Lögberg-Heimskringla - 19.05.1966, Qupperneq 5
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 19. MAÍ 1966
5
Ljóð vestur-íslenzkra skólda
Vornótt í skógi
Svo hljótt af húmsins náð
er hér í lundi,
sem faðmist loft og láð
í ljúfum blundi.
Hér kyrðar ríkja rögn
í rökkurhöllum.
Mér finnst hér þöglust þögn
af þögnum öllum.
Þau öfl, sem ala blæ,
á önd hér standa.
Eg heyri frjóvast fræ
og fuglinn anda.
Mér sýndist sjálfsagt hér
að setjast niður,
því nautn ei nein er mér
sem næturfriður.
Og skógarhvelfing há
er hugdýrst kirkja.
Þeim helgidómi hjá
er hægt að yrkja.
Þorskabítur.
Sumri fagnað í Seattle
SUMARKOMA
Fró Ríkisútvarpi íslands
Yfir snjófjöllin háu,
fram úr heiðinni bláu,
hljómar íslenzkt
og töfrandi lag.
Berst í blíðviðrisgeiminn
fregn, og flýgur um heiminn:
það er fyrsti í sumri í dag!
Hann með sumarið svífur,
menn til samferðar drífur
og þeim sannindum
vísar á braut.
Vekur unaðaróma,
eyðir vetrarins dróma,
gerir litfag’urt
gróandans skraut.
Er í vermandi rjóður
fæðist vordagagróður,
þá fer vonin
um fegurð að spá.
Hátíð sumarið setur
og allt kvikandi hvetur,
örvar kjark manns
og æskunnar þrá.
Föstudaginn 22. apríl efndi
Kvenfélagið Eining til sumar-
fagnaðar í samkomusal Cal-
very Lutheran Church. Mrs.
Ruth Sigurdson setti sam-
komuna með stuttu ávarpi og
bauð gesti velkomna. Síðan
hófst ágæt skemmtiskrá, sem
Mrs. Sigurdson stjórnaði af
sinni alkunnu lipurð og
smekkvísi.
Hin velþekktu og kunnu
Smedvig-systkini, Jodene og
Rolfe, skemmtu samkomugest-
um með hljóðfæraslætti. —
Fyrst lék Jodene á flautu
(flute) en síðan Rolfe á
trumpet. Miss Valerie John-
son annaðist undirleik á píano
og leysti það vel af hendi.
Einnig lék hún einleik á píano.
Það er alltaf unun að hlýða
á Smedvig-systkinin, því að
Vakir söngfugl og syngur,
stækkar sjóndeildarhringur,
þá á sumri er gleði þín mest.
Og á forfeðragrundu
átt þú fagnaðarstundu,
þar er frelsi og ánægja bezt.
Margt af tápi skal vinna,
mörgum tilraunum sinna,
þú átt traustið
á þrautseigann dug.
Sjálf er náttúran skóli
manna, byggðu á bóli,
kennir bjargráð
og hugmyndaflug.
Þig er farsæld umvefur
og þér forsjónin gefur
þinna framkvæmda
takmörkum ná.
Áfram öruggur gengur
er þú trúir, að lengur
rætist ósk þín
og æskunnar spá.
JÓN MAGNÚSSON,
Seattle, Washington.
þau eru mjög músikölsk, og
hljómlistarfólk stendur að
þeim í báðar ættir. Tani
Björnsson og Mrs. Gloria
Nelson sungu tvísöng. Mrs.
Svava Sigmar söng einsöng.
Undirleik annaðist Erika
Eastfold.
Björn Bergvinsson lék ein-
leik á harmoniku. Þrátt fyrir
það, þó Björn sé ungur að
árum og byrjandi á sviði
hljómlistarinnar, leyndi það
sér ekki, að hann er músikalsk-
ur í eðli sínu, enda var honum
óspart klapað lof í lófa, ekki
síður en öðrum þáttakendum
skemmtiskrárinnar.
Séra Eric H. Sigmar flutti
aðalræðu kvöldsins, einnig
mælti séra Norman Nelson
nokkur orð í samkomulok.
Jón Magnússon flutti frumort
Framhald af bls. 1.
fimm þeirra tilbúnar. Hin
sjötta verður tilbúin síðari
hluta sumars, eða í haust. —
Afkastageta þess hluta deild-
arinnar, sem nú hefur verið
tekinn í notkun, er áætluð 15
þúsund röntgenrannsóknir á
ári við beztu aðstæður. Starfs-
lið deildarinnar er 13 manns.
— Smíði Borgarsjúkrahúsins
hófst vorið 1954. Við síðustu
áramót var kostnaðurinn orð-
inn 144,2 milljónir króna, en
af þeirri upphæð ber ríkis-
sjóði að greiða 71,7 milljónir.
Á fjárhagsáætlun yfirstand-
andi árs er áætlað til sjúkra-
hússins 55 milljónir króna.
*■ * *
Aðalfundur Eimskipafélags
íslands h.f. var haldinn á
fimmtudag. Þar var samþykkt
m.a., að hlutafé félgasins verði
tvöfaldað, hækkað úr 16,8
milljónum í 33,6 milljónir kr.
Ennfremur, að á árunum
1967. til 1. júlí 1971 verði
stefnt að aukningu hlutafjár-
ins um alltað 66,4 milljónir
króna, þannig að það verði
samtals 100 milljónir. Á árun-
um 1968 til 1970 verði bætt 2
til 3 nýjum vöruflutninga-
skipum við skipastól félagsins
og kannaður kostnaður við
smíði og rekstur nýs farþega-
skips. — Árið 1965 var hagn-
aður af rekstri félagsins 1,3
milljónir króna. 22 skip voru
í förum á vegum Eimskips og
fóru 141 ferð milli íslands og
útlanda. Með skipunum fóru
8511 farþegar á árinu, þar af
7882 með Gullfossi. Samkvæmt
efnahagsreikningi námu eign-
ir félagsins um síðustu áramót
rúmlega 367,7 milljónum kr.,
en skuldir að meðtöldu hluta-
fé liðlega 348,7 milljónum.
* * *
í fyrradag tókust samningar
milli Síldarverksmiðja ríkis-
ins og norska skipafélagsins
A/S Odfjell í Björgvin um
kaup á « lankskipinu LÖNN,
sem er 3700 lestir og getur
tekið um 22.000 mál síldar. —
kvæði, sem hér með fylgir.
Að lokum sungu samkomu-
gestir „Hvað er svo glatt“ og
„My Country" undir stjórn
Tana Björnssonar. — Að
skemmtiskrá lokinni báru
Einingarkonur fram rjúkandi
kaffi ásamt smurðu brauði,
pönnukökum o. fl. góðgæti.
Kvenfélagið Eining á þakk-
ir skilið fyrir að viðhalda hin-
um þjóðlega íslenzka sið að
fagna komu sumars með
vandaðri skemmtiskrá ár
hvert. Undirritaður væntir
þess, að þetta ágæta félag
megi enn um mörg ókomin ár
skemmta löndum hér og niðj-
um þeirra með þessari árlegu
skemmtun. Því miður var
samkoma þess ekki eins vel
sótt og vera skyldi. En þeir,
sem hana sóttu nutu hennar í
ríkum mæli.
Seattle, 8. maí 1966.
THOR VIKING.
Skipið verður afhent síldar-
verksmiðjum ríkisins í Ham-
borg eða Rotterdam um mán-
aðamótin. Gert er ráð fyrir
að breytingar á skipinu taki
mánaðartíma og það geti hafið
síldarflutninga í byrjun júlí.
Skipinu er ætlað að flytja
bræðslusíld frá síldveiðiflot-
anum á fjarlægum miðum til
Síldarverksmiðja ríkisins á
Norðurlandi.
* * *
Yfirnefnd VerSlagsráðs sjáv-
arúlvegsins ákvað á laugar-
daginn var lágmarksverð á
fersksíld til frystingar, sem
veidd er fyrir norðan og aust-
an frá 1. 5. til 9. 6. í sumar,
eina krónu og níutíu aura
hvert kílógramm.
* * *
Fjármálaráðherra ákvað að
nota heimild laga fyrir ríkis-
stjórnina að taka innlent lán
allt að 100 milljónum króna
og voru gefin út spariskírteini
að fjárhæð 50 milljónir króna
og hófst sala þeirra í vikunni
og seldust skírteinin upp á
tveimur dögum. Skilmálar
nýju skírteinanna eru hinir
sömu og spariskírteinanna
sem út voru gefin í fyrra.
* * *
Menningarsjóður hefur gef-
ið út sex ný gróðurkort af
hálendi Islands hin fyrstu
sinnar gerðar hér á landi. Þar
eru kortlagðir 35 til 40 þúsund
ferkílómetrar. Þess er vænst
að kortlagningu allra afrétta
landsins verði lokið fyrir 1970.
* * *
Sænska ríkisþingið bauð
fjórum alþingsimönnum að
vera viðstaddir hátíðahöld í
Stokkhólmi vegna 100 ára
afmælis þjóðkjörins þings
Svía. Formaður nefndarinnar
var Birgir Finnsson, forseti
sameinaðs þings.
* * *
Áætlaður afli báta á vetr-
arvertíð á svæðinu frá Horna-
firði að Isafjarðardjúpi frá
áramótum til aprílloka er sem
hér segir: 174 þúsund lestir af
þorski, 121 þúsund lestir af
loðnu og 17 þúsund lestir af
síld. Áætlaður þorskafli utan
þessa svæðis er um 10 þúsund
lestir, svo að heildarþorskafli
bátaflotans á þessum tíma er
um 184 þúsund lestir. Mestum
afla hefur verið landað í
Reykjavík.
* * *
Verðlagsráð sjávarútvegsins
hefur komist að samkomulagi
um lágmarksverð á humar
sem gildir á humarvertíð 1966
og á nokkrum kolategundum.
Verð á fyrsta flokks humar
verður nú 70 krónur kíló-
grammið. Verð kolans hækk-
ar um 7%.
* * *
Rækjuvertíð lauk allsstað-
ar um síðustu mánaðamót. —
Aflinn á vertíðinni í ísafjarð-
ardjúpi varð 1201 lest, er það
mesti afli í mörg ár.
* * *
Vélbáturinn Gullþór hefur
undanfarna daga gert tilraun-
ir með nýja gerð dragnótar
til veiða á sandsíli og hafa
þær borið góðan árangur.
Síldarleitarskipið Hafþór
hefur leitað síldar útaf Norð-
austurlandi. Hann hefur fund-
ið talsvert mikla síld og stór-
ar torfur og er síldin á svip-
uðum slóðum og vart varð við
fyrstu gönguna í fyrra.
* * *
Sjómannadagurinn er hátíð-
legur haldinn víða um land í
dag.
* * *
í vikunni kom nýr hafn-
sögubátur til Hornafjarðar,
Björn lóðs, kenndur við Björn
Eymundsson sem manna
lengst hefur verið hafnsögu-
maður við Hornafjörð.
* * *
I gærkvöldi var frumsýndir
í Tjarnarbæ í Reykjavík nýr
íslenzkur barnasöngleikur, —
Apaspil, eftir Þorkel Sigur-
björnsson, hann stjórnaði
sjálfur tónlistinni en leikstjóri
var Baldvin Halldórsson. —
Kristinn Hallson söng ásamt
börnum úr Barnamúsikskóla
Reykjavíkur.
* * *
Bandaríski píanóleikarinn
Malcolm Frager hélt tónleika
í Reykjavík og á Isafirði í vik-
unni við mikla hrifningu.
F0R ALL Y0UR
TRAVEL NEEDS
CALL YOUfí
CANADLAN PACIFIC AGENT
Ofí YOUfí TfíAVEL AGENTI
• Scenic-Dome rail travel
• Low cost "Faresaver” plan
rail fares.
• Great Lakes and Aiaska
cruises
• Hotels and resorts across
Canada
• Steamship bookings to
Europe and winter cruises
• Airlines across Canada and
iinking five continents j
INFORMATION and
RESERVATIONS
see your Travel'Agent
— or contact —
MR. F. E. COOK,
City Ticket Agenl,
Canadian Pacific,
Portage & Main St.,
Winnipeg 1, Man.
TRAINS / TRUCKS / 8HIP8 / PLANES
HOTELS / TELECOMMUNIOATION3
WORLO’S MOST COMPLETE
TRANSPORTATION SYSTEM