Lögberg-Heimskringla - 13.11.1992, Blaðsíða 8
8 • Lögberg-Heimskringla • Föstudagur 13. nóvember 1992
Reka fslenska
fiskverkunarstöð og
fiskbúð í hjarta Lúxemborgar
EKKI langt frá flugvellinum í Lúxemborg er fiskbúð og það sem einkennir hana frá
öðrum fiskbúðum I Lúxemborg er að nafnið FISKBÚÐ stendur á húsinu stórum stöf-
um, á íslensku og þar er hægt að kaupa íslenskan fisk í matinn, þorskalýsi og Ora-
baunir ef þannig stendur á. Þetta er alvöru íslensk fiskbúð, um það ber ilmurinn
líka vitni þegar inn er komið og þeir landar sem leið eiga um þetta svæði og eru
komnir með snert af heimþrá ættu endilega að reka inn nefið.
.Eigandinn heitir Páll Axelsson sem eftir
að hafa búið í Keflavík í 54 ár hleypti
heimdraganum og fluttist til Lúxemborgar.
Auk fískbúðarinnar rekur hann ásamt eigin-
konu sinni, Dagnýju Hermannsdóttur, físk-
verkunarstöðina Arctic Fish.
„Það hafði blundað með mér í nokkum
tíma að breyta til og þegar við hjónin vorum
hér á ferðalagi fyrir nokkrum árum líkaði
okkur vel við staðinn og fannst samfélagið
mátulega stórt í sniðum til að setjast að,“
segir Páll. Hann rak húsgagnaverslunina
Útskála í Reykjavík og Keflavík og var um
árabil með útgerð og fiskverkun frá Kefla-
vík. „Ég hafði töluverða reynslu af því að
flytja físk að heiman með beinu flugi og við
ákváðum þvPað halda okkur við það og,sett-
um á stofn þetta fyrirtæki héma, Arctic
físh.“
- Páll segir Lúxemborg líka hafa orðið fyrir
valinu því landið er miðsvæðis og flugsam-
göngur góðar frá íslandi. „Okkur líður ákaf-
lega vel héma og ég vona að við getum
eytt þeim starfsámm sem við eigum eftir
héma.“ Þau koma samt heim reglulega,
bæðí í viðskiptaerindum og svo era líka böm
og bamaböm heima á íslandi.
Páll segir að það sé mun auðveldara að
standa að atvinnurekstri í Lúxemborg en
heima.
„ísland er besta land í heimi, en landinu
er illa stjómað.
Rekstrarskilyrði era með ólíkum hætti hér
í Luxemburg og á
íslandi. Sjóðir og
fyrirgreiðsla úr þeim
þekkist ekki hér og
sé mönnum á annað
borð tekið í banka
sér viðkomandi við-
skiptabanki um alla
peningalega fyrir-
greiðslu hvort sem
er fyrir einstaklinga
eða fyrirtæki." Hann
tekur líka fram að
tekju- og eignaskatt-
ur sé verulega lægri
en þekkist á íslandi.
Páll og Dagný era
með 6-10 manns í
vinnu í fiskverkunar-
stöðinni og um
rekstur fískbúð-
arinnar sér franskur matreiðslumeistari sem
býr til hina gimilegustu fískrétti í fiskborð-
ið. Þar er því bæði hægt að fá keyptan físk
í soðið og tilbúna rétti beint í ofninn eða á
pönnuna. Páll verslar við ýmis fyrirtæki á
Islandi og selur meðal annars lýsi, Ora-nið-
ursuðuvörar og reyktan og grafínn lax.
„í fískverkunarstöðinni fáum við fískinn
með beinu flugi, umpökkum hann og ísum.
Páll Axelsson og Dagný Hermannsdóttir.
Fiskbúðin í Lúxemborg.
Það sem af er árínu hefur Páll keypt á fjórða hundrað tonn af
físki frá íslandi, en hann kaupir einnig físk frá öðrum löndum.
Nokkuð hefur verið um flökun fyrir fasta
aðila og eitthvað er saltað á hveiju ári.“
Páll segir síðan fískinn seldan til ýmissa
landa, Lúxemborgar, Spánar, Belgíu, Þýska-
lands, Frakklands og víðar. Viðskiptin hafa
undanfarið aukist mikið við Belga og Þjóð-
veija og það sem af er árinu hefur Páll flútt
inn á fjórða hundrað tonn af fiski frá ís-
landi en hann kaupir líka fískinn annars stað-
ar frá eins og Suður-Afríku og Kanada.
Hvað kostar síðan kílóið af ýsuflökum í
fískbúðinni hans í Lúxemborg?
„Fyrir fáeinum áram var fískur fæða fá-
tæka mannsins héma en í dag er þessu öfugt
farið og fískur er dýr. Þorskur og karfí selj-
ast best í fískbúðinni og kílóið út úr búðinni
hjá mér er um 390 frankar eða sem samsvar-
ar á áttunda hundrað krónum." ■
Guðbjörg R. Guðmundsdóttir
lcelandic Content
We came across this article in Morgunblaðið from
October 23rd. Iast. The article tclls of the business
venture of husband and wife, Páll Axelsson and
Dagný Hermannsdóttir from Keflavík. They moved to
Luxemburg not to long ago and operate a fish store
and fish processing plant therc for markets in
Luxemburg, Spain, Belgium, Germany, Francc and
elsewheré in Europe.
Over the doors of their store is written FISKBÚÐ
in a true Icelandic fashion, attracting attention by all
not least the number of Icelanders who live there.
The owners are very pleased with the way the opera-
tion is going, claiming that operating a business in
Luxemburg is made easier by lower taxes and banks
helpful hands in making all transactions smooth.
Búgir