Lögberg-Heimskringla - 06.07.1967, Side 8
8
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 6. JÚLÍ 1967
Smíði Hallveigarstaða lokið
Úr borg og byggð
Prófessor Haraldur Bessason
er nú staddur á íslandi
ásamt fjölskyldu sinni. Kvöld-
ið áður en hann fór, 7. júní,
flutti hann gagnmerka ræðu
um Vínlandsferðir Islendinga
á ársfundi Manitoba Historical
Society. Hann hafði og áður
skrifað vandaðar ritgerðir fyr-
ir Centennial útgáfur Lög-
bergs-Heimskringlu og Ice-
landic Canadian Magazine,
jafnframt sínum kennslustörf-
um. Honum veitti því ekki af
hvíld. Fjölskyldan fór bílleiðis
til New York og flaug þaðan
heim með Loftleiðum. Þau
munu dvelja þar fram í sept-
ember.
* * *
Styrktarsjóður
Lögbergs-Heimskringlu
í minningu um Skúla G.
Bjarnason, látinn í Los
Angeles 19. júní 1967:
Frá fjölskyldu hans $200.00
Meðtekið með þakklæti.
K. W. Johannson, féhirðir
North American Publ. Co. Ltd.
* * *
A Centennial Salute:
To Lögberg-Heimskringla ....
A splendid Centennial edi-
tion of the Icelandic paper
Lögberg-Heimskringla has
been issued. It would add
greatly to any collection of
1967 material in a private col-
lection.
Tracing the history of Cana-
dian discovery and settlement,
Dr. Valdimar J. Eylands’ edi-
torial reads in part . . . “each
national group carried with it
its own language and racial
heritage which they were de-
termined to preserve and per-
petuate . . . they have fre-
quently formed solijd blocks,
or cultural islands in various
parts of the country. As Can-
ada observes its one hundredth
anniversary as a nation, this
process is still going on, thus
complicating and compound-
ing problems of integration
and national unity. Thus the
story of Canada is sometimes
the story of clash and conflict,
of rivalries and suspicions, of
explorations and conquests,
but remarkably enough, it is
also a story of unity and
achievement, without parallel
in a hundred years of any
other nation.”
Dr. Thorvaldur Johnson has
written the history of wheat
farming in Canada in 100
years. An article by Joseph
T. Thorson outlines the “Shape
of Canada to Come.”
The edition also contains the
presentation speech of Dr. P.
H. T. Thorlakson delivered in
Ottawa on the presentation of
the Icelandic plaque comme-
morating the discoveries of
mariners from Iceland and
Greenland, which will be
placed in the new Library and
Archives building, from the
Icelanders of Canada.
A Centennial salute to the
newspaper, and to the Ice-
landic people!
— The Centurion, July 1.
* * *
Frá Norður-Kaliforníu.
Þjóðhátíðardagur íslands var
haldinn hátíðlegur með sam-
komu íslendingafélagsins í
Norður-Kaliforníu 18. júní s.l.
að Cayote Point Park í San
Mateo. Var margt íslendinga
og íslandsvina þar saman
komið til borðhalds og söngs.
Blöktu fánar íslands og
Bandaríkjanna á milli trjánna
og var samkoman öll hin
ánægjulegasta, þeim er hana
sóttu.
Snemma í aprílmánuði s.l.
kom til San Francisco íslenzki
söngvarinn Guðmundur Jóns-
son. Var haldin samkoma að
St. Francis hótelinu í San
Francisco í sambandi við
komu hans og söng hann und-
ir borðum. Gerður var góður
rómur að söng Guðmundar.
Var hann gestur Islendinga-
félagsins hér meðan hann
dvaldist í borginni.
* * *
íslendingafélagið í Seaiile
I borginni Seattle í Wash-
ingtonríki er stærsta félag
fólks af íslenzkum stofni í
Bahdaríkjunum. Um þessar
mundir er 102 manna hópur
félagsfólks í heimsókn á Is-
landi, þar á meðal forseti fé-
lagsins, Sigurbjörn Johnson.
Hann talar ágætlega íslenzku
og við spjölluðum stundar-
korn við hann í gær um störf
hans og háttu félagsins.
„Þetta er ungt félag,“ sagði
hann. „Það er aðeins þriggja
ára gamalt, en félagarnir eru
nærri fjórum hundruðum. —
Fólkið er mjög duglegt og á-
hugasamt og við gerum það
sem við getum til þess að
kynna Island og hvað íslend-
ingar geta gert. Til þess að
síður verði stöðnun og doði í
félaginu er ákveðið, að sami
maðurinn megi ekki sitja leng-
ur en tvö ár í stjórn. Þess
vegna tekur margt fólk þátt
í störfunum og sífellt kemur
nýtt blóð og nýjar hugmyndir.
Við höfum haft æfingatíma í
íslenzku til þess að halda mál-
inu við og glæða áhuga barn-
anna. Ennfremur gefum við
út mánaðarblað, sem Dick
(Benedikt Örn) Benediktsson,
sonur Einars Benediktssonar,
ritstýrir."
Og Sigurbjörn dregur upp
nýjasta blaðið og sýnir okkur.
Þar ber hæst tilkynningu um
hátíðarhöld 17. júní, þar sem
meðal annars verður snæddur
íslenzkur matur, rúllupylsa,
hangikjöt, pönnukökur, lúða
og lax, og Fjallkonan, Sigrid
Bjornson, les kvæði í tilefni
dagsins eftir Jón Magnússon.
Blað þetta er gefið út í 700
eintökum og sent víða um ís-
lendingabyggðir.
Að lokum sagði Sigurbjörn
Johnson , óspurðum fréttum,
að þeim gestunum líkaði mjög
vel vistin á Islandi, gestrisni
væri mikil og viðurgerningur
MESSUBOÐ
Fyrsla lúterska kirkja
Sr. V. J. Eylands, Dr. Theol.
Heimili: 686 Banning Street.
Sími SUnset 3-0744.
Guðsþjónustur á hverjum
sunnudegi:
The summer schedule during
July and August: Worship
Service: 9.45 only. — (No 11
o’clock service during the
summer).
svo góður, að þeir yrðu að
hugsa fyrir nýjum fatnaði!
Mgbl., 17. júní.
* * *
Heinrich Karlsson og kona
hans, frú Þórey, hafa dvalið
hér ásamt börnum sínum, Har-
aldi og Ástu, í heimsókn hjá
ættingjum og vinum nokkra
undanfarna daga. Þau komu
frá Islandi fyrir skömmu.
* * *
RIVERTON-HNAUSA
LUTHERAN CHURCH
BUILDING FUND
In memory of friends who
have passed away:
Guðríður Gíslason .... $100,
♦ * *
In memory of Vicior, Gunn-
stein and Lára Eyolfson:
Vilborg Eyolfson ... $25
Mrs. Hulda Johnson,
Treasurer.
* * *
The Women's Progressive-
Conservafive Associafion
of Winnipeg South undirbjó
og gaf Manitobastjórn og íbú-
um fylkisins hið fallega og
merkilega brúðusafn, sem sagt
var frá í síðasta blaði. — Því
miður féll úr Conservafive
nafnið í þessari grein.
Dánarfrcgnir
Charles Donald Stuart and-
aðist á Almenna sjúkrahúsinu
hér í borginni þann 23. júní
1967, 41 árs að aldri. — Hann
var fæddur í La Riviere, og
bjó í Argyle byggðinni og
stundaði búskap þar í 22 ár.
Eftirlifandi eru kona hans,
Anna, og tvö ung börn, Muriel
og John. Einnig lætur hann
eftir sig móður sína, Mrs.
Doris Stuart, Selkirk, Man. og
tvær systur, Mrs. M. Mark-
linger (Edna), Belleville, Ont.
og Mrs. E. Herrick (May),
North Vancouver, B.C. Jarðar-
förin fór fram þann 27. júní
frá MacKenzie Funeral chapel,
Stonewall. Hann var lagður
Mánudaginn 19. júní var
opnuð í Hallveigarstöðum við
Garðastræti og Túngötu sýn-
ing á listaverkum nokkurra
íslenzkra kvenna. — Er hún
haldin í tilefni þess, að lokið
er smíði og innréttingu Hall-
veigarstaða. Á sýningunni eru
yfir fimmtíu listaverk eftir 27
konur, málverk, höggmyndir,
vefnaður og leirmunir.
Viðstaddir opnun sýningar-
innar voru margir gestir, þar
á meðal Bjarni Benediktsson
forsætisráðherra, Gylfi Þ.
Gíslason menntamálaráðherra,
Jóhann Hafstein dómsmála-
ráðherra og Eggert G. Þor-
steinsson félagsmálaráðherra.
Ennfremur ýmsar forustukon-
ur íslenzkra kvennasamtaka
og fleiri.
Frú Sigríður J. Magnússon,
formaður framkvæmdanefnd-
ar Hallveigarstaða, flutti þar
ávarp og rakti í stuttu máli
byggingarsögu hússins frá
upphafi. Sagði hún m. a., að
upphaflega hefði verið ætlun-
in að þar yrði gistiheimili fyr-
ir stúlkur utan af landi, er
dveldust í Reykjavík við
skólanám eða störf. Síðar hefði
þetta breytzt af ýmsum ástæð-
um og væri nú ætlunin í fram-
tíðinni, að húsið yrði vett-
vangur kvennasamtakanna í
landinu. Þegar hafa fengið þar
aðsetur Kvenfélagasamband
Islands, Kvenréttindafélagið,
Húsmæðrafélag Reykjavíkur
og Kvenskátafélagið. Að öðru
til hinztu hvíldar í St. Os-
wald grafreitnum í Wood-
lands. Mr. T. Thorgilsson flutti
kveðjuorð að miklu fjölmenni
viðstöddu.
* * *
Bjarngerður Eyjólfsdóttir,
ekkja Jens Johnson í Mikley,
lézt 3. júlí á Winnipeg Gen-
eral Hospital 84 ára að aldri.
Hennar verður nánar minnzt
síðar.
leyti er húsið fyrst um sinn
leigt borgardómaraembættinu
í Reykjavík, fyrir utan einn
sal, ásamt eldhúsi, sem fyrir-
hugað er að leigja til fundar-
halda og sýninga.
Þar verður flygill, sem hús-
inu barst að gjöf frá Veslur-
íslendingum. Hafði frú Marja
Björnson, kona Sveins Björn-
son, læknis í Vesturheimi, for-
göngu um fjársöfnun til kaupa
á flyglinum. Við opnun sýn-
ingarinnar vígði Sigrún Gunn-
arsdóltir flygilinn með því að
leika á hann einleik, en síðan
léku þær Eygló Haraldsdóttir
og Kolbrún Sæmundsdóttir
f jórhent.
Er gestir höfðu skoðað sýn-
inguna, þágu þeir kaffiveit-
ingar forráðakvenna Hall-
veigarstaða.
Sem fyrr segir, eru á sýn-
ingunni listaverk eftir 27 kon-
ur. Mörg þeirra eru í einka-
eign og voru lánuð til sýning-
arinnar, en allmörg eru til
sölu. Einnig verða seldar á
sýningunni silfurskeiðar, sem
gerðar hafa verið eftir teikn-
ingu Laufeyjar Vilhjálmsdótt-
ur. Hún var lengi formaður
Hallveigarstaðanefndar. Einn-
ig verður þar seld Minninga-
bók Menningar- og minninga-
sjóðs kvenna og listaverkabók
Gunnfríðar Jónsdóttur. Sýn-
ingin verður opin til 30. júní
næstk. Inngangur er frá Tún-
götu.
Do you know your evacua-
tion routes and the siren
warning signals? You will
find them on page two of your
telephone directory. Other im-
portant information appears
on page three.
Melro Emergency Measures,
1767 Portage Avenue,
Winnipeg 12.
888-2351.
UMBOÐSMAÐUR LÖGBERGS-HEIMSKRINGLU
á
ÍSLANDI
SINDRI SIGURJÓNSSON póslafgreiðslum.
P.O. Box 757, Reykjavík
Verð Lögbergs-Heimskringlu er kr. 240 á ári.
Want to know more about
I C E L A N D ?
You are invited to join our ever increasing number of
subscribers, who have already found that ICELAND
REVIEW gives them more and more information on
lceland and the lcelanders in text and striking pictures.
Makc it your magazinc. Start your subscription now.
Beztu kveðjur fró fslandi.
álceland
ReVÍeW P-O. Box 123S, Reykjovik, lceland.
Enclose Con. .$ 5.70 or US $ 5.25 for one yeor of YOUR mogozinc.
Mgbl., 20. júní.