Lögberg-Heimskringla - 30.06.1977, Blaðsíða 1
Bergsteinn Jónason
B )x 218
Reykjavik, Iceland
91 ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 30. JÚNl 1977
NÚMER 25
FLEIRI ÍSLENDINGAR
Á SUNNUDAGINN kom
hópur íslendinga á vegum
Ferðaskrifstofunnar Sunnu
til Winnipeg, alls um eitt
hundrað manns. Fararstjóri
í þessari ferð er séra Bragi
Benediktsson, en Guðmund-
ur Magnússon, sem var aðal
fararstjóri í fyrri ferðinni er
nú farinn til íslands, og far-
þegarnir, sem komu 29, maí,
fóru til baka með vélinni sl.
sunnudag.
Lögberg-Heimskringla
ræddi við Guðmund áður en
hann hélt aftur til íslands.
Hann sagðist víða hafa ferð-
ast, en aldrei fyrr komið til
Kanada. Þessi ferð hingað
væri ein eftirminnilegasta
ferð, sem 'hann hefði nokkru
sinni farið. Hér hefði hann
hitt margan merkilegan
manninn, Vestur-íslendinga
sem eru svo vel að sér um
margt, að undrun sætti. Há-
aldrað fólk hafði hann 'hitt,
sem bjó yfir víðtækri þekk-
ingu og átti að baki reynslu,
dýrmæta reynslu á mörgum
sviðum mannlífsins. Þá sagð
ist hann einnig hafa kynnst
því, að sumir Vestur-íslend-
ingar eigi í fórum sínum fá-
gæta muni, eins og til dæmis
bækur og handiðn. Eina bók
hafði hann séð hér. sem ekki
verður nánar greint frá að
þessu sinni. en aðeins munu
vera til tvö eintök af í heim-
inum.
Guðmundur hafði komið í
minjasafnið á Gimli, og
fannst'honum það stórkost-
lega merkilegt. Hins vegar
kvaðst hann undrandi á því,
að ekki skyldi vera betur að
því búið, en raun ber vitni,
og bæri brýna nauðsyn til
bess að byggja yfir safnið,
það mætti ekki vera öllu
lengur í eldfimu timburhúsi.
ureyrarkirkju, söfn skoðuð
og farið í skoðunarferð um
bæinn. Bæjarstjórn Akureyr
ar bauð til kvöldverðar á
Hótel KEA.
Veður hefur yfirleitt verið
allgott á meðan Vestur-ís-
lendingarnir hafa verið á ís
landi, reyndar nokkuð rign-
ingarsamt sumsstaðar á land
SÉRA VALDIMAR J. EYLANDS KJÖRINN ,
HEIÐURSDOKTOR VIÐ HÁSKÓLA ÍSLANDS
Hin árlega háskólahátíð fór
fram við Háskóla íslands sl.
laugardag, 25. júní.
Við það tækifæri var séra
Valdimar J. Eylands gjörður
heiðursdoktor í guðfræði við
Háskóla íslands.
Guðfræðideildin og há-
skólaráð samþykktu ein-
róma kjör hans til þessa heið
urs fyrir áratuga forustu-
störf að kirkjumálum austan
hafs og vestan og stuðning
við í slensk málefni í hví-
vetna. í minni voru einnig
höfð margvísleg ritstörf dr.
Valdimars, og þróttmikil
boðun hinnar kristnu trúar
bæði á ensku og íslensku.
Þetta er í fyrsta sinni, sem
Guðfræðideild Háskóla Is-
lands heiðrar vestur-íslensk-
an prest með doktorsnafn
bót. Það mun allra mat, að
séra Valdimar J. Eylands sé
i alla staði vel að þessum
heiðri kominn og um leið hef
ur Háskóli Islands drengi-
lega minnt á hlut Vestur-
Islendinga í íslenskri kirkju
sögu. B.F.
Á þessari mynd sést Guðmundur Magnússon bjarga jeppa
úr Núpsvötnum á íslandi.
ÞAKKIR FRÁ FERÐALÖNGUM
íslenskar messur
á Heklu
I sumar er haldið uppi
prestsþjónustu á Heklu og
eru þar Guðsþjónustur á
ensku hvern sunnudags-
morgun. Séra Bragi Frið-
riksson annast þessa þjón-
ustu.
Nú hefur verið ákveðið,
að sérstakar Guðsþjónust-
ur fari fram sunnudagana
10. júlí, 31. júlí og 21. á-
gúst og hefjast þær allar
kl. 2 e.h.
Islendingum úr ná-
grannabyggðum og gest-
um að heiman er bent á
gott tækifæri til að sam-
eina ferð út í Heklu og
þátttöku í þessum Guðs-
þjónustum.
— Sagðist Guðmundur hafa
haft orð á þessu við framá-
menn hér, og hefðu þeir ver-
ið sér sammála um að úr
þessu þyrfti að bæta.
Guðmundur, sem er reynd
ur fararstjóri, sagði ennfrem
ur, að fyrst eftir að farþeg-
arnir komu 29. maí, hefði
verið við ýmsa erfiðleika að
etja, en með góðu samstarfi
og vilja heimamanna hefði
tekist að leysa úr flestum
vandamálum á farsælan hátt
Ferðin vestur að hafi hefði
tekist mjög vel, en þeir, sem
ekki fóru í þá ferð höfðu
sumir lent í einhverjum erf-
iðleikum, en vonir stæðu til
þess að slíkt endurtæki sig
ekki.
Loks bað Guðmundur
Magnússon L.-H. fyrir kveðj
ur og þakkir til þeirra fjöl-
mörgu, sem greitt hefðu
götu sína, og farþega sinna,
og er því hér með komið á
framfæri.
Vestur-íslendingar á
íslandi
Tæplega 200 Vestur-íslend-
ingar eru nú á íslandi á veg
um Viking Travel. Þeir tóku
þátt í hátíðahöldunum í
Reykjavík 17. júní, og einn-
ig hafa flestir þeirra ferðast
um landið. Allflestir fóru til
Akureyrar, og þar tók Þjóð-
ræknisfélagið á móti gestun-
um. Hlýtt var á messu í Ak-
inu, og á norðurlandi hefur
verið framur kalt í veðri; og
hefur hiti sumstaðar farið
niður undir frostmark um
nætur.
Önnur ferð verður farin á
vegum Viking Travel um
miðjan júlí og þá kemur hóp
ur hingað til Kanada á veg-
um Þjóðræknisfélaganna á
íslandi. já
Forseti íslands
i sjúkrahúsi
Forseti íslands, dr. Kristj-
án Eldjárn hefur verið í
sjúkrahúsi í Reykjavík til
rannsóknar vegna æða-
bólgu í fæti. Forsetinn var
nýkominn frá Svíþjóð, en
hann var þar í boði Upp-
salaháskóla.
s
Við íslendingarnir, sem kom
um til Kanada á vegum.
Ferðaskrifstofunnar Sunnu,
29. maí, og fórum saman í
hópferð frá Winnipeg til Se-
attle, þökkum af alhug allar
þær hjartanlegu og höfðing-
legu móttökur, sem við urð-
um aðnjótandi hjá Vestur-ís
lendingum, sem hafa gert
okkur alla þessa ferð að ó
gleymanlegu ævintýri.
Þar hefur allt farið saman
okkur til ánægju, ágætt veð-
„^ur, fagurt og frjósamt land
að skoða, vinsemd fólksins
og ágæt fyrirgreiðsla alls
'staðar. Við þökkum ykkur
öllum af heilum hug og von-
um að sem flest ykkar getið
■heimsótt okkur á Islandi. Þá
viljum við ennfremur þakka
Ferðaskrifstofunni Sunnu.
fyrir að skipuleggja og gera
okkur þessa ágætu og ódýru
COMPLIMENTS TO
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA
In a recent newsletter from the Icelandic Society
of Northern California is the following statement:
“If you are not as yet a subscriber to this worthy
weekly, you might want to give it a serious thought.
Heimskringla was first published in 1886 and Lögberg
in 1888. You might therefore say that L.-H. is over 90
years of age. Most likely, not many Canadian papers
can boast of such distinguished antiquity.”
Furthemore it says:
“Lögberg-Heimskringla is not only worth your
support, it would also keep ypu posted on many fronts.
Send $15.00 to L.-H., 67 St. Xnne’s Road, Winnipeg,
J Manitoba R2M 2Y4.”
• Thank you very much.
IM.....M............M...................I
w
l
J
ferð mögulega. — Síðast, en
ekki síst viljum við svo
þakka Guðmundi Magnús-
syni fyrir frábæra farar-
stjóm, glaðværð, skemmtileg
ar frásagnir og fræðandi lýs-
ingar á landi og þjóð.
Hafið öll hjartans þakkir
fyrir. — Ferðafólkið.
Magnús Eliason
in Vancouvcr
Magnus Eliason, Council-
lor for Bannatyne ward in
Winnipeg, recently attended
the annual meeting of the
Canadian Urban Transit As-
sociation at Vancouver. This
meeting was concerned with
developments in transit sys-
tems in Canadian cities and
with the general problem of
transportation and traffic
congestion in urban areas.
Magnus is a member of the
Committee on Works and
Operations which is one of
the three standing commit-
tees of city council. Public
transit is one of the areas of
operation that comes under
the jurisdiction of that com-
mittee.
While in Vancouver, Mag-
nus was in touch with the
Icelandic community there,
and visited “Hofn” and re-
newed acquaintances.