Lögberg-Heimskringla - 19.06.1975, Blaðsíða 1
Bergotoinn Jonsson,
Box 218
REYKJAVIIC, Icoland
Jan. 74
MUNIÐ ÚTVARP ÍSLAND, CKJS 810, WINNIPEG
á hverju miðvikudagskvöldi kl. 8:30 e.h.
Dagskrárstjóri, Guðbjartur Gunnarsson
89. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 19. JÚNI 1975
NÚMER 23
FORSETI ÍSLÁNDS VESTUR Á
KYRRAHAFSSTRÖND
Forseti íslands dr- Kristj-
án Eldjárn, frú Halldóra
Eldjárn og föbuneyti þeirra,
leggja leið sína vestur á
Kyrrahafsströnd til að heim
sækja íslendinga þar, eftir
að aldarafmælishátíðinni á
Gimli lýkur í sumar. I för
með forsetahjónunum verða
utanríkisráðherra íslands, —
sendiherra íslands í Kanada
og Bandaríkjunum, — ritari
forsetans og frúr þeirra.
Eftir áætlun koma gestirn-
ir til Vancouver 7. ágúst n.k.
Monnamót heitir
ný þjónusta á fslandi
Lögbergi-Heimskringla hef
ur barist fjölritað dreifibréf
frá Reykjavík- — Tilkynnir
það nýja þjónustu, scm nefn
ist ;‘Mannamót” en undir
nafninu stendur á ensku —
“public relation, congresses,
conferences — service.” —
Bréfið er undirritað af Jóni
Ásgeirssyni og skýrir þjón-
ustuna þannig:
Mannamót s.f. var stofnað
til þess að bæta úr brýnni
þörf. Sífellt er verið að efna
til mannamóta, og þær kröf-
ur eru gerðar, að til þeirra
sé vandað í hvívetna. Ár-
angurinn fer oft eftir því,
hvernig til er stofnað, —
hvernig undirbúningi er
háttað. Á síðustu árum hef-
ur farið mjög í vöxt, að leit
að hefur verið eftir aðstoð i
sambandi við hvers konar
mannamót, en til þessa hef-
ur engin sérstakur aðili ver
ið til að veita slíka þjónustu.
Markmiðið með stofnun
Mannamóta er meðal annars
að veita alhliða þjónustu við
undirbúning funda, þinga,
móta — að sjá um skipulag
og framkvæmdir við ráð-
stefnur, bæði fyrir innlenda
og erlenda aðila, þjóðlegar
og fjölþjóð ráðstefnur, — að
annast kynningar, auglýsing
ar og bréfaskriftir því við-
komandi — að vera þjónustu
aðili, PR eða public relations
sem kallað er á erlendu máli
— vera tengiliður við aðra
þjónustuaðila og fjölmiðla.
Á vegum Mannamóta
starfa vanir menn, sem vilja
gera sitt til þess að ísland
verði eftirsótt sem ákjósan-
legur staður til hvers konar
Mannamóta.
og þar verður þeim haldin
kvöldverðarsamsæti 9. ágúst
en 10. ágúst snúa þeir
heim á leið- Munu íslending-
ar í Seattle hafa hug á að
bregða sér til Vancouver til
að sækja hátíðina og heilsa
upp á hina tignu gesti.
Fréttablað Islendingafé-
lagsins í Seattle lætur þess
getið að um 500 manns úr
hópnum, sem sækir aldaraf-
mælishátíð landnámsins í
Manitoba í sumar, muni
leggja leið sína vestur á
Kyrrahafsströnd. — I fyrri
hópnum verða 300 manns,
sem koma til Vancouver 16.
júlí og standa við tvær vik-
ur, en 13. ágúst koma svo
200 manns og kveðja eftir
einnar viku heimsókn.
íslendingafélögin í Van-
couver og Seattle hafa í ráð-
um að halda sameiginlega
útiskemmtun gestunum til
Framh. á bls. 8.
Hreinsa Herjólfsdal á kvöldin
UM 300 Vestmanneyingar unnu s.l. laugardags-
kvöld I sjálfboðavinnu við hreinsun f Herjólfs-
dal. Herjölfsdalur er illa farinn cg þvf er verk-
efnið mjög brýnt. Aætlað er að halda hreins-
unarstarfinu áfram i sjálfboðavinnu n.k.
fimmtudagskvöld þvf mikið vannst fvrsta kvöld-
ið þótt vörubflstjora vantaði talsvert.
Ljósmynd Mbl. Guðlaugur.
BJARGAÐI ÞREMUR MANNLfFUM ÚR ELDSYOÐA
Sú harmafregn birtist í dag- elda, og logaði út um dyr og
blaðinu Vancouver Sun að glugga.
tvítug móðir Glennis Anne Finnbogi var þá kominn á
Oikle, hefði látið h'fið í ár-
angurslausri tilraun til að
bjarga 9 mánaða gömlum
syni sínum, þegar kviknaði í
húsi sem fjölskyldan bjó í í
Burnaby, B- C. — Fréttin er
klippt úr Vancouver Sun og
esnd L-H., en er ódagsett.
Heimilisfaðirinn. Gary
Oikle var lagður inn á spít-
ala þungt haldinn af bruna-
sárum. Hann bjargaðist, á-
samt tveim ungum stúlkum,
sem voru í heimsókn í hús-
inu, fyrir aðgerðir Lloyd
Finnbogason en hann varð
eldsins var þegar hann fór
þar framhjá á leið heim úr
vinnu.
R.C.M.P. lögreglan sagði að
eldurinn hefði að líkindum
kviknað útfrá upphitunar-
miðstöð hússins. Slökkvilið-
inu var gert aðvart kl. 5.00
að morgni en þegar það kom
að. var húsið allareiðu al-
Nýtt símanúmer
Lögbergs-
Hcimskringlu
247-7798
staðinn, hafði brotist inn um
dyr hússins og reynt árang-
urslaust að yfirbuga eldinn,
en honum tókst að koma
Garry út, ásamt tveim 16
ára gömlum stúlkum, Elena
Mary Millar ,systur Mrs.
Oikle og vinstúlku hennar
Susan Longworth- Þessi þriú
eiga Lloyd Finnbogason líf
sitt að launa, sagði formaður
slökkviliðsins.
Lloyd kveðst ekki vera
nein hetja, „en mér þykir
fvrir því að konan og barn-
ið urðu að deyja og ég
myndi hætta á að reyna það
sama aftur á morgun ef þess
gerðist þörf.” Hann sagðist
hafa séð eldinn í gegnum gat
á norðvestur horni hússins
og loginn hefði þá étið vegg-
inn út frá sér. Hann greip
sand úr lítilli hrúgu og
reyndi að slökkva með hon-
um eldinn, en það gekk ekki
svo hann hljóp að framdyr-
um hússins og barði á þær.
Við það vöknuðu stúlkurnar
og gáfu frá sér neyðaróp. —
Hann kom þeim út, en þær
sögðu að enn væri fólk í hús
inu. Hann gekk því gegnum
dagstofuna fram í eldhús og
ætlaði upp stigann en komst.
hvergi fyrir eldi og reyk. —
Hann fór því að bakhlið
hússins og fann þar Garry
með sviðið hár og brunasár
á andlitinu- Garry hafði brot
ið glugga á baðherberginu
til að hleypa út reyknum og
ætlaði að bjóta upp stigann
til að bjarga konu sinni og
barni. — Finnbogason sagði
honum að hann kæmist það
ekki, braut svo það sem eftir
var af rúðunni og togaði
Garry út.
Framhald á bls. 8.
VESTUR-iSLENDINGUR TEKINN VIÐ
FORSTJÓRN USIS Á ISLANDI
Victor B. Olason kom ný-
lega til Islands og tók við
störfum sem forstjóri menn-
ingarstofnunar Bandaríkj-
anna og er jafnframt ráðu-
nautur ameríska sendiráðs-
ins í upplýsinga- og menngar
málum-
Victor B- Ólason kom til
íslands frá Bonn höfuðborg
Vestur-Þýskalands, þar seip
hann starfaði sem blaðafull-
trúi við bandaríska sendiráð
ið í fimm ár.
Victor B. ólason er fædd-
ur í Seattle í Washington
ríki árið 1930 og er af ís-
lensku bergi brotinn. Afi
hans og amma í báðar ættir
fluttust til Bandaríkjanna
og Kanada seinni hluta 19.
aldar. Faðir hans er fæddur
í Bandaríkjunum og móðir
hans í Kanada.
Að loknu skyldunámi í Se
attle, lagði Victor B. ólason
stund á blaðamennsku við
Washington háskóla. Þaðan
lauk hann brottfararprófi ár
VictorB. Olason.
ið 1953. Hann hefur einnig
lagt stund á stjórnmálavís-
indi við New Mexico háskól
ann. Áður en hann hóf störf
hjá Upplýsingaþjónustu
Bandaríkjanna árið 1959 var
hann blaðamaður og aðstoð-
Framh. á bls. 8.