Lögberg-Heimskringla - 05.02.1982, Síða 1
Sedlabanki Island!
AdalSkrifstcfa
Austurstraeti li
neykjavik Iceland
Pd 198
Löqberq
LÖ( HEl l L leii dBERG Stofn MSKRINGLA ns að 14. janúí Stofnað 9. krin ir 1888 september 1886 gla
96. ARGANGUR
WINNIPEG, FÖSTUDAGUR 5. FEBRUAR 1982
NÚMER 4
Vinna stuttar kvikmyndir um
Helga Tómasson, balletdansara og
Valdimar Björnsson í Minneapolis
Tveir íslenskir kvikmynda-
gerðarmenn, Valdimar Leifsson og
Haraldur Friðriksson, vinna um
þessar mundir að gerð tveggja heim-
ildarmynda. Önnur er um Helga
Tómasson balletdansara í New
York. Hin er einskonar viðtalsþáttur
við Valdimar Björnsson, fyrrverandi
fjármálastjóra Minnesotafylkis. Þeir
Valdimar og Haraldur dvöldu um
hríð í New York og fylgdust með lífi
og starfi Helga Tómassonar, en eins
og kunnugt er dansar Helgi hjá New
York City Ballet og hefur náð mjög
langt í sinni listgrein.
Myndin um Helga verður
væntanlega 45 mínútna löng og
reikna framleiðendur með að hún
verði fullgerð á þessu ári. Helgi
Tómasson er væntanlegur til íslands
í mars og mun dansa í
Þjóðleikhúsinu. Þaf verða dans-
atriðin tekin upp og eftir það telja
Valdimar og Haraldur að loka-
vinnsla geti hafist.
Myndin um Valdimar Björnsson
er einkar áhugaverð fyrir alla
íslendinga. Valdimar er sérstaklega
fróður um sögu Vestur íslendinga og
Valdimar Björnsson
kann frá mörgu að segja. Stjórnmál
lét hann snemma til sín taka og var á
sínum tíma í fraipboði til ríkis-
stjóraembættisins í Minnesota. Þá
Hópur íslenskra bænda er
væntanlegur til Calgary, Alberta í
ágúst, næstkomandi. Eins og
mörgum Vestur-íslendingnum er
sjálfsagt enn í fersku minni þá kom
álitlegur hópur bænda frá íslandi
árið 1975 og ferðaðist m.a. um
Wynyard og nágrenni, og töluvert
um íslendingabyggðir í Manitoba.
í sumar er hins vegar ætlunin að
dveija um hríð í Alberta en leggja
svo á brattann og halda til
vesturstrandarinnar. Þaðan verður
svo ekið til Seattle sem væntanlega
verður lokaáfangi bændanna að
þessu sinni. Nýlega barst blaðinu
ágætt bréf frá Stefáni Jasonarsyni í
Vorsabæ og segir hann m.a:
"Árið 1975 tók ég þátt í hópferð
íslensks bændafólks frá íslandi til
Canada. í móttöku í þinghúsinu í
Winnipeg hitti ég að máli þáverandi
ritstjóra og fannst fróðlegt að heyra
hvað blaðið er ríkur þáttur í hugum
Vestur-íslendinga og ómetanlegur
hlekkur í samstarfi Austur-og
Vestur-Islendinga.
Kynnisferðir milli íslands og
Kanada eru fróðlegar og treysta
ættarböndin.
Á næsta sumri er fyrirhuguð ferð
bændafólks frá Islandi til Calgary í
Albertafylki. Komið verður við á
samkomunni þegar hús Stefáns G.
verður formlega tekið í notkun sem
mynjasafn. Þaðan verður svo haldið
vestur á bóginn til Vancouver og
skoðað það markverðasta á þeim
fylgist Valdimar mjög vel með
stjórnmálum á Islandi og viðskipti
hans við íslenska stjórnmálamenn
hafa alla tíð verið mikil.
slóðum.
Mikill áhugi er á þessari ferð,
enda er okkur, sem fórum í
hópferðina árið 1975, enn í fersku
minni þær frábæru móttökur sem
við fengum í Kanada.
Nokkrir af gestgjöfum okkar hafa
komið til íslands síðan og hefur þá
Báðar þessar myndir virðast
áhugaverðar og vonandi gefst okkur
hér fyrir vestan haf tækifæri til að
sjá þær.
verið gaman að rifja upp gömul
kynni. Þó löndin okkar séu ólík að
gerð og gæðum, er íslensk gestrisni í
hávegum höfð, bæði austan og
vestan Atlantshafsins."
Nánar verður greint frá þessari
bændaför þegar frekari upplýsingar
berast blaðinu.
íslenskir bændur heimsækja
Kanada í sumar