Lögberg-Heimskringla - 06.07.1967, Qupperneq 1
Hö gberg - ^etmöfmngla
Sloínað 14. jan. 1888 Slofnað 9. sepl. 1886
81. ÁRGANGUR WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 6. JÚLÍ 1967__NÚMER 27
Ingibjörg J. Ólafsson heiðruð
íslendingadagurinn
Hið fríða föruneyti forseta tslands í
heimsókn hans til Manitoba verður:
Emil Jónsson, utanríkisráðherra;
Pétur Thorsteinsson, ambassdor íslands;
J. P. Sigvaldason, ambassador Canada;
Mrs. Sigvaldason:
Vilhjálmur Þór, fyrv.utanríkisráðherra;
Mrs. Þór;
Þorleifur Thorlacius, forsetaritari;
Mrs. Thorlacius;
Grettir Leo Johannson, aðalræðismaður íslands;
Mrs. Johannson.
Bréf frá séra Robert Jack
ISLENDINGADAGURIN N
Þann 17. júní s.l. náði Mrs.
Ingibjörg J. Ólafsson, ekkja
séra Sigurðar Ólafssonar, átt-
ræðisaldri. Að kvöldi þess
dags var henni, ásamt syni
hennar, Karli og fjölskyldu
hans, boðið í kvöldverð, sem
veittur var í sérstökum borð-
sal í Zoratti’s Restaurant í
Winnipeg. Þar tóku á móti
henni nokkrir meðlimir fram-
kvæmdanefndar og annarra
nefnda, sem starfandi voru í
Bandalagi Lúterskra Kvenna,
er það var uppleyst á 42. árs-
þingi þess, 27. maí s.l., og enn-
fremur nokkrir meðlimir Sun-
rise Camp nefndarinnar, sem
starfaði þar til búið var að af-
henda sumarbúðirnar til Cen-
tral Canada Synod, L.C.A., er
tók á móti þeim til afnota fyr-
ir kirkjufélagið í heild.
Öllum meðlimum þessara
nefnda var boðið í veizluna,
og hverjum þeim, sem giftur
er, var boðið að koma með
eiginmanninn eða eiginkon-
una með sér. Því miður gátu
ekki allir komið, en 30 manns
voru til staðar til þess að sam-
gleðjast Mrs. Ólafsson og votta
henni virðingu á þessum heið-
ursdegi hennar, og var þessi
kvöldstund hin ánægjuleg-
asta.
Sjö þeirra 23 ferðalanga, er
fóru á vegum Ferðaskrifstof-
unnar Sunnu til landanna fyr-
ir botni Miðjarðarhafs, komu
til Reykjavíkur í gærkvöldi
frá London með flugvél Flug-
félags íslands. — Þetta var
þreyttur en ánægður hópur —
hann hafði verið á stöðugri
ferð í rúman hálfan sólar-
hring og ferðafólkinu án efa
þótt gott að vera komið heim
í friðsældina á Islandi eftir að
hafa nokkrum dögum áður
verið innan um fallandi
sprengjur í Jórdaníu. Hópur-
inn fór frá Teheran árla í
gærmorgun til London, og þar
varð hann eftir að undantekn-
um sjö, sem héldu strax heim.
Voru þau orðin 6 daga á eftir
áætlun. Gert er ráð fyrir, að
flestir þeirra, sem eftir eru
erlendis, komi heim á fimmtu-
dag eða föstudag.
Fréttamenn Mbl. voru úti á
flugvelli í gærkvöldi, þegar
hópurinn kom, og fara hér á
eftir viðtöl ferðalanganna:
Við hittum að máli Hermann
Þorsteinsson, verzlunarmann.
— Hvenær byrjuðu þessi
ósköp hjá ykkur?
— Við vorum í landinu helga
í nokkra daga, í Jerúsalem.
Svo er það á mánudagsmorg-
Byrjað var með því að setj-
ast að borðum. Laufey Olson
las hugnæma borðbæn. Svo
nutum við hinnar ágætu mál-
tíðar, sem veitt var og vel bor-
in fram.
Að máltíðinni lokinni tók
Gissur Elíasson, forseti Sum-
arbúðanefndarinttar, við stjórn
þessa samsætis og tókst hon-
um það vel. Hann kom öllum í
gott skap með fyndni sinni og
kallaði á konur og karla til
þess að ávarpa heiðursgestinn.
Þeir, sem tóku til máls voru:
Systir Laufey Olson, heiðurs-
Framhald á bls. 2
un, að ráðgerð var ferð um
gamla borgarhlutann. Það átti
að vekja okkur klukkan níu,
en af einhverjum ástæðum var
það gert klukkan átta. — Ég
veit ekki hvers vegna. En þá
bárust okkur fréttir af því að
ísraelsmenn hefðu gert loft-
árásir á Kairó. Menn vissu
ekki, hversu alvarlegt þetta
var, hvort átökin myndu verða
milli Araba og Gyðinga í Jerú-
salem, svo að það var ákveðið
að við skyldum fara þessa
ferð. En svo varð Ijósara og
ljósara, að það var komið stríð
og klukkan 10 vorum við
komin inn í bílinn og ókum í
ofboði burt frá Jerúsalem. —
í Betaníu stanzaði bíllinn við
benzínstöð og þar var mikil
biðröð. Það var greinilegt, að
fólk var byrjað að hamstra.
Okkur tókst að fá benzín á
okkar bíl, en rétt á eftir kom
þarna herflokkur, sem stöðv-
aði alla frekari afgreiðslu.
Nú, við héldum síðan áfram,
áttum eftir að heimsækja
Dauðahafið og þótti slæmt að
missa af því. Það var því
ákveðið að skella sér þangað
niður eftir. Ökumaðurinn var
ekkert hrifinn af þeirri ráða-
gerð, en það hafðist nú samt
Framhald á bls, 2
Ríkisútvarp íslands
25. júní 1967.
Hin nýja Boeing-þota 727
Flugfélags íslands, Gullfaxi,
kom til Reykjavíkur í gær.
* * *
Willy Brandt utanríkisráð-
herra kom til Reykjavíkur á
föstudagskvöld ásamt konu
sinni. Emil Jónsson utanríkis-
ráðherra tók á móti honum á
flugvellinum. Um kvöldið sat
Willy Brandt veizlu Emils
Jónssonar og í gærmorgun
ræddi hann við dr. Bjarna
Benediktsson forsætisráðh.,
Emil Jónsson utanríkisráðh.,
Eystein Jónsson form. Fram-
sóknarflokksins og dr. Gylfa
Þ. Gíslason menntamálaráðh.
Hann snæddi hádegisverð í
boði forseta Islands að Bessa-
stöðum.
* * *
Framkvæmdum við ál-
verksmiðjuna í Straumsvík
miðar samkvæmt áætlun. I
næsta mánuði verður byrjað
að vinna við undirstöður verk-
smiðj ubygginganna.
* * *
Á fundi í Alþingishúsinu á
miðvikudag úthlutaði lands-
kjörstjórn 11 uppbótarþing-
sætum til jöfnunar milli þing-
flokkanna. Samkv. úrskurði
landskjörstjórnar hlýtur Al-
þýðuflokkurinn fjögur upp-
bótarþingsæti, Alþýðubanda-
lagið fjögur og Sjálfstæðis-
flokkurinn þrjú. Hinir ellefu
landskjörnu þingmenn eru:
Sigurður Ingimundarson,
Alþýðufl.;
Eðvarð Sigurðsson,
Alþýðubandalag;
Jón Þorsteinsson, Alþýðufl.
Jónas Árnason, Alþýðubl.;
Jón Ármann Héðinsson,
Alþýðufl.;
Geir Gunnarsson, Alþýðubl.
Sveinn Guðmundsson,
Sjálfstæðisfl.;
Steingrímur Pálsson,
Alþýðubandalag;
Bragi Sigurjónsson,
Alþýðuflokkur;
Sverrir Júlíusson, Sjálfstfl.;
Bjartmar Guðmundsson,
Sj álf stæðisf lokkur.
* * *
I vikunni hófst túnasláttur
á tveimur stöðum sunnan-
lands.
* * *
Ólafur Hansson hefur verið
skipaður prófessor í heim-
spekideild Háskólans og Guð-
laugur Þorvaldsson ráðuneyt-
isstjóri prófessor í viðskipta-
deild Háskólans. — Ófeigi Ei-
ríkssyni bæjarfógeta í Nes-
kaupstað hefur verið veitt
embætti bæjarfógeta á Akur-
eyri og sýslumanns í Eyja-
Framhald á bls. 2
Tjörn, Vatnsnesi, V.-Hún.,
8. júní 1967.
Það kom bóndi til mín um
daginn og sagði mér m. a., að
það væri eiginlega ekkert und-
ur, að íslendingar yfirgáfu
land sitt og fóru til Ameríku.
Þessi orð voru mælt við mig
í júníbyrjun á meðan við stóð-
um við eldhúsgluggann og
horfðum út á gróðurleysi og
snjófjúk. Hitinn var þá við
frostmark. Já, það var í byrj-
un þessa mánaðar. Nei, — ég
tek undir með bóndanum —
það var mjög skiljanlegt, að
menn urðu að fara frá ætt-
landi sínu. Ég veit, að ef til-
búinn áburður hefði ekki ver-
ið fáanlegur í fyrra sumar,
hefði enginn bóndi hér um
slóðir haft veturinn af sökum
heyleysis.
En þó að maðurinn geti
margt nú til dags, getur hann
samt ekki stjórnað veðrinu og
íslenzkur bóndi er sannarlega
vanur að berjast við það.
Nú standa alþingiskosning-
DANIEL J. SIMUNDSON
We regret that this picture
was mislaid at the engravers,
but it should have appeared
in L.-H. June 8th with the
story about Mr. Simundson’s
career and hís Graduate Prize
Fellowship Award from the
Harvard University to study
toward the Ph.D. degree in
the subject of Near Eastern
Languages and Literatures.
ar fyrir dyrum og eru allir
flokkar uppteknir við að bjóða
fram „vörur sínar“ í ræðum
og ritum, útvarpi og sjónvarpi.
Stórþjóðir berjast með vopn-
um. Við berjumst hér með
tungunni; vopni, sem einnig
getur sært.
Þegar ég var í Reykjavík
fyrir hvítasunnu fékk ég orð
frá Gretti Eggertson, en þrátt
fyrir það, að ég reyndi oftar
en einu sinni að hafa tal af
honum, tókst mér það ekki.
Hann og bróðir hans, Ámi,
voru hér, eins og kunnugt er,
á fundi Eimskipafélags ís-
lands. Um daginn fór hópur
manna til að skoða sig um í
Palestínu, en á meðan þeir
voru þar brauzt stríðið út á
milli Gyðinga og Araba. Þeg-
ar síðast fréttist voru þeir
komnir til Amman í Jórdaníu
og biðu þar,eftir því að kom-
ast einhvern veginn til ís-
lands.
Mér er sagt, að einn íslend-
ingur, sem er giftur Gyðinga-
konu, starfi við flugumsjón í
Tel Aviv.
Þótt íslenzka þjóðin sé lítil,
held ég, að finna megi landa í
flestum löndum heims. Það
var maður hér á ferð um dag-
inn, sem er fæddur íslending-
ur, en býr núna í Nýja-Sjá-
landi. Hann er bóndi með kýr
og kindur og kann vel við sig
„á öðrum enda“ heims.
Bráðum kemur fyrsta þota
íslendinga til landsins, Boeing
727, til Flugfélags íslands. —
Það verður mikill dagur.
Já, allt er breytingum und-
irorpið. Reykjavík er ekki
lengur einangruð höfuðborg,
heldur borg með daglegum
samgöngum við aðra staði á
landinu og við útlönd. Þegar
maður ferðast langt út fyrir
Reykjavík er hægt að finna
að maður er ekki lengur beint
í umheiminum; og ef hann á
t. d. heima á Vatnsnesi, verð-
ur hann að sætta sig við margs
konar tafir og óþægindi, sem
koma sér verr í dag vegna
fólkseklu en fyrir mörgum ár-
Framhald á bls. 7,
„Droftinn er minn hirðir"