Lögberg-Heimskringla - 21.12.1972, Blaðsíða 3
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 21. DESEMBER 1972
3
Gull minninganna
Gullbrúðkaupskveðja til Jóhanns Þorvaldar og
Svanhvítar Beck, 2. des. 1972
Kvöldskinið varpar gulli á genginn dag.
Gleðiríkt ykkur hljómar þakkalag
ættingja og vina austan hafs og vestan;
_ auðinn þann veit ég fegurstan og beztan.
Lengi til góðs þið gengið hafið braut,
gæfan að launum ykkur féll í skaut: —
Virðing og ástúð ykkur krýna sóma,
ævina förnu sveipa björtum ljóma.
Bróðir og systir! Hafið heita þökk;
hjartans frá grunni mínum, djúp og klökk,
flytur hún kærleikshuga minn og minna,
morgunhlý fléttast kveðjum allra hinna.
RICHARD BECK
Frá Þjóðræknisfélaginu
i
Winnipeg, 2. desember 1972
Kæru vinir Svanhvít og Jóhann:
Fyrir hönd stjómar Þjóðræknisfélags íslendinga í Vest-
urheimi, færi ég ykkur hugheilar hamingjuóskir í tilefni af
gullbrúðkaupsdeginum, sem ég vona að verði ykkur bjartur
og fagur, og að svo megi verða um öll ykkar ókomnu æfiár.
Hið frábæra og fómfúsa starf, sem þið hjónin hafið lagt
til vestur-íslenzkrar þjóðræknisstarfsemi, sem og virk þátt-
tafca ykkar í sérhverjum félagsskap Vestur-íslendinga hér
í þessari borg. I áratugi hefir Jóhann Th. Beck verið einn
traustasti máttarstólpi Þjóðræknisfélags íslendinga í Vestur-
heimi, lengi verið í aðalstjórn félagsins, og er svo enn í dag.
Blaði okkar Lögberg-Heimskringla hefir Jóhann Th. Beck
verið sérstakur hollvinur, og sem formaður útgáfunefndar
og fraimkvæmdarstjóri leyst af hendi undravert starf. Allt
þetta verður auðvitað aldrei fyllilega þakkað.
Að lokum kæru vinir, vildi ég persónulega og fyrir hönd
fjölskyldu minnar, færa ykkur þúsundfaldar þakkir fyrir
þann hlýhug og vináttu í ökkar garð, sem þið hafið sýnt
okkur frá fyrstu kynnum. Guð blessi ykkur góðu vinir, og
megi gæfa og gengi jafnan með ykkur vera.
Ykkar einlægur vinur,
Skúli Jóhannsson.
íslenzka kennd í barnaskólum?
• Business and Professional Cards •
ÞJÓÐRÆKNISFÉLAG ÍSLENDINGA í VESTURHEIMI
Forseti: SKÚLI JÓHANNSSON
587 Mlnlo Slreel, Winnipeg 10, Manitoba
Slyrkið félagíð með því að gerast meðlimir.
Ársgjald — Einstaklingar S3.00 — Hjón $5.00
Sendist lil fjármálaritara
MRS. KRISTIN R. JOHNSON
1059 Doininion St„ Winnipeg 3, Manitoba.
Phone: 783-3971
Framhald af bls. 1.
hvert a t r i ð i á skemmti-
skránni.
Hópur unglinga úr Minerva
4-H klúbbnum sýndi pólska
þjóðdansa undir stjórn Mrs.
Marilyn Johnson. Meðal þátt-
takenda voru David og Ed-
ward Denchuk, Sandra og
Sharon Sigurdson, Bradley
Fjelsted, Joan Petrowski,
Scott Summers og Donna Sig-
urdson.
Séra Ingþór Isfeld las tvær
sannar frásagnir um atburði
við strendur íslands 1 seinni
heimsstyrjöldinni, þegar að-
eins munaði hársbreidd að
þýzkur neðansjávarbátur
næði að sökkva íslenzku
skipi, og þegar óvopnaðir sjó-
menn voru Skotnir niður á
fiskibáti. Hann lét þess getið
að íslenzkir sjómenn hefðu
bjargað 11 hundruð mannslíf-
um meðan styrjöldin stóð
yfir.
Mrs. Marilyn Johnson og
Mrs. Lorna Summers komu
fram í stuttum skopleik, er
fjallaði um hjúskaparlífið.
E f t i r að skemmtiskránni
lauk, Skýrði Mr. Stefan Stef-
anson, formaður Icelandic
Cultural Corporation, starf fé-
lagsins og hvað því hefði orð-
ið ágengt varðandi minja-
safnið frá íslenzkri landnáms-
tíð í Nýja íslandi, sem nú er
að komast á fætur.
Gullbrúðkaup
Framhald af bls. 1.
desember. Þess átti að minn-
ast með börnum, barnabörn-
um og nánustu vinum við
dagverð, sem Jóhanna dóttir
þeirra og maður hennar stofn-
uðu til á heimili sínu sjálfan
helgidaginn. En hátíðin kom
sjálfboðin inn á heimilið
nokkrum dögum fyrirfram,
því bréf og skeyti bárust að
dyrum þeirra hjóna og dag-
stofan fylltist blómum. Ein-
hver hafði stungið því að leið-
andi mönnum lands og fylkis
að þau Mr. og Mrs. J. T. Beck
ættú hálfrar aldar hjúskapar-
afmæli. Ekki dylst það samt
í viðtali við þau hjón að kær-
astar eru þeim vinakveðjurn-
ar til Svönu og Joe. Með þeim
telst vinargjöf frá útgáfu-
nefnd Lögberg-Heimskringlu
og þakkarávarp frá stjórn
Þjóðræknisfgélags íslendinga
í Vesturheimi, afhent á heim-
ili þeirra af formönnum við-
komandi nefnda.
Þau hjón eiga fjögur börn
og 12 barnabörn. Tveir synir
þeirra, Hans Raymond og
Richard Leonard eru ráf-
magnsverkfræðingar; yngsti
sonurinn Alan Ágúst er lyfja-
fræðingur, en dóttirin Jó-
hanna Violet er hjúkrunar-
kona að mennt, gift Robert
Publow, lyfjafræðingi. Hann
starfar við heilsumáladeild
Manitobafylkis og er alkunn-
ur söngmaður í Winnipeg.
Michael Beck, kjörsonur
þeirra Joe og Svönu, hefir
B.A. gráðu frá Manitoba há-
skólanum, en stundar fram-
haldsnám þartil hann nær
meistaragráðu.
Jóhann er fæddur í Reyð-
arfirði, sonur Hans Kjartans
Beck og Þórunnar Vigfúsínu
Vigfúsdóttur. Hann fluttist til
Kanada árið 1919 og kvæntist
Arnbjörgu Svanhvíti Guðna-
son í Winnipeg 2. desember,
1922. Hún er fædd í Loðmund-
arfirði í Norðurmúlasýslu,
dóttir Þorsteins Guðnasonar
og Maríu Magnúsdóttur, flutt-
ist með þeim til Kanada og
ólst upp á bújörð þeirra að
Oakview, Man., en flutti ung
til Winnipeg.
Building Mechanics Ltd.
Paintiiui - Decoratina - Construction
Renovating - Real Kstate
K. W. (BILL) JOHANNSON
Manager
910 Palmerston Ave„
'.Vinnipeg R3G 1J5
ICELAND - CALIFORNIA CO.
Bryan (Brjann) Whipple
Import and Sale of lcclandic
Woolens, Ceramic, Etc.
1090 Sonsome, San Frcncisco CA94111
Wanted for cash; Older
lcelondic Stomps ond Envelopes
____________________________________I
For Your
|ÍAUtOPftC)|
\PROTECTII\IG MANITOBAIUS OIM THE MOVE^
See or Mail To
JOHN V. SflMSON
FIRE ANR AUTOPAC INSURANCE
868 ARLINGTON ST. WINNIPEG, MAN.
PHONE 774-6251 R3E 2E4