Lögberg-Heimskringla - 20.10.1978, Blaðsíða 1

Lögberg-Heimskringla - 20.10.1978, Blaðsíða 1
Preserves Heritage — Assures Future 92. árgangur Winnipeg, föstudagur 20. október 1978 Númer 33 ALÞINGI KEMUR SAMAN í HUNDRAÐASTA SKIPTI Alþingi, hundra-ðasta lög- gjafarsanikoma Islendinga, var sett 10. október sl. Marg ir nýjir alþingismenn voru kosnir í síðustu kosningum, 25. júní, og er almennt talið, að sumir þeirra eigi eftir að setja svip á störf þingsins að þessu sinni. Ríkisstjórn sú, sem nú sit- ur að völdum á Islandi, var mynduð 1. september. Ráð- herrar eru níu, og þar af eru átta, sem ekki hafa gegnt ráðherraembættum fyrr. Að eins einn hefur verið í ráð- herrastóli áður, forsætisráð- herrann, Ölafur Jóhannes- son. Þá eru fjórir ráðherr- anna einnig nýliðar á þingi. Þrír flokkar eiga aðild að ríkisstjórn Islands, Fram- sóknarflokkur, Alþýðuflokk- ur og Alþýðubandalag. — Nokkrir þingmanna Alþýðu- flokksins hafa þegar lýst yf- ir þvi, að þeir styðji ekki stefnu stjórnarinnar i veiga- miklum málum, og einn þeirra hefur lýst þeirri skoð- un sinni að ríkissjórnin sé byggð á sandi. Spáir hann henni skammlífi. Hvað sem því liður má vafalaust búast við átökum á þinginu í vetur, og verður fróðlegt að fylgjast með því, hvort nýliðarnir, um þriðj- ungur allra þingmanna, láta verulega að sér kveða. jó HÁSÆTISRÆÐAN VELDUR VONBRIGÐUM eitthvaö á þá leið, að nú væri ljóst að ástæðan fyrir því, að Trudeau kaus að hafa ekki haustkosningar væri sú, að hann hefði verið hræddur um fylgishrun. — yHann hefði að minsta kosti ekki frestað kosningunum vegna þess að fram hefði átt að færa nýjan boðskap við þingsetninguna i Ottawa. Þegar þetta er skrifað er ekki vitað um úrslitin í auka kosningum, sem fram fóru í sumum fylkjum Kan- ada 16. þessa mánaðar, en úrslit þeirra munu vafalaust hafa talsverð áhrif á úrslit sambandskosninganna á næsta ári. Eitt af þvi, sem vakti at- hygli við skoðanakannanir fyrir fyrrgreindar kosningar var, hve margir kjósenda, sem spurðir voru, höfðu ekki gert upp hug sinn. — Aðeins nokkrum dögum fyr- ir kosningar voru sumstaðar allt að 35% kjósenda ó- ráðnir og er það talið veikja stöðu frjálslynda flokksins og Trudeau. já Trudeau Kanadíska þingið hefur einnig tekið til starfa að loknu þinghléi. Ríkisstjórinn flutti hefðbundna hásætis- ræðu sína við þingsetning- una og voru stjórnarand- stæðingarnir ekki seinir á sér að gefa út yfirlýsingar í fjölmiðlum strax að henni lokinni. Það var samdóma álit. þeirra, að í ræðunni hefði engan nýjan boðskap verið að heyra. Sumum þeirra fannst ræðan bera vott um uppgjöf núverandi ríkis- stjórnar Trudeaus, og lýstu yfir vonbrigðum sinum með það, að ekki skyldi boðuð ný stefna í sambandi við efna- hagsmál þjóðarinnar og at- vinnumál. Foringi stjórnarandstöð- unnar sagði meðal annars TIL ÁSKRIFENDA Á ÍSLANDI Áskrifendur Lögbergs- Heimskringlu á Islandi eru beðnir um að snúa sér til skrifstofu blaðsins að Dúfnahólum 4 í Reykja- vík, sími 7 4153, ef þeir vilja greiða áskrifta<rgjald sitt. Þangað geta líka nýir áskrifendur snúið sér. Skyldu einhverjir vilja koma efni á framfæri í blaðinu, þá eru þeir beðn- ir að senda það til Bimu Magnúsdóttur, Dúfnahól- um 4 Reykjavík, eða. beint á ritstjórnarskrifstofuna í Winnipeg: NEW ADDRESS: Lögberg-Heimskringla Publishing Co., 1400 Union Tower Bldg. 191 Lombard Avenue, Winnipeg, Manitoba, R3BÖX1 ! PRODUCT OFICEIAND I IHADEIN CANAOA I ÞESSU tölublaði er skýrt frá því í máli og myndum, er efnt var til sumarnámskeiðs fyrir unglinga af íslenskum ættum skammt frá Gimli. Þetta er árleg hefð, og í sumar þótti námskeiðið takast einkar vei. Á blaðsíðu tvö er ítar- leg grein um námskeiðið, skrifað af Lornu Tergesen, en á hennar herðum hvíldi undirbúningur að langmestu leyti. Fyrirsögnin með þessari grein er fengin að láni hjá kanadískum unglingum af íslenskum ættum. — Margir þeirra voru í svonefndum T- skyrtum á Islendingahátíð- inni á Gimli i sumar, og mátti þá sjá margs konar myndir og áletranir á skyrt- um þeirra. Ein áletrunin var á sömu leið og fyrirsögnin. A námskeiðum þessum er unglingunum kennd íslenska þ. e. að svo miklu leyti sem það er unnt á aðeins einni viku, — farið er í skoðunar- ferðir um Nýja-lsland, og þeim er sagt frá sögu lands og þjóðar. Eit. af þvi, sem vakti verð- skuldaða athygli á þessu síð- asta námskeiði, og mæltist vei fyrir meöal þátttakenda var fræðsla um íslenskt jóla-, hald. Jólahald á íslandi er að mörgu leyti frábrugðið því, sem fólk hér á að venjast og mun æði misjaft meðal Kan- adamanna af íslenskum ætt- um, hvort þeir halda jól ennþá að einhverju leyti upp á íslenskan máta. Á flestum bæjum mun svo ekki vera, og þótti því vel til fallið að fræða aðra og þrið- ju kynslóðina um jólasiði í gamia landinu. Brugðið var upp mynd af helstu þjóðlegheitum jól- anna, — jólatré var skreytt og börnin skiptust á smá- gjöfum. Myndin hér að ofan var tekin af nokkrum þátttak- enda, er þeir litu við hjá Víkingnum á Gimli, og má þar sjá margt. broshýrt and- litið. Geta má þess, að fylkis- stjórnin í Manitoba hefur veitt fé til styrktar þessari starfsemi, og svo mun sam- bandsstjórnin einnig hafa gert. Sams konar námskeið er fyrirhugað næsta sumar, og verður það sennilega haldið á svipuðum slóðum. já

x

Lögberg-Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.