Lögberg-Heimskringla - 25.02.1971, Page 3

Lögberg-Heimskringla - 25.02.1971, Page 3
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 25. FEBRÚAR 1971 3 Bréf frá séra Robert Jack Framhald af bls. Með beztu kveðjum írá mér og Vigdísi og öllum hér í ó- færð vegna snjóa á Vatnsnesi. hans lézt í Ottawa árið 1940 og hefi ég haft samband við ekkju lávarðsins, sem er nú 88 ára og býr í Oxfordshire á Englandi. í London hitti ég nokkra íslendinga af hendingu. Ég var staddur á hóteli þegar ég heyrði íslenzku og því gaf ég mig fram. Þetta voru góðir landar, sem fögnuðu mér eins og ég væri „lost brother“. Þar sem þeir voru ekki sterkir í ensku og þurftu þannig á hjálp að halda. Þeir voru allir smiðir og höfðu komið frá húsgagnasýningu í Koln á Þýzkalandi og ætluðu að vera í London í tvo daga áður en þeir færu heim. Ég gat hjálp- að þeim til að verzla og út- rétta á ýmsan hátt og í þakk- lætisskyni buðu þeir mér að borða með sér á Cafe Royal í Regent Street og fengum við þá herramannsmat. Ég fór til Skotlands á járn- brautarlest til Edinborgar og var þar í einn dag hjá Reha- bilitation Centre s k o t z k u kirkjunnar. Þar voru margir aumingjar nýkomnir úr fang- elsi og fleiri, sem finnst það erfitt að lifa. Ég vann hjá þessari stofnun í mánuð, fyrir þremur árum, og þekkti ég marga góða, sem vonda, er voru þar inni. — Við tölum um það á íslandi, að það sé mismunandi sauðir í mörgu fé. Það er sönn lýsing á þessu fólki, sem ég kom auga á í hjálparstofnun kirkjunnar í höfuðborg Skotlands. Þar voru ekta rónar (bums) og „Con“ menn; menn og konur, sem höfðu farið illa út úr líf- inu vegna vonds uppeldis eða annars — fólk sem vildi rétta sig við en gat ekki vegna character brests. Mér hefir borist frá S. Finnson í Arborg ákaflega góð bók og skemmtileg, Beyond the Marsh, saga um Víðir. Ég þakka þessum ágæta kunningja bókina. Ég met hana mikils og einnig Ladies Aid í Víðir, sem hefir lagt mikið á sig, að koma henni á prent. Finnson fjölskyldan, ásamt öðrum, h e f i r gert garðinn frægan.í Víðir í tangan 'aldur. í bókinni er ein mynd af Vigdísi og mér upp í heystakk hjá Ragnari Guðmundssyni. Ég man vel eftir þessu atviki. Ég þóttist vera góður í hey- skap en þegar ég sÖkk ofan í heyið í hita sem var líklega um 80 stig, gafst ég upp. Ég var alveg óvanur slíkum hita- ofni. Ragnar skildi það vel, og er ég viss um að hann fyrirgaf mér vinnubrögðin, sem voru engin. Þökk sé öll- um Víðirbúum fyrir ágæta „History“ um byggðina. Vel gert. í London hjá lækninum rétti hann mér eitt kveld, vísu, sem hann hafði fengið hjá Hermanni Pálssyni Lektor í íslenzku við Edinborgar há- skólann, og sem hann sagði að væri eftir Stefán Einars- son fyrrv. ritstjóra Heims- kringlu. Hún er um mig og er þannig: Hann er tveggja manna bær, byggður á einu loti. Fram og aftur í ættir tvær Icelander and Skoti. Ég bara vona að enginn misskilji þetta og haldi að ég sé íslenzkur andskoti. Ég vil heldur vera Icelander and a Scot. Vegna póstmannaverkfalls á Bretlandi var ég beðinn fyrir mörg bréf í Glasgow, sem áttu að fara til U.S.A. og sem ég lét í póstinn í Reykjavík. Eitt var frá bæjarstjóranum í Stirling, höfuðborg til forna á Skotlandi, með beztu ósk- um til Kenneth Buchanan heimsmeistara í hnefaleik (léttvigt). Bréfið sagði: “Win for Scotland and come home to the skirl of the pipes.“ — Kenneth vann í Los Angeles. Ég vona að þjóðræknisþing- ið verði öllrup til ánægju. Ég bið að heilsa öllum fulltrúum [á þingi. HARÐFISKUR (DRIED HADDOCK) IMPORTED FROM ICELAND Available At NEPTUNE FISHERIES ......... 472 DUFFERIN AVE. CLIFFS TOMBOY .............. 906 SARGENT AVE. SELKIRKS TOMBOY ............ SELKIRK, MAN. THORARINSON’S STORE....... RIVERTON, MAN. CLOVER FARM STORE................. LUNDAR, MAN. CLOVER FARM STORE .......... GIMLI, MAN. CONSUMERS CO-OP STORE ....... ARBORG. MAN NEIL LAMBERTSON ............ 317-14th STREET, BRANDON, MAN. G. C. THORVALDSON............. 6012-101 st A AVE., EDMONTON, ALTA JOHNSON’S STORE ......... EDDYSTONE, MAN. H. M. JOHNSON PHONE 738-7725 . VANCOUVER, B.C. S. GRIMOLFSON ............ 453-llth AVE., EAST, PRINCE RUPERT, B.C. J. O. OLSEN & SONS............ INWOOD, MAN. MARVIN BRIESE . GLASSTON, NORTH DAKOTA, U.S.A. WYNYAIID CO-OP ............. WYNYARD, SASK. EINARSON - ENTERPRISES WINNIPEG, CANADA Ykkar einlægur, Robert Jack. KARBÓLSÝRULYKTIN ÞAÐ var í marz 1888, að eg ætlaði að bregða mér ofan á Eyrarbakka. Eg bjó þá á Búr- felli í Grímsnesi. Eg var úti að gegna skepnum um morg- uninn, en undir eins og eg kom inn í bæinn, lagði fyrir vit mér megna karbólsýru- stækja, og fann eg hana hvar sem eg gékk. Eg hafði orð á þessu við heimafólk mitt, en enginn fann lyktina nema eg, og enginn vissi til, að farið hefði verið með karbólsýru, enda mun hún alls ekki hafa verið til á heimilinu. Síðan bjóst eg til ferðar og hélt af stað. Undir eins og eg var kominn undir bert loft, hætti eg að finna lyktina. . Þegar eg kom heim aftur, var mér sagt, að um það bil, sem eg var kominn út fyrir túnið, hefði borið gest að garði, en úr annarri átt, svo að við mættumst ekki. Það var Salvör Ögmimdsdóttir frá Sogni í Ölfusi, ekkja Gott- skálks Gissurssonar, sem þar hafði búið. Þóttist eg þá s k i 1 j a , hveinig á lyktinni hefði staðið. Haustið 1885 hafði Gott- skálk Gissursson farið kaup- staðarferð til Reykjavíkur. í för með honum var unglings- piltur af næsta bæ. Þeir fé- lagar fóru að erindum sínum um bæinn hvor í sínu lagi. Þegar þeir hittust aftur, bað Gottskálk samferðamann sinn að gefa sér að súpa á brenni- víni. Hann vísaði honum á brennivínsflösku í farangri sínum. En svo slysalega vildi til, að Gottskálk tók karból- sýruflösku, sem pilturinn hafði líka keypt um daginn, í misgripum fyrir brennivíns- flöskuna og drakk af henni vænan teyg, áður en hann gáði sín. Dó hann af eitrinu eftir litla stund. Þess skal getið, að Salvör kom ekki að Búrfelli meðan eg bjó þar, nema þetta eina sinn. (Ritað eftir frásögn Jóns Sigurðssonar, b r ó ð u r Ög- mundar skólastjóra. Jón bjó á Búrfelli 1886—1927, en er nú í Hafnarfirði. — S. N..) Gráskinna hin meiri. ICELAND - CALIF0RNIA C0. Bryon (Brjann) Whipple Import and Sale of lcelandic Woolens, Ceramic, Etc. 1090 Sansome, San Froncisco CA94111 Wanted for cash: Older lcelandic Stamps ond Envelopes • Business and Professional Cards • ÞJÓÐRÆKNISFÉLAG ÍSLENDINGA í VESTURHEIMI Forseli: SKÚLI JÓHANNSSON 587 Minto Street, VVinnipeg 10. Manitoba Slyrkið íélagið með því að gerast meðlimir. Ársgjald — Einslaklingar S3.00 — Hjón $5.00 Sendisi til íjármálaritara MRS. KRISTIN R. JOHNSON 1059 Dominion St., Winnipeg 3, Manitoba. f Phone: 783-3971 Building Mechanics Ltd. Palntio^ - DecoratlnR • Construction Reno>ating - Real Estatc K. W. (BILL) JOHANNSON Manager 938 Elgin Avenue Winnipeg 3 Lennett Motor Service, Operated by MICKEY LENNETT | IMPERIAL ESSO PRODUCTS Harurave X Rannatyne WINNIPEG 2, MAN. Phone 943-8157 Benjaminson Construction Co. Ltd. 1425 Erin Street, Winnipeg 3. Ph: 786-7416 GF.NERAL CONTRACTORS E. BENJAMINSON, Manaser Asgeirson Paints & Wallpapers Ltd. BUILDING MATERIALS 696 Sargenl Avenue Winnipeg 3, Maniioba • All types of Plywood • Pre-finish doors and windows • Aluminum combination doors • Sashless Units • Formica • Arborite • Tile Boards • Hard Boards etc. • Table Legs Phones: 783-5967 783-4322 FREE DELIVERY RICHARDSON & COMPANY Barristers and Solicitors 274 Garry Street, Winnipeg 1, Manitoba Telephone 942-7467 G. RICHARDSON, Q.C. I. F. R. TAYLOR, LL.B. C. R. HIIBAND, LL.B. W'. S. WRIGHT, B.A., LI..B. W. NORRIE, B.A., LL.B. W. J. KEHLER, B.A.., LL.B. G. M. ERICKSON, B.A., LL.B. E. C. BEACDIN, B.A., LI..B. “GARTH M. ERICKSON of the firm of Richardson & Company attends at the Gimli Credit Union Office, Gimli, 4:00 p.m. to 6:00 p.m. on the first and third Wednesday of each month.”

x

Lögberg-Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.