Lögberg-Heimskringla - 31.03.1977, Blaðsíða 1
Bergstoinn Jónsson
Box 218
Reykjavík, Iceland
1
91 ArfGANGUE WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 31. MARS 1977
Ljósmynd Fridþjófur.
Veltu því ekki lengur fyrir þér, hvort þú eigir að gerasl áskrifandi eða hringt i síma 247-7798 Winnipeg. og ef þú ert á tslandi, þá
að Logbergi-Heimskringlu, sértu ekki þegar meðal hana mörgu. — hringirðu bara í síma 74153 Reykjavik og biður um að fá blaðið sent
Ef þú ert i Kanada eða Bandarikjunum þá geturðu senl okkur línu, - þangað sem þú vilt.
ISLENSK LANDKYNNINGARSKRIFSTOFA
í NEW YORK
Fyrir ári -var sett á stofn
íslensk landkynningarskrif-
stofa í New York, á vegum
Ferðaskrifstofu Ríkisins sem
hefur um margra ára skeið
farið með landkynningarmál
á vegum hins opinbera á ís-
landi. — Á miðju síðasta ári
var gerð skipulagsbreyting
og landkynningarmál falin
Ferðamálaráði Islands, sem
þá var endurskipulagt sam-
kvæmt sérstökum lögum. —
Formaður Ferðámálaráðs er
Heimir Hannesson, lögfræð-
ingur, sem er mörgum Vest-
ur-íslendingum kunnur.
Hlutverk skrifstofunnar er
margþætt. Það felur meðal
annars í sér að svara.fyrir-
'ólafur Sigurðsson
spurnum frá almenningi sem
berast víða að, meðal annars
fra Kanada, og fjalla um
hina ólíklegustu hluti. — Þá
^varar skrifstofan fjölda fyr
irspurna frá ferðaskrifstof-
um, umboðsmönnum og skrif
stofum Flugleiða og annarra
flugfélaga um ferðir til ís
lands, en þó sérstaklega um
ferðalög á íslandi.
Snar þáttur í starfi skrif-
stofupnar er að starfa með
dagblöðum, tímaritum, út-
varps- og sjónvarpsstöðvum.
Ýmist er það að svara al-
mennum fyrirspurnum, fara'
yfir greinar, sem þegar hafa
verið skrifaðar, eða leitast
við að hafa forgöngu um að
fjallað sé um ísland og ís-
lensk málefni.
Þá er mikið um að skrif-
stofan fái fyrirspurnir frá fé
lögum og hópum, sem hafa
hug á að ferðast til íslands
og er þá gjaman rætt sérstak
lega við viðkomandi og oft
sýndar kvikmyndir.
Skrifstofa þessi er í Rocke
feller center þar sem Norð-
urlöndin fimm hafa skrif-
stofur, og sameiginleg þjón-
ustustofnun annast póstþjón
ustu, rekstur húsnæðis, fjöl-
ritun, ljósritun og önnur al-
menn stjórnunarstörf.
Forstöðumaður skrifstof-
unnar í New York er Ólafur
Sigurðsson, sem áður starf-
aði seín fréttamaður við Rík-
isútvarpið. Hann hefur áður
starfað að kynningarstarf-
semi á íslandi, um nokkurra
ára skeið.
Upplýsingaskrifstofo
í Winnipeg?
Landkynningarskrifstofa
þessi, sem hér er sagt frá
virðist eiga fullan rétt á sér.
Er ekki tímabært að setja á
laggirnar slíka skrifstofu í
Kanada?
Á meðan svo er ekki yerð-
ur ritstjórnarskrifstofa Lög-
bergs-Heimskringlu að vera
eins konar kynningarstofnun
upplýsingamiðill og þjón-
ustustofnun. — Við mu'num
með ánægju veita allar þær
upplýsingar, sem okkur er
unnt, framvegis, sem hingað
til. — Hringið eða komið við
hjá, okkur. Ritstjórnin hefur
samið við skrifstofuna í
New York um gagnkvæma
samvinnu.
,iá
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA OG
WASHINGTON POST
Aðalritstjóri Washington
Post, Ren Bradlee, sat fyrir
svörum fréttamanna í Winni
peg sl. mánudag. Hann hafði
fyrr um daginn haldið fyrir-
lestur f-yrir háskólastúdenta
í Winnipeg. Lögberg-Heims-
kringla átti tvo fulltrúa á
fundinum með Bradlee á
mánudaginn, Caroline Gunn
arsson, fyrrverandi ritstjóra,
og gestur hennar var núver-
andi ritstjóri blaðsins.
Rradlee svaraði spurnmg-
um viðstaddra i hálfa aðra
klukkustund, og var víða
komið við. — Óþarft er að
kynna Bradlee, hann er einn
þekktasti b 1 a ð a r i t stjóri
heims um þessar mundir,
einkum fyrir afskipti sín af
Watergate-málinu. Bradlee
var náinn vinur John F.
Kennedy’s og hann hefur
fvlgst vel með öllu, sem ger-
ist í Hvíta Húsinu á síðustu
árum. — Hann hefur einnig
Framhald á bls. 8
NÚMER 12
ELDGOSf
KÖTLU?
Síðustu daga hafa verið ó-
venjumiklar jarðhræring-
ar í grennd við Kötlu. —
Samkvæmt þeim upplýs-
ingum, sem Lögberg-
Heimskringla hefur aflað
sér, hafa sumir jarðskjálft
arnir verið allsnarpir, og
það. svó að lausamunir
hafa hrunið úr hillum, og
fólk hefur vaknað af
svefni. Þá hefur tíðni jarð
hræringanna aukist tals-
vert síðustu sólarhringa.
í fyrra gerðu Almanna-
varnir ríkisins sérstaka á-
ætlun, björgunaráætlun,
ef Katla skyldi gjósa. Þá
var einnig • komið fyrir
fleiri jarðskjálftamælum,
og síðan hefur verið fylgst
vel með þróun mála.
F-yrir nokkrum dþgum
var nemendum i Skógar-
skóla, sem er um það bil
25 kílómetra (15 míles)
suðvestur af Kötlu, gerð
grein' fyrir hvað gera
skyldi, ef hættu bæri að
höndum, og ennfremur
hafa verið gerðar ráðstaf-
anir til að koma þeim fyr-
ir í skólum í Reykjavík, ef
svo skyldi fara, að þeir
þyrftu. að flytja burt í
skyndi/- já
Dr. Watson
Kirkconnell látinn
Dr. Watson Kirkconnell,
hinn alþekkti höfundur og
þýðandi, lést fyrir skömmu í
Wolfville, Nova Scotia, 81
árs að aldri. Dr. Kirkconnell
var mörgum íslendingum og
V-íslendingum vel kunnur
og hafði þýtt mikið af ís-
lenskum kveðskap á ensku.
Hann var afkastamikill höf-
undur og hafði skrifað 40
bækur, 130 bæklinga og 600
greinar. Auk þess sneri hann
á ensku yfir 5.000 blaðsíðum
af kveðskap, gömlum og nýj-
um.
Dr. Kirkconnell, sejn var
fvrrverandi forseti Acadia
háskólans í Nova Scotia, var
á sinni tíð sæmdur mörgum
heiðursgráðum frá háskólum
í flestum fylkjum Canada og
var auk þess heiðursfélagi í
mörgum fræðimannafélög-
um. Hann lætur eftir sig
ekkju.