Lögberg-Heimskringla


Lögberg-Heimskringla - 10.09.1977, Qupperneq 6

Lögberg-Heimskringla - 10.09.1977, Qupperneq 6
6 LOGBTTRG-HEIMSKRINGLA. LAUGARDAGINN 10. SEPTEMBER 1977 Hann andaði út mæðinni og hlustaði, en heyrði ekkert nema hjartsláttinn í sjálfum sér. — Húsmóðirin svaf víst enn þá. Aldrei hafði hann litið inn í þetta herbergi, aldrei hafði hann komist jafnnálægt því og nú. Enginn maður á heimil- inu leit þar nokkurn tíma inn, nema þær af vinnukonunum, sem handgengnastar voru húsmóðurinni. Enginn annar átti þangað erindi, enginn þorði svo mikið sem líta þangað inn. Það var það allra helgasta í bænum — það var jómfrú- búrið. Og það var engin kotstelpa, sem í þessu búri bjó. Það var hvorki meira né minna en ein af allra ættgöfugustu meyjum landsins, — Anna, dóttir Vigfúsar Erlendssonar hirðstjóra. Og nú átti hann að fara inn til hennar og fleygja sér upp í rúmið hjá henni nakinni, og þar átti hann að liggja, þar til ráðsmaðurinn kæmi og sæi hann. Annars varð hann cif fol- aldinu. Hann var ekki hræddur um, að hinir vinnumennimir mundu ekki gjalda honum kaupin, ef hann aðeins hefði hug til að reyna þetta, en það mundi ráðsmaðurinn ,ekki gera. Hann hataði hann, vegna þess að hann hafði djörfung til að svara honum fullum hálsi. Og hann hataði hina vinnumenn- ina og húsmóðurina líka, hataði alla, nema sjálfan sig. Það var ekki hætt við öðru en að hann reyndi einhver undan- brögð. Og húsmóðirin? Hún hafði alltaf verið honum góð, aldrei talað til hans öðru vísi en vingjarnlega, aldrei verið hörð við hann, þá að vantað hefði af ánum hjá honum, og aldrei gefið því mikinn gaum, þó að aðrir hefðu klagað hann fyrir henni fyrir einhver strákapörin. Og nú átti hann að fara að skaprauna henni. Hvað mundi hún gera, ef hún yrði verulega reið við hann? Henni mundi ekki nægja að flengja hann hæls og hnakka á milli, hún mundi svelta hann, eða kannske reka hann alveg í burtu. En hún mundi þó ekki drepa hann. Og væri þá ekki hitt allt saman á sig leggjandi fyrir þessa góðu gripi? En ef þetta yrði nú tekið sem tilræði við sæmd húsmóð- urinnar, tilraun til að flekka hana og spilla mannorði henn- ar? Hann: hafði ekki ljósa hugmynd um, hvað það var. — Þegar hann hcifði heyrt um það talað, var jafnan talað á hálfgerðri huldu, svo að hann skildi það ekki til fulls, og ef hann spurði, var honum annaðhvort engu svarað eða út í hött. Það eitt vissi hann, að það var tekið óttálega illa upp, varðaði jafnvel lífláti. Og ef sýslumaðurinn á Hlíðarenda frétti þetta, hann, sem var bróðir húsmóðurinnar, mundi hann senda eftir honum og láta höggva af honum höfuðið. Við allar þessar hugsanir svitnaði hann af angist og skalf á beinunum. Hann jafnaði sig þó og herti upp hugann. Það hlaut að vera einhverjum örðugleikum bundið að reyna þetta, emnars hefðu þeir ekki heitið honum svona miklum launum Eithvað varð hann að leggja í sölurnar. Eða hvort þeir mundu ekki hlæja að honum, ef hann sneri nú aftur við dymar. Hann hleypti í sig kjarki og opnaði dyrnar undur hægt. Gægðist hann þá inn um gættina og leit um allt herbergið. Úti við vegginn öðrum megin stóð himinhvíla húsmóður- innar. Glitofinn ársalur úr fínum vefnaði hékk neðan í himninum fyrir allri hvílunni. — Renndir hvalbeinshringir voru í brún hans að ofan og runnu á stríðstrengdu rósa- bandi. Til höfða og fóta voru þykk tjöld úr dýrindis vefn- aði dregin saman í fagrar fellingar. Glergluggi var á stafn- inum, rétt hjá rúminu, og nú rofaði til fyrir sólinni, svo að hún skein inn um gluggann á alla þessa dýrð. Hjalti hypjaði sig út úr gættinni og lét aftur dymar. — Hjartað barðist svo ákaft í brjósti hans, að honum lá við að hníga niður. „Skræfa,” hugsaðí hann með sjálfum sér. „Þér er ekki matur gefandi, hvað þá heilt folald, — nei, heill reiðhestur, því að ráðsmaðurinn hafði lofað að ala hann upp fyrir hann. Eftir nokkur ár gætirðu smalað á hesti, þínum eigin hesti, ef þú værir ekki skræfa. 1 einu stökki gætirðu tekið gólfið og komist upp í himinhvíluna. Hún mundi bera þess merki á eftir, að þú hefðir verið þar. — Hvað ætlarðu að segja vinnumönnunum ?” En ef hann flækti sig nú i öllum þessum tjöldum og kæm- ist aldrei upp í hvíluna? Ekki yrði hlegið minná að því. , Hann leit inn fyrir aftur til að aðgæta tjöldin betur, og nú kom hann allur inn úr gættinni. En hann brast enn kjark til að taka undir sig stökkið. — Hann dró sig út fyrir og hélt niðri í sér andanum. I þriðja skiptið gerði hann atlögu, og nú veu- kjarkurinn það mestur, að hann læddist undur hægt inn á mitt gólf, inn undir rúmið. Framh. í næsta blafii. JÓN TRAUSTI ANNA FRÁ STÓRUBORG SAGA FRÁ SEXTÁNDU ÖLD é ALMENNA BÓKAFÉLAGIÐ REYKJAVÍK „Eg skal nú smíða handa þér nýja stöng úr seigum og góðum viði, með jámhólk á endanum, miklu betri en þessa til að stökkva á og miklu likrari og léttari,” mælti Kári smiður, sem var einn af vinnumönnunum, við Hjalta, „ef þú vilt vinna dálítið til hennar.” „Þú ætlar að stela í hana efninu frá húsmóðurinni”, mælti Hjalti með sömu ósvífninni og áður. Hann vissi, að sér væri óhætt. Enginn þeirra mundi líða öðrum að fara illa með hann. „Það er ekki víst, að ég þurfi þess,” mælti Kári. „Víðar er góður rekaviður en á Stóruborg." „Hvað á ég að vinna til-” spurði Hjalti. Kári setti sig i stellingar og reyndi að vera alvarlegur. „Þá átt aö fara — svona, eins og þú ert til reika núna, — beint inn í rúmið til húsmóðurinnar og leggjast út af hjá henni.” Vinnumennirnir veltust um af hlátri. Þeir sáu í hugan- um, hvemig húsmóðurinni mundi verða við, þegar Hjalti kæmi og hefði þetta fyrir stafni. „Ertu vitlaus!” mælti Hjalti hálfókvæða. 1 þetta skipti gekk fram af honum. Við annarri eins fíflsku og þetta var hafði hann ekki svör á reiðum höndum. Vinnumennimir hlógu enn ákafar, bæði af því að sjá Hjalta standa orðlausan, og svo datt þeim cumað i hug. — Þetta gæti orðið til þess að koma húsmóðurinni á fætur. En fyrr en hún kom á fætur, fékk enginn maður mat. „Eg skal gefa þér tygilknífinn, sem ég fékk úti i Vest- mannaeyjum í fyrra hjá þeim þýsku,” mælti annar vinnu- maðurinn. „Hann er í glóandi fögrum látúnsbúnum skeið- um og með látúnsbúnu skafti, mesti dýrgripur. Þú hefir séð hann hjá mér og löngum haft ágimd á honum. Eg skal gefa þér hann, ef þú gerir þetta.” Hjalti stóð tvíráður og horfði á þá til skiptis. Stöngin var góð, en hnífurinn var þó enn þá betri. Annan eins kjörgrip gat hann varla hugsað til að eignast nokkum tima. „Haldið þið, að strákurinn ráðist í annað eins stórræði fyrir þetta smáræði?” sagði ráðsmaðurinn og ætlaði að springa af hlátri. „Þið verðið að taka á betur, ef duga skal.” Hann var sannfærður um, að Hjalti yrði flengdur, og það svo, að um munaði, ef hann reyndi þetta, og til þess var eitthvað vinnandi. Hitt var alveg óhugsandi, að haim kæmi því fram. „Eg skal gefa þér folaldið, sem hún Brúnka mín gengur með, og hjálpa þér til að ala það upp, ef þú gerir þetta. Það á ekki langt að sækja það, þó að það verði vænn hestur. Þú þekkir Brúnku!” Augun í Hjalta loguðu. Folald, sem yxi upp og yrði hestur — afbragðshestur! — Það var eins og sæll draumur. „En þá verð ég að sjá þig í rúminu hjá henni,” bætti ráðs- maðurinn við. Hann sá það á Hjalta, hvað hann var að hugsa. „Þið heyrið, hverju hann lofar,” mælti Hjalti, og glettnin skein út úr honum. Ráðsmanninum fór ekki að standa á sama. „Það skal enginn svíkja þig,” mælti Kári. „Við erum allir vitni að því, hverju hver okkar hefir lofað.” Hjalti brá undir sig stönginni og stökk margar lengdir sínar í einu. I tveim — þrem stökkum náði hann heim að bænum og hvarf fyrir bæjarhomið. Vinnumennimir stóðu höggdofa. Þeim óaði við því, sem þeeir höfðu gert. Hvað skyldi koma á eftir? 2. í SVEFNLOFTI HÍJSMÓÐURINNAR Hjalti læddist upp stigann að svefnlofti húsmóðurinnar og nam staðar við hurðina að herbergi hennar. Hann hélt niðri í sér andanum, og hjartað í honum barðist ákaft. Margt strákastrikið hafði hann haft í frammi, en þetta yfirgekk þau öll. --4-’ — Helmingurinn af þeim lyga- sögum, sem ganga um mig, eru ósannar. ó- -4 '/4'T5v7'í - < WiM, — Læknir! Er endilega nauð- synlegt, að maðurinn minn taki lyfið inn í köldu vatni? r' ll$! L 4 — Bíddu, ég kem og næ í þig á eftir! , il i ! i — Ég vissi, aö þetta myndi gerast einhvern daginn. Er ekki hægt að geym hana fyrir mig fram yfi helgina, en þá er manr inum mfnum boðið sextugsafmæli?

x

Lögberg-Heimskringla

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.