Lögberg-Heimskringla - 10.11.1977, Blaðsíða 5
LOGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 10. NOVEMBER 1977
5
um og réttum að mestu lok-
ið. Hundruðum þúsunda af
lagðprúðu sauðfé hefur ver-
ið smalað af fjöllum og rek-
Hangikjöt og prófkjör
ið til slátrunar. Allt of mikið
kjöt á markaðnum segja
menn, og auk þess er sauð-
kindin á góðri leið með að
eyða gróðri og þar með jarð
vegi á stórum svæðum í af-
réttum. — En hvað er til
ráða?
Margir hafa sitt liffram-
færi af sauðfjárrækt, hangi-
kjötið smakkast vel og ullar
og skinnaiðnaður fer vax-
P
UNKT
Ab •
íí
.... Matthia* Bjamason, sjavarútvegsraðherra hefur
verið í heimsókn í Færeyjum síðustu daga, í boði starfs
bróður síns þar, Péturs Reinhart, læknis og ráðherra ..
.... Viihjálmur Hjalmarsson, menntamálaráðherra
fór einnig til Færeyja fyrir skömmu, er hann slóst í
för með Sinfóníuhljómsveit Islands, sem þá fór til út-
laiida i fyrsta skipti. Eftir heimkomuna sagði mennta-
málaráðherra, að hann liefði hrifist einna mest af sam-
göngumálum þeirra Færeyinga ...
.... málflutningi er lokið i Keykjavík i Guðmundar og
Geirfinnsmálunum, sem svo hafa verið nefnd, en menn
með þeim nöfnum voru myrtir, eða það höfðu þrjú ung
menni játað að hafa gert, og fleiri játuðu að hafa verið
viðriðin þessi mál. Nú hafa sakborningar dregið játn-
ingar sínar til baka, og eitt aðalvitnið í málinu hefur
cinnig dregið framburð sinn til baka. — Búist er við,
að dómar verði kveðnir upp fyrir árslok, en þetta er
talið eitt mesta sakamál, sem komið hefur fyrir ís-
lenska dómstóla á síðari tímum ...
.... ekki er langt síðan Alþingi kom saman á ný, en
það þing, sem nú situr er hið síðasta fyrir kosningar,
sem verða í vor. Skömmu eftir að þingstörf hófust,
voru lagðar fram i fyrirspurnartíma á Aiþingi, fyrir-
spurnir um laun forstjóra fjögurra ríkisfyritækja, ís-
lenska Jánblendifélagsins, Kísiliðjunnar, Sementsverk-
smiðjunnar og Áburðarverksmiðjunnar, og einnig var
spurt um fríðindi ráðherra í sambandi við kaup og
rektur á bílum þeirra ...
.... ákveðið hefur verið að lialda sérstaka kvikmynda-
hátíð í Reykjavík dagana 2. til 12. febrúar á næsta ári.
Þá verða sýndar tíu myndir, sem eiga. að gefa góða
mynd af því, sem er að gerast í samtímakvikmyndum.
Þekktum kvikmyndagerðarmönnum og leikstjórum
verður boðið á hátíðina, og gert er ráð fyrir, að sýndar
verði myndir frá íran, Grikklandi, Afríku, Asíu og
Suður-Ameríku, eins og segir í frétt frá Listahátíð í
Reykjavík....
... .kattavinafélagið hélt
Flóamarkað fyrir
skömmu.
Ætli sé til svona félag
í Kanada? ....
andi og slíkar vörur seljast
vel innanlands sem utan.
Mikið er um að vera hjá
stjórnmálamönnum um þess
ar mundir, enda bæði Alþing
iskosningar og kosningar í
bæjar- og sveitastjórnir
framundan að vori. Er ekki
laust við að kosningaskjálft-
inn sé farinn að gera vart
við sig. Eitt og eitt framboð
er að sjá dagsins ljós.
Inn í kosningamál hafa
fléttast umræður um próf-
kjör. Halda sumir því fram
að með þeim sé kjósendum
gefinn kostur á að taka þátt
i vali frambjóðenda. Aðrir
telja framkvæmd prófkjörs
ekki nógu lýðræðislega og
flokksstjórnir stjómmála-
flokkanna geti eftir sem áð-
ur ákveðið hver skipi efstu
sætin. Af skrifum blaða má
sjá að stjómmálamenn
herða nú róðin'inn.
(Mllllfyrirsapnlr blaSslns).
(Myndlr úr myndasafnl blaCslns),
ICögbrrg -
5jrimHbrittgla
9
247 7798
Verður vetrarmaður
á íslandi
BRAGI Sæmundsson, Gunn-
ars bónda á Breiðabliki, hef
ur ráðið sig til starfa á ís-
landi i vetur. Hann verður
vetrarmaður hjá Magnúsi
Finnbogasyni bónda á Lága
felli i Landeyjum.
Bragi hefur lokið búfræði-
námi við Háskólann í Winni-
peg, og í sumar starfaði
hann við bú föður síns. —
\Hann langar nú til þess að
kynnast íslensku búi, og hef
ur honum ekki verið í kot
visað. Á Lágafelli býr Magn
ús blönduðu búi, hefur sauð-
fé og nautgripi, og einnig er
hann þekktur hestamaður,
og frammámaður á Suður-
landi.
Lágafell er sem fyrr sagði
i Landeyjum, upp af Kross-
sandi, skammt frá Hvols-
velli, og þaðan sér í góðu
skyggni til Vestmannaeyja.
Bragi heldur til Islands
um miðjan þennan mánuð.
já
Var sumarkona
í Kanada
HERDÍS Þórhallsdóttir var
meðal þeirra, sem komu til
Winnipeg í lok mcdmánaðar
í vor, og hugðist vera hér
vestra í þrjár vikur. En að
þeim tima loknum afréð hún
að vera hér sumarlangt, og
réði sig í vinnu í Árborg, þar
sem hún starfaði mest allan
tíman, sem hún var hér, en
til Islands hélt hún aftur
fyrr i þessari viku.
Herdís er sjúkraliði að
mennt, og auk þess sem hún
tók þátt í bústörfum, þá ann
aðist hún sjúka og aldraða í
Árborg, og sveitunum þar
hjá. já
32 ára
pennavinur
HÚN er 32 ára, gift og
tveggja barna móðir, og
langar til þess að eignast
pennavin í Kanada. Henni
er alveg sama á hvaða
aldri hann er, og hvort
vinurinn er karlkyns eða
kvenkyns það skiptir ekki
máli.
Hún getur lesið ensku,
en skrifar bara íslensku.
hún heitir:
Guðleif Kristjánsdóttir,
Rauðalæk í Holtiun,
Kangárvallasýslu,
ICELAND
On your way to IMorway, Sweden
or Denmark.
Why settle for the usual? Make your
next trip to Scandinavia an exciting,
fun-filled and educational experience
' with a visit to Iceland. Stopover tours
of 1 to 3 days from $10 to $30. All fares
include room with bath/shower at First
Class Hotel Loftleidir, sightseeing trips
and 2 meals daily, transfers between
hotel and airport. Exclusive on Icelandic
Airlines for passengers flying from New
York or Chicago to Norway, Sweden or
Denmark. Now this tour is available on
the 22-45 day excursion fare. All rates
effective Oct. 1,1977.
Iceland-so much to see and do.
Volcanos, Viking museums, glaciers,
geysers, theater, concerts, art shows,
duty-free shopping, saunas and indoor
hot-spring pool at your hotel,
smorgasbord lunches. It’s the land of
Leif Ericson, settled by Scandinavians
in the year 874 A.D., where people speak
the unchanged Old Norse of more than
1,000 years ago.
No other scheduled airline jets to
Scandinavia at lower fares than we do!
See your travel agent or contact
Icelandic Airlines, 630 Fifth Avenue,
New York, N.Y. 10020. Phone
(212) 757-8585 or call (800) 555-1212 for
the Toll Free Number in your area.
Stop mer
in Iceland.
sIO a-day.
Icclandic
LOWESTJET FARES TO THE IIEART OF El’ROPE OFASY SCIIEDHLED AIRLIIVE.