Lögberg-Heimskringla - 06.07.1967, Síða 2

Lögberg-Heimskringla - 06.07.1967, Síða 2
2 LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 6. JÚLÍ 1967 Ingibjörg J. Ólafsson heiðruð Drottinn er minn hirðir" Framhald frá bls. 1. meðlimur Bandalags Lút- erskra Kvenna; Mrs. Margaret Perry, skrifari; Mrs. Fjóla Gray, heiðursmeðlimur; Mrs. Ingibjörg Goodridge, fyrrver- andi forseti og meðlimur Sum- arbúðanefndarinnar; og Mr. S. O. Bjerring, lífstíðar heiðurs- meðlimur sömu nefndar, en hann var staddur í bænum á- samt konu sinni um þessar mundir. Allir þessir hafa starfað mikið með Mrs. Ólafsson og gáfu henni hinn bezta vitnis- burð um starf hennar sem prestskonu, sem leiðtoga og ráðgjafa á meðal kvenna í hin- um ýmsu prestaköllum, og sem meðlim og leiðtoga Bandalags lúterskra kvenna, sérstaklega í sambandi við stofnun Sunrise Camp og framkvæmd sumarnámskeiðs- ins í kristilegri fræðslu, sem þar fór fram á ári hverju. — Allir þökkuðu henni fyrir góð ráð og hjálpsemi í hverri raun sem bar að, því það leiddi æv- inlega til úrlausnar og sigurs í samstarfinu. Að þessum ræðum loknum kallaði Mr. Eliasson á Mrs. Magneu Sigurdson til þess að leika á píanó og bað alla að safnast saman í kringum hana til þess að syngja. Það voru sungnir fjörugir söngvar með lífi og sál, og það voru einnig sungnir sálmar með hátíðleg- um blæ. Svo settust allir aftur og röðuðu sér í stóran hring. Mr. Eliasson gaf öðrum tækifæri til þess að tala. Mr. Jóhann Beck, sem þar var kominn með konu sinni, Svönu, sem starfað hefir í fasteignanefnd B.L.K., ávarpaði Mr. Ólafsson og þakkaði henni fyrir góða sam- vinnu í sambandi við ársrit bandalagsins, sem nefnist Ár- dís, en hann hefir annazt út- gáfu ritsins frá því fyrsta. — Síðan tók Mr. Arthur Sigurd- son til máls, en hann var þar staddur með konu sinni, Magneu, sem hefir starfað sem annar vara-forseti Bandalags lúterskra kvenna. Hann minnt ist þess, að Mrs. Ólafsson hefði verið skólakennari í Ár- borg, þegar hann var ungur drengur, og þeirrar virðingar, sem hann og allir nemendur hennar báru fyrir henni. — Hann minntist einnig þeirra tíma, er hún bjó í Árborg með manni sínum, þegar hann var prestur í byggðinni, og fjöl- skyldu þeirra. Því næst talaði Miss Mattie Halldorson, forseti B.L.K., hlý- leg orð til Mrs. Ólafsson og af- henti henni gjöf frá þeim, sem viðstaddir voru og nokkrum, sem boðnir voru, en ekki gátu komið. Gjöfin var fallegt úr til þess að bera á úlnliðnum. Þessari gjöf fylgdu blóm, sem heiðursgesturinn bar í barmi sér og svo blómvöndur í keri. Mr. Eliasson las síðan upp kvæði, „The Present Becomes the Past“, sem harín orti til Mrs. Ólafsson og afhenti henni það skrautritað á pappírsörk. (Þetta kvæði er birt í þessu blaði). Mrs. Ólafsson þakkaði fyrir þessar gjafir af hjarta og fyrir þetta samkvæmi í heild, sem hún sagðist meta meira en orð gætu lýst. Hún gaf stutt yfir- lit um starf bandalagsins, sér- staklega í sambandi við sum- arbúðirnar. Hún þakkaði hið góða samstarf svo margra, er unnu með henni og undir hennar umsjón, og sagði, að verkið hefði aldrei lukkast nema fyrir þá samvinnu. Nefndin hefði viljað bjóða öllum meðlimum B.L.K. og öllum öðrum vinum Mrs. Ólafsson, en sá sér ekki fært að hýsa svo stóran hóp og að sjá um veitingar fyrir hann. Þess vegna var afráðið að bjóða aðeins meðlimum nefnd- anna. Hvar sem þið eruð og hverj- ir sem þið eruð, vinir og sam- vinnufólk Mrs. Ólafsson, þá veit ég, að þið munduð greiða atkvæði með því að hún væri kosin “Woman of the Year”. Nefndin: Mrs. Anna Magnusson, Miss Matiie Halldorson, Mrs. Fjóla Gray, Miss Lilja Gutlormsson, Mr. Gissur Eliasson. ## Framhald af bls. 1. og við fengum okkur sund- sprett þar. Jafnvel hún Sig- rún frá Höfðaströnd, sem er 75 ára gömul, dembdi sér út í. En svo vorum við skyndi- lega rifin þaðan upp, því að þá var allt að komast í háa loft og allt gat gerzt. Þeir voru farnir að heyra í flugvélum. Síðan ókum við áfram til Amman og ætluðum beint inn á flugvöllinn að taka fyrstu flugvél. En hann reyndist þá lokaður, og hafði síðasta vélin sloppið klukkan 8 um morg- uninn. Litlu síðar var bíllinn stöðv- aður og við rekin út. Þeir áttu von á loftárás á hverri stundu. Við leituðum hælis undir steinvegg og það skipti eng- um togum, að við heyrðum í fallbyssum, sáum flugvélarn- ar og sprengjurnar falla niður. Það gaus strax upp mikil eld- súla og reykjarmökkur, svo að það var greinilegt, að þeir höfðu hitt vel í mark. — Sáið þið flugvélarnar gera aras? — Já, við sáum margar flug- vélar. Amman er byggð á mörgum hæðum og nokkuð djúpir dalir á milli og vélarn- ar komu mjög lágt. Hávaðinn af skothríðinni var gífurlegur og það var greinilegt, að þetta var mjög alvarlegt. Nú, en presturinn, hann séra Frank, er enginn flysjungur, og veit á hvern hann trúir. — Þegar skothríðin dundi og sprengj- urnar féllu og það var ægi- legur hávaði, tók hann fram sitt Nýja testamenti ög las upp úr því: „Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta,“ og fleiri vers. Síðan sungum við: „Ó, þá náð að eiga Jesúm“ og fleiri sálma. Var því rósemi og hugarhægð hjá öllu fólkinu. — Voru engir aðrir undir þessum vegg — Nei, en það voru herbúð- ir þarna rétt hjá og fullt af hermönnum þar. Þeir gengu fram hjá okkur margir á með- an á bænastundinni stóð og virtust vera dálítið undrandi. Einn foringjanna sagði við okkur — ekki með neinum hroka þó —: „Minn guð,“ það er að segja Allah. Hann vildi meina, að hans guð væri ör- uggari en okkar. — En hann sýndi okkur ekki neinn fjand- skap. Hermennirnir komu til okk- ar, þegar árásinni lauk. Þeir voru vingjarnlegir og sögðu að okkur væri velkomið að vera þarna, en hinsvegar væru her- búðir þarna og ekki ólíklegt, að næsta loftárás yrði gerð á þær. Við höfðum engan áhuga fyrir að tefja þarna frekar og ókum að hóteli, sem hafði ver- ið ákveðið fyrir okkur, ef eitt- hvað kæmi fyrir. Það var til- tölulega skammt frá flugvell- inum. Þar vorum við svo fram á sunnudag. Okkur leið þar ágætlega, en gekk illa að finna brottfararleiðir. Það voru at- hugaðar ýmsar leiðir til þess að komast til Beirut, en ekk- ert gekk. En svo á laugardags- kvöld fengum við að vita, að verið væri að undirbúa loft- brú bandarískra flutningaflug véla til að bjarga fólki frá Amman. Þennan sunnudags- morgun var búið að skipu- leggja þetta allt mjög vel og fólkið, sem var um 800—900 manns, var flutt burt í flutn- ingaflugvélum. Það var mikill við búnaður og varúðarráð- stafanir. Flugvélarnar lentu bara ein í einu og hinar sveim- uðu yfir. Það var jafnvel gert ráð fyrir, að áhlaup yrði gert á meðan. En þetta gekk allt mjög vel og við flugum á fjór- um og hálfum tíma til Te- heran. — Hvernig var það, þegar þið fóruð frá Amman á sunnu- deginum, sáuð þið flóttafólk? — Borgin var alveg yfirfull af því. Til dæmis kvöldið áð- ur, þegar við fórum yfir í ítalska sendiráðið til að fá vegabréfin í lag, sáum við að stöðugur straumur bíla lá þar inn. Þegar við fórum, var lagt upp í birtingu og farið leyni- lega. Það var ekki talið ó- hætt að láta flóttafólkið sjá útlendinga, af ótta við að það gerði aðsúg að því, og var okk- ur því haldið inni í hótelinu. Það vildi svo vel til, að þarna var fallegur trjágarður og sundlaug, svo að okkur leið vel. Það var bara einn dag- inn, sem okkur var ekki leyft að vera þar úti, og var það af ótta við að leyniskyttur væru á sveimi á húsþökunum þar í kring. — Hvorum aðilanum höfð- uð þið nú samúð með? — Það var nú upp og ofan. Margir vorkenndu Aröbunum. En ég verð að segja fyrir sjálf- an mig, að ég var ósköp feg- inn að litli aðilinn skyldi ekki falla. Það sem mesta furðu vakti var hversu gengdarlaus áróðurinn var, í Líbanon t. d., svo að maður tali nú ekki um Kaíró. Húsin voru þakin borð- um og fánum með slagorðum til stuðnings Nasser, útvarpið lét bylja á okkur hergöngu- lög og upphrópanir, og hátal- arar um alla borgina öskruðu í sífellu. Þetta var í byrjun. Svo færðist það í eðlilegra horf, þegar leið á stríðið. Yngsti ferðalangurinn var Bjarki Laxdal, og er hann 14 ára. — Með hverjum varstu í ferðinni — Ég var bara einn, — já, þetta er fyrsta ferðin mín til útlanda. — Hvernig leið þér meðan á þessu stóð? — Ég var orðinn ósköp þreyttur í lokin, en við vorum aldrei neitt verulega hrædd. Það var helzt undir múrnum, sem' hætta steðjaði að okkur, þegar loftárásin var gerð. Og öá bað séra Frank bænir og við sungum sálma. — Tókstu einhverjar mynd- ir? — Já, en ekki neitt viðvíkj- andi stríðinu, það var alger- lega bannað. Þetta var eftirminnileg ferð, en ég er ósköp feginn að vera kominn heim! * * * Ein kvennanna í ferðinni var Hanna Antoníusdóttir. — Hvað var eftirminnileg- ast úr ferðinni, Hanna? — Hún var öll búin að vera svo viðburðarík, að erfitt er að gera það upp við sig. Þó hefur það líklega verið bæna- stundin undir múrnum, þegar flugvélarnar voru að gera árás. Við urðum, held ég, ekki neitt voðalega hrædd, séra Frank var svo styrkur og ró- legur. — Sáuð þið skemmdirnar, sem urðu, eða fólkið falla? — Nei, við vorum ekkert að skyggnast eftir því. Við heyrð- um bara dynkina og sáum eldinn og reykinn. Það var ósköp ömurlegt, og ég er feg- in að vera komin heim til ís- lands aftur. — MgbL, 14. júní. Fréttir frá Ríkisútvarpinu Framhald af bls. 1. fjarðarsýslu. Dr. Gísli Blön- dal hefur verið settur til að gegna embætti hagsýslustjóra ríkisins. Ævar ísberg við- skiptafræðingur hefur verið skipaður vara- ríkisskattstjóri. Ólafur Nílsson endurskoðandi hefur verið skipaður skatt- rannsóknarstjóri og Sveinn Þórðarson hefur verið skipað- ur skattstjóri í Reykjanesum- dæmi. * * * Árleg prestastefna var hald- in í Reykjavík í vikunni. — í yfirlitsskýrslu biskups um hag Þjóðkirkjunnar á liðnu synodusári kom fram m. a., að á árinu voru vígðar þrjár nýj- ar kirkjur. Þá gat biskup þess, að erkibiskupinn af Kantara- borg myndi að líkindum koma til íslands á næsta ári, en í byrjun desember þáði biskup vinarboð ensku þjóðkirkjunn- ar eins og kunnugt er. Ákveð- ið hefur verið að reisa kirkju á Kirkjubæjarklaustri, en þar hefur ekki verið kirkja síðan á öldinni sem leið. * * * 23 verðandi bandarískir geimfarar koma hingað til lands um næstu mánaðamót til þjálfunar á öræfum uppi. * * * Látinn er í Reykjavík ís- leifur Högnason, fyrrum al- þingismaður. Eitt sinn sagði sómabóndi og ágætis eiginmaður: „Heldur vildi ég missa snemmbæruna en hana Sig- rúnu mína,“ Thc Presenf Becomes the Pasf' Wriffen on ihe occasion of Mrs. Ingibjörg Ólafsson's Eightieih Birihday. Count not time in years though eighty can be claimed But by the fullness of each folding day; By steadfastness of purpose by achievements yet unnamed, By footprints deeply pressed upon a chosen way. Count not time in years though four score have been spanned. Measure every moínent by the fruit it gives The work of mind and heart, the labor of the hand Molded from and modelled by everything that lives. Count not time in years, they’re but a single day Each attached in sequence by an ordered will. None of them lasting long, yet none of them passing away; The present becomes the past, but is the present still. Gissur Eliasson. Winnipeg, Man., June 17th, 1967.

x

Lögberg-Heimskringla

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.