Lögberg-Heimskringla - 07.03.1980, Side 2

Lögberg-Heimskringla - 07.03.1980, Side 2
Lögberg-Heimskringla, föstudagur 7. mars, 1980 UPPRUNI (SLENDINGA UM KENNINGAR BARÐA GUÐMUNDSSONAR Höfundur Gunnar Gunnarsson ÞRIÐJI HLUTI Ólæknandi elli 1 frásögn sinni af Gotastríð- unum greinir Prókópius frá Herúlum, sögu þeirra, hátt- erni og siðum. Getur hann þess meðal annars, að með þeim hafi sá siður rikt, að þá er menn hafi verið orðn- ir hrumir af elli eða sjúkir, hafi þeim ekki verið unnt lífs. Hlaðinn hafi verið bál- köstur mikill og þar á lagð- ur sá, er ekki þótti lengur alandi. Síðan var sent eftir einhverjum honum- óskyld- um og var það hlutverk þess að drepa þann, er á kestin- um lá. Það þótti hins vegar ekki við eiga að láta ættingja gegna böðulsstarfi þessu. Að drápinu loknu þustu ætt- menni hins látna síðan að kestinum og lögðu eld að. — Þegar eldurinn var slökknað ur, voru bein hins brennda tínd saman og lögð í gröf. Þá getur Prókópíus þess, að það hafi þótt hæfa ekkju hins látna Herúla, ef hún vildi halda virðingu sinni og sóma að hún svipti sig lifi fljótlega eftir dauða maka síns með því að hengja sig við gröf hans. Sá siður, að konur hengdu sig að mönnum sín- um dauðum minnir á sögn- ina í Hervarar sögu um kon- una, sem var svo reið eftir fall föður síns, að hún hengdi sig sjálf í dísarsal- Þessi siður Herúla að drepa fordæmda menn kem- ur vel 'heim við frásögn Snorra: Óðinn varð sóttdauð ur í Svíþjóð. Og er hann var kominn að dauða, lét hann marka sig geirsoddi og eign- aði sér alla vopndauða menn. Um Njörð segir Snorri svip- að: Njörður varð sóttdauður. Lét hann marka sig Óðni, áður en hann dó. — Svíar brenndu hann og grétu all- mjög yfir leiði hans. Sá sið- ur, að aldraðir menn og sjúk ir séu drepnir og síðan brenndir, mun vera einstæð- ur meðal Herúla og bendir til þess, að Snorri hafi mjög stuðzt við fornar arfsagnir af þessum þjóðflokki. Þann- ig er einnig um að ræða mik- ilvæg rök fyrir 'því, að Islend ingar séu af Herúlum komn- ir. Takmörkuð konungshylli Enn eitt atriði í sögu Prókó- píusar af Herúlum vekur at- hygli, þegar haft er i huga konungsleysi Islendinga. — Getur hann þess, að Herúla- konungar hafi mátt sín held- ur lítils og yfirleitt hafi menn talið sig jafn réttháa konungi sínum. Eitt sinn tóku Herúlar sig til og drápu konung sinn (kóng þennan nefnir Prókópius ÓChus), ekki fyrir það, að konungur hefði gert neitt af sér, held- ur einungis vegna þess, að þeir kváðust ekki vilja hafa yfir sér neinn konung leng- ur. Herúlar iðruðust 'þó þessa frumhlaups og létu senda eftir nýjum konungi- — Að sögn Prókólíusar var ferð gjör til “Thule” til að ná í nýjan kóng. Með konungsöfl- un þessari er látin fylgja lýsing á Thule, lifnaðarhátt- um manna þar og siðum, en hún er það furðuleg, að ó- þarfi er að láta hana fylgja með hér. Hvað varðaði óskir Herúla um konungsleysi, þá áttu þær ekki eftir að ræt- ast fyrr en á níundu öld norð ur á Islandi. Germania I „Germania” ræðir Tacitus um guði norrænna manna. Telur hann Merkúr (Óðin) hafa verið þeirra æðstan og hafi honum verið færðar mannfómir. — Kemur þetta heim við frásögn Prókópíus- ar af guðum Herúla, en hann getur þess, að 'þeir hafi tilbeðið fjölda guða og fórn- að þeim mönnum. Næstan Merkur telur Tacitus Mars (Tý) standa og þann þriðja nefnir hann Herkúles (Þór) Þeir Mars og Herkúles voru blíðkaðir með dýrafórnum. — Einnig getur Tacitus um gyðjuna Nerþus, sem er sama nafnið og Njörður, að- eins eldri mynd, og eftir lýs- ingu Tacitusar er Njörður ó- tvírætt frjósemigoð. Á land- námsöld Islands voru Þór, Óðinn og Freyr höfuðguðir Norðurlanda. Njörður virðist einnig hafa verið allmikið tignaður, þótt dýrkun hans hafi verið farin að þverra. Á Islandi er hvergi getið um dýrkun Njarðar, en hins vegar skal hafa það í huga, að i eiðstaf íslendinga, sem hver maður, er vann lögeið, varð að hafa yfir, voru goðin svo ákölluð: „Hjálpi mér svo Freyr og Njörður og inn al- máttki áss” örlar hér fyrir dýrkun Herúla á frjósemi- guðinum Nirði. Nú skiptir það ekki höfuð- máli, þó ekki takist að sýna fram á dýrkun Herúlagyðj- unnar Merþusar í mynd Njarðar á íslandi, þvi auk hans voru Vanagoðin Freyr og Freyja arftakar frjósemi- gyðjunnar í trúarlífi for- feðra okkar. Tacitus greinir svo frá: „Kem ég þá aftur að austurströnd svefneska hafs- ins. Verða þá fyrir oss eist- neskar þjóðir, er við það haf byggja, hafa þær á sér snið Svefa og háttemi allt, en fremur líkist tunga þeirra hirmi brezku. Þeir tigna móð ur guða (Nerþus, sem Tacit- us nefnir einnig „móður jörð”), og til merkis um á- trúnað sinn bera 'þeir á sér líkan villigcdtar. Kemur það þeim í vopna stað og er vörn þeirra í hvívetna. Það gerir átrúendur gyðjunnar óhulta, þótt meðal óvina sé.” Svin og frjósemi Meðal forfeðra vorra var svinaátrúnaður traustlega tengdur dýrkun Vanagoð- anna. Freyja og gyltan eiga samheitið Sýr, en Freyr og gölturinn samheitið Vaningi. 1 fylgd beggja goðanna er gölturinn Gullmbursti eða Hildisvín. Leifar hinnar fornu frjó- semidýrkunar heldur Barði Guðmundsson fram, að birt- ist í bæjarnöfnum á íslandi, Saurar, Saurbær, Sýrströnd, Súrnadalur- — Hefur Barði þetta eftir Guðbrandi Vigfús syni úr ritgerðinni „Um tíma tal í íslendingasögum”, er Guðbrandur getur útkomu Þurbjarnar súrs úr Súrna- dal: „Vér höfum fyrir satt, að hvarvetna á Islandi og Noregi, þar sem örnefni eru kennd líkt þessu, hafi í fyrnd inni verið Freysblót og átrún aður á þau Freyju meiri en á öðrum stöðum.” Þá getur Barði þess, að í fjarlægri forneskju hafi hin skyni gædda mannvera hlot- ið að veita því eftirtekt, að skit og vatni fylgdi sérstak- ur gróðrarkraftur. — Þess vegna munu náin tengsl hafa myndazt í hugarheimi manna milli skíts, gróðursæls vot- lendis, hins gróskumikla ill- gresis, votlendisjurta og fag- urgrænu dýjanna. Allt sam- an hlýtur sama heiti, og það heiti er tákn frjóseminnar. Saur, samheiti fræja og sæð- is manna, er sýnilega af sama toga spunnið. Þar sem lífskratturinn og gróandinn gerðu berast vart við sig, hafa frumstæðir forfeður ætl að, að vættur frjóseminnar væri. Sú vættur hefur eitt sinn borið nafnið Saur og verið dýrkuð. Þá merkingu orðsins saurs sem líkamleg eða andleg óhreinindi telur Barði trauðla vera ýkja gamla og kennir hann þar um áhrifum hinnar kristnu kirkju, þ.e. það ógeðfellda hlutskipti, sem saur hefur hlotið í máiþróuninni. Hin forna saurtrú var nátengd kynferðislííinu og hlaut því að mæta megnustu andúð hjá kristnum mönnum- „Að „blóta heilög goð” eru sam- farir manns og konu kallað- ar í vísu einni í Ragnars sögu. Orðbragöið bendir til fornra tengs'a milli blóta og „saurlífis”. Við Freysblót meðal Svía hyggja fróðir menn, að samræöi hafi átt sér stað sem eins konar helgi athöfn.” Hof og kirkjur Hafi orðið saur látið svo illa í eyrum heiðinna manna sem kristinna eftirkomenda, mundi engin haíá auðkennt heimili sitt með slikum ó- fögnuði, og telur Barði sér ekki grunlaust um það, að stundum haíi menn þurrkað saurheiti af bæjum sínum. — Þá segir hann það ætlun merkra fræðimanna, að kirkjur hafi gjarnan verið reistar á heiðnum helgistöð- um eða í námunda við þá. — Séu íslenzku hof-bæjirnir prýðilegt dæmi þess. Vitnar Barði i athugun Olafs Lárus sonar á tölu fornra kirkju- staða meðal ýmissa bæjar- nafnaflokka landsins. Af hof bæjunum reyndust 37.5% kirkjustaðir. — Næstflest kirkjubýli voru í flokki ,fell’ bæjanna, en athyglisverður er sá fjöldi kirkjustaða, sem er af ,saur’-bæjarflokknum, 26.4%, eða helmingi fleiri en kirkjubýli “fell”-bæjanna- — Þá megi og geta þess, að flestir þeir saurbæir, sem ekki er vitað um, að verið hafi kirkjubýli, liggja mjög nálægt tornum kirkjum, og um einn sé það kunnugt, að þar var bænhús forðum. Fjölda fleiri dæma um tengsl svínadýrkunar, frjó- semidýrkunar og átrúnað á Frey og Freyju telur Barði fram máli sínu til stuðnings. 1 kaflanum um Freysdýrkun í bók sinni „Heiðinn siður á Islandi”, rennir Ólafur Briem einnig stoðum imdir kenningcu- Barða. Þannig má segja, að gerð hafi verið nokkur skil þeim þætti forns átrúnaðar, sem ^rekja má frá Svartahafi til Islands, frá forfeðrum vor- um Herúlum til íslenzkra landnámsmanna. Eftirmáli Eríitt er að gera viðunandi skil hinum frjóu hugmynd- um Barða Guðmundssonar í stuttri grein og verður það, sem komið er, látið nægja. Við lestur bókar Barða verð- ur vart hjá þvi komizt að trúa þeirri staðhæfingu hans, að „þjóðin sé eldri en Islands byggð”, enda færir hann máli sínu til stuðnings fram fjölda fleiri kenninga en þær sem að ofan hefur verið á drepið. Þess má og geta, að þrátt fyrir sýnilegt hirðu- leysi almennt á þessum kenn ingum, hefur Barði Guð- mundsson haft áhrif, sem trauðla munu hverfa spor- laust. Þess bera vitni rit þeirra dr. Kristjáns Eldjárns og Ólafs Briem, eins og að ofan er getið, og við lestur bókar Sigurðar Nordals, „Is- lenzk menning”, verður á- hrifa Barða gjörla vart. Trú- lega mun þó enn verða nokk- ur bið á því að kenningar Barða nái almennri hylli, a. m k. meðan menn láta trúna á norskan uppruna Islend- inga villa svo fyrir sér, að þeir sjái ekki lengra nefi SÍnu. Vart mun hins vegar hjá því fara, að sá götuslóði, sem Barði sá glitta á inn í rökkur heiðinnar fyrnskú, verður fjölfarnari er á líður. ICELANDIC NATIONAL LEACHE Arborg and Gimli Chap^C^sN^ Present aWv* Mid IVinter Dinm Saturday, ARBORG TY HALL itoba ;ets phone: Lö^jak^^í^PFnskringla ph. 943-9945 GaK^^Niriting Arborg ph. 376-5280 Vikíng Travel Gimli ph. 642-8276 3ZD

x

Lögberg-Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.