Alþýðublaðið - 02.07.1961, Qupperneq 4
FALSARAR kommúnista
hafa verið mjög athafnasam-
ir á undanförnum árum og
virðist ekki draga neitt úr að-
gerðum þeirra.Þeir framleiða
hvers kyns skjöl og bréf, ailt
frá ástabréfum upp í hin
leynilegustu ’top secret’ skjöl.
Fyrir skemmstu kom það fram
í amerískri þingnefnd, að
leyniþjónusta Bandaríkjanna,
CIA, hefði fundið 34 fölsuð
skjöl á undanförnum fjórum
árum, sem vafalaust er aðeins
örlítill hluti þeirra ,skjala”
sem fölsuð hafa verið, en
kann ao vera megnið af svo
kölluðum leyndarskjölum. —
Fram til þessa hefur obbinn
af ”skjöluin” þessum verið
”amerískur”, en nú fyrir
skemmstu þurfti brezka
sljórnin að mótmæla þessum
fölsunum, er fyrsta fölsun á
brezku skjali kom fram í dags
ljósið.
Skjal þetta var ”leyndar-
skjal frá brezku ríkisstjórn-
inni” um Afríku, sem átíi að
sýna hvernig brezka verka-
lýðshreyíingin, undir yfirum
sjón brezku stjórnarinnar,
væri að reyna að ná yfirráð-
um yfir verkalýðshreyfingu
Afríku og reyndi jafnframt að
útiloka Bandaríkjamenn frá
áhrifum þar. Afritum af
skjali þessu var dreift á verka
lýðsráðstefnunni { Casa-
blanca 25. maí ,sl., eftir að
jarðvegurinn hafði verið und-
irbúinn með grein í rússn-
eska blaðinu Trud daginn áð-
ur.
Eftir því sem brezk blöð
segja, mun hver Breti hafa
getag séð þegar í stað, að
skjalið gat með engu móti ver
ið brezkt stjórnarskjal og
ekki einu sinni skrifað af
Breta. Hins vegar er enginn
efi á því, að skjalið hefur ver
ið nógu vel gert til þess að
blekkja venjulega Afríku-
menn, ekki sízt vegna þess, að
þeir eru alltaf reiðubúnir til
að trúa öllu illu um nýlendu-
veldin. Og það hefur litla
þýðingu að neita slíkum ásök-
unum eftir á.
Þetta falsaða ”brezka”
skjal er gott dsemi um hinn
tvöfalda tilgang slíkra skjala.
Annar er ,sá að skapa grun-
semdir, hvort sem það er í
garð fyrrverandi nýlendu-
velda í Afríku eða Banda-
ríkjamanna í Japan eða Ad-
enauers í Þýzkalandi, og hinn
er sá, að ala á grunsemdum
bandamanna í vestri hvers í
annars garð. Það skal tekið
fram, að í V-Þýzkalandi mið-
ar herferð þessi fyrst og
fremst að því að grafa undan
siðferðisþreki manna, eink-
um í hernum, og kemur mest
af slíkum áróðri gegnum V-
Berlín, eða beinið í hálsi
Krústjovs.
Nokkur þessara skjala hafa
áður komið við fréttir og því
allvel þekkt. Til dæmis má
taka skjalið, ,sem átti að vera
frá Dr. Frank Berry, fyrrver
andi aðstoðarvarnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, til Mc-
Elroy, er þá var varnarmála-
ráðherra, þar sem sagði, að
flestir flugmenn og navígator
ar ameríska sprengjuflugvéla
flotans væru hættulega tauga
veiklaðir. Þá kom fram í dags
ljósið fyrir um ári bréf, sem
átti að vera frá ameríska
sendiráðinu í Tokíó til stjórn-
arinnar í Washington, þar
sem mælt var með því að U-2
flugvélarnar, sem fluttar
höfðu verið frá Japan, skyldu
fluttar þangað aftur með
leynd. Þessi tvö dæmi eru
góð um eina tegund slíkra
falsana, þ. e. a. s. tilraun til
að nota á hverjum tíma eitt-
hvert alriði, sem deilum veld
ur, til að skapa meirj úlfð..
Ef við snúum okkur hins
vegar að Þýzkalandi, þá sjáum
við aðra hlið á þessari her-
ferð. Þar er ekki um að ræða
einstök skjöl, eins og fyrr get
ur um, heldur stöðugt flóð
hvers kyns falsaðra gagna. —
V-Þjóðverjar telja, að um 3
milljónir eintaka af hvers
konar bæklingum og fölsuð-
um skjölum flæði á mánuoi
hverjum inn í V-Þýzkaland,
aðallega gegnum 'V-Berlín, —
eins og fyrr getur. Meðal
annars er þar um að ræða
fölsuð herskyldubréf um að
menn séu lausir úr herþjón-
ustu, bréf frá veslur-þýzka
hernum, fölsuð skjöl og skrár,
bréf frá aðalstöðvum NATO
og ástabréf, rituð á ilmandi
bréfsefni, sem miða að því,
að koma af stað heimiliserj-
um. Þá má líka geta hinna
miklu bréfaskrifta, sem sann-
anlega fara fram fyrir at-
beina ”flokksins,” t. d. til að
mótmæla því, að vestur-þýzki
herinn fái atómvopn.
Lítill vafi er á því, að bréfa
herferðir þessar og falsanir á
skjölum eru skipulagðar í
smáatriðum og taldar borga
sig. Það er þó sennilegra, að
ætlunin sé fremur sú, að koma
vesturveldunum í klípu en að
talið sé, að beinn árangur sé
mjög mikill. Þarna liggur sjálf
sagt á bak við sú eldgamla
hugsun rógberans, að eitthvað
loði alltaf við, ef nógu er log
ið. Það er alltaf erfiðara að
bera slíkt af sér en koma sög
unum á kreik. Einn Ijós
punktur virðist þó vera í
þessu fyrir vesturveldin. Því
oftar sem kommúnistar kalla
”úlfur, úlfur” því erfiðara
verður fyrir þá að nota ófölsuð
skjöl, er illa gætu komið sér,
ef þeir einhvern tíma kæmust
yfir þau. En allt um það tala
baráttuaðferoirnar sínu máli.
NÚTÍMAMAÐURINN les gíf
urlega mikið, blöð, tímarit,
bækur, en talið er, að almennt
lesi menn allmiklu hægar en
þeim er mögulegt, Bandarískir
sérfræðingar segja, að með 30
'klukkutíma æfingu geti hver
og einn aukið leshraða sinn um
helming. Hér er átt við þá sem
eru meðalgreindir, og ráða yfir
talsverðum orðaforða. Sumir
kennarar segja, að til séu
menn, sem lesi allt að 15.000
orð á mínútu, en það er
sennilega á misskilningi byggt.
En á því er enginn vafi, að allt
venjulegt fólk getur stóraukið
leshraða sinn.
Hér eru nokkrar leiðbeining
Framhald á 10 síðu.
HMMMWMmWMMMMMUMW
Stóri köii-
urinn
inn upp
Nei, það er ekki verið
að temja tígrisdýrið. Við
það noía þeir svipur. Bezt
gætum við trúað að nú
ætti að fara að skera það
upp við magasári. Þeir
eru sem sagt að svæfa
það. Og það er hreint ekki
heiglum hent, að svæfa
tigrisdýr. Þetta dýr er í
dýragarði í Þýzkalandi,
en það veiktisí skyndi-
lega af innvortismeini, og
ekki um anuað að gera
en skera það upp. Fyrst
komu þeir deyfandi
sprautu í annan framfót
þess, en síðan settu þeir
þennan svefnúðara upp í
ltjaft þess, en hann er all
voldugur og rígbundinn
eins og myndin sýnir.
Ekki er annað vitað en
uppskurðurinn hafj tek-
izt vel og tigrisdýrið sé
nú við beztu hcilsu. Hitt
er annað mál, að það mun
næsta óvcnjulegt að villi
dýr séu lögð á skurðar-
borðið.
4 2. júlí 1961
Alþýðublaðið