Lögberg-Heimskringla - 06.07.1967, Side 3

Lögberg-Heimskringla - 06.07.1967, Side 3
LÖGBERG-HEIMSKRINGLAt FIMMTUDAGINN 6. JÚLÍ 1967 3 l HRUND SKÚLASON: Hitt og þetta BESSA-BRÉF eftir J. Magnús Bjarnason. II. bréf. — Business and Professional Cards — ÞJÓÐRÆKNISFÉLAO ÍSLENDINOA 1 VESTURHEIMI Forsoti: SÉRA PHILJP M. PÉTURSSON 681 Banning Street, Winnipeg 10f Monitobo StyrkiS félagiS meS því aS gerast meSlimir. Arsgjald $2.00 — Timarlt félagaina fríu Sendist til fjármálaritara: MR. GUÐMANN LEVY. 185 Lindsay Street, Winnlpeg 9# Monitobo Winnipeg, Sept. 189— Kæri vinur! Það er nú réttur mánuður síðan ég ritaði þér seinast, en sá mánuður hefir verið mér heilt ár, og norður á Islandi mundi það þykja töluverð lífsreynsla, sem komið hefir fyrir mig þennan mánuð. Eins og þú manst, þótti ég engjnn garpur til vinnu, þeg- ar ég var heima, og ég verð að játa, að ég var hreinn og beinn letingi, nema þegar ég átti að vinna það verk, sem mér þótti skemmtilegt, og af þ'ví ég nú hafði meðvitund um þennan brest á sjálfum mér, þá barði ég á hann þannig, að ég ásetti mér að reyna að komast að þeirri léttustu og einföldustu atvinnu, sem ég gæti fengið, þegar ég kæmi til Ameríku, og þú skalt nú fá að vita, hvernig mér hefir gengið hingað til. Þrjár fyrstu vikurnar, sem ég var hér í borginni, gerði ég ekkert annað en skemmta mér sem bezt ég gat. Mér var oft boðin járnbrautarvinna, eða réttara sagt, mér bauðst tæki- færi til að vinna við járnbraut, en mig sárlangaði til að vera kyrr í borginni og komast þar, ef mögulegt væri, í létta og stöðuga vinnu. Það liggur við, að borgar- lífið sé nú þegar búið að töfra mig svo, að ég geti aldrei slit- ið mig héðan, nema með „tár- um og ekka“, eins og einhver vesalingurinn hafði átt að segja, þegar hann skildi við Winnipeg eftir tveggja daga dvöl. Jæja, eitt kvöld — eftir þriggja vikna frið — var mér sagt, að hörgull væri á mönn- um við eina sögunarmylluna í bænum, og léttari vinnu en þar gæti ég hvergi fengið. Vel og gott, hugsaði ég, þar skal ég vinna eins lengi og auðið verður. Morguninn eftir fór ég til myllunnar, fékk góðar við- tökur og tók til að hlaða hrá- blautum borðum. — 1 fyrstu fannst mér vinnan ekki þung, og ekki svo leiðinleg, og ég hefði vafalaust verið þar fram í snjóa — þrátt fyrir flísarnar, sem rákust í lófana á mér og undir hverja einustu nögl á mínum elskulegu fingrum — hefði verkstjórinn, sem annars var allra mildasti herra, ekki fundið að hleðslunni og látið mig rífa niður töluvert af því, sem ég hafði hlaðið. Því satt að segja hefði hlaðinn hrunið ofan á mig daginn eftir, hefði ég haldið áfram eins og ég byrjaði. Ég er allt annað en verklag- inn maður, en ég er líka ósköp stór upp á mig, sem menn segja, og þoldi illa hinar hóg- væru áminningar verkstjór- ans; ég tók því treyjuna mína og fór heim fastráðinn í þeim ásetningi, að vinna aldrei framar við sögunarmyllu. Næsta dag kom ég að stór- byggingu í smíðum. Veggirnir voru úr múrsteini og voru þegar hlaðnir til hálfs. Verka- mennirnir báru múrsteinana í „höttum“, sem kallaðir eru, og fóru léttilega með þá upp stig- ana, og gengu fimlega eftir mjóum plönkum hér og þar um bygginguna. Hér er tækifæri, hugsaði ég, því ég gat ekki öðru trúað, en að ég færi eins fær um að bera múrgrjót og sumir þeir, sem þar voru, mikið veikbyggðari og daufingjalegri að sjá en ég, og þó sýndust þeir fara ofboð léttilega með byrðar sínar. Ég bað um vinnu. Það var auð- fengið. Ég fyllti þegar „hatt“ með múrsteinum og gekk að stig- anum. En, hamingjan góða! Hvað hann var þungur „hatt- urinn“. Ég ætlaði klárlega að merjast — verða að klessu — undir þessari ofboðs byrði. Ég komst upp sex rimar, lengra var mér ómögulegt að fara, þó að mér hefði staðið til boða öll veröldin. Og mér til mikillar skelf- ingar fann ég að stiginn nötr- aði undir fótum mínum, en það hefir einmitt komið til af því, að ég skalf og nötraði sjálfur — af hræðslu. Ég segi það satt, að ég hefi ekki oft verið í verra ástandi. Ég heyrði, að einhver skip- aði mér að halda áfram og standa ekki í stiganum til ei- lífðar. Og hvað átti ég þá að gera, nema að láta „hattinn“ detta? Enda gerði ég það, en til allr- ar hamingju var enginn nærri stiganum. Ég stökk niður, þreif treyj- una mína og hljóp heim eins hart og fætur toguðu. En svo mikið skammaðist ég mín, að ég dreif mig burt úr borginni daginn eftir og fór út á járn- braut. En fregnin um þessa hrakför mína flaug eins og hvalsaga frá einu horni borg- arinnar til annars — gott ef blöðin minntust ekki eitthvað á það líka. Og eftir allt ráðabruggið var ég þá loksins kominn út á járnbraut. Vinnan var þar alls ekki erfið, en ósköpin öll leidd- ist mér þar, því bæði var það, að verkstjórinn var fram úr hófi nöldrunarsamur, þótti ég ekki verklaginn, og féll mér ekki sem bezt við samverka- menn mína, sem voru af ýms- um þjóðflokkum, með ýmsum litum og virtust nokkuð ó- kærnir í orðum, eftir því sem ég gat komizt að. Þó hefði ég nú haldið það út að vera þarna um tíma — jafnvel þó kaupið væri lágt og fæðið dýrt — hefði mér ekki boðizt vinna við þreskingu á bú- garði einum allnærri. Góðu kaupi var lofað ásamt öllu fögru. Ég var ekki seinn á mér þá, því að ég var viss um, að skipta mundi um til batnað- ar. En, herra minn trúr! Þær hörmungar, sem ég tók út þennan eina dag, sem ég vann þar, eru ekki í orð færandi. É^ var látinn klifra upp í einn stakkinn og átti að kasta hveitibindum að þreskivél- inni, en vindur var mikill og ég stóð áveðurs, svo að allt rykið og dustið barst á mig. Hitinn var líka illþolandi fyr- ir mig, nýkominn að heiman og í ullarfötum. Ég reyndi að bera mig karl- mannlega og enti út daginn, en um kveldið var ég hart nær steinblindur. Daginn eftir labbaði ég til Winnipeg í allt öðru en góðu skapi, af ástæðu, sem ég skal síðar minnast á. Ég komst von bráðar í „skurðina“ í höfuðborginni. Ekki er sú vinna bezt. Ég hélt hana út í fjóra daga, lagðist svo veikur og er nú fyrst að skríða saman aftur. Ég hefði vafalaust hætt að draga and- ann hefði ég ekki orðið fyrir dæmalausri hjúkrun. Þegar ég er orðinn fullfrísk- ur, ætla ég að reyna á ný að fara að vinna, því þeir, sem vit hafa á, segja, að ég muni venjast fljótt víð hérlencJa vinnu, og ég held nú annars, að ég hafi verið svona deigur af veikindimum, sem voru að búa um sig í mér. Ég hefi nú reynt meira en þetta — nokkuð það, sem mig hefði aldrei dreymt um — og það er það, að ég hefi lent í vandræðum með nafnið mitt síðan ég fór að umgangast ensku-talandi fólk. Þú manst víst eftir því, hve stoltur ég var heima af nafn- inu mínu, en nú er ég svo yfir- tak óánægður með það, að ég hefi stundum verið að hugsa um að gerast baptisti og láta skíra mig upp aftur — er ann- ars nokkuð á móti því? Framhald í næsta blaði. Fyrsta ástin þarfnast aðeins örlítillar léttúðar, en tals- verðrar forvitni. — Bernhard Shaw. FRÁ VINI Phonc WHiteholl 3-8072 Building Mechanic's Ltd. Polnting • Decoroting - Construction Renovoting - Reo^Estoto K. W. (BILL) JOHANWON Manaoer 371 McDermot Ave.# Winnipeg 2 A. S. BARDAL LTD. FUNERAL HOME 843 Sherbrook Street Selur llkklstur og annast um útfarir. Allur utbúnaður sá bezti. Stofnað 1894 SPruce 4-7474 Goodman And Kojima Electric ELECTRICAL CONTRACTORS 770 ELLICE AVE., WINNIPEG 10 774-5549 ARTHUR GOODMAN M. KOJIMA SP 2-5561 LE 3-6433 Evenings ond Holidaya SPruea 4-7855 ESTIMATES FREE i. M. Ingimundson Reroof# Asphalt Shingles, Roof repairs, install vents, insulation and eavestroughing. • SPruce 4-7855 632 Simcoe St.# Winnipeg 3, Mon. Thorvaldson, Eggertson, Saunders & Mauro Barristers ond Solicitors 209 BANK OF NOVA SCOTIA BLDG. Portage and Garrv St. WHiteholl 2-8291 S. A. Thorarinson Barrlster 4 Solldtor 2nd Floor, Crown Trust Bldg. 364 MAIN STREET, Office WHiteholl 2-7051 Reiidence HU 9-6488 The Business Clinic Oscar Hjörlelfion Offlce Ot 194 Cothedrol Ave. Phone 589-5309 Bookkeeping — Income Ted Benjaminson Construction Co. Ltd. 911 Corydon Avenue GR 5-0498 GENERAL CONTRACTORS Retldentlel end Commerclel E. BENJAMINSON, Meneger Off. SP 2-9509—SP 2-9500 Res. SP 4-6753 OPPOSITE MATERNITY HOSPITAL Nell’s Flower Shop 700 NOTRE DAME Weddlng Bouqueti • Cut Flowere Funerel Deilgni - Corraget Beddlng Plants S. L. Stefonson—1U 6-7229 Mrs. Albert J. Johnson ICELANDIC SPOKEN H. J. LAWRIE LUDLOW Barrister ond Sollcitor 2nd Floor, Crown Trust Bldg. 364 MAIN STREET WINNIPEG 1, MANITOBA Ph. WH 2-4135 At Glmll Hotel every Frldoy 9:30 to 12:30 Lennett Motor Service Operated by MICKEY LENNETT IMPERIAL ESSO PRODUCTS Hargrave 8 Bonnetyne WINNIPEG 2. MAN. PHONI WHItehall 1-11 *T

x

Lögberg-Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.