Lögberg-Heimskringla - 01.12.1977, Blaðsíða 1
Bergateinn Jónseon
Box 218
Reykjavik, Iceland
1. DESEMBER -
FULLVELDISDAGUR ÍSLANDS
FULLTRÚI PÓSTÞJ6NUSTUNNAR
f HEIMSÓKN TIL
LÖGBERGS-HEIMSKRINGLU
sífellt reynt- að bæta þjónustuna við
áskrifendur blaðsins
91. ARGANGUR
WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 1. DESEMBER 1977
NUMER 41
ICELANDIC
CANADIAN CLUB
I TORONTO
FTJNDURINN f TORONTO, sem við sögðum frá í síðasta
blaði, gaf formanni félagsins vissulega, tilefni til að brosa.
Hann hafði sannarlega ástæðu til ]>ess að vera ánægður með
aðsóknina, en yfir hunrtrað manns sóttu fundinn, og er það
meiri funda.rsókn en nokkru sinni fyrr. Meðal fundarmanna
voru bæði ungir og gamlir, — ]>ar mátti t.d. s,já Ragnhildi
Guttormsson sem er orðin 91 árs, og ungt fólk var fjöl-
mennt. Á baksíðu blaðsins í dag birtum við frásögn af fund-
inum, á ensku, og einnig nokkrar myndir, sem teknar voru
á fundinum.
Bob MUler, presldent
Formaður félagsins, Bob
Miller stjórnaði fundinum,
og eftir stutta yfirlitsræðu
hans gafst ritstjóra Lög-
bergs-Heimskringlu tæki-
færi til þess að ávarpa fund
argesti, og siðan var kvik-
myndin “They shouldn’t call
Iceland Iceland” sýnd, og er
óþarft að taka fram, að
henni var mjög vel tekið,
eins og annars staðar, sem
hún hefur verið sýnd í Kan-
ada.
Undir lok fundarins ávarp
aði formaður félagsins við-
stadda, og þá alveg sérstak-
lega hjónin R. Cameron ög
Erlu Macaulay, og tilkynnti,
að þau hefðu verið gerð að
heiðursfélögum Icelandic
Canadian Club of Toronto.
Fór formaður lofsamlegum
orðum um framlag þeirra
hjóna til félagsmála Islend-
inga í Toronto, og nefndi
mörg dæmi um fórnfýsi
þeirra. Voru þeim einnig af-
hentar gjafir frá félaginu.
Mjög var ánægjulegt að
ræða við hina ýmsu félags-
menn á fundinum. Margvís-
leg málefni bar á góma, og
kom í Ijós mjög mismunandi
áhugi á Islandi og íslenskum
málefnum. — Má nefna sem
dæmi hjón, sem þarna voru,
bæði kanadísk, sem tekið
hafa ástfóstri við íslenska
hestinn, og hafa nýlega haf-
ið innflutning á hestum til
Kanada. 1 sumar dvaldi hjá
þeim islenskur tamninga-
maður, og gerðu þau sér von
ir um, að hann kæmi til
þeirra aflur síðar. Á öðrum
stað í blaðinu í dag er birt
bréf frá þeim, þar sem þau
óska eftir að komast í kynni
við þá, sem kynnu að eiga
íslenska hesta í Kanada. Þá
hittum við einnig mann, sem
kominn er talsvert framyfir
miðjan aldur, og hefur það
aðaláhugamál að læra ís-
lensku.
ÚTGÁFA BLADSINS
Að lokinni kvikmyndasýn-
ingunni voru tvö tölublöð-
af Lögbergi-Heimskringlu
lögð fram, og þá gafst rit-
stjóranum tækifæri til að
ræða um útgáfuna við fund-
armenn. Kom þá ýmislegt
fróðlegt fram, — þannig
voru til dæmis mjög skiptar
skoðanir á því, hvort megin-
efni blaðsins ætti að vera á
íslensku eða ensku. Virtust
samt flestir hallast að því að
íslenskan ætti að vera meira
ráðandi á síðum blaðsins, en
nauðsynlegt væri einnig að
hafa hluta efnisins á ensku.
Það kom einnig í ljós, að
meðal fundargesta voru ís-
lendingar, sem hafa verið
búsettir í Toronto i allt að
tíu ár og höfðu aldrei séð
Lögberg-Heimski'inglu fyrr
en þarna á fundinum. — Og
það er ánsegjulegt að geta
skýrt frá því, að eftir að
hafa skoðað blaðið á staðn-
um, þá óskuðu flestir þeirra
eftir því að fá það sent, og
bættust því við allmargir ný
ir áskrifendur á fundinum.
I forystugrein blaðsins i
dag er fjallað nánar um
þetta.
Daginn eftir fundinn gafst
undirrituðum tækifæri til
þess að hitta nokkra Islend-
inga að máli, og verður vænt
anlega unnt að birta meira
efni frá Toronto á næstunni.
já
fVAR
Ræðismannafélagið í New
York kaus nýlega ívar Guð-
mundsson, ræðismann Is-
lands í New York, forseta fé
lagsins, og er það í fyrsta
skipti, sem Islendingur er
kjörinn í það embætti.
Ræðismannafélagið í New
York er fjölmennasta félag
sinnar tegundar, og eru um
eitt hundrað ræðismenn með
aðsetur í New York. Venju-
lega eru það ræðismenn f jöl-
mennustu ríkja heims, sem
kosnir eru í embætti forseta
félagsins, og er þessi kosn-
ing Ivars mikil viðurkenning
fyrir hann, og þjóð hans.
Ivar Guðmundsson, sem ó-
þarft er að kynna fyrir les-
endum^L.H., mun gegna em-
bætti forseta ræðismannafé-
lagsins í eitt ár, samkvæmt
lögum félagsins. já
ERU ÞEIR LÉLEGIR
f KANADA ?
sjá bls. 3
ÞAÐ er kunnara en frá þurfi aö seg.ja, aÓ útgefendur Lög-
f ergs-Heimskrihglu leggja, allt kapp á góða þjónustu við
lesendur sína og áskrifendur. Stundum berast okkur kvart-
anir frá áskrifendum, sem fá ekki blaðið með skilum. Getur
þá hvort tveggja Aærið, að blaðið kemur ekki til þeirra fyrr
en seint og síðar meir, eða það berst alls ekld. Hvort tveggja
er auðvitað a.lls óviðunandi. Síðustu mánuði og vikur hefur
verið rcynt að gera nákvæma úttekt á póstmálunum, bæði
hvað snertir Kanada og Island.
Skemmst er frá því að
segja, að blaðið fer yfirleitt
alltaf á sama tíma frá skrif-
stofunni í Winnipeg, og eru
frávik ekki nema 1—2 á ári,
og oft alls engin. Blöðin, sem
fara til Islands eru send í
einu lagi og síðan er þeim
dreift frá umboðsskrifstofu
blaðsins í Reykjavík. Blöðin
eru ávallt send frá skrifstof-
unni í Winnipeg á sama tíma
á fimmtudögum, og daginn
eftir fara þau flugleiðis til
Chicago, og þar eru þau af-
greidd um borð í Flugleiða-
vél. — Þannig hafa þau til
skamms tíma farið frá Chi-
cago á föstudagskvöldum,
eða daginn eftir útkomudag.
Nú hefur áætlun Flugleiða
hins vegar breyst nýlega, og
föstudagsferðin var lögð nið
ur, svo blaðið kemst ekki frá
Chicago fyrr en á þriðjudegi
núna yfir vetrarmánuðina.
Pelletier
kom í heimsókn
Sem fyrr segir, þá er búið
að ganga frá öllum blöðun-
um frá skrifstofunni sama
daginn og blaðið kemur úr
pressunni. — Það er komið á
pósthúsið í Winnipeg síðdeg
is þessa daga, fimmtudaga.
Áskrifendur sums staðar í
Manitoba, og annars staðar
í Kanada, hafa kvartað und-
an þvi, að blaðið berist ekki
fyrr en mörgum dögum eft-
ir útgáfudag, og stundum líð
ur jafnvel enn lengri timi. —
Við höfum oft kvartað við
póststjórnina, og siðast var
óskað eftir því, að póststjórn
Framh. á bls. 5