Lögberg-Heimskringla - 19.05.1966, Qupperneq 3
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 19. MAÍ 1966
3
JÓNAS JÓNSSON:
íslandssaga
— Business and Professional Cards —
ÞJÓÐRÆKNISFÉLAQ ISLENDtNGA í VESTURHEIMI
Foneiii SÉRA PHHJP M. PÉTURSSON
681 Banning Street, Winnipeg 10, Manitoba
StyrkiS félagiS m»8 þri að garaal maSlimlr.
Aragjald $2.00 — Tímaril félagsina frilt
Sendiat til fjármálaritara:
MR. GUÐMANN LEVY.
185 Lindsav Street, Winnipeg 9, Monftobo
Minnist -
Annar mestur kappi í forn-
öld var Gunnar á Hlíðarenda.
Hann var mikill og sterkur,
vænn að yfirliti, bláeygur og
snareygur, rjóður í kinnum,
hárið mikið, gult og fór vel.
Gunnar var manna bezt vígur.
Hann hjá jafnt með báðum
höndum, hæfði allt, sem hann
skaut til, var syndur eins og
selur og stökk meir en hæð
sína í öllum herklæðum.
Gunnar var í víking og
vann sér hið mesta frægðar-
orð. Heimsótti hann marga
ágæta menn, og þá af þeim
ýmsar sæmdir. Eigi vildi hann
þó staðfestast erlendis. Hann
þráði ísland og vildi ekki
dvelja til lengdar í öðrum
löndum. Heima varð hann
brátt að verja hendur sínar
fyrir áleitnum fjandmönnum.
Gunnar átti bræður tvo: —
Kolskegg og Hjört. Eitt sinn
hafði einn af nábúum Gunn-
ars gert honum margt til
skapraunar. Sá maður átti
leið um héraðið og hafði sjö
menn með sér. Gunnarverður
þess var og þrífur vopn sín.
Þá mælti móði rhans:
„Reiðilegur ertu nú, sonur
minn, og ekki sá ég þig slíkan
fyrr“. Kolskeggur fór á eftir
Gunnari og veitti honum lið.
Felldu þeir bræður tveir alla
hina.
Skömmu síðar veittu þrjá-
tíu menn þeim bræðrum
þremur fyrirsát við Rangá.
Gunnar bjóst um fram á ár-
bakkanum og skaut með bog-
anum á löngu færi. Þannig
felldi hann tvo, en Kolskegg-
ur drap hinn þriðja með stein-
kasti. Þá mælti foringinn: —
„Ekki mun oss duga, að hann
komi boganum við“. Var þá
barizt í návígi. Gunnar hafði
sverð í annari hendi, en
atgeirinn í hinni, og féllu
menn fyrir honum unnvörp-
um; sumum kastaði hann af
atgeirnum út á Rangá. En er
fallnir voru fjórtán fyrir þeim
bræðrum, sagði einn úr óvina-
liðinu:
„Flýjum nú, ekki er við
menn að eiga“.
Gunnar var í raun og veru
friðsamur maður, þótt hann
neyddist til að verja hendur
sínar. Eitt sinn sagði hann við
Kolskegg:
„Eigi veit ég, hvort ég er
þeim mun óvaskari maður en
aðrir menn, sem mér þykir
meira fyrir en öðrum mönn-
um að vega menn“. En óvinir
hans voru alltaf á varðbergi.
Eitt sinn fréttu þeir, að hann
væri einn heima, en heima-
fólk langt frá á engjum. Þá
komu þeir að honum fjöl-
mennir og felldu hann eftir
ágæta vörn. Gunnar var þá
liðlega ferutgur. (Njála 174—
180).
Njáll á Bergþórshvoli var
bezti vinur Gunnars. Hann
átti marga syni en Skarphéð-
inn var fyrir þeim öllum. —
Hann var mikill maður vexti
og sterkur vel, fölleitur og
skarpleitur, eygur vel, manna
bezt syndur, skjótráður, gagn-
orður og skáld gott. Skarp-
héðinn bar aldrei svo vopn að
manni, að sá hefði eigi bana,
er fyrir varð. Hann hefndi
Gunnars á Hlíðarenda. Fór
hann þá á einni nóttu heim til
þriggja þeirra, er mest höfðu
hvatt til aðfarar við Gunnar,
og feldi suma, en lét aðra sæta
afarkostum í fégjöldum.
Þráinn hét maður, kappi
mikill. Han var frændi Gunn-
ars. Gerðist mikill fjandskap-
ur af litlu tilefni milli hans
og Njálssona, svo að þeir
gerðu honum fyrirsát við
Markarfljót. Þráinn hafði sjö
fylgdarmenn en Skarphéðinn
fjóra. Þetta var um vetur. —
Markarfljót rann milli höf-
uðísa og var svo djúpt, að
langt var um ófært.\ ísspangir
voru yfir fljótið hér og þar.
Þráinn nam staðar öðrumegin
við álinn, og stefndu félagar
Skarphéðins þangað yfir ís-
brúna, en hann dvaldist eftir
og batt skóþveng sinn. En er
minnst varði, hefur Skarphéð-
inn sig á loft og hleypur yfir
fljótið milli skara, en það voru
tólf álnir. Svellið var glerhált,
og renndi Skarphéðinn sér
fótskriðu að Þráni svo hart
sem fugl flygi og klauf hann
í herðar niður. Þá komu félag-
ar hans og felldu þrjá aðra,
en Skarphéðinn handtók tvo,
og komu þeir engri vörn við.
„Tekið hefi ég hér hvolpa
tvo“, mælti Skarphéðinn, „eða
hvað skal við þá gera?“
„Kost átt þú að drepa þá
báða“, sagði Helgi bróðir
hans. Annar þeirra var sonur
Gunnars, en hið mesta lítil-
menni.
„Ekki nenni ég“, mælti
Skarphéðinn, „að veita öðrum
bróðurnum en drepa hinn“,
og gaf þeim grið, en báðir
launuðu þeir illa lífsgjöfina og
fylgdu Flosa við Njálsbrennu.
(Njála 277—286).
Framhald í næsta blaði.
Furður í Reykjavik
Þegar Guðmundur Jónsson,
sem nú (1921) býr í húsinu
Árnastaðir í Seyðisfirði, var
12 óra, var hann á hundelsk-
um óþrifabæ í Gullbringu-
sýslu. Varð hann þá svo sulla
veikur, að heita mátti að hann
hefði líf í munn upp. En er
hann var 16 ára, var hann í
Reykjavík. (Sá bær var syðst
í Grjótaþorpi). Var hann þá
talinn banvænn, því engin
von var um bata. Ákvað Jón-
assen landlæknir að skera
hann upp. En nóttina áður en
það skyldi verða, dreymir
hann, að honum þykir ókunn
kona, fríð og sköruleg, koma
að sér og mæla: „Nú á að
skera þig upp á morgun —.“
„J.,“ þykist hann svara. —|
„Ef það verður gert“, mælti
hún, verður það þinn bani, af
því að læknislistin er ekki
komin enn á svo hátt stig, sem
til þess þarf og síðar mun
verða. En þetta mun ekki
verða, því að þú átt lengra
líf fyrir höndum en til morg-
uns. Skaltu nú koma til mín
og skoða grasgarðinn minn.
Ég ætla að sýna þér þar nokkr-
ar jurtir“. Tekur hún þá í
hönd hans og leiðir hann í
fjölskrýddan blómjurtagarð.
Þekkti hann sumar jurtirnar,
en aðrar eigi. Hún bendir þá
á heimulunjóla og segir:
„Þekkir þú þessa jurt?“ Hann
segir svo vera. „Jæja“, segir
hún, „taktu þá rætur hennar
og láttu sjóða þær, unz þú
færð seyði í þrjár flöskur full-
ar. Drekktu svo þetta seyði.
Munu sullirnir flestir verða
uppgengnir, þegar .þú ert bú-
inn úr þeim tveimur. En þú
lýkur svo úr þriðju flöskunni.
Munu þá sullirnir allir verða
gengnir upp, en þá muntu
verða ærið sár fyrir brjóstinu.
En þá er hér bót við því, eða
þekkir þú þessa jurt?“ segir
hún og bendir á vallhumal.
„Nei“, mælti hann. „Þessi jurt
heitir millifolium“, segir hún,
„láttu líka sjóða hana og
drekktu seyðið, því hún er
græðandi og mun gera þig
heilan“.
Að svo mæltu hvarf konan
og sá hann hana aldrei síðan.
Þegar Guðmundur vakn-
aði, sagði hann móður sinni
drauminn. Hún var drauma-
kona mikil og varð glöð við
og segir: „Farðu rækilega eft-
ir þessum draumi, drengur
minn, og mun þér að góðu
verða.“ Hann fór þegar og
gróf upp heimulunjóla með
rótum. Var hann soðinn unz
seyði fékkst í þrjár flöskur.
Drakk hann það jafnharðan,
og tóku sullirnir að ganga
upp úr honum, og voru marg-
ir komnir, þegar hann hafði
lokið úr þeim tveimur. Eftir
hálfa aðra viku hafði hann
eytt úr þeirri þriðju. Hættu
þá sullirnir að ganga upp, en
þá var hann afarsár fyrir
brjósti, og sem tæki á kviku.
Þá var humallinn soðinn. Og
er hann hafði drukkið af hon-
um, hurfu sárindin. Og — í
stuttu máli sagt — var Guð-
mundur albata eftir mánuð,
og hefir síðan eigi kennt sulla-
veiki, og er nú (1922) fullt
fimmtugur maður. Hefir hon-
um verið þörf góðrar heilsu,
því hann hefir verið fátækur,
átt mörg börn og orðið því að
vinna þunga og óholla vinnu.
Þakkar hann sína óbilandi
heilsu draumnum sínum í
Helgabæ. (Þjóðs. Sigf. Sigf.,
eftir sögu Guðmundar sjálfs).
EGGERTSON & EGGERTSON
Barri8t»rs, Solicitor* ond
Notaries
500 Power Bullding
Winnipeg 1, Mon
Phpne WH 2-3149
at Municipol Office, Riverton
12:00 noon to 3:00 p.m.
ot Credit Union Office, Gimli
4:00 p.m. to 6:00 p.m.
First ond Third Tuesdoys
Phone WHiteholl 3-8072
Building Mechanic’s Ltd.
Pointing - Decoroting - Construction
Renovoting • Reol Estote
K. W. (BILL) JOHANU'SON
Manoger
371 McDermot Ave., Winnipeg 2
A. S. BARDAL LTD.
FUNERAL HOME
843 Sherbrook Street
Selur lfkkistur og annast um
útfarir. Allur utbúnaður
sá bezti.
Stofnað 1894 SPruce 4-7474
Goodman And Kojima Electric
ELECTRICAL CONTRACTORS
770 ELLICE AVE., WINNIPEG 10
774-5549
ARTHUR GOODMAN M. KOJIMA
SP 2-5561 LE 3-6433
Evenlngs ond Holidoys
S. A. Thorarinson
Borrister & Solicltor
2nd Floor, Crown Trust Bldg.
364 MAIN STREET.
öffice WHitehall 2-7051
Retidenca HU 9-6488
The Business Clinic
Otcar HJðrloifton
Office at 194 Cathedral Ava.
Phone 582-3548
Bookkeeping — Incomo Toi
Benjaminson
Construction Co. Ltd.
911 Corydon Avervuo
GR 5-0498
GENERAL CONTRACTORS
Rnidential ond Commorclol
E. BENJAMINSON, Monogot
Oft. SP 2-9509—SP 2-9500
Ret. SP 4-675J
OPPOSITE MATERNITY HOSPITAL
Nell’s Flower Shop
700 NOTRI DAMI
Weddlng Bouquett - Cut Flowort
Funerol Deilgnt - Cortogot
Boddlng Plonts
S. L. Stefonson—JU 6-7229
Mrs. Albert J. Johnson
ICELANDIC SPOKEN
H. J. LAWRIE LUDLOW
Borrister ond Solicltor
2nd Floor, Crown Trust Bldg.
364 MAIN STREET
WINNIPEG 1, MANITOBA
Ph. WH 2-41J5
At Glmll Hotol ovory Frldoy
9:30 to 12:30
BETEL
í erfðaskróm yðar
G. F. Jonasson, Pret. and Mon. Dlr.
KEYSTONE FISHERIES
LIMITED
Wholosolo Dlstrlbutors of
FRESH AND FROZEN FISH
16 Mortho St. WHIteholl 2-0021
Canadian Fish Producers Ltd.
J. H. PAGE, Monoglng Dlrector
Wholesalo Dlstrlbutors of Fresh ond
Frozen Flsh
311 CHAMBERS STREET
Oftlce: BUS.t
SPruce S-04B1 SPruce 2-J917
TflLUN, KRISTJANSSON,
PARKER, MARTIN &
MERCURY
Barrlstere & Sollcltors
210 Osborne Street North
WINNIPEG I. MANITOBA