Alþýðublaðið - 02.02.1961, Page 1
Hvað ertu að möndla
Mobútú ?
Margir spyrja að því nú
Geturðu ei liðið Lúmúm-
bú ?
Langar þig kannski í
hans £rú ?
Þjóðviljinn
í fyrradag: 7. síða,
HÚN gerist víðreist for-
síðustúlkan okkar í dag. —
Myndirnar eru af Öldu
Guðmundsdóttur, reykvísku
stúlkunni, sem sagði upp í
Landsbankanum í fyrravor
og réðist flugfreyja til Pan
American. Sú stærrf er tek-
fn í einni af afgreiðslum
félagsins, og Alda hjálpar
því að gera garðinn frægan
með því að bregða sér í ís-
lenzkan búning. Mfnni
myndin er tekin í flugvélar-
dyrum. íslenzka flugfreyjan,
sem vinnur hjá bandaríska
flugfélaginu, er búsett í New
York. Hér eru nokkrir stað-
ir, sem hún flýgur til:
London — París
Dusseldorf, — Tyrldand
íran — Carax-hi á Indlandi
Hongkong — Bangkok.
Önnur íslenzk stúlka, Val-
gerður Jónsdóttir, varð flug-
freyja hjá Pan American um
svipað leyti og Alda. Þær
leigja saman íbúð í New
York. Þegar síðast fréttfst,
höfðu þær sést nákvæmlega
einu sinni! Það var um jól-
in, þegar flugvél annarrar
tafðist vegna veðurs.
WWWWWWWWWWWWWWWWWWIWWWWWWWWMWWIMWWWWIHWW
MILLJONATAP
YJAMANNA
ALLT atvinnulíf má nú
heita lamað í Vestmanna
eyjum vegna verkfalla.
Bátarnir liggja bundnir
við bryggju ög mikil verð
mæti fara í súginn. Hefur
verkfallið 'þegar kostað
Vestmannaeyinga og þjóð
arbúið milljónir króna.
Um 60 bátar munu nú vera
tilbúnir til línuveiða í Vest-
mannaeyjum og bíða þess eins
að samkomulag náist til þess
að þeir geti hafið veiðar. Ef
reiknað er með 6 tonna afla á
lag hjá hverjum bát til jafnað-
ar nemur aflatjónið hjá hverj-
um bát 17—19 þús. krónum, að
vísu nokkuð mismunandi eftir
því hvernig aflinn mundi flokk
ast eftir gæðum. Verður afla-
tjónið hjá öllum 60 bátunum
þá rúm milljón á dag. í raun-
inni tapast þó að sjálfsögðu
mun meiri verðmæti, þar eð hér
er aðeins talað um það verð,
er útgerðin og sjómenn fá greitt
fyrir aflann. Síðan fer aflinn í
vinnslu og verður enn verðmæt
ari. í Vestmannaeyjum hafa
ekki aðeins sjómenn og útgerð
armenn tapað stórfé á verkföll-
unum, heldur einnig landverka
fólkið, sem hefði haft vinnu við
aflann. Eru menn í Vestmanna
eyjum nú orðnir mjög uggandi
um ástandið þar, linni verkföll
unum ekki fljótlega.
HLERAÐ
Blaðið hefur hleratl —*
AÐ Vestur-Þjóðverjinn
Frank Franken verði
fluttur lierm á -þýzka
eftirlitsskipinu á ís-
landsmiðuni, verði hann
framseldur.
„Tóbakið“
sameinað
,,áfenginu“
MWWWWWWWWIWIWW
42. árg. — Fimmtudagur 2. febrúar 1961 — 27. tbl.
FRUMVARP ti 1 laga um
sameinrng rekstrar Afengis-
verzlunar ríkisins og Tóbaks-
einkasölu ríkisins var lagt fram
á alþingi í gær. Gert er ráð
fyrir, að eftir sameininguna
skulu fyrirtækin' rekin undir
heitinu „Áfengis og tóbaks-
verzlun ríkisins,“ en rcikning-
um hvorrar tegundar reksturs
ins haldið aðskildum í bók-
lialdi.
Fjármálaráðherra skipar
framkvæmdastjóra Áfengis-
og tóbaksverzlunar ríkisins og
ákveður laun hans. Um leið og
lög þessi öðlast gildi eru lagð-
ar niður stöður forstjóra Á-
fengisverzlunar ríkisins og Tó-
bakseinkasölu ríkisins.
' Lög um einkasölu á áfengi,
ásamt síðari bi’eytingum, lög
um einkasölu á tóbaki, með
síðari breytingum, svo og lög
um einkasölu á eldspýtum og
vindlingapappír, gilda fram-
vegis eftir því, sem þau eiga
við með þeim breytingum, sem
leiða af þessum lögum.
Fjármálaráðherra getur með
reglugerð sett nánari reglur
um framkvæmd laganna.
Greinargerð:
„Á undanförnum árum hef-
ur oft verið um það rætt að
samejina í Sparnaðarskyni
rekstur Áfengisverzlunar rík-
isins og Tóbakseinkasölu rík-
isins. Hafa tvisvar sinnum ver
ið lögð frumvörp fyrir alþingi
um þetta efni, árið 1943 og ár
ið 1950, en í hvorugt skiptið
hlutu frumvörpin afgreiðslu.
Athugun, sem fram hefur
fram á vegum fjármálaráðu-
neytisins, hefur leitt í ljós, að
sameining á rekstri þessara
tveggja stofnana muni geta
leitt til verulegs sparnaðar,
bæði um mannahald og annan
reksturskostnað. Þykir því ein
sætt að gera hið fyrsta ráðstaf
anir til þess að úr sameining-
unni geti orðið.“
INNANLANDSFLUG gckk
saemilega í gær. Flogið var að
mestu eftir áætlun. Ein flug-
vél fór til Vestmannaeyja, en
þegar hún ætlaði að leggja af
stað þaðan aftur, kom í ljós,
brlun á öðrum hreyfli flugvél
arinnar. Vonir stóðu til að
haegt yrði að gera við vélina,
þannig, að hún kæmist til
Reykjavíkur þá um kvöldið,
í gærdag fór Hekla 'til Græn
lands eftir að hafa verið hér í
nokkurra daga skoðun. Ný á-
höfn fór með vélinni. Sólfaxr
mun fara til Grænlands á
föstudag.
Grímur Thoraren-
sen ráðinn
GRÍMUR Thorarensen, son-
ur Egils Thorarensen, var ráð-
inn í gærdag kaupfélagsstjóri
við Kaupfélag Árnesinga.
Grímur var ráðinn á fundi
stjórnar kaupfélagsins, sem
naldrnn var í gær. Hann hefur
starfað við kaupfélagið um
margra ára skeið og gegnt
starfi kaupfélagsstjóra í for-
föllum föður síns.