Alþýðublaðið - 04.02.1961, Blaðsíða 14
IHesteyrarkirkja
Framhald af 4. síðu.
bjarga helgidómi Hesteyr-
inga. — Er þetta nú vel at-
hugað? Nei, ég held ekki. —
Fyrst og fremst er Súðavík
hnignandi þorp, fólkinu fækk
ar þar eins og víða annars
staðar og gæti hugsast að eft-
ir áratug yrði sömu sögu að
segja um Súðavík og Hest-
eyri, að þar yrði ekki búsett
fólk. — Til hvers var þá ver-
ið að rífa niður Hesteyrar-
kirkju til að byggja hana upp
í Súðavík? Flestum aðilum
aðeins til leiðinda. Svæ getur
líka verið, að fólk eigi eftir
að flytja til Hesteyrar til að
búa þar. Þetta er það, sem
enginn veit nú. Það er enginn
svo lærður að hann geti vitað
og séð hina ókomnu framtíð.
Það eru heldur ekki svo mörg
ár síðan fólk fluttist þaðan,
nánar tiltekið um átta ár. —
Hvers vegna mátti kirkjan
ekki standa þar áfram, í það
minnsta þar til hægt væri að
segja, að Hestevri væri gjör-
samlega eyðistaður. — Hest-
eyri er komin í eyði á þann
hátt, að þar er ekki starfandi
sókn og sveitarfélag, en helm
ingurinn af húsum þorpsins
eru þar ennþá. og margt
fleira hægt að segja í sam-
bandi við það. Meðan svona
er skyldu menn ætla, að Hest-
eyrarkirkja ætti fullan rétt
til að standa og ÞANN rétt
áttu fyrrver^ndi sóknarbörn
Hesteyrarsóknar tvímæla-
laust, að þeim hefði verið
sýnd sú kurteisi, að við þá
hefði verið talað, áður en
verknaðurinn var framinn.
Ég gat ekki trúað því í
fyrstu, þegar mér var sagt
það, að Hesteyrarkirkja væri
farin. Ég hélt, að það gæti
aldrei komið fyrir, að 'hún
fengi ekki að vera á sínum
stað þar sem hún var byggð.
En það sannast hér hið gamla
máltæki, að „fátt er það, sem
fulltreysta má“.
Það hefur komið fratn, að
þetta hefur verið gjört að
fengnu áliti prófastsins á ísa-
firði. — Með öðrum orðum
hefði HANN álitið, að ekki
ætti að taka Hesteyrarkirkju,
]oá hefði hún ekki verið tek-
in.
Einn maður getur gjört
mikið, hvort sem er til hins
verra eða betra. En þarna
hefur það orðið til hins
verra. Ég álít samt að þessi
kjörni drottins þjónn hafi
ekki gjört það af mannvonzku
eða af heimsku, heldur virð-
ist mér þar fljótfærni og fyr-
irhyggjuleysi 'hafa ráðið, án
nokkurrar umhugsunar um
sársauka og leiðindi viðkom-
andi aðila. Það getur öllum
mönnum yfirsést í hvaða
stöðu, sem þeir eru, en þá er
að bæta og græða, og væri
óskandi að okkur sóknar-
börnum Hesteyrarkirkju
verði bættur og græddur sárs
auki okkar, þar sem okkur
hefur verið misboðið.
Minningar minar eru marg-
ar um Hesteyrarkirkju. Ég
minnist þess fyrst, að for-
eldrar mínir leiddu mig með
sér til messu og £g sem lítið
smábarn varð svo hrifin af
prestinum í öllum sínum
skrúða, ljósadýrðinni og
stóru fallegu myndinni yfir
altarinu, þar sem Jesús geng
ur á vatninu til móts við
lærisveina sína í bátnum. Ég
varð hrifin sem smábarn, einn
ig sem fullorðin kona og ætíð
síðan. Hvar er nú þetta dá-
samlega, ófáanlega málverk,
altaristaflan? Mér finnst
synd að taka svona listaverk
úr sínu Guðshúsi, nema því
aðeins að tryggð sé varð-
veizla þess. Það hefur verið
spurt um altaristöfluna, en
sá sem flutti hana á brott,
hefur ekki svarað ennþá. Ör-
uggasti staðurinn hefði verið
á sínum rétta stað í örmum
sinnar móður, Hesteyrar-
kirkju.
Ég man eftir fermingar-
degi mínum, fögrum sólrík-
um maídegi. Það var fagur
og mikill dagur, þegar ég og
fleiri börn stóðum fyrir altari
drottins og unnum okkar
skírnarheit. Hin fagra altar-
istafla blasti þá við okkur, og
kirkjan var yfirfull af fólki
svo að sumir urðu frá að
hverfa.
Ég sé fyrir mér aðfanga-
dagskvöldin og gamlárs-
kvöldin, þegar fólk kom lang
ar leiðir til aftansöngs, og
allir í þorpinu fóru í kirkju.
Það er yndislegt að rifja
upp minningar um klukkna-
hringingar, sem hljómuðu
yfir þorpið í heiðskíru veðri,
og fjörðurinn fagri, tindrandi
stjörnur og norðurljós og mán
inn lýstu upp himinhvolfið
en jörð snævi þakin.
Einnig á sumrin kom fólk
langar leiðir til kirkju og
mér er minnisstætt, þegar
frændur okkar Norðmenn sátu
með sálmabækur sínar og
Biblíur við messugjörð.
Þetta er aðeins lítið brot
af minningunum, ég er held-
ur ekki ein um þær. Allir úr
byggðalaginu eiga sínar
minningar um kirkjuna okk-
ar. Þær getur enginn tekið
frá mér eða öðrum.
Það fyrsta, sem blasti við,
þegar komið var til Hesteyr-
ar hvort heldur frá sjó eða
landi var kirkjan, sem gnæfði
yfir allt sem viti.
Kirkjan blasir ekki lengur
við mér, nema í minningum
og dagdraumum. — Lesandi
góður, sem lest þetta, viltu
sem snöggvast fylgjast með
mér í minningunum og að
lokum að brotnum rústum
Hesteyrarkirkju.
Ég held að kirkja, sem er
vígt Guðshús hvar sem hún
er, þótt sé á eyðifjalli eða
eyðiey verði alltaf til bless-
unar. Það er hulið afl þar að
baki, sem við sjáum ekki.
Ég held því fram, að Hest-
14 4. febr. 1961 —• Alþýðublaðið
eyrarkirkja hefði orðið ein-
hverjum til blessunar þótt
hún hefði staðið áfram á sín-
um stað.
Hesteyrarkirkja er farin.
— Fátt er það, sem fulltreysta
má.
Soffía Vagnsdóttir,
frá Hesteyri.
Áfengismál
Framhald af 2. síðu.
Stefna flokksins var áður
skýr og afdráttaríaus í þess
um efnurn, eindreginn stuðn
ingur við bindindi í land-
inu, og forsvarsmenn hans cg
verkalýðshreyfingarinnar hin
ir ötulustu talsmenn gegn á-
fengisbölinu á opinberum
vettvangi.
Alþýðu manna stafar í dag
sama hættan af áfenginu og
áður. Því verður hagsmun-
um alþýðunnar og þjóðarinn
ar bezt þjónað, að allir ábyi'g
ir menn vinni hver á sínum
vettvangi að útrýmingu á-
fengisins úr íslenzku þjóð-
lífi. Megi sú viðreisn sem
fyrst takast, þjóðfélaginu til
ómetanlegs gagns.
Hafnarfirði, 29. janúar 1961.
Arni Gunnlaugsso«.
ÍÞRÓTTIR
Frgmhald af 10. síðu.
Vogelsang, Sviss 7.024
Freudenthal, USA 7.021
Anderson, USA 7.018
Timme, Noregur 6.992
Storozhenko, Rússland 6.981
Lagutin, Rússland 6.950
YVaddelI, USA 6.945
Möhring, Þýzkaland 6.932
Mclntire, USA 6.926
Lobanov, Rússland 6.926
Aun, Rússland 6.919
Brodnik, Júgóslavía 6.918
Frá Ferðafé-
lagi fslands
Ferðafélag íslands
heldur Kjalarkvöldvöku í
Sjálfstæðishúsinu þriðjudag-
inn 7. þ.m. Húsið opnað kl 8.
FUNDAREFNI-
1. Jón Eyiþórsson veðurfræð-
ingur talar um Kjöl og
Kjalveg cg sýnir litskugga-
■myndir.
2. Kvæðalestur.
3. Jóhannes úr Kötlum: Minn
ingar frá Kili.
4. Hallgrímur Jónasson kenn-
ari: Vísur og frásagnir.
5. Myndagetraun, verðlaun
veitt.
6. Dans til kl. 24.
(Ath. breyttan skemmtana-
tíma.) Aðgöngumiðar seldir í
Bókaverzlunum Sigfúsar Ey.
mundssonar og ísafoldar. —
Verð kr. 35,00.
laiigardagur
SLYSAVARÐSTOFAN er OJV-
ln allan sólarhringinn. —
Læknavörður fyrir vitjanir
er á sama stað kl. 18—8.
Skipaútgerð
ríkisins:
Hekla er á Aust-
fjörðum á suður-
leið, Esja er vænt
anleg til Rvk í
kvöld að vestan
úr hringferð. Herjólfur fer
frá Vestmannaeyjum kl. 22 í
kvöld til Rvk. Þyrill fór frá
Rvk 2. þ. m. áleiðis til Man-
chester. Skjaldbreið fór frá
Rvk í gær vestur um land til
Akureyrar. Herðubreið fer
frá Rvk á hádegi í dag vestur
um land í hringferð.
MESSUR
Dómkirkjan: Messað kl. 11
f. h. Séra Jón Auðuns. —
Messa kl. 5. Séra Óskar J.
Þorláksson. Barnasamkoma
í Tjarnarbíói. Séra Óskar
J. Þorláksson.
Fríkirkjan: Messað kl. 2. Séra
Jón Kr. ísfeld prédikar. —
Séra Þorsteinn Björnsson.
Hallgrímsprestakall: Barna-
guðsþjónusta kl. 10 f.h. —
Messa kl. 11 f.h. Séra Sig-
urjón Árnason. Messa kl. 2
e. h. Séra Bragi Friðriks-
son.
Langholtsprestakall: Barna-
guðsþjónusta í safnaðar-
heimilinu við Sólheima kl.
10,30 og messa á sama stað
kl. 2. — Séra Árelíus Ní-
elsson.
Neskirkja: — Barnasamkoma
kl. 10,30 og almenn guðs-
þjónusta kl. 2. Séra Jón
Thorarensen.
Háteigsprestakall: Barnasam-
koma í hátíðasal Sjómanna
skóalns kl. 10,30. Messað
kl. 2 (Bibliudagurinn). —
Séra Jón Þorvarðsson.
Laugarneskirkja: Messað kl.
2 e. h. (Biblíudagurinn). —
Barnaguðsþjónusta kl. 10,
15 f.h. Séra Garðar Svav-
arsson.
Kópavogssókn: Messa í Kópa
vogsskóla kl. 2. Barnasam-
-koma kl. 10,30 f.h. í félags-
heimilinu. Séra Gunnar
Árnason.
Fríkirkjan í Hafnarfirði: —
Messað kl. 2. Séra Kristinn
Stefánsson.
Bessastaðir: Messa kl. 2. Séra
Garðar Þorsteinsson. —
Börn, sem eiga að fermast
í Hafnarfjarðarkirkju ár
1962 eru beðin að koma til
viðtals í kirkjunni í dag,
(laugardag) kl. 2. — Séra
Garðar Þorsteinsson.
Aðventkirkjan: Séra C. D.
Watson frá London talar kl.
5 síðd. á morgun, og sýnir
litskuggamyndir frá Afríku.
— Keflavík: Séra C. D.
Watson frá London talar kl.
20,30 á morgun í Tjarnar-
lundi, og sýnir litskugga-
myndir frá Afríku.
Hafnarfjörður: Kvenfélag
Fríkirkjusafnaðarins held-
ur aðalfund sinn þriðjudags
kvöld kl. 8,30 í Alþýðuhús-
inu. Konur mætið vel.
Dansk kvindeklub: — Aðal-
fundur verður haldinn
þriðjudaginn 7. febrúar í
Grófin 1 kl. 8,30 e. h.
jmMjjja
•ÍMÍ'.í Flugfélag
íslands h.f.:
........ Millilandaflug:
|| g Hrímfaxi fer
bæmá tilOsloKmh.
og Hamborgar
kl. 08,30 í dag.
Væntanleg aft'
ur til Rvk kl.
15,50 á morg-
un. — Innan-
landsflug: f
dag er áætlað að fljúga til
Akureyrar (2 ferðir), Egils-
staða, Húsavíkur, ísafjarðar,
jS§SsfíSí&?x-S:
Sauðárkróks og Vestmanna-
eyja. — Á morgun er áætlað
að fljúga til Akureyrar og
Vestmannaeyja.
Loftleiðir, h.f.:
Leifur Eiríksson er vænt-
anlegur frá Helsingfors, K-
mh. og Oslo kl. 21,30. Fer til
New York kl. 23,00.
Minningarspjöld í Minningar-
sjóði dr. Þorkels Jóhanne9-
sonar fást í dag kl. 1-5 1
bókasölu stúdenta í Háskól-
anum, sími 15959 og á að-
alskrifstofu Happdræítia
Háskóla íslands í Tjarnar-
götu 4, símj 14365, og auk
þess kl. 9-1 í Bókaverzlun
Sigfúsar Eymundssonar og
hjá Menningarsjóði, Hverf-
isgötu 21.
Laugardagur
4. febrúar:
12,50 Óskalög
sjúklinga. 14,30
Laugardagslög
in. 15,20 Skák-
þát'tur. 16,05
Bridgeþáttur —
16,30 Dans
kennsla. 17,00
Lög unga fólks-
ins. 18,00 Út-
varpssaga barn-
anna: „Átta
börn og amma
þeirra í skóginum. 10. lestur.
18,30 Tómstundaþáttur barna
og unglinga. 20,00 Leikrit: —
„Sverð og bagall“ eftir Indr-
iða Einarsson. Leikstj.: Hild-
ur Kalman. 22,10 Passíusálm-
ar (6). 22,20 Danslög. 24,00
Dagskrárlok.