Lögberg-Heimskringla - 25.02.1971, Page 6

Lögberg-Heimskringla - 25.02.1971, Page 6
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 25. FEBRÚAR 1971 fc GUÐRÚN FRÁ LUNDI: SVíÐUR SÁRT BRENNDUM Skáldsaga Þtgar Björn var kominn á móts við hana, reið hann tafarlaust út í ána, en nú var farið að draga talsvert úr vexti hennar frá því sem hafði verið kvöldið góða, þegar hann sundreið hana niður á eyrunum til að ná í eldspýturnar. Nú var áin ekki hestinum nema vel í kvið. Kalla stanzaði og beið hans. „Sæl fröken!“ kallaði hann, áður en hestur- inn var kominn upp úr ánni. Svo vatt hann sér af baki strax, þegar hann hafði fast land undir fótum, og gekk til hennar brosandi með fram- rétta höndina. „Hvað heitir heimasætan eiginlega? Ég þykist sjá á hárinu, að þú sért kona en ekki karl, þó að þú gangir í karlmannsbuxum“. „Ég heiti Kalla Jóelsdóttír“, sagði hún og brosti framan í hann. „Kalla, það er dálítið skrítið nafn. En hvað heitir hún systir þín?“ „Jóhanna“. „Er ekki sú þriðja til. Það hefði verið svo ákjós- anlegt. Þar sem við bræðurnir erum þrír hinum megin árinnar. Ertu annars alltaf röltandi við rollurnar?“ „Já, það veitir ekki af að gæta þeirra vel, meðan hætturnar eru svona miklar. En nú fer bráðum að verða óhætt að sleppa þeim upp í brúnirnar. En því lætur karlinn þig ekki hafa hest, heldur en að láta þig labba þetta fram og aftur allan daginn?“ „Hest til þess að smala hérna innan um mýr- arnar. Það yrði víst skrítið“, sagði hún hlæjandi. „Til hvers eigið þið eiginlega hesta hér í daln- um? Ég sé aldrei mann á hesti síðan ég flutti hingað“. „Við notum þá, þegar þarf að nota hesta, flytj- um til dæmis á þeim heyband og það, sem sótt er í kaupstaðinn, förum á þeim í göngur og réttir, og svo á milli bæja, þegar okkur þykir bæjar- leiðin of löng til þess að fara gangandi. En við leikum okkur ekki á hestbaki eins og þið þama fyrir handan ána virðist gera“, sagði hún. „Til þess á maður hestana“, sagði hann. „Þið hljótið að þurfa að gefa þeim á hverri nóttu, eins og kúnum, fyrst þið notið þá svona mikið“, sagði hún. „Já, auðvitað gerum við það“, sagði hann dræmt. „Ekki sízt ef maður hugsar sér að gera þá að verðlaunagripum seinna meir“. Köllu langaði til þess að skella upp úr. „Hefurðu hugsað þér að fá verðlaun út á þann skjótta í vor?“ spurði hún. „Það held ég ekki. En Gísli bróðir minn hugs- ar sér að fara með þann rauða sinn á kappreiðar. Þær verða núna um næstu helgi. Viltu kannske verða samferða okkur þangað og horfa á?“ „Nei, það hef ég ekki hugsað mér“, svaraði hún. „Þylcir þér ekkert gaman að hestum?“ ,,Jú, það þykir mér. En ég er engin reiðkona". „Þið eruð víst yfirleitt heldur lítið gefin fyrir hesta hér í dalnum. Ég þykist sjá það út úr körl- unum, að þeim finnst við víst vera landeyður og reiðgikkir, og ekkert annað“, sagði hann brosleit- ur. „Finnst þér annars ekki leiðinlegt hérna?“ bætti hann við. „Nei, hvergi er eins skemmtilegt og héma“, sagði Kalla brosandi. „Hefurðu aldrei farið neitt að heirnan?" „Nei, aldrei til langdvalar“. „Aldrei í skóla?“ „Nei, ekki er nú svo mikið um. Eruð þið kannske skólagengið fólk þama á Dalsá?“ „Það er vel líklegt að foreldrar okkar væru ekki ánægð með það, ef við færum ekki í skóla“. „Úr hvaða skóla eruð þið lærðir?“ spurði hún. „Ég er frá Hvanneyri“, svaraði hann. „Held- urðu annars, að þú komir ekki með mér í útreið- artúr einhvern tíma í sumar, ef ég legði þér til reiðskjótann? Ég þykist vita, að þið eigið ekki nema ramstaðar bykkjur þarna heima hjá þér, eða er svo ekki?“ Nei, hestarnir okkar eru ekki staðir. Ég get vel setið á bakinu á þeim, þegar ég fer eitthvað lengra en að líta eftir rollunum“. „Ég verð að kenna þér að hlífa fótunum. Þeir geta alltaf bilað, og þá er ekki gott að fá sér nýja. En hesta er alltaf hægt að fá. Þó að þeir upp- gefist eða falli frá, er alltaf hægt að fá sér nýjan. Hefurðu annars nokkurn tíma komið ofan í sveit- ina. Sitjið þið ekki alltaf heima, sýknt og heilagt, og lesið guðsorðabækur eins og fólkið gerði fyrir öld síðan? Ég verð að taka það að mér, að sýna þér umheiminn. Hvenær eigum við að byrja?“ Hún fór að hlæja. „Heldurðu að ég hafi aldrei farið ofan í sveit- ina? Ekki einu sinni til kirkju eða í kaupstaðinn. Þér sýnist ég víst vera smákrakki“, sagði hún. „Hefurðu komið til Reykjavíkur?“ „Já, og það oftar en einu sinni“. „Þá er ástandið ekki eins bágt og við höldum. Við höfum ákaflega gaman af ykkur hérna í ná- grenninu", sagði hann og hló. „Það er þá gott og líkt“, sagði hún. „Okkur dalbúunum þykir líka skrítið að sjá ykkur alltaf á hestbaki“.. „Það er vani heimskingjanna að hlæja að því, sem þeir ekki skilja“, sagði hann. „Ég skil nú hreint og beint ekki þennan tals- máta í þér“, sagði hún snúðugt, nema ef þú skyld- ir eiga við, að við séum svo mikið skilningsminni en þið, af því að við erum ekki skólagengin?“ Þá breytti hann algjörlega um tón og spurði hlýlega: „Þú hlýtur þó að ríða í réttirnar á haustin?“ „Ég fer í göngurnar fyrst, svo gösla ég innan um réttina. Svona mikill draslari er ég nú“, sagði hún. „Það líkar mér. Við skulum vera hlið við hlið í göngunum í haust. Mér lízt þó nokkuð vel á þig, og er búinn að segja karh og kerlingu, að ég ætli að biðja þín fyrsta vetrardag. Mundu það nú“. Kalla blóðroðnaði og sneri undan. Hún heyrði að hann steig á bak og þeysti hestinum út í ána. Þegar hún leit um öxl sér, var hann kominn heim undir Dalsá. Hún gat ekki gert að því, að hún hafði dun- andi hjartslátt. Hún skildi ekki þær tilfinningar, sem hún bar til þessa manns. Hún var hrifin af því, hvað hann sat vel á hesti, og hvað hann var vasklegur í öllum hreyfingum, en samt fann hún að hann var kveljandi leiðinlegur og montinn. Bara að hann hefði aldrei komið í nágrennið. Það hafði allt breytzt svo mikið þessa daga, síðan hún sá hann fyrst. Magnús á Brekku sat inni á rúminu hennar, þegar hún kom heim. Hún heilsaði honum kunn- uglega. „Það held ég hann hafi verið búinn að raupa eitthvað við þig þarna frammi á eyrinni“, sagði Magnús. „Hreint er ég orðinn uppgefinn að hlusta á þá þessa Dalsárfeðga. Það eru leiðinlegir menn. Þeir ætla aldeilis að gera mig huglausann. Og það sem verst er af öllu, að ég hef heyrt það eftir þeim, að það séu eintómar rekjur, sem ég láti þá hafa sem hey. Umtalsefnið er vanalega það, hvað allt sé hér á eftir tímanum. Og það getur svo sem verið, að það sé eitthvað hæft í því. En þeim finnst víst, að þeir hafi lítillækkað sjálfa sig ósköp mik- ið með því að flytja hingað í dalinn til okkar. En sannleikurinn er samt sá, að þeim var byggt út af Hömrum vegna þess, að þeir sátu jörðina svo skammarlega og stóðu þar að auki ekki í skil- um með landskuldina. Þetta pakk þarf svo sem ekki að hreykja sér hátt þess vegna“. „Bara að þeir hefðu aldrei álpast til þess að flytja hingað í dalinn okkar“, sagði Jóel gremju- lega. „Ég get ekki að því gert, að mér fellur það eitthvað svo illa, þó að ég sjái þá ekki nema til- sýndar. Hingað yfir ána hafa þeir sjaldan komið, sem betur fer“. Katrín húsfreyja andmælti mann sínum og sagði: „Það er nú varasamt að fella svona sleggju- dóma yfir bráðókunnugu fólki“. Magnús rétti tóbakshornið til Jóels og leit glettnislega til Köllu og sagði: „Þér er ráðlegast að vera heima og eiga eitt’- hvað almennilegt með kaffinu á vetrardaginn fyrsta. Þá færðu heimsókn“. Kalla hló vandræðalega og flýtti sér fram. „Þetta er nú rheiri bullan, þessi strákur", hugs- aði hún. „Skyldi hann vera búinn að segja það um alla sveitina, að hann ætli að koma á biðils- buxunum til hennar á fyrsta vetrardag. Náttúr- lega var það eins og hvert annað kjaftæði, sem enginn hlustaði á“. 3. kafli. ÚTREIÐARTÚR Einn sunnudagsmorgun rétt fyrir sláttarbyrj- un reið þessi illa séði nágranni heim í hlaðið í Mýrakoti. Yngri heimasætan var úti. „Sæl vertu, Jóhanna litla“, sagði hann bros- leitur. „Mig langar til þess að tala við systur þíná“. Kalla kom út, kafrjóð í andliti, og velti því fyrir sér hvað hann væri að fara. Hann heilsaði henni hlæjandi. „Þá er ég kominn með lipran reiðhest handa þér, og vona ég að þú þiggir hann. Það er ekki seinna vænna, býst ég við. Slátturinn stendur fyr- ir dyrum og þá vilja karlarnir helzt láta þræla jafnt á sunnudögum sem aðra daga. Ég ætla að skreppa sem snöggvast ofan í sveit, svona að gamni mínu. Þú verður ekki lengi að týgja þig?“ „Við erum einmitt að búa okkur af stað til þess að ríða ofan í sveit. Því skyldum við ekki geta orðið samferða", sagði Kalla. „Ég vildi helzt hafa þig eina“, sagði hann, og henni sýndist hann verða fýlulegur á svipinn. „Það skemmtir ekki að hafa tvær dömur“, sagði Kalla. „Hanna er búin að hlakka svo lengi til þess að fara þessa ferð. Það má ekki láta hana verða fyrir vonbrigðum“. Jóel kom út í dyrnar, heilsaði gestinum og bauð honum að setja sig inn. Það væri víst heitt á könnunni hjá kvenfólkinu. „Það er nú bara svoleiðis, að ég kom til þess að bjóða henni dóttur þinni að ríða út með mér. Náttúrlega kom ég með hest handa henni“, sagði Björn. „Þær eru nú að búa sig af stað til þess að ríða ofan í sveit. Kannski eigið þig samleið?“ sagði Jóel og fylgdi Birni til baðstofu og bauð honum sæti. Björn virti fyrir sér baðstofuna, saug upp í nefið og sagði: „Ójá, ekki eru nú merkileg húsakynnin héma. Þið eruð nægjusamir bændurnar hérna í dalnum, að enginn ykkar skuli vera búinn að byggja upp, heldur una í þessum torfbæjum, þegar allir eru að byggja steinhús yfir sig í nærsveitunum“. „Bæimir héma í dalnum eru alls staðar ágætir, nema hérna. Hann er líka elztur þeirra“, sagði Katrín um leið og hún setti rjúkandi kaffiboll- ann á bakka og bar fyrir gestinn. „Þið feðgarnir verðið nú líklega ekki lengi að fjarlægja bæjarhrófið á Dalsá og byggja þar stein- hús“, sagði Jóel kíminn. „Já, það myndum við gera mjög fljótlega, ef við ættum jörðina og ef okkur félli vel við hana. En sem leiguliðar býst ég við að við hikum svona fyrst um sinn“. „Ég er líka leiguliði hérna og hef verið allan búskapinn", sagði Jóel. „Nú, ég hélt að þú ættir kotið“. „Nei, ekki er nú svo mikið um“. Systumar komu nú ferðbúnar inn og drukku kaffi með gestinum. Þær voru komnar í reiðbux- ur og jakka, og í hvítar fínar blússur innan undir. Þær voru ekki síður til fara en ungu stúlkumar niðri í sveitinni, þegar þær sáust á hestbaki.

x

Lögberg-Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.