Lögberg-Heimskringla - 15.02.1980, Page 8

Lögberg-Heimskringla - 15.02.1980, Page 8
Subscribers in: CANADA, ICELAND, IJ.S.A. and more than 20 other countries in EUROPE, AFRICA and ASIA Högbers-^emtöknngla 5383 1383 Icelandic weekly Föstudagur 15. febrúar, 1980 AFGREIÐSLA Á ISLANDI: Birna Magnúsdóttir, Dúfnahóium 4, Reykjavík, Sími (91) 74153 Ámi Bjarnarson, Norðurgötu 48, Akureyri, Sími (96) 23852 Árni Bjarnarson bókaútgef- andi á Akureyri varð sjötug- ur þann 4. febrúar sl. Hann er kunnur maður bæði heima á íslandi og hér vestan hafs- ins. Ég kynntist honum fyrst ungur að árum. Þá sá ég af honum mynd í riti Jónasar Jónassonar frá Hriflu Vöku. Undir myndinni minnir mig að stæði „afreksmaður núm- er 1.” Þetta hefur sjálfsagt verið um 1940. Rétt í þessu var ég að skoða alveg nýja mynd af Árna. Hún færði mér heim sannin um að hann hafi ekkert breyst síðustu fjörutíu árin, og nú vil ég skipa hann aftur afreksmann númer eitt því að honum tókst að ljúka útgáfu sinni á Almanaki ölafs Thorgeirs- sonar rétt fyrir sjötugsaf- mælið. Þetta er engin smá- ræðis útgáfa, því að bindin eru alls 60 að tölu og ná frá 1895 til 1954. Mest er þó um þuð vert hversu vandað hef- ur verið til þessa verks. Árni Bjarnarson hefur um áratugabil unnið að útgáfum á vestur-íslenskum fræðum og ritum. Hann var einn að- alhvatamaður að útgáfu Vestur-lslenskra Æviskráa. I-IV, hefur gefið út á prent verk Jóhanns Magnúsar Bjarnasonar í nýrri útgáfu og endurútgáfa hans á Fram fara, elsta vestur-íslenska blaðinu, sem hann færði okkur hingað vestur í fyrra, er til hreinnar fyrirrnyndar. Er þá hér aðeins fátt eitt tal- ið. 1 nýlegri ritgerð sem Árni skrifaði um hina nýju út- gáfu á Aimanakinu farast honum svo orð: „Ekki er hægt að skilja við upptalningu á efni Alman aksins án þess að geta um ýmislegt fleira sem gerði það að öndvegisriti. Má t.d. nefna Eddu á Akurejri 140 langa ævisöguþætti ís- lenzkra og erlendra merkis- manna, ásamt myndum þeirra, sem kunnir menn rit- uðu, yfir 190 fróðleiksþætti, gamla og nýja, ferðasögur vesturfara, senaibréf, sagna- þætti og þjóðsögur, sem að mestu gerast heima á Islandi skáldsögur og ævintýri, ljóð og lausavisur og skemmtiefni , og margskonar fræðandi smælki. Að lokum allt mynda safnið nokkuð á fimmta hundrað talsins, þar á með- al af fjölmörgum iandnáms- mönnum vestra og öðru merkisfólki. . Ýmis blöð og tímarit báð- um megin hafsins hafa á liðn um árum skrifað lofsamlega um Almanakið og hið gagn- merka starf útgefandans að bjarga frá glötun ýmsu þjóð- legu éfni er landnemarnir fluttu með sér yfir hafið, og birta það í ritinu. Hafa allir Iokið upp einum munni um menninguihlutverk Alman- aksins enda verður það jafn an í tölu merkpstu rita síð- ari tíma. Ámi Bjarnarson Útgáfa Almanaksins hætti 1954, og hefur þetta ágæta rit ekki komið út í nær ald- arf jórðung. Allir, sem ein-, hver kynni höfðu af því, hafa saknáð þess. Bókamenn hafa á undanförnum árum reynt mjög að ná því saman og eignast heiít í safn sitt, en það hefir gengið erfiðlega, sérstaklega hvað fyrstu ár- gangana snertir...” Öiafur Sigtryggur Þorgeirs son, útgefandi Almanaks Öl- afs Thorgeirssonar í Winni- peg, var fæddur á Akureyri 16. september 1864. Foreldr- ar hans voru hjónin Þorgeir guiismiöur Guömundsson og Sigríður Ólafsdóttir af hinni svonefndu Hvammsætt. For- eldrar hans munu h^fa búið á Akureyri alla tíð frá því að þau giftust og þangað til þau fluttu alfarin af landi burt. Ólafur fluttist vestur hing- að og kom til Winnipeg 5. nóvember 1887. „Hann var einn af stofn- endum Lögbergs 1888 og framkvæmdastjóri prent- smiðju blaðsins sem hann veitti forstöðu í 17 ár til árs- ins 1905. En 1894 hóf hann að undirbúa útgáfu Alman- aks þess er við hann er kennt og kom fyrsti árgang- urinn út 1895. Var hann allt í senn prentari, ritstjóri og útgefandi og var svo meðan hann iifði. Árið 1905 sagði Ólafur lausri stöðu sinni við prent- smiðju Lögbergs og kom á fót sinni eigin prentsmioju. Var honum sá einn kostur, eða hætta við útgáfu Alman- aksins, sem farin var að krefjast mikils tíma. Stóð prentsmiðjan fyrst á bak við heimili hans að 678 Sherbro- ok stræti, en var síðar flutt að 674 Sargent Avenue. Tók hann að sér prentun af ýmsu tagi og stofnaði jatnhliða ís- lenzka bókaverzlun og lagði mikla alúð við hana í mörg ár, en eigi mun hún hafa orð ið honum arðsæl. Jafnframt því hóf hann bókaútgáfu auk Almanaksins og gaf út all- margar góðar bækur af ýmsu tagi en auk þess skemmtirit- ið ,Syrpu’ í 9 ár. Hann prent- aði meðal annars tímarit séra Friðriks Bergmanns, Breiðablik ,sem þótti þá það vandaðasta sem gefið var út á íslenzku. Kom það út í 8 ár. Ólafur var skipaður ræðis- maður Dana í Siéttufyikjun- um frá 1914-1924. Þá sagði hann því starfi lausu, sem hann hcifði leyst af hendi með miklum sóma, eins og allt annað sem hann lagði hönd að. — 1 viðurkenning- arskyni var hann sæmdur riddarakrossi Dannebrogs- orðunnar. Ólafur kvæntist 8. októ- ber 1888. Var kona hans Jakobína Guðrún Jakobsdótt is frá Rauf á Tjörnesi og fluttist vestur um haf 1884. Þuu eignuðust 8 börn, sem öll eru nú látin nema ein dóttir. Hann andaðist 19. febrúar 1937. Ólafs verður lengi minnst af íslendingum austan hafs sem vestan fyrir þau mörgu menningar- og hugsjónar- störf sem hann studdi og vann að á langri ævi, en út- gáfa Almanaksins mun þó fremur öllu öðru halda á lofti nafni hans og minningu um ókomin ár.” Við óskum Árna Bjarnar- syni til hamingju með afmæl ið og þökkum honum giftu- drjúgt starf. H.B. ICELANDIC CONTENT Interview with Maddy Arnar Guðrun Jörundsdottir has an interview with Mrs. Maddy Arnar of Minneapolis. For many years Mrs. Arnar has been an effective promoter of Icelandic culture in the Twin Cities area. THE FOURTH PRESIDENTIAL CANDIDATE Theatre director Vigdis Finnbogadottir of Reykjavik has announced that she will be among those running for the Icelandic Presidency later this year. GUNNAR THORODDSEN TRIES TO FORM CABEMET The Icelandic President has asked former leader of the Conservative party, Grunnar Thoroddsen, to try to form a new government. The previous four attempts to form a cabinet have been unsuccessful. North American - ICELANDIC A belated instalment summarizes the earliest policies on language preservation in North America Icelandic communities. THE EDITORIAL In a brief survey of recent film releases in Iceland it is pointed out that Icelandic government authorities appear to have adopted a favourable view of the rapidly expanding film industry in Iceland. The question is also raised whether foreign film makers should have unlimited access to Icelandic territory. Arni Bjarmason Attention is drawn to Arni Bjarnason’s important reproductions of North American-Icelandic writings. This month Arni celebrated his 7oth birthday. A congratulatory message is therefore in order.. GOLDEN WEDDING ANNIVERSARY Mr. and Mrs. Kristinn Oddson of White Rock, B.C. celebrated their 50th wedding anniversary last Christmas.

x

Lögberg-Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.