Lögberg-Heimskringla - 02.05.1968, Blaðsíða 2
2
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 2. MAl 1968
Árin mín
Nú er ég áttræður orðinn.
Eilífðin virðist ei fjarri.
Geislandi Guðs náðar forðinn.
Gjörist æ fegurri, skærri.
Útsýni héðan er yndælt,
andrúmsloft hressandi, heilnæmt.
Langt fyrir lífsþrek mér útmælt
lofar Guð hjarta mitt viðkvæmt.
Brautin, sem bak við mig liggur,
brött var hún stundum og erfið;
oft var ég á henni hryggur,
eyðilegt virtist umhverfið.
Samt blítt er og bjart yfir henni,
bjart sem á sólríkum degi;
um hana' er augum ég renni
yndislegt blómskrúð ég eygji.
Blómskrúð af blikandi góðvild,
blessuðum kærleika sönnum,
angandi samúðin sígild, —
sýnt mér af samferðamönnum.
Ofar og yfir því öllu
ylríka Guðs kærleiks sólin
björt skín, og veg laut og völlu
vefur í geislanna kjólinn.
Leiðin sem héðan burt liggur
leynist í framtíðar-móðu;
en lausnarinn leiðir mig tryggur
lífsins að takmarki góðu.
Með honum björt verður brautin,
blessuð þó sólin ei skíni;
með honum mýkjist hver þrautin
mótgangs þó stormurinn hvíni.
Náðin hans nægir oss öllum,
nægir jafnt smærri sem hærri.
Ef vér í trú á hann köllum
er hann til hjálpar oss nærri.
Ljúft er hans leiðsögn að fylgja,
líf vort fær með því æðst gildi;
ef ógnandi berst að oss bylgja
blessuð oss hjálpar hans mildi.
Árin mín ótvírætt kenna
að það hreinn sannleikur reynist;
í eilífðar skaut er þau renna
eigi sá lærdómur leynist.
Lof sé þér leiðloginn blíði,
lækning við mannkynsins meini,
huggari' í harmi og stríði,
heimsins trúr frelsarinn eini.
Ég með þér, Jesú, vil ganga
jafnt bæði‘ í gleði og raunum.
Minn ástvinur ævina langa,
ég allt mitt líf gef þér að launum.
Kolbeinn Sæmundsson.
1. apríl 1968.
Want to Know more about
I C E L A N D ?
You are invited to join our ever increasing number of
subscribers, who have olready found that ICELAND
REVIEW gives them more and more information on
lceland and the lcelanders in text and striking pictures.
Make it your mogozine. Stort your subscription now.
Beztu kveðjur fró íslandi.
Slceland
ReVÍeW P-O. Box 1238, Reykjavik, iceland.
Enclose Can. $ S.70 or US $ S.2S for one year of YOUR magazine.
BJÖRN JÓNSSON LÆKNIR:
Ferðaþáttur — á
INNFÆÐINGAR
Þetta er endurritun og við-
bót við þáttinn í síðasta blaði,
þar sem lýst er vexti og væn-
leika Innfæðinga og konunni
stóreygðu með ljósjarpt hár
er kom hljóðlega inn í tjald
Guðríðar og hvarf svo skyndi-
lega — mitt í feiknahagstæð-
um skinna- skyr- og mysu-
skiftum, með háværum sötr-
um, gúlpum og ropum inn-
fæðingja, skessuhlátrum og
læraskellum, í safala roksölu
og í miðju manndrápi í
þokkabót —, vegna þess að
atburðarrásin var bara svona,
en ekki öðruvísi. Og Guðríð-
ur hefur séð til þess að þessu
var ekki sleppt úr eða fært
úr stað meðan munnlega sag-
an var að festast í formi, við
margar endursagnir heima í
Glaumbæ í Skagafirði.
Á þennan hátt fellur allt í
ljúfa löð við það, sem nú er
vitað og fram kemur í sög-
unum, þó að með tilfærslu
atburða sé, því að án þess
verður enginn botn í neinu:
Kjalarnes — Cape Porcupine,
Furðustrandir — The Porcu-
pine Strand, það svæði er
botninn á Groswater Bay eða
Hamilton Inlet. Straumey-
Belle Isle og Straumfjörður-
Belle Isle Strait. Búðirnar í
L’Anse aux Meadows þá
Leifsbúðir og séu nöfnin
Straumfjörður og Leifsbúðir
notuð jöfnum höndum, að
minnsta kosti sé svo í Græn-
lendingasögu. En í Eiríks
sögu rauða finnur Karlsefni
ekki Leifsbúðir né heldur
Vínland en er þó sagður
koma af Vínlandi í sögulok.
Er hér um staðabrenglun að
ræða af hendi söguritara, og
því' mögulegt að Vínland
Leifs og búðir hans hafi verið
annarsstaðar og allmiklu
sunnar, ef ekki á Nýfundna-
landi, þá líklega á Rhode Is-
land. Einnig má því við bæta
hér að ekki er ólíklegt að
Leifur hafi farið aðra ferð til
Vínlands, og telur Jón Dua-
son svo vera, og Grænlend-
ingar hafa án efa farið marg-
ar ferðir vestur, bæði fyrir og
eftir tímabil Vínlandssagn-
anna, og vafalaust sett á stofn
byggðir. Sanna það fornleifa-
fundir í Uhgava Bay og turn-
kirkjan í Newport, R. I., og
verður seinna vikið að því.
Hóp — St. Paull’s Bay á suð-
vesturströnd Langfjallaskag-
ans. Þar sem þeir snéru aftur
og þóttust sjá Einfætingaland
— botninn á White Bay,
Hampden eða Sops Arm,
„jafnlangt úr Straumfirði
beggja vegna“. Langfjalla-
skaginn: — öll eins og fjöllin
í Hópi —. Má þó vel hafa
endaskifti á þessum stöðum
— St. Paull’s Bay og Sops
Arm — og kæmi eins vel eða
betur heim við söguna, Eiríks
saga IX kap, er Karlsefni vill
fara frá Straumfirði að leita
Vínlandsslóðum
Vínlands og kemur að Hópi:
„en Karlsefni vill fara suður
fyrir landið og (b. v. 557)
fyrir austan, og þykir land
því meira sem suður er meir,
og þykir honum það ráðlegra
að kanna hvorttveggja.“
Hér má því við bæta, sem
sem ég gekk úr skugga inn í
sumar, að fjöllin eru hæst
vestan á skaganum, sérkenni-
leg og í stöllum, og sjást vel
að austanverðu og sýnast „öll
ein“, sem fyrir vestan.
Þessi afstaða og lýsing á
hvergi annarsstaðar við, á
allri austurströnd N o r ð u r
Ameríku. Og með því að
staðsetning Straumfjarðar er
nú örugg, er ekki um annan
stað að ræða. Þessi ályktun
er ennfremur styrkt af
breiddarathugun þeirri, sem
Leifi er eignuð, og mun það
rætt síðar.
MARKLANDS-FÖR
Risið var úr rekkju um
dagmál á mánudagsmorgun.
Og að meðteknum morgun-
verði haldið til „lauga,“ — í
þvottahús, — með óhreint
tau. Skildi ég þar við fólk
mitt og fór í Confederation
Byggingu að heilsa upp á
David Webber, sem átti að
sjá mér farborða í fjarveru
Dr. Alains Freckers, fylkis-
málaráðherra, sem fyrr um
getur. Hitti ég Davíð að máli
og spjölluðum við saman um
hríð. Kvað hann að nú væri
að rætast úr vandræðum,
skógareldar hættir að
brenna, og gæti ég líklega
fengið far til Goose Bay
seinna um daginn, og vera á
varðbergi og viðbúinn. Þaðan
fór ég niður á kortadeild.
Var mér þar vel tekið og boð-
ið að taka hver þau kort sem
ég kysi. Valdi ég að vild mörg
ágæt kort af áhugasvæðum
mínum, á stórum mælikvarða,
og skar þau niður til hæfis.
Sagði deildastjóri mér af
nokkrum mönnum sem hefðu
áhuga fyrir víkinga-vitjunum
og ráðlagði mér að ná tali af
þeim.
Að þessu loknu sótti ég
hyski mitt á þvottahúsið og
fórum við heim til dragbúðar
okkar, á bak við benzínstöð-
ina. Beið þar orðsending frá
Webber að vera kominn vest-
ur að smávatni einu um fimm
mílur vesturfrá Topsail vegi.
kl. 3, eða eftir hálftíma. Var
nú lítill tími til undirbúnings
og enginn til ætis, eða að ná
í filmu niður í bæ.
Við ókum vestur að vatn-
inu. Þar voru flugvélar tvær
á flotum, Otur fagur og fleygi-
legur lítill Bjór. Beið sá fyrri
eftir stórmenni ýmsu sem var
á leið norður til Grand Falls
til að opna nýjan veg til
suðurstrandarinnar. Var Jói
Smáviður þeirra á meðal,
kampakátur og skræfur að
vanda. Væri þó réttara og
al-ýkjulaust að segja að hann
Aðeins $1 10-20
með Loftleiðum
Spyrjist fyrir. Þér munið komasl að því, að lægstu far-
gjöldin eru enn hjá Lofileiðum — — flugfélaginu, sem
hefir haft til boða lægslu flugfargjöldin í 24 ár. Og þér
finnið hið íslenzka andrúmsloft um leið og þér stígið um
borð. Fargjaldið fram og aftur milli New York og fslands
er venjulega $220.40, og aðeins $285, þegar ferðamanna-
straumurinn er mestur. Ef þér ferðist með 15 mannahóp,
er fargjaldið aðeins $200. og í því innifalið um $70 fyrir-
greiðsla. Að ferðasf til lslands er að ferðasl með Loftleið-
um. Og ef þér ætlið til Evrópu hafa Loftleiðir einnig til
boða lægri fargjöld en öll önnur flugfélög.
* aðra leiðina á venjulegum árstíma.
LÆGSTU FLUGFARGJÖLDIN TIL:
ÍSLANDS, SVÍÞJÓÐAR, NOREGS, DANMERKUR.
ENGLANDS, SKOTLANDS, HOLLANDS OG LUX-
ENBOURG.
ICELANDIC AÍRumT
■9 mimsúim
610 FIFTH AVENUE (ROCKEFELLER CENTRE)
NEW YORK, N. Y. 10020 PL 7-8585
New York Chicago San Franclsco
Féið upplýsinga bæklinga og ráðstafið ferðinni á ferða-
skrifstofu yðar.