Lögberg-Heimskringla - 28.01.1983, Side 3
WINNIPEG, FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR 1983-3
Avarp forseta Islands Vigdísar
Finnbogadóttur á nýársdag
Tíminn og minningarnar
Vigdís Finnbogadóttir
Góðan dag góðir íslendingar.
Ég óska öllum landsmönnum
gleðilegs árs. Þegar nýtt ár gengur nú
í garð, býr mér engin ósk dýpra í
hjarta en að okkur íslendingum
takist með samstöðu og sameiginlegu
átaki að vinna bug á örðugleikum,
sem að sfeðja — að árið færi okkur
trú á bjarta daga þar sem friður og
samlyndi sitji í öndvegi.
Það var eitt sinn fyrir allmörgum
árum að eldri maður, sem hafði yndi
af því að spjalla við börn og reyna
ályktunarhæfni þeirra, spurði ungan
samferðamann sinn: ,,Hvert fer
tíminn?" Sveinninn ungi hugsaði sig
um dágóða stund og svaraði síðan:
,,Hann fer í minningarnar". ,,En
hvert fara þá minningarnar?" spurði
maðurinn. Eftir nokkur heilabrot
svaraði sveinninn: ,,þær fara í mann-
kynssöguna". Þetta þótti lífsreyndum
manni gott svar og sagði börnum
sínum, sem síðan hafa sagt það
sínum börnum.
A fyrsta degi nýs árs hugleiðum við
venju fremur tímann, hvernig hann
hefur liðið og hvað hann kunni að
bera í skauti sínu í framtíð: þessi
óstöðvandi tími sem er eins og fugl
sem aldrei tyllir sér niður eitt andar-
tak heldur er horfinn út í bláinn fyrr
en varir og orðinn að fortíð. Hann er
sameign okkar allra á jörðunni,
oslitin keðja sem tengir alla atburði
lífsins. í mynd reynslu og minninga
er hann lærifaðir okkar sem heldur
okkur sístarfandi við að móta okkur
og gera okkur samtíðina skiljanlega.
Því er jafnan vert að spyrja hvernig
við fáum best gert tímann að minn-
ingum sem eru þess virði að þeim sé
haldið til haga. Það er hollt að reyna
að átta sig á því hvort þær leiðir sem
farnar hafa verið séu hinar einu rét-
tu og hvort ekki sé unnt að velja betri
leiðir eða ryðja enn fleiri.
Hér á Bessastöðum leita minning-
ar um liðinn tíma einatt á hugann.
Staðurinn er svo nátengdur sögunni
um afkomu íslensku þjóðarinnar. I
raun og veru greina minningar
Bessastaða skýrast sögustaða okkar
frá því hvaða leið kynslóðirnar hafa
gengið síðan norrænir menn höfðu
valið sér íslenskt þjóðerni og fest
rætur í landinu. Rismikið blómaskeið
þjóðarinnar á miðöldum tengist
Bessastöðum, þegar staðurin var í
eigu Snorra Sturlusonar, því næst
daprar aldir örbirgðar, doða og sinnu-
leysis, þegar þjóðin hafði gefið líf sitt
og vinnuþrek erlendu konungsvaldi.
Enn eru Bessastaðir sögustaðurinn
mikli þegar íslensk þjóð rumskar eftir
langan svefn og vaknar til dáða
með frelsishugsjón að leiðarljósi. Með
hlýju og stolti hugsum við til þeirra
æskumanna sem hér gengu um dyr
í gömlu Bessastaðastofu eins og hún
enn stendur, Latínuskólanum gamla,
í byrjun 19. aldar og síðar urðu
ritsnillingar, stórskáld og þjóð-
málafrömuðir.
Þegár þeir stofna Fjölni á Kaup-
mannahafnarárum sínum og senda
heim til íslands er það megin-
markmið þessa ,,ársrits handa íslend-
ingum" ,,að vekja andann með
þjóðinni" eins og þeir komust að
orði. Þeirra tímar, timar Jóns Sigurðs-
sonar og þeirra ótalmörgu sem hver
fram af öðrum, áratug eftir áratug,
unnu að því frelsi þjóðarinnar sem
við njótum nú, hafa vissulega orðið
að minningum sem aldrei fyrnast.
Þegar svo loks að því kom að
langþráð lýðveldi fullfrjálsra ís-
lendinga var endurreist, höfðu
Bessastaðir verið færðir þjóðinni að
gjöf — til eignar og ábúðar; tíminn og
sagan gátu haldið þar áfram að
spinna minningar allra þeirra sem að
garði ber um þjóð sem með fullri
reisn er þjóð meðal þjóða.
Fertugusta
aldursárið )
Þegar sá dagur nálgast á komandi
sumri að sólargangur verði lengstur,
kemst íslenska lýðveldið á fertugasta
aldursárið. Á þessum stutta tíma
þjóðarævinnar hefur meira áunnist
en bjartsýnustu menn mun hafa órað
fyrir. Líf fólksins í landinu hefur
tekið miklum — nær algjörum
stakkaskiptum. Leiðin hefur legið frá
fábrotnu líferni, aðhaldi og nýtni, til
ICELANDIC
CANADIAN FRÓN
Sc-ncl mcmbcrship fcc of
$5.00 singlc or $10.00 family
to
Posl Office Box No. 1
1H71 Portagc Avcnuc
Winnipcg, Man.
K3J 0H0
ótrúlegrar velmegunar þar sem lítt
hefur verið til sparað — kannske
stundum of lítið — til að gera lífið
sem þægilegast. Einangrun eylands-
ins norður við Dumbshaf hefur verið
svo rækilega rofin að við liggur að
landið sé komið í þjóðbraut þvera.
Allar helstu nýjungar heimsins berast
okkur með hraði. Sjálfir erú íslend-
ingar á ferð og flugi um víða veröld
og snúa margir hverjir heim ríkir af
fróðleik um líf og störf fjarlægra
þjóða. Af öllu því góða sem þessi tími
hefur gefið okkur til að auðga minn-
ingarnar ber ekki síst að meta það að
hann hefur blásið okkur þann anda
í bijóst að framlag okkar til vísinda,
lista, íþrótta og verkmenningar er
orðið þekkt og eftirsótt í mörgum
löndum. í svo ríkum mæli hefur okk-
ur tekist að koma því á framfæri
hversu skapandi fámenn þjóð okkar
er, að stórþjóðir eru hættar að leiða
hu^ann að því að við séum smáþjóð.
Ég tel mig geta trútt um talað, eftir
að hafa verið fulltrúi Islands sem
gestur meðal milljónaþjóða með list
og menningarauð mér til liðs. Frá lið-
nu ári er þáttaka Islands í menn-
ingarkynningu Norðurlanda í
Vesturheimi minnisverðust á þessu
sviði. Þótt ekki hafi verið hægt að
koma á framfæri nú nema broti af því
sem við hefðum viljað og talið verð-
Framh. á bls. 7
THEBESTPART
OFYOURTRIPTO
EUROPE COULD BE
ASTOPOVER
INICELAND.
STOPOVER TOURSINCLUDING HOTEL. TRANSFERS,
SIGHTSEEING ANO SOME MEALS ATINCREDIDLY
LOW PRICES. FR0MS48.1DAY; S72.2 DAYS:
S97.3DAYS;
Now you can take advantage of Icelandair’s inexpensive Stopover
Tours of Iceland while you’re taking advantage of our low fares from
New York to Europe.
Iceland is a land of volcanoes, giant waterfalls, Viking museums,
glaciers, geysers, concerts, art shows, duty-free shoppirfg and
hot-springs pools.
You’U get transfers between airport and Reykjavik, room at the
first-class Hotel Loftleidir or Hotel Esja, continental breakfast daily,
city sightseeing tour, and more. All at unbelievably low prices. From
$48,1 day; $72, 2 days; $97, 3 days. Discounts up to 50% on all
Icelandair domestic fares, car rental rates and Reykjavik Excursion
Tours also included.
So on yournext trip to Norway, Sweden, Denmark, Great Britain
or Luxembourg, stop in Iceland for a few days.
For further information see your travel agent or call 800/555-1212 for the toll
free Icelandair number in your area.
*Prices are per person, double occupancy and are in effect October 1 through
March31,1983 and subject to change.
ICELANDAIRJB
NOW MORE THAN EVER YOUR BE5T VALUE TO EUROPE