um eða fyrir 20. maí.
Hefir dr. Einar, með fyrir-
lestrum sínum unnið mikið og
gdtt kynningarstarf í þágu
Islands og íslenzkra fræða, og
þau hjónin hvarvetna verið
aufúsugestir.
R. Beck.
Frá Ríkisúfrvarpi íslands
MI - Ágrip innlendra frétta vikunnar sem leið 15. 5. '66. - FÚ
Síðastliðinn sunnudag var
norðaustankaldi og frost um
allt land og dálítil él voru
nyrðra. Næstu tvo daga var
austanátt, bjart veður og frost
norðanlands en víða slydda
með suðurströndinni til Aust-
fjarða. Á miðvikudag var aft-
ur komin norðaustanátt en
hlýrri en áður. Þá var slydda
eða snjókoma fyrir norðan en
rigning á suðausturlandi og
Austfjörðum. Á fimmtudag
hlýnaði svo með suðlægri átt
og hefur það veður haldist
síðan. Talsverðar rigningar
hafa verið í vikunni á suð-
austurlandi og austfjörðum,
hæfileg væta hefur verið í
Reykjavík og nærsveitum en
þurrviðrasamt á norðvestan-
verðu landinu.
* * *
FORSETI ISLANDS herra
Ásgeir Ásgeirsson varð 72 ára
á föstudag.
* * *
Á fundi ríkisráðs á föstudag
staðfesti forseti íslands 23 lög
frá Alþingi og staðfestar voru
lagastaðfestingar sem fram
höfðu farið utan ríkisráðs-
fundar. Á fundinum voru gef-
in út bráðabirgðalög sem
ákveða að skattvísitala gildi
einnig um álagningu tekju-
útsvara.
* * . *
Kauplagsnefnd hefur reikn-
að vísitölu framfærslukostn-
aðar í byrjun þessa mánaðar
og reyndist hún 191 stig, sex
stigum hærri en í aprílbyrjun.
Kaupgreiðsluvísitalan í maí-
byrjun reyndist 185 stig. Sam-
kvæmt því skal á tímabilinu
1. júní til 31. ágúst greiða
13,42% verðlagsuppbót á laun
og aðrar vísitölubundnar
greiðslur.
* * *
Rönlgendeild Borgarsjúkra-
hússins nýja í Fossvogi var
formlega tekin í notkun á
föstudag. Deildin var opnuð
að viðstöddum fjölda gesta,
borgarstjórn og borgarráði.
Ásmundur Brekkan, yfirlækn-
ir deildarinnar, bauð gesti vel-
komna og lýsti deildinni. Hún
er í E-álmu sjúkrahússins,
sem er tæpir 800 fermetrar.
Rannsóknarstofur eru 6 og eru
Framhald á bls. 5.