Lögberg-Heimskringla - 19.05.1966, Síða 8

Lögberg-Heimskringla - 19.05.1966, Síða 8
8 LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 19. MAÍ 1966 Ör borg og byggð E X P 0 6 7 Caroline Gunnarsson, rit- stjóri kvennadálka Free Press Weekly þáði boð frá Expo 67 nefndinni í fyrri viku að koma og skoða svæðið í Montreal þar sem hin mikla Canadiska heimssýning fer fram næsta ár. Var um 50 kvenritstjórum úr öllum hlut- um landsins boðið, aðeins tveim frá Winnipeg. Annar kvenritstjóri af íslenzkum ættum var í þessum hóp, Mrs. Donna Warniuk, — ritstjóri kvennadálka Regina Leader Post. Hún er ættuð frá Foam Lake og bar nafnið Januson áður en hún giftist. Geysilegu verki hefir þegar verið afkastað á þessu svæði og miklar byggingar reistar. Telur Caroline engan vafa á því að þetta verði ein mesta og fullkomnasta sýning af þessari tegund, sem efnt hefir verið til í heiminum fram að þessu, enda eru einkunarorð sýningarinnar „Man and his World". Til samanburðar má geta þess að 42 þjóðir heims- ins tóku þátt í Brussels heims- sýningunni, 39 þjóðir í heims- sýningunni í New York, en 72 þjóðir munu taka þátt í Expo 67 í Montreal. Eins og áður hefir verið getið hér í blaðinu, tekur Island þátt í sýningunni og hafa Skandinavisku þjóðirnar sam- eiginlegan sýningarskála. * * * Frá Eric Slefanson, þing- manni, Selkirk kjördæmis hafa borist þær fréttir að póst- málastjórnin í Ottawa hefði tilkynnt að nú væri undirbún- ingi lokið í þá átt að bera út póstinn til 80% af heimilum í Selkirk og myndi sú þjón- usta hefjast 24. maí 1966. Fró Vancouver, B.C. GESTIR Á HÖFN W. A. kvennfélag Lútersku kirkjunnar Islendinga heim- sótti vistfólkið á Höfn 24. apríl, og eins og fyrr með fær- andi hendi. Mrs. Mona Bjarnason, forseti félagsins hafði orð fyrir gestunum og las upp skemmtiskrána. — Blandaður kór söng á íslenzku uppáhalds Ijóð, Mrs. T. Gar- rick við píanóið. M. K. Sigurd- son hafði upplestur. Hann las tvö kvæði eftir Davíð Stefáns- son, og svo sálminn 366 í sálmabókinni, sem er 44 Passíu sálmur Hallgríms Pétursson- ar, og uppáhalds sálmur. — Hann gat ekki betur valið, enda varð efnið og mál svo lifandi við lesturinn að áheyr- endur voru hrifnir. Svo kom kaffi og ágætar veitingar fyrir alla. Hjartans þökk, góðu kon- ur, fyrir komuna, og skemmt- unina. Tvær góðar vinstúlkur mín- ar frá Winnipeg Ruth og Rannveig Bardal, heilsuðu hér upp á mig um daginn; í för með frænku sinni Mrs. A. Warburton, (Vancouver), þær voru búnar að vera í nokkrar vikur á leiðinni að vísu, — þar sem þær ferðuðust í sínum eigin bíl, og heilsuðu upp á vini sína á vestur leið — í Brandon, Manitoba, Regina, Saskatoon, Saskatchewan, — North Battleford, Edmonton og Calgary, Alberta og Arm- strong, B.C. — Ég held að þær hafi orðið fegnar að koma í sólskin og sumar blíðuna í Vancouver, enda var þeim vel fagnað hér af bræðrum sínum, frændum og ótal vinum. Mr. og Mrs. S. B. Johnson, og Mr. og Mrs. Bill Lawrence frá Seattle, Wahington dvöldu hér í Vancouver yfir helgi nýlega. Mr. og Mrs. O. S. Laxdal frá Mount Vernon, Wash. heils- uðu upp á Dr. og Mrs. S. E. Björnson á Höfn. Mrs. Bealrice Arnason kom í heimsókn til Mrs. Margrét Arngrímsson. Hún á heima í Campbell River, B.C. Mr. Erik Olafson frá Dafoe, Sask. kom í heimsókn til ömmu sinnar, Mrs. Áslaugar Gauti, á Höfn. Mrs. F. Bergihorson, Tofino, B.C. (Lighthose) kom með systir sinni Mrs. J. Axdal, Burnaby, B.C. Capl. Wm. Stevens og kona hans, frá Grand Marais, Man. hafa verið hér í heimsókn til ættingja og vina. Það var hressandi blær af Winnipeg- vatni, að mæta þessum elsku- legu hjónum, og fá að heyra ögn um lífsstarf Capt. Stevens. Hann var „Kafteinn“ á skipum sem sigldu um allt Winnipegvatn, í 35 ár, og 10 árum lengur sem hann var með föður sínum á sjó. Það var skemmtilegt og æfintýra- legt að spjalla við þau hjónin. G. J. Fréfrtir frá íslandi Nú síendur yfir vorsýning Myndlista- og handíðaskóla íslands og málverkasýning Guðmundar Karls Ásbjörns- sonar í Bogasal Þjóðminja- safnsins. * * * Hinn 8. þessa mánaðar lézt í sjúkrahúsi í Kaupmanna- höfn Þórunn Ástríður Björns- dóltir frá Grafarholti, kona Jóns Hélgasonar prófessors. S T Ö K U R Ég rengi ekki reikninga drottins og reyni ekki afslátt að fá en syndaskuldin mér sýnist í sannleika nokkuð há. Himininn á svo annríkt með öll sín reikningsskil að grunlaust er ekki með öllu að eitthvað ruglist til. P. G. * * * SPAKMÆLI DAGSINS Kristindómurinn kenndi mönnum, að kærleikurinn er meira virði en gáfurnar. — J. Mariiain. MESSUBOÐ Fyrsta lúterska kirkja Sr. V. J. Eylands, Dr. Theol. Heimili 686 Banning Street. Sími SUnset 3-0744. Guðsþjónustur á hverjum sunnudegi: Á ensku: kl. 9.45. f. h. 11.00 f. h. Á íslenzku kl. 7 e.h. Sunnudagaskóli kl. 9.45 f. h. Dónarfregnir Valdimar Johann Jonatan- son, Arnes, Man. lézt 5. maí, 1966, 79 ára að aldri. Hann fluttist frá íslandi barn að aldri og hefir átt heima að Arnesi síðan. Hann lifa kona hans, Isabella, einn sonur, Jón, í Selkirk; tvær dætur, Mrs. Laura Gottfried, Gimli og Mrs. Fred Walld, Arnesi, 13 barnabörn og 2 barna- barnabörn. * * * Mrs. Agnes H. Thorsteinson, ekkja Jóns B. Thorsteinson lézt að heimil sínu í Selkirk 5. maí 1966. Hana lifa ein dótt- ir, Helen — Mrs. Charles Turner í Winnipeg; tveir syn- ir, John í Brandon og Bud í Winnipeg; 9 barnabörn og fjögur systkini. * * * Lawrence T. (Lallie) Ind- riðason, Selkirk, Manitoba lézt 5. maí 1966, 46 ára að aldri. Hann syrgja Mary kona hans; ein dóttir, Susan; móð- ir hans, Mrs. Guðrún Indriða- son; ein systir, Mrs. Boswell Mitchell (Sigga) í Selkirk; þrír bræður, Bill í Selkirk, Raymond í New Westminster og John í Burnaby. * * * Harold Marino Sigurdson, Winnipeg, 61 árs að aldri lézt 3. maí. Foreldrar hans voru Árni og Steinunn Sigurdson. Hann lifa kona hans Mary; tvær dætur, Jean — Mrs. E. B. Kumhyr, Winnipeg, Thelma — Mrs. Donald Gadsby, Edmonton; einn sonur, Harold Norman, Winnipeg og 10 barnabörn. Séra P. M. Péturs- son jarðsöng. * * * Sigurður Oddson, Lundar, Man. varð bráðkvaddur 9. maí 1966, 77 ára að aldri. Hann var fæddur að Lundar 19. sept. 1889. Hann syrgja bróðir hans, Oddur, fjórar systur, Mary — Mrs. B. Runólfson að Lundar; Una — Mrs. T. Thorkelson í Chicago; Ella — Mrs. W. Bullis í Colorado og Júlla — Mrs. F. Gold í Vancouver. * * * Páll Guðmundsson, bóndi í Leslie lést af bílslysi þessa viku og verður hans sjálfsagt nánar getið síðar hér í blaðinu og eins bróður hans Þorsteins sem dó í marz. — Mrs. Anna Wood systurdóttir þessa bræðra fór héðan vestur til að vera við útförina. MANNALÁT í Vancouver og grendinni — Thorarinn Gíslason dó 13. janúar 1966. Hann var jarð- sunginn af séra R. Osman. Frederick V. Davidson, dó 13. marz 1966. — Séra Osman jarðsöng. Ingunn María Siurlaugson, 93 ára gömul, dó 16. apríl í sjúkrahúsi. Heimili hennar var 1120 - 4th Ave. Steveston, B.C. Hana lifa ein dóttir, Mrs. Thelma Gobert, Merritt, B.C., og 4 dóttur dætur, og systkina börn hennar. Hún var jarð- sungin 20. apríl, séra R. Osmun flutti kveðju. Halldór Julíus Jóhannson, 70 ára að heimili sínu 5888 172 A Street, Cloverdale, B.C. Átti lengi heima í Marker- ville, Alberta. SÁ NÆST BEZTI Svo er sagt, að Kristján konungur tíundi hafi skömmu fyrir seinna stríð setið mikla veizlu hjá Hitler. Var Hitler hin Ijúfasti og veitti stór- mannlega. Þegar Kristján konungur var farinn að hýrgast af hin- um ljúffengu „Heiðrúnar- dropum“ einræðisherrans, hvíslaði Hitler í eyra hans: „Ættum við ekki, Stjáni, að rugla saman reitum okkar og rífa landamærastaurana nið- ur?“ „Ætli maður hugsi nokkuð um það, Hilli minn“, svaraði Kristján kóngur. „Ég er orð- inn fullroskinn til þess að stjórna einn svo víðlendu ríki.“ Civil Defence says: — “Civil Defence” and all em- ergency planning is good in- surance to help minimize the effects of disaster. Meíro Civil Defence, 1767 Portage Avenue, Winnipeg 12 — 888-2351. VIÐ KVIÐSLITI Þjáir kviðslit yður? Fullkomin lækning og vellíðan. Nýjustu að- ferðir. Éngin teygjubönd eða viðj- ar af neinu tagi. Skrifið SMITH MFG. Company Dept. 234, Preslon. Ont. GOING TO ICELAND? Or perhaps you wish to visit other countries or places here, in Europe or elswhere? Where- ever you wish to travel, by plane, ship or train, let the Triple-A-Service with 40 years travel experience make the arrangements. Passports and other travel documents secured without extra cost. Write. call or telephone to- day witnout any obligations to: ARTHUR A. ANDERSON TRAVEL SERVICE 133 Claremont Ave., Winnipeg 8. Man. TeL: GLobe 2-5446 Asgeirson Paints & Wallpapers Ltd. BUILDING MATERIALS 696 Sargent Avenue Winnipeg 3, Manitoba 0 All types of Plywood • Pre-finish doors and windows • Aluminum combination doors 0 Sashless Units • Formica • Arborite • Tile Boards 0 Hard Boards etc. 0 Table Legs Phones SU 35-967 SU 34-322 FREE DELIVERY BETEL HOME FOUNDATION Stjómamefnd Betels fagnar því, að geta nú tekið á móti umsóknum frá öldruðu fólki, er óskar inngöngu í nýja heimilið, sem nú er verið að reisa í Selkirk, Manitoba, Þetta nýja fullkomna heimili mun verða reiðubúið að taka á móti 62 manns þann 1. apríl 1966 eða um það leiti. Þeir sem óska inngöngu sendi skriflegar umsóknir til: J. V. Jónasson, rilara, 133 Kitson St., Winnipeg 6, Man. UMBOÐSMAÐUR LÖGBERGS-HEIMSKRINGLU á ÍSLANDI SINDRI SIGURJÓNSSON pósiafgreiðslum. P.O. Box 757, Reykjavík Verð Lögbergs-Heimskringlu er kr. 240 á óri. Subscription Blank NORTH AMERICAN PUBLISHING CO. LTD. 303 Kennedy St., Winnipeg 2. I enclose $6.00 for 1 year □ $12 for 2 years □ subscrip- tion to the Icelandic Weekly, Lögberg-Heimskringla NAME ..................................... ADDRESS ..................................

x

Lögberg-Heimskringla

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.