Alþýðublaðið - 27.10.1961, Qupperneq 2
I Œitstjórar: Gisii J. Ástþórsson (áb.) og Benedikt Gröndal. — Fulltrúi rit-
^ «tjómar: indriði G. Þorsteinsson. — Fréttastjóri: Björgvin Guðmundsson. —
' Bhnar: 14 900 — - * 902 — 14 903. Auglýsingasími 14 906. — Aðsetur: Alþýöu-
\ 4búsið. — Prentsmiðja AlþýÖublaðsins Hverfisgötu 8—10. — Áskriftargjald
j fc. 55.0C í mánuði. í lausasölu kr. 3.00 eint. Útgefandi: Alþýðuflokkurinn. —
Í! Framkvæmdastjóri Sverrir Kjartansson.
. Hann vill reyna aftur
RÉTT ER >að unna Lúðvík Jósefssyni þess sann
rnælis, að hann taldi í útvarpsræðu isinni frá al-
: þingi upp lallmörg stefnumál, sem 'hann telur, að
)tiý „vinstristjórn44 ætti að beita sér fyrir, ef svo
álíklega tækist til, að slík stjórn kæmist á laggirn
, ar. Hins vegar verður ekki hjá því komizt að í~
‘ fcuga, hversu mikinn áhuga Lúðvík hafði á þess
• nuim sömu stefnumálum, þegar hann var sjálfur
. ráðherra fyrir skömmu síðan. Hér fara á eft-
1 íir nokkur þessara mála:
: 1. Herinn úr landi og hlutleysi íslands. — Lúðvík
nefndi eklci orði í 2 ár, sem hann sat á ráðherra
stól, að herinn þyrfti að fara eða ísland að verða
hlutlaust.
■ 2. Vinsamlegt samstarf við launastéttirnar um
lausn efnahagsmála. — Var ekki slíkt samstarf
í tíð vinstri stjórnarinnar — og þó skildi hún
við efnahagsmálin í öngþveiti?
3. Stórfyrirtæki í opinberri eigu. — Þegar Lúðvík
var ráðherra, fór lítið fyrir tillögum hans um
j þjóðnýtt fyrirtæki.
4. Landhelgin sé endurheimt fyrir íslendinga eina.
— Hiin hefur verið stækkuð frá því Lúðvík
skildi við hana.
• 3. Kaup vinnustéttanna sé hækkað. — 1956 sagði
Lúðvík, þá ráðherra, að lögbinding á kaup væri
• beinlínis kjarabót fyrir alþýðuna.
; G. Rætt fyrirkomulag afurðasölunnar. — Af hverju
kom Lúðvík því ekki á, þegar hann var sjávar
| útvegsmálaráðherra? Þá gerði hann ekkert,
nema setja eina nefnd til að koma kommum á
ríkisjötuna.
. Nýtt ríkisvátryggingakerfi fiskiskipa. — Af
hverju kom Lúðvík því ekki á, þegar hann var
sjávarútvegsmálaráðherra? Lét hann ekki ríkið
oorga inestallar tryggingar útgerðarmanna —
1 með isvindli og spillingu?
i 8. Lækkun flutningsgjalda. — Þegar Lúðvík stóð
að bjargráðunum, sem voru dulbúin gengislækk
un hjá vinstri stjórninni, HÆKKUÐU farm
gjöld verulega.
9. Nýtt skipulag á sölu og dreifingu olíu. — Þegar
Lúðvík 'var ráðherra lét hann ekki aðeins olíufé
j lögin í friði, heldur tók að borga niður olíu úr
ríkissjóði fyrir þau. Það hefur enginn annar
ráðherra gert fyrr né síðar.
! '16. Verðlagseftirlit og lækkun milliliðagróða. —
Þegar Lúðvík var viðskiptamálaráðherra, leyfði
hann stórfellda HÆKKUN á álagningu, sem
allri var velt yfir á neytendur.
Þannig er hin nýja stefna, og þannig fram
ikvæmdi Lúðvík hana, þegar hann hafði vald til.
Er ástæða til að gefa þessum manni annað tæki
færi?
Kristján Guð- !
mundsson, Eyrar-
bakka, látinn
EINN af elztu og kunnustu
brautryðjendum verkalýðs-
hreyfingarlnnar og Alþýðu-
flokksins, Kristján Guðmunds-
son á Eyrarbakka, lézt í fyrri-
nótt í svefni að heimili sínu á
Eyrarbrkka, Krlstján gekk í
verkamannafé'.agið Báran þeg-
ar við stofnuri þess 1904, en
það félag var ein af deildum
Bárufélaganna, sem stofnuð
voru hér í Reykjavík af sjó-
mönnum. Upp frá því var ICrist
ján ótrauður félagi og baráttu
maður. Hann átti oft sæti í
stjórn Bárunnar og gegndi
lengi formannsstörfum f félag-
inu. Hann sat flest þing Al-
þýðusambandsms og A'þýðu-
flokksins. Kristjáns Guðmunds
sonar verður nánar getið hér í
blaðinu síðar.
Garðar Gíslason h.f.
Hverfisgötu 4 — 6. Bifreiðadeild.
„AUSTIN SJÖ“
STÆRSTA LITLA FJÖLSKYLDU-
BIFREIÐIN ER KOMIN. — LÍTIÐ INN.
HANNES
Á HORNINU
Í? Nýr vegur við Ölfusár
brú.
i? Um áburðarverk-
smiðjuna og áburðar-
söluna.
Bréf frá bónda.
'jíf Kennarar kynna sig
ekki fyrir nemendum.
NÝR VEGUR hefur verið lagð
ur að Ölfusárbrú norðanverðri,
og gaml; vegurinn með öllum
sínum hlykkjum og beygjum
lagður- niður. Nýi vegurinn er
hár og breiður og hinn myndar-
legasti. Hann hefur verið lagð-
ur svo að segja á árbakkann, og
beljar áin straumþung rétt fyr-
ir neðan. Þar er iðan hörð og
fáum undankomu auðið ef í fer.
Vonandi verður örugglega geng
'ð frá vegbrúninni svo að ekki
hljótist slys af.
GAMALL bóndi skrLfar: —
,,Hvað er verið að rannsaka?
Lítil rammagrein með þessari
fyrirsögn birtist í Tímanum í
gær 21/10-’61 Það kvað vera
nokkurt umtal um það utan
Áburðarverksmiðjunnar og inn-
an að fyrirtækinu sé ekki sem
bezt stjórnað.
EINN kunnasti verkfræðing-
ur verksmiðjunnar, kvað hafa
gefið verksmiðjustjórninni
skýrslu um rekstur verksmiðj-
unnar á s. 1. aðalfundi, en þó
víst ekki drepið á nema það
stærsta, enn nóg til þess, að
kosin var nefnd til að rannsaka
málið, meira hefur ekki heyrzt.
Maður hefur lesið x blöðum að
í ráði sé að Áburðarsala ríkis-
ins verði lögð undir Áburðar-
verksmiðjuna og landbúnaðar-
ráðhe^ra jhafi allaraiðu borið
fram frumvarp í því sky.ni é yf-
irstandandi þingi.
HÉR VIRÐIST eitthvað ekki
sem bezt í pottinn búið. Því að
vera að leggja niður það eina
ríkisfyrirtæki , sem að allra
dómi hefur verið vel stjórnað
frá byrjun og gefa í hendur fyr
irtæki, sem hefur orð á sér fyr-
ir að hafa verið miður vel
stjórnað frá byrjun, er fráleitt.
MÉR FINNST það ætti að
gegnumlýsa betur stjórn Áburð-
arverksmiðjunnar, áður en horf
ið verður að því ráði að fá henni
áburðarinnflutning í hendur. ■—
V.ð tölum mikið um frjálsa
verzlun og sem minnst innflutn
ingshöft o. s. frv. Ef ríkið vill
leggja áburðarsöluna nlður, þá
liggur beinast við að gefa inn-
flutning á áburði frjálsan, það<
er í samræmi við stefnu núver-
andi ríkisstjórnar.
a
KÆRI V.S.V.: Ég þakka þér
fyr r þína góðu, smáu pistla, þó
þeir stundum komi við suma, er
það ekki nema eins og það á
að vera, enn sérstaklega þakka
ég þér ritdóminn um Stromp-
leikinn hans Laxness, liann var
mjög saungjarn og sá bezti, sem
ég hef séð, það er svo sem eng-
in furða þó sumir leggi kollhúf-
ur, þegar þeir sjá sjálfa sig, þar
sem ekkert er ekta, jafnvel ekki
hundurinn eða blómin.“
ÁHORFANDI skrifar: ,’Ég hef
haft spurnij- af tveimi skólum —
annar er framhaldsskóli, hinn
sérskóli í Reykjavík. Við báða
þessa skóla starfa margir kenn-
arar. Tveir drengir — sinn ®
hvorum skólanum, hafa sagt
þeim, er þetta ritar, að aðeins
einn kennari í hvorum skólanumi
hafi greint nafn sitt í fyrstu
kennslustund í bekknum, aðrir
kennarar ekki. Verða þá krakk-
arnir að fara krókaleiðir t.f aS
vita nöfn kennara sinna, en upp
burðarlítil börn fá fyrst upp
nöfn kennaranna seint og siðar-
meir.
í
ÞETTA er ósiður hjá kcnnur-
Um eða hirðuleysi. Ættu skóla-
stjórar allra skóla að gefa
kennurum fyrirmæli um, að
þeir í byrjun hvers skólaára
kynni sig fyrir nýjum nemend-
um. Þetta er ekki veigamikiS
atriði, en þó full nauðsyn, þv£
það e'r leiðinlegt fyrir börnin,
eða unglingana að vlta ekki
nafn á kennurum sinum“.
Ilannes á horninu.
Jbrjár bækur
frá ísafold
ÍSAFOLI) sendi frá sér 3
bækur í gær, ’Gullæðið' eftit
Jack Londoxi, ’Næturgestir',
skáldsaga eftir Sigurð A.
Magnússon, og ’lslenzk frí-
merki’.
’Næturgestir’ er 6. bók Sig-
urðar og fyrsla skáldsaga
hans. Hún er 167 síður.
’Gullæðið’ er 215 síður; —-
Geir Jónasson bjó til prent-
unar. Þýðandi er ekki nefnd-
ur, en sagan birlist fyrst í
Vísi árið 1917.
’íslenzk frímerki’ er mynd-
skreytt frímerkjaskrá, sená
Sigurður H. Þorsteinsson hef-
ur tekið saman. Þetta et
fimmta úlgáfa. Lýsingar merkj
anna eru á íslenzku og ensku.
g 27. okt. 1961 — Alþýðublaðið